Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2001, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2001, Qupperneq 28
NISSAN PRIMERA \ á frábæru verði Ingvar Helgason hf. FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá t síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Formaður Vöku á Siglufirði óhress með sinnuleysi ASÍ: Höfum engin viðbrögð fengið - við áskorun um uppsögn samninga, segir Signý Jóhannesdóttir „Við höfum engin viðbrögð feng- ið við bréfi til miðstjórnar ASÍ um uppsögn launaliðs kjarasamninga. Þaö er sameiginleg nefnd ASÍ og SA sem á aö meta hvenær ástæða er til að segja upp launalið kjara- samninga. Við, þessir almennu for- ingjar í félögunum, höfum lítið r fengið að vita um hver mörkin eru. Orðalagiö um það i samningum er loðiö og það sem okkur þykir um- talsvert og ástæða til uppsagna get- ur verið að öðrum þyki ekki um- talsvert," segir Signý Jóhannes- dóttir, formaður verkalýðsfélags- ins Vöku á Siglufirði. Stjórn félagsins sendi miðstjórn ASÍ bréf 11. desember sl. þar sem greint er frá áskorun fundar í fé- laginu til stjómvalda um að boðað- ar breytingar á útsvari og tekju- ^ skatti verði endurskoðaðar. í bréf- inu segir að auknar álögur hins op- inbera, auk óhagstæðrar verðlags- þróunar, sem rýri kaupmátt launa- fólks, séu fullgild ástæða til upp- sagnar á launalið kjarasamninga og því beri fulltrúum ASÍ að segja upp launaliö kjarasamninga VMSÍ og SA sem gerðir vom 13. apríl Lést í bílslysi Karlmaður á sextugsaldri lést í kjölfar áreksturs sem varð á Reykja- nesbraut, milli Hafnarfjarðar og Garðabæjar, um klukkan 13 í gærdag. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði varð áreksturinn um hálfan kíló- metra sunnan við Vífilsstaði, þegar fólksbíll mannsins lenti framan á gámaflutningabíl. Talið er að maður- inn, sem var einn í bílnum, hafi látist samstundis. Bilstjóri flutningabílsins slapp ómeiddur frá árekstrinum, en var fluttur á slysadeild til aðhlynn- ingar. Reykjanesbrautinni var lokað í um þrjá tíma í gærdag vegna slyssins. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. -SMK Flugvél nauölenti Flugmaður lítillar flugvélar nauð- lenti vél sinni á Kárastaðaflugvelli í Borgamesi um síðustu helgi eftir að vélarbilunar varð vart. Að sögn lög- reglunnar í Borgamesi úðaðist smur- olía á rúður flugvélarinnar svo flug- >'*t maðurinn sá ekki út. Bilunin varð er vélin var nálægt Kárastaðaflugvelli og tókst lendingin áfallalaust. -SMK Signý Jóhannes- Ari Skúlason, dóttir, formaður framkvæmda- Vöku. stjóri ASÍ. 2000. Svipuð skilaboð hafa verið að berast undanfarið frá öðrum verkalýðsfélögum á landsbyggð- inni. Signý segir að í kjölfar aðgerða ríkisstjómarinnar komi breytingar á fasteignagjöldum og ýmsum öðr- um þáttum sem samanlagt séu vondir kostir. „Ástandið á lands- byggðinni er þannig að fólk þar hef- ur almennt lægri laun en á höfuð- borgarsvæðinu og á því erfiðara með að taka á sig verðlagshækkan- ir. Þar má nefna flugið sem hækkað hefur gífurlega vegna oliuverðs- hækkana. Það kostar því álíka fyrir Siglfirðinga að fljúga til Reykjavík- ur eins og Reykvíkinga að skreppa í helgarferð til London.“ Ekkert já eða nei Ari Skúlason, framkvæmdastjóri ASÍ, segir ekki hægt að svara sérstak- lega þessum áskorunum. „Við mun- um hins vegar taka mið af þeim en þessi mál eru öll i farvegi sem er löngu ákveðinn fyrir fram. Það er nefnd sem metur stöðu mála og það mat mun í fyrsta lagi ljúka í febrúar. Mögulega verður það síðar ef okkur sýnist upplýsingar vera á leiðinni sem þurfi að bíða eftir. Það er því ekkert já eða nei svar við þessum áskorunum. Ég hef litið á þessar sendingar sem pólitískar yfirlýsingar og skoðanir þeirra sem standa þar á bak við en ekki að verið sé að óska sérstaklega eftir svari. Það eru ýmsar stærðir sem þarf að skoða í þessu sambandi, eins og verðbólgan og síð- an launahækkanir annarra kjara- samninga. Fram á seinustu mánuði ársins sýnist okkur þetta vera innan ramma þannig að samningar haldi en það er þó auðvitað sagt án ábyrgðar því skoðun er ekki lokið og fjölda samninga á enn eftir að klára.