Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2000, Qupperneq 10
10
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVBMBER 2000
Skoðun E>V
Verkfalliö svekkir. Samfélagiö situr sljótt hjá
Frá baráttufundi framhaldsskólakennara.
Af sjónarhóli fram-
haldsskólakennara
Spurning dagsins
Ertu farin(n) að skreyta
fyrir jólin?
Edda Sif Guöbrandsdóttir
hárgreiöslunemi:
Nei, ekki neitt, ég byrja
1. desember.
Doja og Vaiþór Reynir:
Nei, en ég hiakka til að byrja á því
næstu heigi.
Arndís Sveinbjörnsdóttir nemi:
Nei, ekki neitt, byrja um miöjan
desember.
Garöar Þór Jónsson:
Nei, ekki neitt, en hjálpa þó kannski
aöeins til þegar aö því kemur.
Sigrún Hjartardóttir:
Nei, alltof snemmt, í fyrsta lagi
svona 2 vikum fyrir jól.
Eyja Líf Sævarsdóttir nemi:
Já, og þaö á allt aö vera tilbúið
fyrir 14. desember.
Steinunn Eva Þóröardóttir
framhaldsskólakennari skrifar:
Ég er framhaldsskólakennari og
er þar af leiðandi í verkfaUi í
augnablikinu. Það þýðir að ég fæ
ekki laun og horfi einnig á starf
mitt undanfama mánuði fara í
vaskinn eftir þvi sem tíminn líður
án þess að samningar náist. Það er
hvort tveggja frekar svekkjandi. En
ég er einnig foreldri og vil auðvitað
að börnin mín fái bestu mögulega
menntun og líði vel í skólanum. Ég
er ekki sátt við að þau fái slaka
kennara en hættan á því eykst óhjá-
kvæmilega, því að til undantekn-
inga heyrir að fleiri en einn sæki
um stöðu sem losnar-oft sækir eng-
inn um,og þá er málið leyst þannig
að aðrir kennarar taka kennslunna
að sér, ofan á allt sitt, eða fagið fell-
ur niður „þá önnina/þann vetur-
inn“.
í þessu hafa öll börnin mín lent
einhverntíma og bara á þessari önn
féllu niður fög í tveimur ólíkum
skólum! Þetta er ekki mín hugmynd
Pfstill
frá Austfiróingi:
Það skildi nú ekki vera að um-
ræðan á Alþingi um breytingar á
skattgreiðslum vegna hagnaðar á
hlutabréfasölu m.a. orsaki fall
krónunnar. Allir reyna að koma
hagnaðinum undan áður en „öxin“
fellur. Hverjir ákveða annars að
fella eða hækka krónuna? Er þetta
sjálfvirk formúla innan kerfisins
sem breytir genginu frá degi til
dags eða er það einhver ákveðinn
aðili innan kerfisins sem ákveður
þetta allt i einu út frá eigin brjósti,
eftir þvi hvort hann telur blikur á
lofti eða ekki?
Hverjir hagnast svo mest á þessu?
Það eru fyrirtækin sem þessir Pétr-
„Það er alveg sama hve
skipulagið lítur vel út í að-
alnámskrá, það sem skiptir
máli er það sem gerist í
kennslustund og því þurfa
allir kennarar að vera hæf-
ir og ánœgðir í starfi. “
um betri skóla. í síðasta verkfalli
fyrir 6 árum var mikil neikvæðni
og kennurum var úthúðað, það var
tilfínningalega mjög erfitt og hafði
langvarandi niðurdrepandi áhrif á
kennara og starfsanda í skólum.
Núna er ekki mikil neikvæðni,
en heldur ekki mikil athygli. Fólki
virðist sama þó að skólahald falli
niður: Nemendur gleðjast yfir fríi
og vonast eftir að sleppa létt frá
þessari önn, skólameistari sem býr
við fjarsvelti gleðst því það grynnk-
ar ögn á skuldunum á meðan, fjár-
málaráðherra sparar líka og gleðst;
því lengra verkfall því betra.
„Ég vil leggja það til við ríkis-
stjórnina og alþingi að „keyptir“
verði nokkrir Pétrar og Pálar
(spákaupmenn innan sérstaklega
valinna fyrirtækja) og þeir settir
í það verkeftii að bjarga krón-
unni, því að þeir eru greinilega
mörgum árum á undan stjórn-
völdum og efnahagsráðunautum
hins opmbera í hugsun.“
ar og Pálar eru hjá, þ.e.a.s. bankarn-
ir, fjármálafyrirtækin að ógleymd-
um lífeyrissjóðunum. Þessi fyrir-
tæki hafa tapað svo hundruðum
miljóna króna skiptir i alls konar
fjárfestingum innanlands og millj-
Menntamálaráðherra, sem boðar
„betri skóla“, telur laun kennara
ekki koma því máli við og fxnnst
þetta því ekki vera sitt vandamál.
