Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2001, Síða 11
11
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001_____________________________________________________________________________________________
I>v Útlönd
Alræmd glæpaklíka sem stal yfir milljarði gómuð:
Fengu hugmyndina frá
myndum með De Niro
Franska og spænska lögreglan
hefur haft hendur í hári hættuleg-
ustu glæpaklíku I Evrópu. Glæpa-
flokkurinn hefur rænt flugvélar og
peningaflutningabíla og er ráns-
fengurinn talinn vera um 1,5 millj-
arðar íslenskra króna. Hugmyndina
að ránunum fengu glæpamennirnir
frá kvikmyndum með Robert De
Niro.
Árásirnar tóku aldrei nema
nokkrar mínútur, 5 mínútur voru
efri mörk glæpaflokksins. Væri
hætta á að rán tæki lengri tíma var
hætt við allt í miklum flýti en á yf-
irvegaðan hátt.
Eitt djarfasta ránið var framið á
flugvellinum í Perpignan í Frakk-
landi 1996. Verið var að gangsetja
flugvél, Airbus frá Air Europe, þeg-
ar flugmaðurinn kom auga á vopn-
aða menn fyrir framan vélina.
Nokkrir mannanna héldu á borða
með áletruninni: Stöðvið mótorana
og opnið farangursrýmið. Fjórum
Rán í París á annan í jólum
/ kjölfar misheppnaös ráns í síöustu viku lét lögregla til skarar skríöa gegn
hættulegri glæpaklíku.
mínútum seinna höfðu ræningjam-
ir haft á brott með sér um 90 millj-
ónir króna. Þeir hurfu eftir flug-
brautinni. Við tvö önnur rán sama
ár komust ræningjarnir yfír um 500
milljónir króna.
í ágúst 1999 var rán framið á flug-
vellinum í Malaga. Fjöldi vitna sá
ræningjana ná 11 pokum með um
270 milljónum króna. Þeir rændu
einnig demöntum sem metnir voru
á tugi milljóna.
Lögreglan á Spáni og í Frakklandi
komst að því hverjir ræningjarnir
voru. Þeir lifðu eins o g kóngar. Lög-
reglunni var kunnugt um aðdáun
þeirra á Robert De Niro. Foringinn,
Daniel Bellanger, umgekkst frægt og
háttsett fólk á Spáni en engan grun-
aði hver hann var í raun og veru.
Lögreglan beið eftir tækifæri til að
geta gripið alla samtímis. Það kom í
síðustu viku eftir misheppnað rán i
París. Lagt var hald á um 200 millj-
ónir króna og fjölda vopna.
Augusto Pinochet
Fyrrum einræöisherrann í Chile fer
til sálfræöinga í næstu viku.
Pinochet fari í
sálfræðilegt mat
Dómari i Chile fyrirskipaði í gær
að Augusto Pinochet, fyrrum ein-
ræðisherra, skyldi gangast undir
tveggja daga sálfræðilegt mat svo
hægt verði að ganga úr skugga um
hvort hann sé í standi til að svara
til saka fyrir mannréttindabrot á
valdatíma sínum 1973 til 1990.
Matið hefst næstkomandi sunnu-
dag og lýkur daginn eftir.
Þá hefur dómarinn, Juan Guzm-
an, fallist á að yfirheyra Pinochet
þann 9. janúar, hvort sem niður-
stöður sálfræðilega matsins liggja
fyrir eður ei.
Lögmenn Pinochets ætla að krefj-
ast þess á morgun að sálfræðilega
matið fari ekki fram.
Kveikt á kertum til minningar um hina látnu
Ættingjar kveiktu á kertum til aö minnast ungmennanna sem fórust í kaffihúsabrunanum í hollenska bænum Vo-
lendam á nýársnótt. Aö minnsta kosti tíu manns týndu lífi í brunanum og um þaö bil 130 slösuöust. Embættismenn
eiga von á aö tala látinna eigi eftir aö hækka á næstu dögum þar sem margir hinna slösuöu eru milli heims og helju.
Talið er aö eldurinn hafi komiö upp í jólaskrauti á kaffihúsinu.
Vladímír Pútín
Rússar telja forsetann sinn mesta
mann nýliöins árs 2000.
