Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2000, Page 22
26
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000
Ættfræði
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
85 ára_______________________
\gna Guðrún Jónsson,
3arðavogi 1, Reykjavík.
80 ára_______________________
Aðalheiður Jónsdóttir,
Lönguhlíð 7a, Akureyri.
75 ára_______________________
Elín Friöriksdóttir,
Hjarðarhaga, Akureyri.
Suörún Hannesdóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
Hlynur Júlíusson,
Veistaravöllum 23, Reykjavík.
Hlöðver Jóhannsson,
Núpalind 8, Kópavogi.
Jóhanna Hrafnfjörö,
Ásvallagötu 25, Reykjavík.
70 ára__________________________
Elsa Herborg Þórarinsdóttir,
Engihjalla 9, Kópavogi.
Vlagna Ásmundsdóttir,
Urðarteigi 11, Neskaupstað.
ðli D. Friðbjörnsson,
Hjallalundi 20, Akureyri.
50 ára_________________________
Sirkir Þorsteinsson,
Brunngötu 16, ísafirði.
trla Sigurdís Jónsdóttir,
Suöurvangi 14, Hafnarfirði.
Hilmar Árnason,
Suðurbraut 2, Hafnarfirði.
Vilhjálmur Vilhjálmsson,
Nýbýlavegi 88, Kópavogi.
>0 ára_________________________
Álfreð Alfreðsson,
Syöufelli 6, Reykjavík.
íristján Ingólfsson,
_autasmára 31, Kópavogi.
jvanur Guðmundsson,
Oalsmynni 2, Borgarnesi.
jvavarJónsson,
i/ættaborgum 154, Reykjavík.
Þór S. Hauksson,
Valsmýri 4, Neskaupstað.
Þórdís Svavarsdóttir,
Njörvasundi 11, Reykjavík.
40ára___________________________
Ágústa Ragnars,
Eskihlið 20 a, Reykjavík.
Birna Guðrún Jennadóttir,
Engihjalla 17, Kópavogi.
Friðbjörn R. Georgsson,
Norðurvangi 14, Hafnarfiröi.
Guðlaug Kristín Benediktsdóttir,
Safamýri 38, Reykjavík.
Júníus Guðjónsson,
Reykjabyggð 49, Mosfellsbæ.
Lýdía Rafnsdóttir,
Háarifi 85 Rifi, Hellissandi.
Magnús Arinbjörnsson,
Gullengi 33, Reykjavík.
Ólöf Guðrún Björnsdóttir,
Borgarhrauni 26, Hveragerði.
Ólöf Jónsdóttir,
Heimavöllum 13, Keflavlk.
Ómar Hjaltason,
Skeiðarvogi 119, Reykjavík.
Sólveig S. Kristjánsdóttir,
Þinghólsbraut 13, Kópavogi.
Timothy Joseph Hemesath,
Rekagranda 2, Reykjavík.
Smáauglýsingar
DV
visir.is
Andlát
Sesselja Valdemarsdóttir andaöist á
dvalarheimilinu Hllð sunnud. 26.11.
Gestur Kristjánsson frá Hreðavatni,
Snorrabraut 56, er látinn.
Sigurður Guðjónsson bifvélavirki, frá
Vogatungu, Háholti 31, Akranesi, lést á
gjörgæsludeild Landspltalans 24.11.
Margeir Sigurjón Vagnsson, Bæjartúni
11, Ólafsvík, lést laugard. 25.11.
Dóra Jóhannesdóttir, Safamýri 81,
Reykjavík, lést á heimili sínu 25.11.
Halldóra Eggertsdóttir, fyrrv. náms-
stjóri, Stórholti 27, Reykjavík, lést á
Landspltalanum við Hringbraut 25.11.
Hans-Christoph Herrmann kennari, lést
sunnud. 26.11. á sjúkrahúsi I Lúbeck.
Óskar Haukur Friöþjófsson hárskera-
meistari, Austurströnd 4, Seltjarnarnesi,
andaðist I Orlando I Bandaríkjunum að
morgni sunnud. 26.11.
I>V
Rmmtugur
Rúnar Eiríksson
varðstjóri við Fangelsið á Litla-Hrauni
Rúnar Eiríksson, varðstjóri við
Fangelsið á Litla-Hrauni, Túngötu
35, Eyrarbakka, verður fimmtugur í
dag.
Starfsferill
Rúnar fæddist á Eyrarbakka og
ólst þar upp. Auk þess var hann í
sveit mörg sumur að Unnar-
holtskoti í Hrunamannahreppi.
Hann lauk hefðbundnu skyldunámi
frá Bamaskólanum á Eyrarbakka
og lauk síðar námi við Fangavarða-
skóla íslands 1983.
