Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2001, Blaðsíða 10
10
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001
DV
Fyrrverandi forseti Perú
Alberto Fujimori íhugar aö snúa
heim þegar aðstæður íeyfa.
Fujimori óttaðist
um líf sitt
Alberto Fujimori, fyrrverandi for-
seti Perú, óttaðist um líf sitt. Þess
vegna flýði hann frá Perú og æðsta
embætti landsins. Hann hyggst
snúa aftur heim þegar aðstæður
leyfa. Þetta kemur fram í einni
greina forsetans sem japanskt dag-
blað hefur birt undanfarna fjóra
daga. Forsetinn fyrrverandi kveðst
með flótta sínum hafa komið í veg
fyrir að pólitísk spenna í landinu
leiddi til götuofbeldis og blóðbaðs og
síðan valdaráns.
Fujimori skrifar að pólitískir
andstæðingar hans hafi notað tæki-
færið vegna ljósfælinna viðskipta
yfirmanns leyniþjónustunnar, Vla-
dimiros Montessinos, til að fram-
kvæma valdarán án blóðsúthell-
inga. Nú hafi stjórnarandstaðan
völdin þó hún hafi ekki fengið þau á
lýðræðislegan hátt.
Fujimori kveðst hafa uppgötvað
of seint að Montessinos byggði upp
sitt eigið net ólöglegra sambanda.
Sjálfur vísar hann öllum ásökunum
um spillingu á bug. Hann segir
hugsanlegt að hann snúi aftur.
Hann er viss um að Perúbúar vilji
ekki forseta sem sé háður hanastél-
um og fínum salarkynnum.
Bush búinn að
manna stjórnina
og snýr sér að
efnahagsmálum
George W. Bush, verðandi Banda-
ríkjaforseti, mun væntanlega snúa
sér að efnahagsmálunum í dag þar
sem hann hefur nú mannað stjóm
sína. Teikn eru á lofti um að byrjað
sé að hægja á hagvextinum.
Bush heldur fund í dag með for-
stjórum stórfyrirtækja þar sem
hann mun heyra álit þeirra sem eru
i fremstu víglínu. Hann mun jafn-
framt greina forstjórunum frá því
hvernig hann hyggst stjórna efna-
hagsmálunum.
Bush kynnti siðustu ráðherrana í
væntanlegri stjórn sinni i gær.
Þeirra á meðal er demókratinn
Norman Mineta, sem verður sam-
gönguráðherra. Mineta gegnir emb-
ætti viðskiptaráðherra í fráfarandi
stjórn Bills Clintons. Á fundi með
fréttamönnum í gær kynnti Bush
einnig þau Spencer Abrahams orku-
ráðherra og Lindu Chavez atvinnu-
málaráðherra.
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
Skagabraut 5a, efri hæð og ris, hluti 101,
Akranesi, þingl. eig. María Gunnarsdóttir
og Haraldur Ásgeir Ásmundsson, gerðar-
beiðandi Ibúðalánasjóður, mánudaginn 8.
janúar2001 kl. 11.00.
Skólabraut 30, neðri hæð, Akranesi,
þingl. eig. Club 67 ehf, gerðarbeiðandi
Lífeyrissjóður Vesturlands, mánudaginn
8.janúar2001 kl. 13.00.
SÝSLUMAÐURINN Á AKRANF.Sl
Arafat og Clinton funduðu tvívegis í Hvíta húsinu:
Arafat lofar að
stöðva ofbeldi
Yasser Arafat, forseti Palestínu-
manna, hét Bill Clinton Bandarikja-
forseta því í nótt að reyna að stöðva
átökin milli Israela og Palestínu-
manna. Að sögn talsmanna Hvíta
hússins náðist hins vegar enginn
markverður árangur í að koma á
friði í viðræðum leiðtoganna.
Clinton gerði sitt besta á tveimur
fundum að svara spurningum
Arafats um friðarsamninginn sem
bandarísk stjómvöld eru að reyna
að koma á koppinn.
Bandaríkjaforseti áformar að tala
við Ehud Barak, forsætisráðherra
Israels, í síma í dag og síðan að
ræða aftur við Arafat, í síma að
þessu sinni. Clinton leggur mikla
áherslu á að deilendur fyrir botni
Miðjarðarhafsins komist að sam-
komulagi um frið áður en hann læt-
ur af embætti þann 20. janúar næst-
komandi.
Talsmenn Bandaríkjaforseta
Yasser Arafat fer frá Clinton
Yasser Arafat, forseti Palestínu-
manna, yfirgefur Hvíta húsið eftir
fundi með Clinton Bandaríkjaforseta.
sögðu að ákveðið yrði um framhald
friðarumleitananna eftir símtöl
Clintons við Barak og Arafat í dag.
Helstu ágreiningsatriðin snúast
um rétt palestínskra flóttamanna til
að koma aftur heim og yfirráð
Palestínumanna yfir Musterishæð-
inni í Jerúsalem.
Arafat hélt frá Washington í
morgun áleiðis til Kaíró í Egypta-
landi þar sem hann mun sitja fund
Arababandalagsins um nýjustu frið-
artillögur Bandarikjanna.
Palestinskur embættismaður
sagði fréttamanni Reuters að
Bandaríkjamenn hefðu ekki þrýst á
Arafat að gefa strax svar sitt við
efnisatriðum hugsanlegs friðar-
samnings.
Átök héldu áfram á heimastjórn-
arsvæðunum í gær. Palestínskur
bóndi var drepinn nærri gyðinga-
byggð á Gaza og tveir ísraelar særð-
ust í fyrirsát.
