Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2000, Síða 14
14
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000
19
Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: Svelnn R. Eyjólfsson
Framkvnmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Svelnsson
Ritstjórar: Jónas Kristjánssori og Óli Björn Kárason
Aðstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson
Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift:
Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000
Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999
Grœn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Vfsir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf.
Filmu- og plötugerð: Isafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf.
Áskriftarverð á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblaö 250 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim.
Baráttan heldur áfram
Baráttan um forsetaembætti Bandaríkjanna heldur
áfram þó nú séu þrjár vikur frá því kosningar fóru fram.
Úrslitin munu ekki ráðast á kjörstöðum, líkt og venja er i
lýðræðisríkjum, heldur fyrir dómstólum þar sem tugir
lögmanna takast á. Fyrir leikmenn er nær vonlaust að
skilja flókið réttarkerfi Bandaríkjanna, þar sem endalaus-
ar leiðir virðast færar til að ná sínu fram.
George W. Bush, frambjóðandi repúblikana, hefur þeg-
ar lýst yfir sigri í kosningunum eftir að endurtalningu í
Flórídaríki, sem hæstiréttur ríkisins skipaði, lauk síðast-
liðinn sunnudag. Keppinautur hans, A1 Gore, hefur neitað
að viðurkenna ósigur, enda sannfærður um að hann sé
réttkjörinn 43. forseti Bandaríkjanna með meirihluta at-
kvæða. Enn sem komið er nýtur Gore stuðnings ílokksfé-
laga sinna í fulltrúadeild og öldungadeild Bandaríkja-
þings, en sá stuöningur er brothættur, enda nær hann
litlu lengra en þingmenn telja að almenningsálitið leyfi.
Að minnsta kosti ein skoðanakönnun bendir til að meiri-
hluti Bandaríkjamanna vilji að Gore sætti sig við orðinn
hlut og viðurkenni sigur Bush. Gore telur það hins vegar
skyldu sína gagnvart sögunni að leita réttar sins fyrir
dómstólum.
Á föstudag mun Hæstiréttur Bandaríkjanna taka fyrir
kröfu George W. Bush vegna dóms Hæstaréttar Flór-
ídaríkis sem fyrirskipaði endurtalningu, sem nú er lokið.
Hver svo sem niðurstaðan verður mun hún í raun engu
skipta um það hver verður forseti en getur haft áhrif til
lengri tíma um sjálfstæði einstakra ríkja.
Hver svo sem endanleg niðurstaða í forsetakjörinu
verður, eftir að dómstólar hafa kveðið upp sinn endanlega
dóm, er ljóst að gríðarlega erfitt verkefni bíður nýs for-
seta. Ekki aðeins þarf hann að skipa nýja ríkisstjórn á
skömmum tima heldur einnig að græða þau pólitísku sár
sem átökin um embættið hafa skilið eftir. En stærsta verk-
efnið verður að ná pólitískri samstöðu um lausn á þeim
vandamálum sem næsti forseti Bandaríkjanna verður að
takast á við. Og lausnirnar verða ekki fundnar án þess að
samstaða náist á Bandaríkjaþingi meðal demókrata og
repúblikana.
Bill Clinton, fráfarandi forseti, hafði ekki pólitískt þrek
til að ráðast að rótum vandamála sem eru án nokkurs
vafa mesta ógn sem steðjar að bandarísku efnahagslífi og
velferð landsmanna. Á næstu tveimur áratugum mun
kostnaður við almannatrygginga- og heilbrigðiskerfið
margfaldast, enda Bandaríkjamenn að eldast. Fjöldi vinn-
andi fólks, sem stendur undir kerfmu, lækkar úr þremur
til fjórum á hvem lífeyrisþega í tvo.
Að óbreyttu verður almannatryggingakerfið gjaldþrota
og annaðhvort verða stjómvöld að skerða réttindi ellilíf-
eyrisþega eða hækka skatta verulega. Hvort tveggja getur
haft alvarlegar afleiðingar. Og til að auka vandann enn
frekar glímir opinbert menntakerfi við mikil vandamál,
þar sem nær fjórðungur nemenda i menntaskólum er
ólæs. Uppskurður og róttækar breytingar em því nauð-
synlegar á skólakerfinu, ekki síst vegna þess gríðarlega
vanda sem blasir við í almannatryggingakerfmu.
