Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2000, Qupperneq 24
Í8
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000
Tilvera
lí f iö
Bókakynning í
Kaffileikhúsinu
Bækur hins nýja bókaforlags,
Sölku, verða kynntar í
Kaffileikhúsinu í kvöld og hefst
kynningin kl. 20.30.
Lesið verður úr þremur nýjum
þýðingum, Kossinum eftir
Kathryn Harrison, Á lausu eftir
Marianne Eilenberger og
Fegraðu lif þitt eftir Victoriu
^ Morgan.
Einnig verður lesið úr Bókinni
Matarsögur en í þeirri bók segja
17 þekktar islenskar konur
sögur úr eldhúsinu og gefa
jafnframt uppskriftir. Meðal
þeirra kvenna er Guðrún Eva
Mínervudóttir.
Djass
■ CLEO LAINE A BROADWAY Hin
heimsþekkta jazzsöngkona Cleo
Laine heldur tónleika ásamt eigin-
manni sínum á Broadway I kvöld. Er
þetta í þriðja skiptið sem Cleo held-
m ur tónleika hér.
Leikhús
■ HVAR ER STEKKJASTAUR?
Ferðaleikritið Hvar er Stekkjastaur?
eftir Pétur Eggerz verður sýnt í
Hellubíói á Hellu kl. 17.15 I dag.
Sýningin er fyrir börn á aldrinum 2ja-
9 ára og er 45 mínútna löng. Tveir
leikarareru í sýningunni, þau Bjarni
Ingvarsson og Aino Freyja Járvelá.
■ LÍKll LÍKT Leikfélag Kópavogs
sýnir Líku líkt eftir William
Shakespeare í Hjáleigu, félagsheim-
ili Kópavogs kl. 20 í kvöld. Miða-
pantanir I síma 554 1985.
■ MEDEA I Iðnó í kvöld veröur sýn-
ing á harmleiknum Medeu eftir
Evrípídes. Uppsetningin er nýstárleg
> og notaðír eru ýmsir miðlar í henni.
Sýningafjöldi er mjög takmarkaöur
og því er um að gera að drífa sig og
sjá stykkið.
Kabarett
■ STÉÍNN STEINARB I tilefni nýút-
kominnar ævisögu Steins Steinarrs
og útgáfu Ijóöabálks hans um stúlk-
una Höllu standa Leikfélag Reykja-
/íkur og JPV-forlag fyrir samkomu til
leiðurs höfundinum í Borgarieikhús-
inu. Gylfi Gröndal, höfundur ævisög-
unnar, kynnir báðar bækurnar, fjall-
að verður um skáldið og leikarar
lesa uppáhaldsljóö sín eftir Stein.
Dagskráin hefst í kvöld kl. 20 í and-
dyri Borgarleikhússins.
■ LÚÐRASVEIT REYKJAVÍKUR
heldur árlega hausttónleika sína í
» Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld kl.
20. Á efnisskránni er m.a. tónlist úr
West Side Story eftir Leonard
Bernstein. Stjórnandi
lúðrasveitarinnar er Lárus Halldór
Grímsson.
Fundír
■ SPAKSTUND Soffía, félag he'im-
spekinema, stendur fyrir Spakstund
í Hlaövarpanum í kvöld eins og
flesta aðra miðvikudaga. Sigríöur
Þorgeirsdóttir flytur fyrirlestur um
Friedrich Nietzsche. Ollum er heimilt
að hlýða á og það án kostnaðar.
■ FYRIRLESTUR í ÁRNAGARÐI Dr.
" Tuomas Huumo, prófessor í finnsku
við Háskólann í Turku j Finnlandi,
flytur fyrirlestur í boöi íslenska mál-
fræöifélagsins í dag í stofu 423 í
Árnagarði. Fyrirlesturinn verðurfiutt-
ur á ensku og nefnist Conceptual
Blending in Finnish Existentials. í
fyrirlestrinum mun dr. Huumo fjalla
um tengsl tilvistarsetninga og setn-
inga sem lýsa staðsetningu.
Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is
ÐV
Spakmæli:
Taktu lífið ekki of alvarlega
Bíógagnrýni_______________________________________________________.