Rúnar var til sjós í nokkur ár,
starfaði hjá Pósti og síma um skeið
og stundaði ýmis önnur almenn
störf. Hann hóf síðan störf við fang-
elsi ríkisins, vann fyrst við Hegn-
ingarhúsið við Skólavörðustig í
Reykjavík en hefur starfað við fang-
elsið á Litla-Hrauni frá 1984 og er
þar nú varðstjóri.
Rúnar hefur sinnt ýmsum félags-
málum. Hann hefur setið í stjórn
slysavarnardeildarinnar Bjargar á
Eyrarbakka, í stjórn Fangavarðafé-
lags íslands og hefur setið i ýmsum
nefndum á vegum Eyrarbakka-
hrepps. Þá er hann félagi í Lions-
klúbbi Þorlákshafnar.
Fjölskylda
Eiginkona Rúnars er Auður Elín
Hjálmarsdóttir, f. 25.5. 1955, leið-
beinandi við leikskóla. Hún er dótt-
ir Hjálmars Helgasonar, f. 16.6.1920,
d. 22.11. 1993, sjómanns og verslun-
armanns í Reykjavík, og Elínar
Sumarliðadóttur, f. 21.9. 1923, d.
25.11. 1997, húsmóður í Reykjavík.
Börn Rúnars og Auðar Elínar eru
Elín Katrín Rúnarsdóttir, f. 3.9.
1972, húsmóðir í Reykjavík og eru
böm hennar Ægir Máni, Álfrún
Auður og Anita Ögn; Eiríkur Már, f.
11.5. 1976, d. 12.5. 1976; Eiríkur Már,
f. 14.9. 1979, nemi; Helga Þórey, f.
31.10. 1987, nemi.
Systkini Rúnars eru Jón Sigur-
björn Eiríksson, f. 19.1. 1952, gæslu-
maður á Eyrarbakka, kvæntur Þór-
dísi Þórðardóttur leirlistakonu og
eiga þau þrjú börn og tvö barna-
böm; Emma Guðlaug Eiríksdóttir, f.
14.10. 1954, póstburðarmaður á Eyr-
arbakka en maður hennar er Haf-
þór Gestsson aðstoðarvarðstjóri og
eiga þau þrjár dætur; Þórður Eiríks-
son, f. 25.9. 1959, fiskútflytjandi í
Þorlákshöfn en kona hans er Erla
Karlsdóttir fiskvinnslumaður og
eiga þau þrjá syni og eitt barna-
barn.
Foreldrar Rúnars eru Eiríkur
Runólfsson, f. 17.9. 1928, fyrrv. sjó-
maður og fangavörður við fangelsiö
á Litla-Hrauni, og k.h., Stefanía
Þórðardóttir, f. 20.10. 1930, fyrrv.
verslunarmaður.
Ætt
Eiríkur er sonur Runólfs, verka-
manns á Fáskrúðsfirði og síðar á
Eyrarbakka Guðmundssonar, b. á
Bakka og gestgjafa í Bakkagerði í
Borgarfirði eystra Bjömssonar, er
drukknaði í Vikum Stefánssonar
Krull. Móðir Bjöms var Þuriður
Hallasystir Jónsdóttir, b. í Tungu í
Fáskrúðsfirði Bjarnasonar. Móðir
Þuríðar er Helga Magnúsdóttir,
Árnasonar, ríka á Amheiðarstöð-
um. Móðir Guðmundar var Ólöf
Jónsdóttir, frá Hólalandi Stefáns-
sonar. Móðir Runólfs var Guðrún
Jónsdóttir úr Reykjavík.
Móðir Eiríks var Guðlaug Eiriks-
dóttir.
Stefanía er dóttir Þórðar, skip-
stjóra í Vestmannaeyjum er fórst
með Ófeigi 1942 Þórðarsonar, b. á
Sléttabóli á Hörgslandi Magnússon-
ar. Móðir Þórðar skipstjóra var Ey-
gerður Magnúsdóttir.
Móðir Stefaníu var Guðfinna,
fósturdóttir Markúsar á Hjörleifs-
höfða, dóttir Stefáns, vinnumanns
víða og verkamanns í Reykjavík
Þorkelssonar, hreppstjóra á Sönd-
um á Meðallandi Þorkelssonar.