Tímabundið lögfræðilegt álitamál varðandi framkvæmd
kosninganna, sem dómstólar munu skera úr um, skipta
litlu þegar til lengri tíma er litið, enda mun forsetaemb-
ættið standa slíkt af sér. Mestu skiptir að nýr forseti forð-
ist ekki vandamálin, líkt og Bill Clinton hefur gert undan-
farin átta ár.
Óli Björn Kárason
DV
Skoðun
Ríkisútvarp eða ríkisstjórnarútvarp?
Nýverið kom fram opinber-
lega að lélegur vinnuandi ríkti
hjá Ríkisútvarpinu í Efstaleiti
vegna óánægju með manna-
ráðningar og fyrirhugaðar
skipulagsbreytingar. Umræðan
er tilkomin vegna athyglis-
verðrar niðurstöðu könnunar
sem gerð var meðal starfs-
manna ríkisstofnana um af-
stöðu þeirra til starfsumhverfis
síns.
Óánægja RÚV sker sig úr
Samkvæmt könnun þessari, ——
sem fjármálaráðherra lét gera haust-
ið 1998, eru 4 af hverjum 5 starfs-
mönnum Ríkisútvarpsins óánægðir
með mannaráðningar hjá RÚV. Nið-
urstaðan sýnir að Ríkisútvarpið sker
sig algjörlega úr öðrum ríkisfyrir-
tækjum hvað varðar óánægju að
þessu leyti. Starfsmenn voru beðnir
um að taka afstöðu til eftirfarandi
fullyrðingar: Ávallt er vandað til
ráðningar starfsfólks á stofnuninni
og fyllstu hlutlægni gætt. Mikill
meirihluti ríkisstarfsmanna, eða
67%, svöruðu þessari staðhæfingu
játandi, en hjá Ríkisútvarpinu kvað
heldur betur við annan tón. Af þeim
starfsmönnum þar, sem svöruðu,
Asta R.
Jlóhannesdóttir
þingmaöur Samfylking-
arinnar
sögðust 75% vera þessu
mjög ósammála. Þess
má geta að tugþúsundir
ríkisstarfsmanna tóku
þátt í þessari könnun.
Ráöherra í vondum
málum
Það er ótrúlegt en satt
að menntamálaráðherra
neitar að horfast í augu
við þessa óánægju
starfsmanna Rikisút-
varpsins og vísar áliti
þeirra á bug. í fyrir-
spurnatíma á Alþingi spurði ég
menntamálaráðherra, þar sem hann
hefur vísað þessu á bug, hvort hann
tryði því þá ekki að starfsfólk Ríkis-
útvarpsins hefði verið að segja satt í
þessari könnun eða hvort hann
treysti ekki niðurstöðum könnunar
íjármálaráðherra. Útúrsnúningar
ráðherrans við þessum spumingum
voru með ólíkindum og ekki hafandi
eftir. Samkvæmt lögum ræður
menntamálaráðherra í stöður yfir-
manna í Ríkisútvarpinu, bæði út-
varpsstjóra og framkvæmdastjóra.
Hann skipar einnig formann út-
varpsráðs. Það er mál margra starfs-
manna að oftar en ekki hafi verið
„ Við hvað eru œðstu yfirmenn Ríkisútvarpsins hrœddir ef
þeir þora ekki að láta kryfja starfsmannastefnuna til
mergjar? Ef allt er með felldu œttu þeir einmitt að fagna
slíkri endurskoðun. “
gengið fram hjá hæfustu umsækjend-
um um störf hjá stofnuninni og póli-
tísk afstaða ráðið ferðinni við ráðn-
ingu. Sú skoðun endurspeglast vel í
Dauðakippir kommúnismans
Kommúnisminn í Austur-Evrópu
hrundi eins og spilaborg fyrir um
áratug, og það án þess að hleypt væri
af einu einasta byssuskoti. Ástæður
hrunsins eru margvislegar; ein sú
helsta er að kommúnistaríkin voru
einfaldlega á skjön við sameiginleg
gildi alþjóðasamfélagsins, sem nú á
dögum snúast um frelsi, lýðræði og
mannréttindi. í gegnum aukna tækni
jókst upplýsingastreymið til almenn-
ings og hin sameiginlegu alþjóðlegu
gildi dreifðust jafnt og þétt um allar
freðmýrar sovétveldisins sáluga þar
til að kerfí kommúnismans missti
réttlætið í augum þegnanna. Þá
þurfti ekki að spyrja að leikslokum.
