Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2001, Blaðsíða 8
8
Viðskipti
Umsjón: Vidskíptablaöið
Kaupþing að kaupa Frjáisa
fjárfestingarbankann
Undirrituð hefur verið viljayfir-
lýsing um kaup Kaupþings hf. á 2/3
hlutafjár í Frjálsa fjárfestingarbank-
anum hf. á genginu 3,80 eða fyrir
samtals um 3,1 milljarð króna. Selj-
endur bréfanna eru VÍS hf., Traust-
fang ehf., Olíufélagið hf., Isoport,
Hafliði Þórsson og Samvinnulífeyr-
issjóðurinn. Endanlega verður geng-
ið frá samningum á næstu vikum að
lokinni kostgæfnisathugun.
I fréttatilkynningu frá Kaupþingi
kemur fram að markmið Kaupþings
með því að festa kaup á meirihluta
bréfa i Frjálsa fjárfestingarbankan-
um er að stuðla að endurskipulagn-
ingu og hagræðingu á fjármála-
markaði. Frjálsi fjárfestingarbank-
inn hefur verið umsvifamikill í
eignastýringu, fjárvörslu og lána-
starfsemi að undanförnu og rekur
einnig Frjálsa lífeyrissjóðinn.
íiiá Ul MMUí
pwn ■■■ 9BÍSÍlj'[
SS WBM m — B lilPff HfipölHH
markmið Kaupþings með því að festa kaup á meirihluta bréfa í Frjálsa fjár-
festingarbankanum er að stuðla að endurskipulagningu og hagræðingu á
fjármálamarkaði.
Samkomulagið um sölu meiri-
hluta bréfa í Frjálsa fjárfestingar-
bankanum til Kaupþings átti sér
stuttan aðdraganda. Af hálfu for-
svarsmanna Kaupþings er lögð
áhersla á að of snemmt sé að gefa yf-
irlýsingar um það hvaða fyrirkomu-
lag verður á rekstri Frjálsa fjárfest-
ingarbankans til frambúðar. Á
næstu vikum verður mótuð stefna
þar að lútandi og skoðaðir mögu-
leikar til að samnýta ýmsa þætti,
svo sem tölvukerfi og markaðsstarf.
Frjálsi fjárfestingarbankinn mun
halda áfram starfsemi sinni í
óbreyttri mynd fyrst um sinn eða
þar til annað verður ákveðið.
Hjá Frjálsa fjárfestingarbankan-
um eru nú um 60 stöðugildi en hjá
Kaupþingi starfa 260 manns á Is-
landi og sex starfsstöðvum á erlend-
um vettvangi.
lé.-r- ?-r:,£s
Pharmaco með
bestu ávöxtunina
á árinu
Pharmaco skilaði eigendum sín-
um bestu ávöxtuninni á árinu sem
leið sé tekin fyrir ávöxtun íslenskra
hlutabréfa og miðað við lokaverð 31.
des 1999 og 2000 en ávöxtunin var
91%. íslenski hugbúnaðarsjóðurinn
var í öðru sæti með 81,8% ávöxtun
og Opin kerfi í því þriðja með
80,7%.
Lakasta ávöxtunin var hjá
Skinnaiðnaði en ávöxtun með bréf
félagsins var neikvæð um 73%, í
öðru sæti var Stáltak með 66% og
Loðnuvinnslan um 56,7%.
Úrvalsvísitalan lækkaði um
19,3% á síðasta ári, Heildarvísitala
AðaOista um 13,8% en Heildarvísi-
tala Vaxtarlista hækkaði um 4,6%.
Sé litið til bréfa í einsökum at-
vinnugreinum þá lækkaði vísitala
samgangna mest eða um 44%. Næst
kom vísitala sjávarútvegs en hún
lækkaði um 31%. Vísitala lyfjafyrir-
tækja hækkaði langmest eða um
65% en næst kom vísitala bygginga-
og verktakastarfsemi sem hækkaði
um 28%.
Landsbankinn spáir 0,45% verð-
bólgu milli desember og janúar
Landsbankinn spáir 0,45% hækk-
un á vísitölu neysluverðs milli des-
ember og janúar. Gangi spáin eftir
verður vísitala neysluverðs, miðuð
við verðlag í desemberbyrjun, 203
og hefur þá hækkað um 3,84% á síð-
ustu 12 mánuðum.
Ennfremur verður verðbólga
milli áranna um 5,05%. Helstu for-
sendur í spánni eru að þensla á hús-
næðismarkaði sé minni en á síðasta
ári og þá hefur verðlækkun á bens-
ini um 0,2% áhrif til lækkunar á
vísitölunni í mánuðinum.