Karlavígi fallið
Raðir framlínusveita þýska hersins hafa nú í fyrsta sinn verið opnaðar konum. Nýliðarnir Katrin Kuhn og Melanie
Fúlster spjalla hér við Holger Mennecke liðþjálfa í herbúðum nálægt Bremen í gær.
Dómstóll fyrirskipar aö sonur Mitterrands skuli látinn laus:
Farið fram á að bankareikn-
ingar hans í Sviss verði frystir
Franskur dómstóll fyrirskipaði i
gærkvöld, öllum að óvörum, að
Jean-Christophe Mitterrand, syni
Frangois Mitterrands, fyrrum
Frakklandsforseta, skyldi sleppt úr
gæsluvarðhaldi. Mitterrand hefur
setið inni frá því fyrir jól vegna
gruns um aðild að ólöglegu vopna-
braski.
Nefnd þriggja dómara úrskurðaði
að Mitterrand yrði að leggja fram
sem svarar sextíu milljónum ís-
lenskra króna i tryggingafé þar sem
rannsókninni yrði fram haldið.
Jean-Pierre Versini-Campinchi,
lögmaður Mitterrands, sagði upp-
hæðina fáránlega og að erfitt yrði
fyrir skjólstæðing sinn að afla svo
mikils íjár með því einu aö hringja
í bankastjórann sinn úr fangaklef-
anum. Búist er við að Mitterrand
verði látinn laus síðar í dag.
Jean-Christophe Mitterrand
Sonur fyrrum Frakklandsforseta
verður aö reiða af hendi 60 milljónir
króna til að fá frelsi.
Rannsóknardómarar lögðust gegn
því að Mitterrand yrði sleppt þar
þeir óttast að hann geti eyðilagt
mikilvæg gögn. Hinn 54 ára gamli
Mitterrand er grunaður um aðild að
vopnabraski og öðru ólöglegu at-
hæfi í tengslum við sölu rússneskra
vopna til Angóla snemma á tíunda
áratugnum.
Mitterrand, sem hefur verið upp-
nefndur Pabbi-sagði-mér vegna þess
hve hann vitnar oft í föður sinn í
samtölum, hefur viðurkennt að hafa
þegið um 140 milljónir króna á
bankareikning sinn í Sviss frá
vopnasalanum Pierre Falcone sem
einnig sætir rannsókn. Lögmaður
Mitterrands segir að samskipti
þeirra Falcones hafi verið lögleg.
Rannsóknardómarar hafa farið
fram á að bankareikningar Mitt-
errands í Sviss verði frystir.
Með hjartaáfall
Netmiðillinn
Ananova hefur það
eftir íraska stjóm-
arandstöðuleiðtog-
anum Bayan Raber
að Saddam Hussein
Iraksforseti hafi
verið fluttur á
sjúkrahús með al-
varlegt hjartaáfall. Ekki eru nema
nokkrir dagar síðan Saddam var
viðstaddur hersýningu í Bagdad.
Andvígir NATO
Fjörutíu og átta prósent Svía segj-
ast andvígir aðild að NATO sam-
kvæmt nýrri skoðanakönnun.
28 frusu í hel í Póllandi
Að minnsta kosti 28 manns hafa
látið lífið af völdum kulda í Póllandi
undanfarna 10 daga. Flestir eru
karlar á aldrinum 40 til 50 ára sem
hafa verið undir áhrifum áfengis.
Fjórði hver var heimilislaus.
í vandræðum vegna gjafar
Breski auðkýfingurinn Paul
Hamlyn tilkynnti í gær að það hefði
verið hann sem gaf Verkamanna-
flokknum 2 milljónir punda. Fregn-
ir bárust af gjöfinni um helgina og
voru íhaldsflokkurinn og menn
innan Verkamannaflokksins þegar
farnir að saka Tony Blair forsætis-
ráðherra um leynimakk og óheiðar-
leika fyrir að greina ekki frá gjöf-
inni.
Forsetinn í hjónaband
Bashar al-Assad,
forseti Sýrlands,
kvæntist unnustu
sinni, Asma al-Ak-
hras, sem fæddist í
Bretlandi, á nýárs-
dag. Bashar, sem er
augnlæknir að
mennt, kynntist
eiginkonunni þegar
þau voru bæði við nám við breskan
háskóla. Hún lærði tölvufræði.
Kúariðutilfella leitað
Frakkar hófu í gær leit að
kúariðu í öllum nautgripum eldri
en 30 mánaða. Spænsk yfirvöld
greindu frá tveimur nýjum
kúariðutilfellum í gær.
Konungi hótað lífláti
Maður afhenti á
gamlársdag lifverði
við norsku kon-
ungshöllina miða
með morðhótun
gegn Haraldi Nor-
egskonungi. Leit
Óslóarlögreglunnar
að manninum
reyndist árangurs-
laus. Norska öryggislögreglan frétti
ekki af atvikinu fyrr en að kvöldi
nýársdags.
Tugir flóttamanna farast
Um 50 manna er saknað eftir að
flutningaskip fórst undan strönd
Tyrklands á nýársdag. I skipinu
voru nm 80 flóttamenn frá Asiu er
voru á leið til Grikklands.
Gallaður samningur
George Bush, verðandi forseti
Bandaríkjanna, segir samninginn
um fastan stríðsglæpadómstól Sam-
einuðu þjóðananna, sem Bill Clinton
undirritaði, gallaðan. Ætlar Bush að
láta endurskoða samninginn.