Hins vegar var ekki sjálfgefið að
hrunið yrði jafn friðsamt og raun bar
vitni. Mikhail Gorbachev var fram-
sýnn og sá hvert stefndi. Harðlínu-
leiðtogi hefði þó enn um sinn getað
hert sultaról þjóðarinnar og að lok-
um sigað skriðdrekum sínum á fólk-
ið. Það gerðist sem betur fer ekki.
Voðaverk í beinni
Dauðakippir kommúnismanns birt-
„Öfugt við alþjóðahyggju skoðanabræðra þeirra úti um
heim eru íslenskir sósíalistar frekar þjóðemissinnaðir
og hálf utanveltu í breyttri veröld. “ - Frá síðasta fundi
Alþýðubandalagsins, í sept. 1998.
Með og á móti
Til hagsbóta fyrir neytendur
ust meðal annars í gömlu
Júgóslavíu, en gerviríkið sem
haldið var saman af þremur þátt-
um; kommúnismanum, hemum
og sjálfum Josip Broz Tito, liðað-
ist í sundur með hörmulegum af-
leiðingum. Sumir leiðtoganna þar
höfðu ekki framsýni Gorbachevs
og tóku til við að myrða borgar-
ana í stórum stíl. Þá horfði
heimsbyggðin aðgerðarlaus upp á
þjóðernishreinsanir. Alþjóðasam-
félagið reyndist getulaust frammi
fyrir vandanum og hver alþjóða-
stofnunin á fætur annari dæmdi
sig úr leik. Voðaverkin fóru fram í
beinni útsendingu en voru þrátt fyrir
það látin óáreitt árum saman. Það
var svo ekki fyrr en Slobodan Milos-
evic reyndi að útrýma Kosovo-Albön-
um, að alþjóðasamfélaginu var á end-
anum nóg boðið og NATO var sent til
að skakka leikinn og stilla til friðar.
Allar fyrri aðgerðir voru í besta falli
hálfkák. Hin síðbúna hjálp leiddi hins
vegar til afar undarlegrar afstöðu ís-
lenskra sósíalista sem risu upp, mót-
mæltu og beittu fyrir sér löngu úrelt-
um kreddum kalda striðsins.
Sama hvaðan gott kemur
Þetta hefur verið tilefni lítillar rit-
deilu miUi undirritaðs og Sverris
Jakobssonar í DV (31. okt og 6. nóv).
í DV-grein sinni sakar Sverrir svo
undirritaðan um kristniboð fyrir
NATO. Honum til upplýsinga þá
skiptir það mig engu hvað þeir heita
sem stilla til friðar. Bara að það sé
gert. Hvort það er Atlantshafsbanda-
lagiö, Varsjárbandalagiö eða bara
öryrkjabandalagið er aukaatriði. Ef
Sverrir telur að aðrir aðilar en
NATO séu betur til þess fallnir að
Eiríkur Bergmann
Einarsson
stjórnmélafræbingur
sinna þvi hlutverki þá
má hann gjarnan upp-
lýsa um það.
Mér leikur sannar-
lega forvitni á að vita
ef slíkur aðili er til
sem hefur allt í senn
alþjóölegt umboð, póli-
tískan vilja og hemað-
arlega getu til að
stöðva alþjóðleg voða-
verk. En það sem vek-
ur sérstaka eftirtekt í
___ greinum Sverris er að
þrátt fyrir að hann
hiki ekki við að gagnrýna íhlutun
NATO í Kosovo þá svarar hann því
engu hvað annað átti til bragðs að
taka til að stöðva þjóðarmorð Serba
þar. Helst er á honum að skilja að
sökum þess hve NATO sé vont kapít-
alistabandalag hefði frekar átt að
láta Kosovo-Albönum blæða út en að
koma þeim til bjargar.
Þjóðernishyggja sósíalistanna
Þaö er í raun afar merkilegt að
fylgjast með málflutningi íslenskra
sósíalista í alþjóðamálum þessi miss-
erin. Þeir virðast vera nokkuð
kategorískt á móti öllu því alþjóðlega
samstarfl sem ísland er þátttakandi
í, nema ef vera skyldi Noröurlanda-
ráði, enda nægjanlega einsleitt
kompaní það. Já, það er af sem áður
var þegar sósíalisminn var alþjóðleg
hreyfing verkalýösins. Þá lifði enn
slagorðið góða „öreigar allra landa,
sameinist!“. - Öfugt við alþjóða-
hyggju skoðanabræðra þeirra úti um
heim eru íslenskir sósíalistar frekar
þjóðemissinnaðir og hálf utanveltu í
breyttri veröld.
