Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2000, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000
9
Utlönd
BIFREIÐASTILLINGAR
NICOLAI
Fæst í öllum 11-11-verslunum.
Handhæg skafa til a& hreinsa
matarafganga og annað upp úr
eidhúsvasknum.
Má þvo í uppþvottavél.
Mótmæli gegn mengun
Félagar í Greenpeace umhverfissamtökunum komu fyrir frauðplastlíkönum af dauðum fiski í ánni Riachuelo,
menguðustu á Argentínu, í gær. Grænfriðungar beina um þessar mundir sjónum sínum að mengun í Suður-Ameríku
og þykir Riachueto kjörin til að benda á alvarlegt ástand mengunarmáia. Mikið er af eiturefnum í setlögum í ánni.
Barist gegn alnærni
Risastór rauður borði var settur á
hús Alþjóðabankans í gær til að
minna á baráttuna gegn alnæmi.
Alnæmisfaraldur
yfirvofandi í
Austur-Evrópu
Alnæmi smitast miklu hraðar en
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin gerði
ráð fyrir fyrir 10 árum. Þetta kemur
fram í nýrri skýrslu Sameinuðu
þjóðanna. í lok þessa árs er talið að
36,1 milljón manna sé með HIV-
veiruna eða með alnæmi. Það eru 50
prósentum íleiri en spáð var árið
1991.
Á síðastliðnu ári fengu 5,3
milljónir manna alnæmi. Alls
staðar, nema í löndum fyrir sunnan
Sahara í Afríku, veikjast fleiri
karlar en konur.
Ástandið er mjög alvarlegt I
Austur- og Mið-Evrópu, einkum í
Rússlandi og i Eistlandi. Þar er þó
enn hægt að koma í veg fyrir
hörmungar.
Danskur starfsmaður Sameinuðu
þjóðanna, Anita Alban, bendir á að
vegna fjölda vændiskvenna frá
Austur-Evrópu á Norðurlöndum og
í öðrum Vestur-Evrópulöndum sé
ástæða til að vera á verði. Faraldur
geti verið yfirvofandi í Evrópu.
Kúariöuóttinn í löndum Evrópusambandsins:
Vísindamenn úrskurða um
réttmæti banns á nautakjöti
Gæðarúm á
góðu verði
Ragnar Rjörnsson ehf.
Dalshraunl 6, Hafnarfirði, sími 555 0397, fax 565 1740
Fiskeldi í Færeyj-
um mengar firði
Komið hefur í ljós að fiskeldið,
einhver mikilvægasti atvinnuvegur
Færeyinga, veldur sums staðar mik-
illi mengun í fjörðum og sundum
eyjanna.
„Á mörgum stöðum þar sem fisk-
eldi er stundað er gengið svo nærri
umhverfínu að hætta verður að
nýta svæðin um leið og búið er að
slátra fískinum sem er þar nú,“ seg-
ir í skýrslu sem norskt fyrirtæki
hefur gert fyrir færeysk umhverfís-
málayflrvöld.
Bárður Enni, formaður umhverf-
ismálastofnunar Færeyja, segir að
mengunin sé aðallega af völdum fóð-
urs og úrgangs frá fiskunum sem
fellur til botns í eldiskvíunum og
veldur súrefnisskorti.
Fiskeldið hefur á fáum árum orð-
ið ein mikilvægasta atvinnugreinin
í Færeyjum. Á síðasta ári var sett
met þegar eldislax og silungur voru
fluttir út fyrir hátt i níu milljarða
íslenskra króna. Færeyingar hyggj-
ast þrefalda framleiðsluna á eldis-
fiski, úr rúmum þrjátíu þúsund
tonnum á ári í um eitt hundrað þús-
und tonn.
Vísindamenn á vegum fram-
kvæmdastjórnar Evrópusambands-
ins úrskurða í dag um hvort rétt-
mætt sé að einstakar þjóðir banni
innflutning á frönsku nautakjöti og
notkun dýrafóðurs með kjötmjöli.
Mikill ótti viö kúariðu hefur
gripið um sig í fjölmörgum löndum
ESB eftir að fyrstu smituðu gripim-
ir fundust bæði á Spáni og í Þýska-
landi og tilfellunum í Frakklandi
fjölgaði.
Franska stjómin hefur af þessum
sökum skorist í leikinn til að reyna
að sefa ótta neytenda. Lagt hefur
verið bann við sölu á T-bein steik-
um og kjötmjölsfóðri.
