Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2001, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 2001
DV
Fréttir
Forystumenn sjómanna svartsýnir:
Auknar líkur á verkfalli
Forystumenn þeirra verkalýösfélaga
sem nú standa 1 samningaviðræðum
við Landssamband íslenskra útvegs-
manna eru ekki bjartsýnir á að samn-
ingar takist fyrir 15. mars næstkom-
andi en þá greiða félagsmenn þeirra at-
kvæði um verkfallsheimild. „Það eru
litlar líkur á að búið verði að semja
fyrir 15. mars ef eitthvað er að marka
fúlltrúa LÍÚ. En ef þeir eru í einhveij-
um sandkassaleik og meina ekki það
sem þeir segja þá getur verið að búið
verði að semja, „ segir Helgi Laxdal,
formaður Vélstjórafélags íslands.
Sævar Gunnarsson, formaður Sjó-
mannasambands íslands, segir að í
ljósi yfirlýsinga formanns LÍÚ í fiöl-
miðlum um ára-
mótin komi hann
ekki auga á neitt í
spilunum sem gefi
tilefhi til bjartsýni.
Að sögn Sævars
hafa útvegsmenn
boðið sjómönnum
þær kauptrygging-
arhækkanir sem
Flóabandalagið og
Verkamannasam-
bandið sömdu um
á síðasta ári. „Það
er búið að semja á almenna vinnu-
markaðinum um margt fleira, til að
mynda lífeyrissjóðsmál, orlofsmál og
Helgi
Laxdal,
formaöur
Vélstjórafélags
íslands.
Sævar
Gunnarsson,
formaöur
Sjómannasam-
bands íslands.
Grétar Mar Jóns-
son, formaöur
Farmanna- og
fiskmannasam-
bands íslands.
slysatryggingarmál sem þeir hafa al-
farið hafhað að tala um við okkur og í
Ijósi þess er ekki hægt að vera bjart-
sýnn,“ segir Sævar.
Grétar Mar Jónsson, formaður Far-
manna- og fiskimannasambands ís-
lands, er einnig svartsýnn á samning-
ar náist fyrir 15. mars. „Ef það eiga að
nást samningar verður að eiga sér stað
stefnubreyting hjá LÍÚ,“ segir Grétar
Mar. Hann segir að það muni ráðast á
næstu vikum hvort samstaða verði
meðal sjómanna en á von á að svo
verði.
Formennimir telja allir að yfirgnæf-
andi líkur séu á að félagsmenn þeirra
samþykki verkfallsheimild í mars.
Markmiðið sé hins vegar að ná kjara-
samningi fyrir þann tíma þannig að til
þess þurfi ekki að koma. -MA
Aðalfundur Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur:
Telja að stjórnvöld setji lög
á sjómannaverkfall
DVrGRINDAVÍK:
Sjómenn í Grindavík telja að stjóm-
völd myndu setja lög ef kæmi til verk-
falls sjómanna enda hafi reynslan sýnt
það að stjómvöld standi með LÍÚ og
sjómenn virðist vera eina stéttin sem
ekki megi beita verkfallsvopninu.
Þetta kom fram á aðalfundi Sjómanna-
og vélstjórafélags Grindavíkur sem var
að venju haldinn á fimmtudagskvöldið
í Sjómannastofunni Vör. Var mæting
góð enda em félagsmenn þekktir fyrir
frábæra mætingu á aðalfundi. Gestur
fundarins var Hólmgeir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Sjómannasambands ís-
lands, og fór hann yfir stöðuna í samn-
ingamálunum en staðan er nokkuð
skýr því LÍÚ hafnar öllum kröfum sjó-
manna og em fundir samninganefnd-
anna á milli 5 og 10 mínútna langir.
Því lá fyrir fundinum að ræða aðgerð-
ir en núna er verið að greiða atkvæði
hjá flestum félögum um verkfallsboð-
un og mun niðurstaða liggja fyrir um
miðjan janúar.