Móðir Stefáns var Guðrún Þorkels-
dóttir. Móðir Guðfinnu var Jónína
Sigurbjörg Jónsdóttir Long, b. á
Hólum á Norðfirði Matthíassonar
Long, vinnumanns víða á fjörðum
og á Héraði Richardssonar, ættfóð-
ur Longættar. Móðir Jóns Long var
Jófríður Jónsdóttir, b. á Hrafnkels-
stöðum, Bessastöðum, í Klúku, á
Glúmsstöðum og í Hamborg i Fljóts-
dal Eiríkssonar, og Guðbjargar
Magnúsdóttur. Móðir Jónínu Sigur-
bjargar var Guðfinna Sigfúsdóttir,
b. á Tandrastöðum og í Fannardal
Vilhjálmssonar, og Ingibjargar
Skúladóttur.
Rúnar og Auður Elín taka á móti
ættingjum og vinum í samkomuhús-
inu Stað á Eyrarbakka
laugardaginn 2.12. frá kl. 20.30.
Fertug : Fertugur
Bjarney Elsebeth Sigvaldadóttir
verkamaður að Mel í Andakíl
Bjamey Elsebeth Sig-
valdadóttir, starfsmaður
hjá Vegagerð ríkisins i
Borgamesi, búsett að Mel
i Andakíl í Borgarfirði, er
fertug i dag.
Starfsferill
Bjamey fæddist í Kefla-
vík og ólst þar upp. Hún
var i barnaskóla í Kefla-
vík og lauk gagnfræðaprófi frá
Gagnfræðaskóla Keflavíkur.
Bjamey byrjaði ung að sendast og
selja Vísi og Suðurnesjatíðindi, fór
ellefu ára á handfæri með afa sínum
í Færeyjum, hóf tólf ára að vinna í
frystihúsum á sumrin, og starfaði
við frystihús i Garöinum í þrjú ár.
Bjarney var bóndakona að Kletti í
Gufudalshreppi í sex ár og í Botni í
Mjóafirði við ísafjarðardjúp í fjögur
ár en flutti síðan til Reykjavíkur
þar sem hún var strætisvagnstjóri í
þijú ár.
Bjamey var kranastjóri á bygg-
ingarkrana hjá fSTAKI sl. sumar,
starfaði hjá Loftorku i Borgarnesi í
nokkra mánuði en starfar nú hjá
Vegagerð ríkisins í Borgarnesi.
Fjölskylda
Bjarney giftist 1.8. 1982 Torfa
Guðmundi Jónssyni, f.
8.4. 1963, bifreiðastjóra og
nema í búvísindum.
Hann er sonur Jóns Hall-
dórs Bjömssonar, verka-
manns í Keflavík, og Ás-
laugar Torfadóttur,
verkakonu í Sandgerði.
Böm Bjarneyjar og
Torfa Guðmundar eru Ás-
laug Torfadóttir, f. 2.6.
1982 en dóttir hennar er Agnes Rut
Kristjánsdóttir, f. 31.1. 2000; Jó-
hanna Valdís Torfadóttir, f. 27.4.
1983; Anna María Torfadóttir, f. 13.6.
1987; Ólöf Birna Torfadóttir, f. 13.9.
1990: Jón Halldór Torfason, f. 17.9.
1992.
Systkini Bjarneyjar eru Maria
Lovísa Sigvaldadóttir, f. 13.6. 1964,
húsmóðir í Reykjavík; Jóhannes
Amar Sigvaldason, f. 4.4. 1970,
verkamaður í Keflavík; Ólafur
Ágúst Sigvaldason, f. 1.8.1972, vagn-
stjóri hjá SBK, búsettur í Keflavík.
Foreldrar Bjarneyjar eru Sigvaldi
Amoddsson, f. 13.1. 1940, skipa- og
húsasmiður í Keflavík, og Jóhanna
Sofía Jóhannesdóttir, f. 19.7. 1942,
verkakona. Sigvaldi er frá Keflavík
en Jóhanna Sofia er frá Skopun í
Sandey í Færeyjum.
Vignir Baldur Almarsson
verkstjóri í Gúmmívinnustofunni
Vignir Baldur Almars-
son, verkstjóri í Gúmmí-
vinnustofunni, Goðatúni
21, Garðabæ, er fertugur í
dag.
Starfsferill
Vignir fæddist á Hell-
issandi og ólst þar upp.
Hann var í barnaskóla á
Hellissandi og lauk þar
grunnskólanámi.
Vignir stundaði sjómennsku frá
Hrísey, Dalvík og Hellissandi, starf-
aði í nokkur ár hjá Kristjáni bakara
á Akureyri. Þá var hann búsettur á
Nýja-Sjálandi um skeið þar sem
hann starfaði við dekkjasólun.
Vignir hefur verið verkstjóri í
Gúmmívinnustofunni sl. átján ár.
Fjölskylda
Vignir kvæntist 1993 Ingu Hildi
Yngvadóttur, f. 28.2. 1964, snyrti- og
fótaaðgerðarfræðingi. Þau hófu
sambúð 1989. Hún er dóttir Yngva
M. Gunnarssonar sem er látinn, og
Ástheiðar Guðmundsdóttur hús-
móður.