Fyrstu daga í upphafi mánaðar
mælir Hagstofan verðlag og birtir
svo niðurstöður sínar 8. virka dag
mánaðar. Þá liggur fyrir hver verð-
lagsbreyting var mánuðinn á und-
an. Þann 12. janúar næstkomandi
mun Hagstofan birta mælingar á
verðlagi og breytingar á visitölu
neysluverðs í desembermánuði. Þá
liggur fyrst fyrir hver verðlags-
breyting siðasta árs var.
Spá Landsbankans um lækkun á olíuveröi hefur nú þegar gengiö eftir og
spáir bankinn aö olíuverö á árinu verði á bilinu 21-26 dollari á fatiö.
Spáir 4,3% verðbólgu innan
ársins 2001
Verðbólga innan ársins 1999 var
5,8% og vógu þar þyngst 13,8%
hækkun á húsnæðislið og 22,1%
hækkun á bensíni. Til þessara liða
mátti rekja 3% verðbólgu eða rétt
rúmlega helming. Gangi spá Lands-
bankans eftir um verðbreytingar í
desembermánuði verður verðbólgan
3,84% innan ársins 2000 og vega
þyngst hækkanir á húsnæðislið um
9,5% og 6,3% hækkun annarar þjón-
ustu en þeirrar opinberu.
Spá Landsbankans um lækkun á
olíuverði hefur nú þegar gengið eft-
ir og spáir bankinn að oliuverð á ár-
inu verði á bilinu 21-26 dollari á fat-
ið. Töluverður hluti olíuverðlækk-
anna á enn eftir að skila sér í verð-
lækkun á bensin hérlendis og sér
Landsbankinn því ekki ástæðu til
að endurskoða spá sína fyrir árið
2001 og spáir áfram að verðbólga
innan ársins 2001 verði um 4,3%.
Þú nærð alltaf sambandi
H®
TQÍ
3
(0
'CC
við okkur!
550 5000
alla virka daga kl. 9-22
sunnudaga kl. 16-22
(g) dvaugl@ff.is
hvenær sólarhringsins sem er
DV
550 5000
MIDVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001
DV
LetsBuylt.com
rær lífróður
Internetsmásölufyrirtækið Lets-
Buylt.com rambar nú á barmi glöt-
unar eftir að hlutabréf i fyrirtækinu
lækkuðu um 68% við opnun mark-
aða í Evrópu í dag en þar með hafa
hlutabréf í fyrirtækinu lækkað um
næstum 95% frá hæsta gengi í júlí.
Á fóstudaginn síðastliðinn var kraf-
ist greiðslustöðvunar hjá fyrirtæk-
inu en það hefur samkvæmt hol-
lenskum lögum rétt til greiðslu-
frests um ákveðinn tíma. Talsmað-
ur fyrirtækisins, Stephen Cox, sagði
í samtali við Reuters-fréttastofuna á
fóstudaginn sl. að LetsBuyIt.com
ætti í viðræðum við væntanlega
fjárfesta en skyndibjörgun væri
ekki á dagskránni.
Evran heldur upp
á tveggja ára
afmæli sitt
Evran hélt upp á tveggja ára af-
mæli sitt með pompi og prakt með
því að ná fimm mánaða hámarki
gagnvart dollar og tíu mánaða há-
marki gagnvart jeninu.
Evran styrktist vegna áhyggna af
efnahagslífinu í Bandaríkjunum og
Japan og vegna þess að Grikkland
hefur bæst við sem eitt af þeim
löndum sem standa að baki evr-
unni. Evran var 0,947 dollarar og
0,635 jen.
Opinberir aðilar í Evru-landi
hafa hjálpað til við styrkingu evr-
unnar. Jean-Claude Trichet, for-
stöðumaður Seðlabanka Frakk-
lands, sagði að hann byggist við 3%
hagvexti í Evru-landi án þess að
þrýstingur myndi aukast á verð-
bólguna.
fsjwíi 03.01.2001 kl. 9.15
KAUP SALA
Bbjpollar 83,800 84,230
SSPund 126,040 126,690
i*ÍKan. dollar 56,170 56,520
gglDönskkr. 10,7020 10,7610
iHÍÉNorskkr 9,6100 9,6630
SSsænsk kr. 8,9220 8,9710
HHn. mark 13,4276 13,5083
HFra. franki 12,1711 12,2442
| : IBelg. franki 1,9791 1,9910
j Sviss. ffanki 52,5200 52,8100
QhoII. gyllini 36,2284 36,4461
*^Þýskt mark 40,8200 41,0653
B Bít. líra 0,04123 0,04148
EEjAust. sch. 5,8020 5,8368
1. 'Port. escudo 0,3982 0,4006
^^jSpá. peseti 0,4798 0,4827
L*jjap. yen 0,73170 0,73610
IJírskt pund 101,372 101,981
SDR 109,9800 110,6400
{Uecu 79,8370 80,3167