Foreldrar segja ekki múkk og sam-
félagið situr sljótt hjá.
Þannig furðar mig, hvað getur
komið út úr verkfalli sem bitnar
nær eingöngu á manni sjálfum, í
öðrulagi á nemendum, en ekki á
neinum sem getur gert eitthvað í
málinu? Hærri laun fyrir kennara
sem gerir starfið eftirsóknarvert og
samkeppnishæft fyrir (ungt) vel-
menntað fólk er það sem þarf til að
gera betri skóla.
Það er alveg sama hve skipulagið
lítur vel út I aðalnámskrá, það sem
skiptir máli er það sem gerist í
kennslustund og því þurfa allir
kennarar að vera hæfir og ánægðir
í starfi. Ég lít á það hlutskipti mitt,
að sitja í súru verkfalli (eins lengi
og þörf krefur) sem fórn fyrir börn-
in mín og samfélagið f heild, og um
leið að bættu skólastarfi. - Þetta er
mitt framlag!
örðum í erlendum fjárfestingum og
verða þvf, hvað sem það kostar, að
ná fjármununum til baka.
Kaup á gjaldeyri og að fella þar
með íslensku krónuna er nærtæk-
ast og auðveldast núna í dag til að
græða. Ég vil leggja það til við rík-
isstjórnina og alþingi að „keyptir"
verði nokkrir Pétrar og Pálar (spá-
kaupmenn innan sérstaklega val-
inna fyrirtækja) og þeir settir í þaö
verkefni að bjarga krónunni, því að
þeir eru greinilega mörgum árum á
undan stjómvöldum og efnahags-
ráðunautum hins opinbera í hugs-
un. - Að sjálfsögðu þarf að borga
þeim mjög vel og „bónusa“ þá eftir
árangri. Þessi framkvæmd væri
fljót að borga sig fyrir rfkissjóð.
Fall krónunnar
Dagfarí
Rúmfatakóngur meö útsýni
Dagfari hefur eignast nýja hetju. Það væri svo
sem ekki í frásögur færandi nema vegna þess að
nýja hetjan er færeysk. Fyrsta færeyska hetjan að
Heinesen og Þrándi í Götu frátöldum. Sá heitir
Jakup Jacobsen og rekur Rúmfatalagerinn. Jakup
hefur gert þaö gott á íslandi; svo gott að Jóhannes
í Bónus og þeir Hagkaupsbræður mega fara aö
vara sig.
Jakup er góður kaupmaður. Það veit Dagfari
því hann keypti rúmteppi hjá honum fyrir
skemmstu. Rúmteppið kostaði næstum því ekki
neitt og var svo stórt að nota mátti á mörg rúm.
Efnið er austurlenskt og mjúkt og Dagfari klippti
það 1 sex einingar og gaf systrum sínum fimm. Nú
er öll fjölskylda Dagfara komin með nýtt rúmteppi
frá Jakup og allir ánægðir. Svona eiga kaupmenn
að vera. Þegar Dagfari fer í búðir fer hann helst
ekki annað en í Rúmfatalagerinn. Þar er líka hægt
að kaupa jólatré úr plasti og smákökur.
Jakup í Rúmfatalagemum skynjar velgengni
sína og veit að hann er orðinn kóngur á íslandi.
Nýlega byggði hann heila Kringlu norður á Akur-
eyri sem rúmar alla bæjarbúa og nú ætlar hann
að bæta um betur og reisa tum í Kópavogi sem
nær hálfa leið til himins. Jakup sá að hann gat
ekki setið auðum höndum á meðan verið væri að
byggja þrefalda Kringlu í Smáranum sem á að
Lóðin var ekki stór, en þó nógu stór
fyrir turn, og þvi œtlar Jakup að
byggja upp í loft eins og þeir gera á
Manhattan þar sem lóðaverð er reikn-
að út í lóðréttum fermetrum ekki síð-
ur en láréttum.
rúma alla landsmenn. Jakup var reyndar frum-
byggi í Smáranum ásamt Elko og Hagkaupi og
átti eftir smálandskika rétt í túnfætinum hjá
stóm Kringlunni. Lóðin var ekki stór, en þó nógu
stór fyrir turn, og þvf ætlar Jakup að byggja upp
í loft eins og þeir gera á Manhattan þar sem lóða-
verð er reiknað út í lóðréttum fermetrum ekki
síður en láréttum. Jakup ætlar að reisa sér turn
sem á að vera 14 hæðir, ef trúa skal fréttum, og í
toppnum á að vera besti veitingastaður á íslandi.