Sonur Vignis og fyrrv. sambýlis-
konu hans, Kristínar Önnu Alfreðs-
dóttur, er Atli Vignisson, f. 17.12.
1981, sjómaður í Reykja-
vík en unnusta hans er
Þórey Erla Sigurðardótt-
ir, f. 25.11. 1981.
Böm Vignis og Ingu
Hildar em Sara Dögg
Vignisdóttir, f. 19.9. 1991;
Gabríel Daöi Vignisson, f.
21.7. 1994.
Sonur Ingu Hildar og
fóstursonur Vignis er
Daníel Bjarni Ingólfsson, f. 20.1.
1982, verkamaður, búsettur í Garða-
bæ.
Hálfbróðir Vignis, sammæðra, er
Danelíus Sigurðsson, f. 11.10. 1948,
rennismiður.
Alsystkini Vignis eru Alfreð Örn,
f. 18.2. 1951, deildarstjóri í Elko á
Akureyri; Halldór, f. 19.8. 1952,
stýrimaður og leiðbeinandi hjá
Slysavarnaskóla íslands; Sigfús, f.
22.3. 1955, verslunarmaður; Pálmi
Bergmann, f. 26.10. 1956, fasteigna-
sali; Sveindís Ingigerður, f. 21.10.
1958, húsmóðir; Dagbjört Fjóla, f.
3.5. 1965, verkakona.
Foreldrar Vignis em Almar Jóns-
son, f. 11.7. 1927, og Guðrún Rut
Daníelsdóttir, f. 1.8. 1931, lengst af
búsett á Hellissandi en nú í Kópa-
vogi.
Merkir íslendingar
Pétur Guðjohnsen, dómorganisti og söng-
stjóri, fæddist á Hrafnagili í Eyjafirði
29. nóvember 1812, sonur Guðjóns Sig-
urðssonar, bónda á Sjávarborg í Skaga-
firði, og Guölaugar Magnúsdóttur.
Pétur lauk stúdentspróf 1835 og prófi
frá Johnstraps kennaraskóla 1840.
Hann settist síðan að í Reykjavík,
vann þar brautryðjendastarf í
tónlistarmálum og varð helsti
menningarstólpi bæjarins um árabil.
Hann var dómorganisti til æviloka,
kennari í Barnaskólanum, söngkennari
í Reykjavíkurskóla og í prestaskólanum,
skrifari stiftamtmanns og landshöfðingja,
gegndi sýslumannsembætti, sinnti málflutn-
ingi og var alþingismaður.
Pétur Guðjohnsen
Frá Pétri er talin Guðjohnsenætt en kona
hans, Guðrún Sigríður, var ein af mörgum
dætrum Lauritz Knudsen, kaupmanns og
ættföður Knudsenættar. Pétur og Guð-
rún eignuðust fjölda mannvænlegra
bama sem giftust inn í helstu kaup-
manns- og embættisættir Reykjavíkur,
s.s. Möllera, Thoroddsena, Waage,
Fjeldsted og Thorsara. Frá Pétri og
Guðrúnu er kominn fjöldi mikilhæfra
Reykvíkinga, ekki sist á sviði leiklist-
ar, tónlistar og ritlistar. Guðjohnsenætt
kemst þvi líklega næst því að hafa orðið
einhvers skonar menningar-aðalsætt
Reykjavíkur i lok nítjándu aldar og á fyrri
hluta tuttugustu aldar.
Pétur lést 25. ágúst 1877.
Jarðarfarir
Útför Jóns Kort Ólafssonar, Maganesi,
Fljótum, fer fram frá Siglufjarðarkirkju
laugard. 2.12. kl. 11. Jarösett verður aö
Barði I Fljótum.
Guðmann Einar Magnússon, Vindhæli,
Austur-Húnavatnssýslu, verður jarðsettur
frá Höskuldsstaöakirkju, Skagaströnd,
miðvikud. 29.11. kl. 14.
Erna Aradóttir, til heimilis I Skaftahllð
6, Reykjavík, verðurjarösungin frá Há-
teigskirkju miðvikud. 29.11. kl. 15.
Geir Guöbrandsson, Brunngötu 12a,
ísafirði, verður jarðsunginn frá ísafjarð-
arkirkju miövikud. 29.11. kl. 14.
Útför Gísla Péturs Ólafssonar, Nóatúni
25, Reykjavík, veröur gerð frá Háteigs-
kirkju miðvikud. 29.11. kl. 13.30.
Jarðarförin fer fram frá Viðvíkurkirkju I
Skagafirði laugard. 2.12. kl. 14.