Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2000, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000
DV
Fréttir
11
I
i
t
KRAKKAR!
MuNIÐ EFTIR OKKUR
TANNIOG TÚPA
öll Lionsdagatöl eru merkt:
Þeim fylgir límmiði með Tanna og Túpu og tannkremstúpa.
Allur hagnaður rennur tál líknammla.
Vöruflutningabílstjórar kæröir fyrir ólöglega notkun toppljósa:
Ekki upp á punt
Bæjarstjóm Akraness hefur ósk-
að eftir viðræðum við Reykjavík-
urborg um auknar almennings-
samgöngur milli Akraness og
Reykjavíkur. Að sögn Gísla Gísla-
sonar, bæjarstjóra á Akranesi, eru
engar fastmótaðar hugmyndir um
hvemig hægt er að auka samgöng-
urnar. Hins vegar sé áhugi manna
fyrir hendi og hafi verið í nokkur
ár. Rútuferðir eru í dag milli Akra-
ness og Reykjavíkur og gildir sér-
leyfið á leiðinni til ársins 2002.
Gísli segir að fyrirkomulagið á sér-
leyfinu setji ákveðin mörk á hvað
hægt sé að gera eins og er til að
auka samgöngumar, en menn hafi
áhuga á að ræða hvað hægt sé að
gera í framtíðinni.
Hann segir að bættar samgöngur
myndu styrkja hagsmuni sveitafé-
lagsins. „Hvalfjarðargöngin gera
það mögulegt og við horfum líka á
það að Strætisvagnar Reykjavíkúr
eru með ferðir upp á Kjalames,"
segir Gísli. Hann segir enn of
snemmt að ræða um hvemig aukn-
ar samgöngur yrðu fjármagnaðar.
„Við gerum okkur hins vegar al-
veg ljóst að þjónusta í þessum far-
vegi mun kosta fjármuni," segir
Gísli.
Samgöngunefnd Reykjavíkur
fjallaöi um beiðni bæjarstjómar
Akraness á fundi sínum á þriðju-
dag. Að sögn Helga Péturssonar,
formanns nefndarinnar, sam-
þykkti nefndin samhljóða að fela
forstjóra SVR að ræða við Skaga-
menn og sjá hvað hægt er að gera
í málinu. Helgi segir tímabært að
menn taki upp nánara samstarf
um almenningssamgöngur á höf-
uðborgarsvæðinu öllu og þessar
hugmyndir falli ágætlega inn í þær
hugmyndir og hreyfingar sem ver-
ið hafa á því sviði. „Það má segja
að SVR keyri upp að Hvalfjarðar-
göngum þannig að sjálfsagt er að
skoða möguleikana á að víkka
þetta út,“ segir Helgi.
-MA
- segir deildarstjóri landflutningadeildar Samskipa
- horft til Strætisvagna Reykjavíkur
stjórar á ljósunum þegar þeirra er
ekki lengur þörf.
„Það er alveg ljóst að við höfum
þessa kastara ekki upp á punt. Á is-
lenskum þjóðvegum drukkna ljósin
oft í malbikinu á götunni í myrkr-
inu og bílstjóramir nota kastarana
aðallega þegar slæmt skyggni er. í
lágum skafrenningi er staðsetning-
in á þessum ljósum þannig að þau
nýtast bilstjórunum vel,“ sagði Ósk-
ar. Hann bætti því við að tekið hefði
verið á notkun kastaranna hjá Sam-
skipum og notkun þeirra minnkað
hjá bílstjórum Samskipa í kjölfarið.
„Við lifum eftir þeirri reglu að þetta
sé aðeins neyðarbúnaður og við
vonumst til þess að geta haft sam-
starf við lögregluna með það,“ sagði
Óskar.
Valur Freyr Jónsson, eigandi
Vöruferða ehf., sagði i samtali við
DV að auk toppkastaranna væru
vöruflutningabílar og aðrir bilar oft
með aðra aukaljóskastara í stuður-
um sem eru hættulegir því öku-
menn slökkva oft ekki á þeim þegar
þeir mæta öðrum bílum í myrkri.
„Þetta er að verða alvörumál sem
ég hef grun um að lögreglan ætli að
um almennings-
samgöngum
Leiðin milli Akraness og Reykjavíkur:
Áhugi á aukn-
Vöruflutningabílstjórar eru óá-
nægðir með afskipti lögreglunnar af
ljóskösturum sem hafðir eru ofan á
húsi bílanna. Langflestir flutninga-
bílar landsins eru búnir þessum
aukaljósum sem eru öryggistæki og
er ætlað að auðvelda bílstjórunum
að sjá veginn í slæmu skyggni. Sam-
kvæmt reglugerð sem samþykkt var
fyrr á árinu mega bílstjórar hafa
kveikt á þessum ljósum í slæmu
skyggni en þess á milli má ekki
nota ljósin og eiga kastararnir þá að
vera byrgðir með hlífum.
Kristján Þor-
björnsson, yfir-
lögreglumaður á
Blönduósi, sagði
i samtali við DV
að mikið væri
um að vöru-
flutningabílar
notuðu þessi
ljós rangt og
Kristján færu ekki að
Þorbjörnsson reglugerð með
yfirlögreglumaður. útbúnað þeirra.
Kristján út-
skýrði að fyrir nokkrum árum neit-
aði vöruflutningabílstjóri að borga
sekt sem Blönduóslögreglan hafði
gefið honum fyrir ranga notkun á
þessum ljósum. Héraðsdómur Norð-
urlands vestra úrskurðaði að reglu-
gerðin væri ekki nógu skýr og felldi
málið. Síðan hefur reglugerðin um
kastarana verið endurgerð en það
hefur ekki haft mikil áhrif á notkun
kastaranna að mati Kristjáns.
„Þótt búið sé að gera notkun þess-
ara ljósa mjög skýra í reglugerð
nota menn áfram þessi ljós rangt og
það er bara einfaldlega bannað,"
sagði Kristján.
Nauðsynleg Ijós
Óskar Óskarsson, deildarstjóri
landflutningadeildar Samskipa,
sagði að erfitt væri að fylgja reglu-
gerðinni því fæstir vöruflutninga-
bílstjórar stöðvuðu bíla sína mörg-
um sinnum í einni ferð til þess að
fjarlægja og setja hlífamar á ljósin
með allri þeirri fyrirhöfn sem því
fylgir. Hins vegar slökkva flestir bíl-
Kastarar flutningabíla
Samkvæmt nýrri reglugerö, sem samþykkt var fyrr á árinu, má nota kastara
flutningabíla i lélegu skyggni en annars eiga að vera hlífar á þeim.
fara að rótast eitthvað í, en þá
finnst mér þeir byrja á vitlausum
ljósum því mönnum er mikið í mun
að halda þessum stóru ljósum og
hafa passað það alveg prýðilega, en
hin eru ekki pössuð neitt, það er
bara frumskógarlögmál sem gildir
þar,“ sagði Valur Freyr. Hann bætti
því við hann óttaðist afleiðingarnar
ef reglugerðir yfir ljósabúnað bíla
yrðu rýmkaðar því svo margir öku-
menn væru nú með of sterkar perur
i aukaljósum bifreiða sinna.
-SMK
Nú bjóðum við mánaðarkort
í Trimformi
á aðeins kr. 5.900.
TRIM /\F0RM
Munið sívinsælu
gjafakortin.
Grensásvegi 50
Opið: mán.-fim. 8-22, fös. 8-20, laug. 10-14