Enn nýrri fréttir herma að Jakup sé búinn að
bæta við þremur hæðum á turninn sinn og ætli
sjálfur að búa í penthási á 17. hæð. Þar ætlar
hann að sitja og horfa yfir ríki sitt sem teygir sig
stranda á milli á meðan flugvélar í innanlands-
flugi taka á sig sveig til að krassa ekki inn á bað-
herbergisgólfið hjá færeyska rúmfatakónginum.
Snekkjur Jóhannesar í Bónus blikna i saman-
burði við færeyska turninn í Kópavogi og strand-
hýsi Hagkaupsbræðra á Malibu-ströndinni í Kali-
forníu eru ekki annað en kofar við hlið tumsins í
Smáranum.
Megi Jakup Jacobsen vel og lengi njóta útsýnis-
ins úr turninum í Kópavogi. Hann er vel að því
kominn og Dagfara verður alltaf hugsað hlýlega til
færeysku hetjunnar sinnar í hvert sinn sem hann
býr um stóra hjónarúmið sitt - með ódýra rúm-
teppinu úr Rúmfatalagernum. _ p .
VA4 fArt
Dýrt í Hvalfjarðargöng
Stefán Guðmundsson hringdi:
Mér Fmnst dýrt að aka Hvalfjarðar-
göng fyrir 2000 kr. fram og til baka, er
maður skreppur til Borgarness eða
svo við og við. Ég fer ekki að kaupa
eitthvert kort fyrir þúsundir króna,
því ég veit ekkert fyrirfram hvenær
eða hvort ég nota það. Nú er rætt um
að hækka gjaldið, það er af og frá að
fólk samþykki slíkt án verulegra mót-
mæla og hugsanlegs framhjáaksturs
um Hvalfjörð. Talað var um að gjald-
ið um göngin lækkaði fljótlega vegna
mikillar umferðar. En auðvitað lækk-
ar hér aldrei neitt, því miður. En það
er mjög dýrt að aka Hvalfjarðargöng
fyrir 1000 kr. Það er staðreynd sem
fólk á ekki að láta ómótmælt.
Góöir samningar
Jakob skrifar:
Ég er mjög ánægður með þá kjara-
samninga sem nú hafa verið undirrit-
aðir fyrir mína hönd og annarra fé-
laga minna í veitingageiranum. Mest
um vert er að nemar, sem hafa verið
afskiptir iengi í viðkomandi fagfélög-
um, fengu nú loks leiðréttingu. Það er
mikilsvert að hafa getað fækkað
launaliðunum, sem fæstir áttuðu sig
á, nema yfirvinnuákvæðunum. Og
næst þegar samið verður koma til pró-
sentuhækkanir á umsamin laun eins
og þau verða nú. Það er líka merkur
áfangi. Hvers vegna kennarar geta
ekki sætt sig við svipaða lausn og aðr-
ar stéttir skil ég ekki. Það á ekki að
líða framlengingu á þeirra samning-
um án þess að þeir taki upp svipað
kerfi og allar aðrar stéttir.
Ómakleg árás á Kohl
Björn Árnason skrifar:
i sem fylgjast með er-
I lendum fréttum vita
' I hefur gengið á linnu-
I - " fl lausum árásum jafn-
■ ÁI lan<11 ^ n61™1!1
Helmut Kohl, var gefin að sök
fyrrum kansl- óreiða með fé í kosn-
ari Þýskalands ingasjóð flokks hans
sætir ómak- og að hafa þegið mút-
legum árás- ur, m.a. frá ■ Mitt-
um. errand hinum
franska. Allt er þetta
ósannað og mesti þvættingur, sem
jafnaðarmenn ausa út eins og þeirra
er háttur. Kohl og Mitterand m.a.
voru einarðir stuðningsmenn frjálsr-
ar Evrópu og vildu fyrir alla muni að
álfan næði saman, ekki stst til að
koma í veg fyrir ófrið í álfunni um
ókomna tíma. Kohl var og er einn
mesti stjórnmálajöfur Evrópu og á
ekki skilið þá smán sem hann hefur
orðið að sæta af öfundarmönnum sín-
um í álfunni.
Viröisaukaskatt-
skyldir flutningar
Kristján Adolfsson sendibilstj. skrifar:
Ég vil þakka Tryggva Bjarnasyni
fyrir að vekja athygli á hinni rlkis-
reknu sendibílastöð íslandspósts í DV
sl. fimmtudag. Ég vil benda fjármála-
ráðherra á að nú ætti hann endilega
að stofna skipafélag til að láta borga
tapið á landflutningunum, líkt og
Eimskip og Samskip gera núna, til
þess að hægt sé að bjóða niður vinnu
sendibílstjóra. Þá vil ég benda ráð-
herranum á að vöruflutningar á landi
eru virðisaukaskattskyldir og ætti
hann því að hætta að mismuna vöru-
flytjendum.
DVI Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.is
Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV,
Þverholti 11,105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.