Fjörlegar umræður fóm fram á fund-
inum um verkfallsmálin. Hlé var gert á
fundinum til að njóta hlaðborðs að
hætti Geira kokks og að veitingum lokn-
um héldu umræður áfram. Var mönn-
um tíðrætt um réttindamál sjómanna og
tjáði formaðurinn Valur Guðmundsson
Telja aö stjórnvold stoövi sjomannaverkfall meö logum
Sjómenn í Grindavík telja líklegt aö stjórnvöld stöövi verkfall sjómenn, komi til þess. Atkvæöi veröa greidd um verkfall
að hann stæði ekki upp frá samninga-
borði nema skrifað væri undir bættar
slysatryggingar til handa sjómönnum
sjómanna fyrir 15. mars næstkomandi.
og hlaut kröftugt lófaklapp að launum.
Er svo bara að sjá hvaða niðurstöður
koma út úr atkvæðagreiðslunni um
verkfallsboðun, hvort ekki lifnar yfir
samninganefndunum svo ekki þurfi að
koma til verkfalls. -ÞGK
Forseti íslands í áramótaávarpi sínu:
Hvetur til aðgátar á mark-
aðstorgi verðbréfa
- skorar á nemendur skólanna að sinna ekki gylliboðum um atvinnu
Forseti íslands, Ólafúr Ragnar
Grímsson, sagði í nýársávarpi sínu til
þjóðarinnar að foreldrar hefðu ef tO
viO um of varpað ábyrgð á uppeldi
æskunnar á herðar kennurum og
skólayfirvöldum. „Þátttaka foreldra í
skólastarfi hefúr verið minni hér en í
mörgum löndum, skorturinn á sam-
vinnu og skOningi (hefúr) á margan
hátt bitnað á menntun og þroska,"
sagði forsetinn.
Þjóðarsátt um skólastarfið
Ólafur Ragnar kom einnig inn á
kennaraverkfóUin og sagði það alvar-
lega brotalöm þegar skólastarf lamað-
ist vegna ágreinings um launakjör,
skipulag náms og vinnutíma. Hvatti
hann tO varanlegs friðar um skóla-
starfið. Sagði forsetinn að eins og verð-
bólgan var kveðin niður með þjóðar-
sátt, þurfi á svipaðan hátt að þróa frið-
argjörð sem tryggir nemendum öryggi
og samfeUu við námið sjálfl og geri
kennurum kleift að helga sig óskipta
merku starfi sem
þeir gegni í þjóðar-
þágu. Forsetinn
beindi orðum sín-
um tU nemenda og
bað þá að bíða
þess að skólinn
byijaði en glata
ekki trúnni á gOdi
námsins eða slá
námi sínu á frest.
Hvatti hann þá tO að gefast ekki upp
né falla fyrir freistingum, gyUiboðum
um skjótfengnar tekjur.
Agaleysið í umferðlnni
Forsetinn kom víða við í ávarpi sínu
að þessu sinni og ræddi slysaölduna og
þann fjölda fólks sem týnir lffi eða bíð-
ur varanlegt heOsutjón vegna agaleysis
í umferðinni eða voðaverka. „Það er
mikil raun að fjöldi fólks skuli á hverju
ári týna lífi eða bíða varanlegt
heOsutjón í slysum sem eiga rætur að
rekja tU of mikils hraða eða hirðuleys-
is,“ sagði forsetinn. Varaði hann við að
við sættum okkur að sífeUt fleiri láti líf-
ið eða verði örkumla eða glati andlegu
heUbrigði í umferðarslysum. „öku-
maðurinn ber ekki aðeins ábyrgð á
sjálfum sér heldur líka farþegum sín-
um og einnig gagnvart öðrum," sagði
Ólafur Ragnar Grímsson.
Peningar heimilanna í
happdrætti hlutabréfanna
Þá ræddi forseti Islands um verð-
bréfadansinn. „Samfélag okkar hefúr
mótast mjög af tUboðum um kostakjör
og kapphlaupi fyrirtækja um fjármuni
almennings, peninga heimUanna,"
sagði Ólafur Ragnar Grimsson.
„Stundum hefúr jafnvel verið gengið
svo langt að veðsetja ibúðir og fjöl-
skyldueignir tO að taka þátt í happ-
drættinu um hlutabréfin. Gleymum þó
ekki að sagan kennir að vogun bæði
virmur og tapar og kröfugerðin er þá
einatt borin fram af miskunnarleysi
handhafans sem aðeins hirðir um
lúkningu skuldarinnar," sagði forset-
inn. Hann sagði margt benda tO að í
hönd færu tímar þar sem betra væri
að sýna aðhald og ábyrgð en að hætta
öUu sínu á markaðstorgi verðbréf-
anna.