Laugarásbíó/Stjörnubíó/Bíóhöilin - Charlie’s Angels: Á
Torfi Jónsson er fæddur að
Kvennabrekku í Miðdölum árið
1919. „Ég starfaði mestalla mína
tið sem lögreglumaður í Reykjavík
eða í fjörutíu ár, tuttugu ár sem
götulögreglumaður og önnur tutt-
ugu í rannsóknarlögreglunni.
Núna er ég bara grúskari og kann
vel við mig sem slíkur.“ Fyrir
nokkrum árum sá Torfi um viku-
legan vísnaþátt í DV og liggja eftir
hann um 140 þættir. Torfi segir að
hann eyði öllum sínum tíma fyrir
framan tölvu eða við grúsk. „Ég
kann svo sem ekki mikið á tölv-
una annað en að slá inn það sem
ég er að skrifa, ég er tengdur við
Netið en fer sárasjaldan inn á
það.“
Byrjaði með póstkorti
„Áhugi minn á spakmælum
hófst þegar ég fékk póstkort frá
dóttur minni, sem var við nám í
Dublin á írlandi. Á kortinu stóð:
„Taktu lífið ekki of alvarlega því
þú kemst hvort eð er ekki lifandi
frá því“. Ég hengdi kortið upp á
skrifstofunni hjá mér og tók eftir
því að fólk rak augun í það og
fannst þetta sniðugt. Mér fannst
jafnvel betra að tala við fólk á eft-
ir, þannig að ég fór að skrifa hjá
mér spakmæli og hengja þau upp á
vegg og þetta varð árátta hjá mér.
Síöan er ég búinn að safna að mér
mörgum bindum af spakmælabók-
um á mörgum tungumálum og ég
hef sótt mikið af bókum á söfn.
Flest spakmælin sem ég hef gefið
út eru því þýdd eins og þetta,
mörgum myndi líða vel ef öðrum
liði ekki betur. Ég hef gefið út átta
spakmælakver sem öll byrja á
sama heitinu: „Nokkur orð um...“
og svo kemur efnið á eftir. Heftin
seldust misjafnlega, ég hafði engan
dreifmgaraðila þannig að ég stóð í
þessu sjálfur. Stundum tók það
nokkur ár að koma þessu út og ég
var ánægður ef útgáfan stóð undir
sér. Bókaútgáfan Skjaldborg gaf
svo út fjögur af þessum kverum
seinna og þau eru löngu horfin. Ég
hef líka tekið saman þrjú bindi af
Englar
í loftfimleikum
Hilmar
Karlsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
æviskrám samtímamanna og
syrpu úr handritum Gísla Kon-
ráðssonar. Örn og Örlygur gáfu út
Spakmælabókina fyrir nokkrum
árum og hún er löngu uppseld,
þannig að þetta selst allt saman að
lokum. Bókin sem ég er að setja
saman núna er safn úr öllum
„bókin sem ég er að setja
saman núna er safn úr
öllum gömlu spakmœla-
bókunum og er á sjötta
hundrað blaðsíður
að lengd“
gömlu spakmælabókunum og er á
sjötta hundrað blaðsíður að lengd.
Sonur minn ætlar að gefa hana út
með mér og við verðum bara að
vona það besta. Það er alveg
greinilegt að fólki finnst spakmæl-
in skemmtileg, því ég á stóran
bunka af bréfum frá fólki sem hef-
ur skrifað mér út af þeim. Bréfin
eru reyndar flest frá konum,
þannig að þær lesa þetta frekar en
karlmenn.“
Taktu lífiö ekki of alvarlega því þú kemst hvort eö er ekki lifandi frá því
Torfi Jónsson byrjaöi að safna spakmælum eftir að hann fékk eitt slíkt á
póstkorti fré dóttur sinni, síðan hefur hann þýtt og gefið út nokkur
hundruð spakmæii.