Eiríkur Bergmann Einarsson
greiða niður jólabœkumar?
Bónus, bókabúð framsóknarmanna
j í fyrsta lagi er
jgL hlutverk okkar á
/ markaðnum ekki
VHp það að gæta hags-
muna einstakra
smávöruverslana heldur
neytenda og það gerum við
best með því að keppa inn-
byrðis okkar á milli á mark-
aðsgrundvelli og af hörku.
Við getum ekki verið að velta
því fyrir okkur hvort álagn-
ingin sé næg fyrir aðrar
verslanir. Fari einhver út í það að
selja bækur undir kostnaðarverði, þá
greiðir hann náttúrlega með þeim.
Elías Þorvaröar-
son, verslunar-
stjórl Nettó,
Mjódd
Flestar verslanir leggja út í
einhvern herkostnað í aug-
lýsinga- og markaðsmálum
og kostnaður við að greiða
niður bækur fellur undir það.
Þetta er tvímælalaust til
hagsbóta fyrir neytendur þó
þetta sé kannski ekki til
hagsbóta fyrir einstaka kaup-
menn, þar á meðal okkur.
Við erum ekki að velta því
fyrir okkur hvað við fáum út
úr álagningu á einstökum
vöruliðum en þegar upp er staðið
erum við með ánægða viðskiptavini
sem koma aftur og aftur.
rEf einhver bóka-
verslun kærði sig
um að fá hálfa þjóð-
ina upp á móti sér
myndi hún kæra
verðlagningu sumra stórmark-
aða á jólabókunum til Sam-
keppnisstofhunar. í Qestum Evr-
ópulöndum eru svona viðskipta-
hættir bannaðir. Þessir stór-
markaðir eru að selja bækur
undir kosmaðarverði en yfirleitt
er bara um einn, eða fáa titla að
ræða og virðist Bónus vera
Bryndís Lofts-
dóttir, verslun-
arstjóri Penn-
ans Eymunds-
sonar
bókabúð siðan í byrfim nóvember. Starfsfólk okk-
framsóknarmanna. Þeir sem vilja kaupa ar hefúr líka lesið bækumar þannig að
bækumar í Bónus verða helst að vera 190 hér er þekkingm og fjörið.
cm á hæð til að geta teygt sig yfir
allar búðarkörfumar sem búið
er að stilla upp í kringum litlu
borðin sem bera bækumar.
Emnig verða þeir að geta séð
upp í efstu rfáfur þar sem verðið
hangir. Fyrir þá, sem ekki fylla
þennan Qokk, er alltaf möguleiki
á að kaupa jólabækumar í bóka-
búð sem býður upp á mikið úr-
val bóka á fínu verði. Við hjá Ey-
mundsson höfúm t.d. verið með
hátt í 100 bækur á 30% afslætti
niðurstöðu könnunar fjármálaráð-
herra.
Starfsmannamálln
þarf að kanna
Það er ótrúlegt að menntamála-
ráðherra skuli ekki hafa áhyggjur
af afstöðu svo stórs hóps starfs-
manna þessa stóra og mikilvæga
fjölmiðils. Þetta veikir mjög stöðu
Ríkisútvarpsins og því miður verða
þær raddir æ háværari að engin
þörf sé á að reka Ríkisútvarp því
það sé ekki lengur rikisútvarp held-
ur ríkisstjómarútvarp. Starfs-
mannafélag Ríkisútvarpsins krefst
þess í nýlegri ályktun að starfs-
mannamál Ríkisútvarpsins verði
tekin til endurskoðunar af óhlut-
drægum aðila. Menntamálaráð-
herra ætlar ekki að beita sér fyrir
slíkri endurskoðun, ef marka má
svör hans á Alþingi. Við hvað eru
æðstu yfírmenn Ríkisútvarpsins
hræddir ef þeir þora ekki að láta
kryfja starfsmannastefnuna til
mergjar? Ef allt er með felldu í
starfsmannamálunum ættu þeir
einmitt að fagna slíkri endurskoð-
un. Hafa þeir þá eitthvað að fela eft-
ir allt? Það skyldi þó ekki vera?