Hvarvetna gróska
Forsetinn ræddi um fjölskrúðugt
listalíf á íslandi og hvemig íslenskir
listamenn hafa náð augum og eyrum
útlendra manna, kvikmyndagerðar-
menn, söngvarar og rithöfúndar. Enn
fremur benti hann á hvemig hugvit og
vísindi hafa á skömmum tíma orðið
undirstaða nýrra fyrirtækja og at-
vinnugreina sem íslendingar kunnu
varla að nefna fyrir örfáum árum.
„Líkt og bóndinn fagnar góðri tíð og
sjómaður gæftum gleðjumst við yfir
þeirri grósku sem hvarvetna blasir við
og um leið leitum við leiðarljósa um
framtfðina, vegvísa sem fylgja ber á
breytingabraut," sagði forseti íslands í
ávarpi sínu tO þjóðarinnar. -JBP
Olafur Ragnar
Grimsson
■BwKB - Umsjón:
Reynir Traustason
netfang: sandkorn@ff.is
Leiðtoga leitað
Nú styttist óðum í borgarstjóm-
arkosningar. Á næsta ári kemur í
Ijós hvort Reykja-
víkurlistinn heldur
boginni þriðja kjör-
tímabOið. Innan
Sjálfstæðisflokksins
eru háværar raddir
um breytingar á
borgarstjómar-
flokknum. Mörgum þykir sýnt að
forysta Ingu Jónu Þórðardóttur
sé ávisun á áframhaldandi valdatíð
Ingibjargar Sólrúnar Gísladótt-
ur. Þvi er leitað logandi ljósi að
nýjum leiðtoga. Þungavigtarmenn
innan flokksins hafa í þeim efnum
staldrað við nafn Björns Bjarna-
sonar menntamálaráðherra sem
talinn er líklegur tO að endur-
heimta borgina...
Útilokun
Vefþjóðviljinn fylgdi fordæmi
margra fjölmiðla um áramót og
gerði úttekt á árinu
í stuttum klausum.
Meðal þess sem
Þjóðviljamenn
fundu út var að
Morgunblaðið hefði
einu sinni brugðist
dómsmálaráðherra
á árinu. Þetta köUuðu
þeir „Útilokun ársins": Þann 20.
nóvember síðastliðinn birti Morg-
unblaðið ekki eina einustu mynd af
Sólveigu Pétursdóttur. Hvorki í
lit né svarthvítu. Þetta var að vísu
mánudagur en engu aö síður var
þetta ódrengfiega gert.“...
Deilur
Óhætt er að segja að íslenskri
þjóð hafi brugðið þegar ára-
mótaskaup Sjónvarpsins var í loft-
inu. Flestir voru
sammála því að
önnur eins leiðindi
hafi vart dunið á
þjóðinni. Margir
biðu nokkuð
spenntir eftir því
að sjá hver hefði
samið ósköpin.
Mörgum brá í brún þegar hann las
á sjónvarpsskjánum að handritið
hefði íslenska þjóðin skrifað. Heim-
Udir Sandkoms herma að Edda
Björgvinsdóttir og Randver Þor-
láksson hafi verið höfundar þess
en Þórhildur Þorleifsdóttir leik-
stjóri hafi síðan lagt gjörva hönd á
verkiö. Jafnframt herma heimUdir
aö við upptökur hafi geðvonska
svifið yfir vötnum og deUur hafi
sett mark sitt á samstarfið með áð-
urnefndum afleiðingum...
Stórfrétt
Lesendum Morgunblaösins brá
heldur en ekki í brún þegar blaðið
þann 31. desember datt inn um
bréfalúgurnar. Aðal-
frétt forsiðunnar
var sú að annar
tveggja ritstjóra
blaðsins væri hætt-
ur störfum. Fréttin
kom þó fæstum á
óvart því um nokk-
urra ára skeið hafði
legið fyrir að Matthías Johannes-
sen myndi hætta störfum og aðrir
fjölmiðlar en Moggi hafa fjallað
nokkuð um málið. Þá er komiö á
daginn sem Sandkom hefur lengi
spáð að verðandi aðstoðarritstjóri,
Ólafur Stephensen, er kominn tU
metorða á Mogga eftir stuttan
stans á Landssímanum og hjá Sam-
tökum atvinnulífsins...