Skrá yfir dána íslendinga
„Ég er líka að vinna efni sem ég
hef gripið í síðustu tíu árin, en það
felst í því að taka saman skrá yfir
dána íslendinga. Til að byrja með
tók ég saman upplýsingar um alla
sem hafa dáið frá aldamótunum
1800 til dagsins í dag og nú er ég að
taka tímabilið frá landnámi tO
1800. Ég skrái nöfn og dvalarstað
þar sem það er hægt, starf, fæðing-
ar- og dánardag og ýmislegt smá-
legt þegar ég get. Þetta er hálfgert
föndur hjá mér og ég veit ekki
hvort þetta kemur nokkurn tíma
út. Ætli ég sé ekki kominn með
rúmlega 150.000 nöfn á skrá,
þannig að þetta er orðið mikið
safn. Mér flnnst þetta ágæt leið til
að drepa tímann, meðan ég hef
einhvern tíma til að
drepa.“ -Kip
Nútimahasarhetjur kvik-
myndanna eru karlmenn og
allar tilraunir kvenkynsins
til að komast upp að James
Bond og félögum hafa mis-
tekist, allt frá Modesty Bla-
ise til Charlie’s Angels, sem
er nýjasta tilraunin. Nú átti
ekki að slá eina flugi í einu
höggi heldur þrjár og eins og
allir vita er neyðarlegra að
slá þrjú vindhögg en eitt og
því er Charlie’s Angels ein-
hver versta tilraun til að
koma á framfæri kvenkyns
hasarhetjum sem um getur.
Það er þó ekki hægt að
kenna hinum glæsilegu
englum, Cameron Diaz,
Drew Barrymore og Lucy
Liu, um hvernig til hefur
tekist. Þær gera það sem fyr-
ir þær er lagt, hafa greinileg
æft líkamana vel og með
hjálp tölvutækni sem fyrst
sást í Matrix eru þær ofur-
hetjur slagsmálanna. Þá
brosa þær fallega og eru góð-
ar við saklausa drengi og
hættulegar þeim sem eru
vondir.
Sá sem er ábyrgur er fyr-
ir þessum óskapnaði kýs að
kalla sig McG og leikstýrir hann
myndinni. McG komst í leikstjóra-
stólinn í gegnum tónlistarmynda-
bransann og leikstýrir Charlie’s
Angels eins og um tónlistarmynd-
band sé að ræða. Misgóð lög herja á
mann í hverju einasta atriði og allt
gert til að útlitið sé sem flottast. Satt
best að segja fær myndin þessa
Englarnir þrír eru góðan tíma í myndinni að koma sér i stellingar áður en hasarinn
hálfu stjörnu fyrir útlit og tækni-
brellur. Það að þær fái aðeins hálfa
stjörnu fyrir þessi atriði, sem eru
vel gerð, er vegna þess að í Charlie’s
Angels sannast það að flott útlit án
innihalds og tæknibrellur án hugs-
unar er ekkert annað en augljóst
fals.
I byrjun er áhersla lögð á að
kynna stúlkurnar þrjár og fyrir
hvað þær standa. í vita vonlausu
kynningaratriði, þar sem þær koma
í veg fyrir að flugvél sé sprengd í
loft upp, fáum við allar brellumar á
færibandi þannig að sá spenningur
er úti. Aðalsagan snýst síðan um
björgun stúlknanna á saklausu
tölvuséníi úr höndum
ribbalda, tölvuséníi sem
ekki er svo saklaust þegar
upp er staðið, þegar í Ijós
kemur að markmið hans
er að ráða niðurlögum
Charlies, sem englarnir
hafa aldrei séð.
Tengiliður Englanna
við Charlie er Bosley, sem
Bill Murray leikur, og
hann á svo sannarlega
bágt. Sögur segja að
Murray hafi alls ekki ver-
ið tilkippilegur tU að leika
Bosley, en mUljónir doll-
ara hafi sannfært hann
um að rétt væri að taka að
sér hlutverkið. Murray er
hér sá sem á að sjá um
húmorinn, fettir sig og
brettir og tekur kunnug-
leg bakfóU en allt til
einskis. Það hefði þurft
eitthvert ofurmenni í gam-
anleik til að geta gert sér
mat úr efniviðnum sem
Murray fær.
Upp hefur verið talið
það sem teljast verður
skást við Charlie’s Ang-
els, útlit og tæknibrellur.
Einu mætti hrósa tU við-
bótar. myndin er „aðeins“ 90 mínút-
ur.
Leikstjóri: McG. Handrit: Ryan Rowe, Ed
Solomon og John August. Kvikmynda-
taka: Russell Carpenter. Tónlist: Edward
Shearmur. Aðalleikarar: Cameron Diaz,
Drew Barrymore, Lucy Liu, Bill Murray,
Tim Curry og Kelly Lynch.
byrjar.