Ásta R. Jóhannesdóttir
Ummæli
Mlkll harka er nú í verðstríól á bókamarkaói og hafa bókaverslanir gagnrýnt matvöruverslanlr harölega fyrir aö selja vinsælustu jólabækurnar undlr kostn-
aöarveröi.
I
Féllu á tíma
„Mönnum var vandi
á höndum. Tíminn var
runninn út, og ráð-
herrar voru á leið
heim. Búið var að
taka aukadag á ráð-
stefúunni til að klára
þetta. Við hreinlega
féUum á tíma. Þá kom fram sterk ósk
talsmanna ríkjanna að halda áfram
strax í kjölfarið, tU að ná samkomu-
lagi. Ákveðið var að ráðherrar kæmu
næst saman á fundi í maí á næsta ári,
tU að reka endahnútinn á þetta. Það
er mikiU þrýstingur á þjóðir heims að
ná þá samkomulagi. Það yrði mikið
áfaU fyrir umhverfíð ef ráðherrar setj-
ast niður tvisvar tU að klára og ná því
ekki í hvorugt skiptið."
Siv Friöleifsdóttir umhverfisráöherra í
viötali í Mbl. 28. nóvember.
Kennaraverkfallið
„VerkfaUið sjálft hefur merkUega
lítil áhrif í þjóðfélaginu. Það er helst
að umferðin sé minni á morgnana, af-
greiðslan á pizzastöðunum skjótari og
betri nýt-
Þjóðviijinn
ing kvik-
mynda-
húsanna. Vef-ÞjóðvUjinn hefur áður
lýst þeirri skoðun sinni að besta leið-
in tU að bæta skólastarfið og kjör
nemenda og kennara sé að kennarar
taki sjálfir við rekstri skólanna og
skólar keppi um nemendur eins og
önnur fyrirtæki um viðskiptavini.
Vef-Þjóðviljans vegna mætti gefa
kennurum skólana ef það þyrfti til að
koma skólunum í einkarekstur og
samkeppni. Ætli kennarar hefðu jafn-
mikla löngun tU að loka skólunum
með verkfaUi ef þeir ættu þá sjálfir?
Ætli nemendur og foreldrar sýndu
verkfaUi jafnmikið andvaraleysi ef
þeir tækju meiri þátt í að greiða
kostnað við skólagönguna beint?“
Úr Vef-Þjóöviljanum 28. nóvember.
Sárindi Steingríms
„Sumar bækur hafa
verið umtalaðar og
seljast mikið... Ævi-
saga Steingríms Her-
mannssonar er ein af
þessum bókum... Það
er alveg ljóst af bók-
inni, að Steingrímur
hefur farið út úr stjómmálum með
meiri eftirsjá og sárindum en ég gerði
mér grein fyrir. Það er jafn ljóst, að
þetta bitnar á eftirmanni hans í stóli
formanns FramsóknarQokksins... Ég
vU hins vegar fuUyrða, að engin undir-
mál voru þar að baki. Það var málefna-
legur ágreiningur um þetta mál... Mér
fínnst minn fyrrverandi formaður per-
sónugera þetta alltof mikið í bókinni."
Jón Kristjánsson alþm. í Degi
28. nóvember.
Séra Gunnar á móti
sjálfum sér
Séra Gunnar Kristjánsson, pró-
fastur á Rejmivöllum, var einn
þeirra áhrifamanna í kirkjunni sem
mótuðu nýju þjóðkirkjulögin er tóku
gUdi 1998 og átti hlut að samkomu-
lagi um framgang þeirra. Ætla hefði
mátt að þeir sem stóðu að því að
taka þetta framfaraspor, og geröu í
því skyni nauðsynlegar málamiðlan-
ir, stæðu saman um nýtt stjórn-
skipulag kirkjunnar að minnsta
kosti þar tU væri komin á það 5 til 10
ára reynsla. Hann hefur þó valið að
hefja baráttu fyrir því, í nafni lýð-
ræðisins, að biskup verði hent út af
kirkjuþingi, settur af sem formaður
kirkjuráðs og sviptur öUum eiginleg-
um völdum nema tilsjón með kirkju-
legu starfí. Séra Gunnar hefur því
snúið baki við þeirri málamiðlun
sem hann stóð að, og má segja að
hann eigi í höggi við sjálfan sig.
