Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.2000, Side 28
*
)
Fallegar
postulíns-
dúkkur
Sími 567 4151 & 567 4280
Heildverslun með leikföng.og gjafavörur
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá f síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2000
DV-MYND E.ÖL.
Vodkasmygl
Mörg hundruö lítrar af vodka og
öðru áfengi, ásamt einhverju af tó-
baki, fundust í Skógafossi í gær.
Lögreglan er með málið í rannsókn.
Skógafoss:
Hundruð lítra
af smygluðu
áfengi finnast
Tollverðir fundu hundruð lítra af
' smygluðu áfengi og talsvert magn af tó-
baki um borð í flutningaskipinu Skóga-
fossi í gær. Skógafoss, sem er fraktari í
eigu Eimskips, kom tU hafnar í Sunda-
höfn frá Norður-Ameríku snemma í
gærmorgun. Við leit í skipinu fundu
toUverðir áfengið.
„Þetta eru nokkur hundruð lítrar af
vodka og öðru áfengi og eitthvað af tó-
baki,“ sagði aðaldeUdarstjóri ToUsins í
Héðinsgötu, Sveinbjöm Guðmundsson,
í viðtali við DV í morgun.
„Það er ekki búið aö handtaka
neinn, ekki enn þá aUavegana, og við
vonum að það komi ekki tU þess,“
sagði Sveinbjöm. Hann sagði málið
vera enn í rannsókn og því væri lítið
hægt að segja um það enn sem komið
er, en bætti því við að meiri upplýsing-
ar um málið ættu að liggja fyrir seinna
í dag. -SMK
DV-MYND INGÖ
Cleo Laine á Broadway
Það var ekki að sjá í gærkvöldi á
tónleikum Cleo Laine að hún væri
komin á áttræðisaldur. Hún fór létt í
gegnum þekktar djassperlur og
raddsviöiö hefur ekkert breyst, fór á
háu og lágu nóturnar eins og ekkert
væri. Meö henni á myndinni er
hennar stoð og stytta í lífinu, eigin-
maðurinn John Dankworth sem
> sýndi snilldartakta á saxófóna
og klarínett.
Jólaskreytingar:
Sigtryggur
brotnaði
Sigtryggur Helgason, fyrrum for-
stjóri Brimborgar, handleggsbrotn-
aði í gær þegar hann vann við upp-
setningu á jólaskreytingum við hús
sitt að Hlyngerði 12 í Reykjavfk, en
Sigtryggur skreytir meira með ljós-
um en tíðkast um aðra menn fyrir
jólin:
„Ég rann til á sveUbunka og brotn-
aði. Þetta seinkar öUum skreytingum
hjá mér en ég var rétt liðlega hálfn-
aður þegar ég datt,“ sagði Sigtryggur
í morgun en hann hefur skreytt hús
sitt síðastliðin fimm ár með banda-
rískum jólaseríum af öUum stærðum
og gerðum. „Ég er svo mikið jólabam
og þetta eru gömlu jólaljósin sem
margfaldast í huga manns," sagði
Sigtryggur sem kaupir aUar jólaserí-
urnar sínar í Bandaríkjunum og seg-
ist aldrei leiða hugann að kostnaði
þegar áhugamál hans eru annars
vegar. „Serían kostar tvo doUara en
mesti kostnaðurinn er í sprennu-
breytum. Rafmagnið kostar svo eins
og þrír sígarettupakkar á sólarhring
og ég reyki ekki,“ sagði Sigtryggur
sem ætlar að halda áfram að skreyta
með annarri hendi þar tU aUt er
klárt. -EIR
Eignaskipti í Bolungarvík vegna gjaldþrots Nasco hf.:
ACrfjárfesting kaupir
rækjuverksmiðjuna
- gengið frá kaupum á öllum hlutbréfum Nasco í vikunni
Rækjuvinnsla í Bolungarvík
Unnið er á vöktum allan sólarhringinn.
Eigendur nýs félags, AG-fjárfest-
ingar ehf., vinna nú aö því að kaupa
öU hlutabréf i Nasco ehf. í Bolungar-
vik. Gerist þetta í kjölfar gjaldþrota-
beiðni stjórnar móðurfyrirtækisins
Nasco í Reykjavík.
Samkvæmt heimUdum DV mun
útgerðarþáttur fyrirtækisins hafa
riðið því að fuUu, en gjaldþrot hefur
blasað við undanfarnar vikur. í tU-
kynningu frá Nasco ehf., sem er að-
eins um fimm ára gamalt fyrirtæki,
eru helstu ástæður þess að félagið
komst í þrot sagðar lágt rækjuverð
á þessu ári og verulega aukinn út-
gerðarkostnaður, mest vegna mik-
Ula hækkana á olíuverði. Eigendur
félagsins eru eignarhaldsfélagið
Kass með 39%, Skagstrendingur hf.
með 36% og Burðarás hf. með 25%.