“-HKr. DV-MYND HARI Fimm bíla árekstur Þrír voru fluttir með sjúkrabíl á slysadelld og tveir leituðu þangað sjálfír eftir fimm bíla árekstur á mótum Miklubrautar og Reykjanesbrautar um klukkan 17 í gær. Enginn reyndist alvarlega slasaður. Nefndin vegna öryrkjadómsins: Skilar vonandi innan fárra daga Jón Steinar Gunnlaugsson hrl., formaður nefndarinnar ! sem ríkisstjómin skipaði til að fjalla um það hvernig verða eigi við dómi Hæsta- réttar í máli Öryrkjabanda- lagsins, segir að nefndin skili vonandi af sér niðurstöðum innan fárra daga. „Nefndin hefur starfað öt- Gunnlaugsson. ullega síðustu daga og vonandi verður niðurstað- an tilbúin innan fárra daga. Það sem helst stend- ur á núna er að fá gerða nokkra útreikninga sem nefndin telur nauðsynlega áður en hún skilar af sér,“ sagði Jón Steinar Gunn- laugsson. -Ótt DV-MYND ÞÖRHALLUR ÁSMUNDSSON Fer sinna feröa á skíðum Birgir Friðriksson er hér að útrétta og fer ferða sinna á skíðum enda götur Sauðárkróks illfærar. Vetur konungur mættur á Norður- og Austurlandi: Skíðin samgöngu- tæki innanbæjar DV, SAUÐÁRKRÓKI: Vetur konungur gerði loksins vart við sig á norðan- og austanverðu landinu á síðasta degi ársins og aldar- innar. Á Austurlandi hefur hríðinni varla slotað síðan. í gær var enn ekki farið að huga að snjóruðningi af helstu íjallvegum, svo sem Odds- skarði og Fjarðarheiði, en búið var að ryðja Fagradal þar sem snjóflóð féll um áramótin. A Sauðárkróki snjóaði einnig mik- ið í lok ársins og þar varð að fresta því að kveikja í áramótabrennunni þar til í gærkveldi, á öðram degi árs- ins. Á gamlársdag kusu sumir Króks- arar að hreyfa ekki bila sína og Birg- ir Friðriksson fór sinna ferða á skið- um um götur bæjarins en það er fremur sjaldsjæf sjón á Króknum síð- an aldraður maður úr Fljótunum féll frá fyrir nokkrum árum. -ÞÁ Framhaldsskólakennarar á 56. sáttafundinum í Karphúsinu: Búist er við að kennarar Verslunarskólans samþykki Fastlega var reiknað með því í morgun að kennarar Verslunarskól- ans myndu samþykkja nýjan kjara- samning sem gerður hefur verið fyr- ir hönd þeirra tæplega 60 kennara sem starfa þar. Samningurinn, sem felur í sér verulega hækkun grunn- launa, var geröur með fyrirvara um samþykkt kennaranna. Elna Katrín Jónsdóttir, formaður samninga- nefndar Félags framhaldsskóla- kennara, stýrði einnig samninganefnd Verslun- arskólakennara. Hún kvaðst í morgun búast við að samningurinn yrði samþykktur. Á sama tíma og hún kveðst ánægð með frammistöðu skólanefnd- ar Verslunarskólans seg- ist hún óánægð með frammistöðu ríkisins. Elna Katrín Jónsdóttir. „Við hefðum viljað sjá hraðari vinnu. Seinagangur frá þeirra hendi veldur von- brigðum. Samþykkt samnings Verslunarskólans mun skapa þrýsting á samninganefnd ríkisins,“ sagði Elna Katrín sem í morgun bjó sig undir 56. fundinn í Karphúsi ríkis- sáttasemjara. í dag er 58. dag- ur verkfallsins. -rt brother P-touch 1250 Lítil en STÓRmerkileg merkivél 5 leturstæröir ' 9 leturstillingar prentar í 2 linur boröi 6, 9 og 12 mm 4 geröir af römmum Rafoort Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport_______ Heilsudýnur t sérflokkil ''L'r heilsunnar Reykjavík 581 2233 Akureyri 461 1150

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.