Margir félagar Frakka innan ESB
gengu þó lengra. Spánverjar, ítalir,
Austurríkismenn og Hollendingar
vom meðal þeirra sem lögðu blátt
Kráka í nautakjötinu
Svört kráka kemur sér vel fyrir á
gámi með afskurði af nautakjöti við
sláturhús í Munchen í Þýskaiandi.
bann við öllum innflutningi á
frönsku nautakjöti og nautgripum.
Vísindamannanefnd ESB kom
saman í gær til að ræða kúariðuótt-
ann og síðan aftur i morgun til að
kveða upp úrskurð sinn.
Landbúnaðarráðherrar ESB
ákváðu á fundi sínum í síðustu viku
að allar aðgerðir einstakra ríkja
yrðu að hljóta blessun vísindanefnd-
arinnar, ella yrði að hætta við þær.
Beate Gminder, talsmaður fram-
kvæmdastjómar ESB, sagði að það
færi eftir áliti vísindamannanna
hvort ESB myndi leggja til að fóður
úr kjötmjöli yrði bannað í öllum að-
ildarlöndunum.
Allar tillögur frá framkvæmda-
stjórninni verða teknar fyrir á
neyðarfundi landbúnaðarráðherra
ESB á mánudag.
Fujimori fékk fé
frá kókaínbaróni
Ríkissaksóknarinn í Perú, José
Ugaz, segir víshendingar hafa kom-
ið fram um að það hafi ekki einung-
is verið yflrmaður leyniþjónustunn-
ar, Vladimiro Montesinos, sem fékk
fé frá kókaínbaróni í Kólumbíu
heldur einnig Alberto Fujimori for-
seti sem flúði til Japans.
Ríkissaksóknarinn kveðst gjarn-
an vilja yfirheyra Roberto Escobar,
bróður leiðtoga Medellinhringsins,
Pablos Escobars, sem er látinn. Ro-
berto Escobar sagði nýlega í viðtali
við tímaritið Cambio i Kólumbíu að
Pablo Escobar hefði gefið Montesin-
os 1 milljón dollara og að fénu hefði
verið varið í kosningabaráttu Fu-
jimoris 1990.
Ríkissaksóknarinn hefur einnig
greint frá því að Fujimori hafl látið
tvö skúffufyrirtæki, sem hann átti í
Panama með Montesinos, verða
gjaldþrota. Fjölmiðlar í Perú segja
að Fujimori hafi lagt hagnaðinn, 18
Fujimori vera að láta flytja til Jap-
ans svo mörg myndbönd að þau
myndu fylla heilt hótelherbergi.
Hann kveðst hafa látið taka upp á
myndband hvem einasta fund sinn
síðastliðin 10 ár.
Hann hafi þó ekki verið með falda
myndavél heldur hafi myndavélin
verið vel sýnileg. Fujimori íhugar
gerð heimildarmyndar um reynslu
sína.
Þingið í Perú hefur nú skipað
nefnd sem rannsaka á bæði spill-
ingu Fujimoris og þátt hans í hvarfi
4 þúsund manna. Talið er að þeir
hafi verið drepnir í stríði yfirvalda
gegn vinstrisinnuðum uppreisnar-
mönnum og fikniefnasmyglurum.
Þingið, þar sem stjórnarandstaðan
er með meirihluta, reynir nú að
svipta Fujimori þeirri friðhelgi sem
fyrrverandi forsetar njóta fyrstu
flmm árin eftir að þeir fara frá völd-
um.
milljónir dollara, inn á bankareikn-
inga í Singapore.
Spænska blaðið E1 Pais segir ým-
islegt benda til að leyniþjónustan
hafi greitt 40 þúsund dollara á mán-
uði fyrir háskólamenntun fjögurra
barna Montesinos í Bandaríkjun-
um.
Svissnesk yfirvöld hafa nú alls
fryst 70 milljónir dollara á banka-
reikningum sem tengjast Montesin-
os. Talið er að mestallt féð sé um-
boðsfé fyrir vopnaviðskipti milli
Rússlands og Perú. Montesinos hef-
ur farið huldu höfði síðan hann
sneri heim frá Panama þar sem
hann leitaði árangurslaust hælis.
Talið er að Montesinos hafi und-
ir höndum þúsundir myndbanda
sem geta komið sér illa fyrir ýmsa
háttsetta menn í Perú.
Fujimori var líka með mynd-
bandaæði. I viðtali tímaritsins
Time, sem birt var í gær, kveðst
Alberto Fujimori
Forsetinn fyrrverandi vonast eftir
réttlátri rannsókn.