Þrátt fyrir að fyrirtækið hafi gert út
fjögur skip á úthafsrækju og tekið
þátt í rekstri fleiri skipa voru um
80% af hráefniskaupum verksmiðj-
unnar í Bolungarvík á frjálsum
markaði.
Eigendur AG-fjárfestingar ehf.
eru Agnar Ebenesersson, fram-
kvæmdastjóri verksmiðjunnar í
Bolungarvík, og Guðmundur Eydal,
sölustjóri Nasco. „Við erum að
kaupa öll hlutabréfin í Nasco ehf. í
Bolungarvík. Við erum að vinna að
endurfjármögnun á dæminu og þá
koma fleiri að málinu. Það verða
líklega átta aðilar sem standa að
þessum kaupum, bæði fyrirtæki
sem hafa verið hér í viðskiptum og
ýmsir heimamenn," sagði Agnar í
samtali við DV í gær. „Við stefnum
að því að vera búnir að ganga frá
því máli fyrir föstudaginn 1. desem-
ber.“
Hann sagði að ekkert lát væri á
vinnslunni í verksmiðjunni, en þar
vinna 60-70 manns á vöktum allan
sólarhringinn. „Við erum að sigla
inn í erfiðasta tima ársins hvað hrá-
efnisöflun varðar, en förum bara á
fullt í það. Við veltum um 1.100
milljónum króna tíu mánuði þessa
árs, þrátt fyrir að hafa verið stopp
vegna endurskipulagningar í febrú-
ar og apríl á þessu ári. Við vonumst
til að geta halda áfram óbreyttum
rekstri." -HKr.
DV-MYNDIR INGÖ
Jólabrot
Gert að handleggsbroti Sigtryggs Helgasonar á slysavarðstofunni í gær. Á innfelldu myndinni sést fagurskreytt hús
hans vié Hlyngerði.
,-<X\ •
Natturufræðistofnun rannsakar afföll rjúpu við Eyjafjörð:
Sextíu merktir fuglar dauðir
- allir með senditæ
Rjúpur sem merktar hafa verið í
Grýtubakkahreppi af Náttúrufræði-
stofnun drepast nú unnvörpum.
Rjúpnaveiði er bönnuð í austanverðum
Eyjafirði og þar hefur fundist fjöldi
dauðra merktra ijúpna að undanfömu.
„Það er vitað um 60 dauða fugla sem
merktir hafa verið,“ sagði íbúi í Grýtu-
bakkahreppi sem ekki vildi láta nafns
síns getið. „Það er stórskaðlegt fyrir
aumingja fuglana að bera þessi sendi-
tæki á sér. Fólk sem verið hefur hér á
göngu og eins úti í Hrísey er að flnna
þessa fúgla dauða hér út um allt. Ekk-
ert er hins vegar um dauðar ómerktar
rjúpur. Senditækin sem fest era á fugl-
i frá stofnuninni sem
Rjúpa í vetrarbúningi
ana valda þeim greinilega vandræðum.
Mér finnst illa farið með þessi grey,
ekki síst þegar sjálf Náttúrufræðistofn-
un á" í hlut.“ Ólafur Karl Nielsen vist-
fræðingur, sem var verkefnisstjóri með
fest hafa verið á þá
fuglamerkingunum nyrðra, segir að 180
ijúpur hafi verið merktar. „Þetta rann-
sóknarverkefni byijaði í haust og var
ætlunin að mæla affóll ijúpna við Eyja-
fjörð. Fuglar vora merktir í Hrísey og
á friðuðu svæði í vetursetustöðvum við
austanverðan Eyjafjörð. Við förum
tvisvar í mánuði og athugum hvar fugl-
amir era og ef þeir era dauðir þá hvað
hafi drepið ijúpurnar."
- Er liklegt að ijúpumar hafi drepist
vegna senditækjanna? „Nei, við höfum
áður verið með merkta fugla og gert
þetta árum saman," segir Ólafur og tel-
ur senditækin því ekki hafa valdið
dauða fuglanna. -HKr.
Dagatöl
aI/'
NVJAR VIDDIR j
Sími 569 4000
brother P-touch 9200PC
Prentaðu merkimiða beint úr tölvunni
Samhæft Windows
95, 98 og NT 4.0
360 dpi prentun
1 til 27 mm letur
Strikamerki
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i