Bein kosning á kirkjuþíng
Ég hef hvergi séð ReynivaUaprest
draga rökrétta ályktun af lýðræðis-
skUningi sinum. Það liggur í augum
uppi að eigi að kasta biskupnum út
af kirkjuþingi hljóta prestamir að
fara sömu leið. Það væru engin rök
fyrir þvi að þeir né aðrir hefðu kvóta
á kirkjuþinginu eins og prestar hafa
nú. Ef beita á eingöngu lýðræðisrök-
um í tengslum við kirkjuþing hljóta
öU embættisforréttindi að víkja, og
ekki verður þá staðar numið fyrr en
söfnuðir landsins kjósa fuUtrúa sina
beinni kosningu á kirkjuþing. Þá
yrðu prestar jafnt sem leikmenn að
lúta lýðræðislegri niðurstöðu kosn-
inga. Á nýafstöðnu krkjuþingi deUdi
séra Gunnar hart á biskup vegna
þess hvemig tekið var á Holtsmálum
starfsbróður hans og nafna. Hann
getur þess hvergi í löngu DV-viðtali
25. nóvember að á þinginu vændi
hann biskupinn um lögbrot og frnnst
það svo „afar óþægUegt þegar biskup
persónugerir umræðuna". - Ætli
flestum finnist ekki afar óþægilegt
að vera vændir um lögbrot, jafnvel
embættismönnum!
Dýrt orð lögbrot
En einnig í þessu máli lendir
Gunnar á móti sjálfum sér. Ég minn-
ist þess að í umræðum á opinberum
vettvangi lýsti hann eftir því að
kirkjan kæmi sér upp leiðum til þess
að gera út um innri deUumál, svo að
þeim mætti ljúka með formlegum
hætti en væru ekki í uppnámi árum
saman. Þegar farvegur fyrir slik úr-
skurðarmál hefur verið fundinn á
traustan og lögformlegan
hátt snýst hann gegn hon-
um vegna þess að niður-
staöa í einu slíku feUur
honum ekki í geð. í DV-
viðtalinu er breitt yfir þá
staðreynd að kirkjuþing
visaði frá tUraun Gunnars
tU þess að vekja máliö upp
á þeim vettvangi með
sautján atkvæðum gegn
tveimur, en fjórir sátu hjá.
Engum er greiði gerður,
síst málsaðilum sem virða
eiga friðarskyldu, með því
að halda málinu vakandi innan
Kirkjuþings eða í fjölmiölum eftir að
niðurstaða er fengin. Kirkjuþing er
ekki dómstóU og meint lögbrot eru
verkefni dómstóla. Sé það raunveru-
lega skoðun Gunnars að lögbrot hafi
verið framin ber honum að taka mál-
ið upp á réttum stað, og stuðla að því
að það verði rekið fyrir dómstólum,
að öðrum kosti veröur hann að telj-
ast ómerkingur orða sinna.
í orði og á borðl
verið uppbyggUegur tUlögu-
maður, enda heldur hann
því gjarnan til haga í sínum
tölum. Þess vegna er það
sérkennUegt að hann skuli
snúast öndverður gegn ýms-
um framfaramálum, sem
hann hefur gert tUlögur um
eða verið meðmæltur, þegar
þau koma tU framkvæmda.
Þannig var hann í Qokki
meðmælenda þess á síðasta
kirkjuþingi, að haldnir yrðu
kirkjudagar eða landsmót
kirkjunnar eins og gert er
víða erlendis. Þegar biskup leggur tU
að svo verði gert næsta vor snýst
hann gegn því. - Séra Gunnar var
sem sagt á kirkjuþingi árið 2000 á
móti séra Gunnari á kirkjuþingi
1999. Af þessu verður að draga þá
ályktun að svo geti farið að þegar
séra Gunnar verður orðinn biskup,
eins og metnaður hans stendur tU,
muni hann snúast gegn öUum hug-
myndum sínum um að skerða bisk-
upsvald og sitja sem fastast í for-
mannssæti kirkjuráðs.
Einar Karl Haraldsson
Innan kirkjunnar hefur Gunnar
„Af þessu verður að draga þá ályktun að svo geti farið
að þegar séra Gunnar verður orðinn biskup, eins og
metnaður hans stendur til, muni hann snúast gegn öll-
um hugmyndum sínum um að skerða biskupsvald og
sitja sem fastast í formannssæti kirkjuráðs. “
Einar Karl
Haraldsson
ritstjori