Pútín Rússlands-
forseti var mað-
ur ársins 2000
Vladímír Pútín Rússlandsforseti
var kjörinn maður ársins 2000 í
skoðanakönnun sem gerð var meðal
rússnesks almennings. Virðist sem
slysið með kjarnorkukafbátinn
Kúrsk í Barentshafi á liðnu sumri
og áframhaldandi hrakfarir rúss-
neska hersins í Tsjetsjeníu hafl ekki
dregið úr vinsældum forsetans.
Pútín fékk 38 prósent greiddra at-
kvæða í könnuninni, eins og hann
fékk í sams konar könnun í fyrra.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti og
Gennadí Zjúganov, leiðtogi rúss-
neskra kommúnista, voru jafnir í
öðru sæti, langt á eftir Pútín. Þeir
fengu hvor um sig aðeins fjögur pró-
sent atkvæða.
„Þetta dregur fram mjög mikil-
vægan þátt í stjórnmálalífi okkar,“
sagði Júrí Levada, forstjóri könnun-
arfyrirtækisins. „Við höfum engan
annan.“
Herstjórnin í
Burma neitar
aðild að morðum
Herstjórnin í Burma neitaði í
morgun að hermenn hennar bæru
ábyrgð á morðunum á sex Taílend-
ingum, þar á meðal tveimur börn-
um, í árásum yfír landamærin um
helgina.
Taílendingarnir, sem voru úr
tveimur fjölskyldum, voru skotnir
til bana á laugardagskvöld. Þar
voru að verki 8 þungvopnaöir bófar.
Taílenskir fjölmiðlar höfðu það
eftir heimildarmönnum innan taí-
lenska hersins í gær að morðingj-
amir kynnu að hafa verið úr her
Burma.
Foringi i her Burma sagði það
valda sér vonbrigðum að slíkar
vangaveltur kæmu frá taílenskum
embættismönnum. Slíkar getgátur
væru ekki til þess fallnar að leysa
sameiginlegan vanda þjóðanna
tveggja.
Aðrir hafa kennt uppreisnar-
mönnum úr her guðs um morðin.
Svíar vildu ekki
skipta á Wallenberg
Sovétríkin handtóku
sænska stjórnarerindrek-
ann Raoul Wallenberg til
þess að skipta á honum
og Rússum í Svíþjóð, að
því er Svenska dagbladet
greinir frá. En sænska ut-
anríkisráðuneytið vildi
heldur fá staðfest að Wal-
lenberg væri látinn. Þetta
er gefið í skyn í væntan-
legri skýrsiu um örlög
stjórnarerindrekans sem
bjargaði þúsundum gyð-
inga úr dauðabúðum nas-
ista.
í skýrslunni er bent á
að tveir svissneskir diplótamatar
hafi verið gripnir samkvæmt skip-
un Josefs Stalíns daginn áður en
Wallenberg var tekinn. Svissnesk
yfirvöld fengu engar upplýsingar
Wallenberg
Svíar höföu ekki áhuga
á aö skipta á honum
og Sovétmönnum.
um örlög þeirra. Það var
ekki fyrr en yfirvöld í
Sviss höfðu hótað verri
samskiptum við Sovét-
ríkin sem menn Stalíns
kröfðust þess að fá land-
flótta Sovétmenn í skipt-
um fyrir Svisslendinga.
Sænskur stjórnarer-
indreki tilkynnti
sænska utanríkisráðu-
neytinu 1946 að hann
hefði séð merki þess að
Sovétríkin vildu semja
um Wallenberg én ekk-
ert gerðist.
Svenska dagbladet
ályktun að Sovétríkin
að
dregur þá
hafi ekki séð neina ástæðu til
halda Wallenberg á lífi þar sem Sví-
ar hefðu ekki áhuga á að nota hann
við skipti.
Fronskunásnskeið
'vsráa hakfen 15. |anúar.
Innriiun 2. til 12. janúar.
Námskeið f/rir byrjendur og lengra komna,
námskeið fyrir börn og eldri borgara,
taltímar,einkakennsla.
Tökum að okkur kennslu í fyrirtækjum.
Alliance Francaise
Sími 552-3870 • Fax 562-3820
netfang af@ismennt.is • veffang http://af.ismennt.is