Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2001, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2001, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 19 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun hf. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aöstoöarritstjóri: Jónas Haraldsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiðsla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiölun hf. Filmu- og plótugerö: isafoldarprensmiöja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuöi 2050 kr. m. vsk. Laúsasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblað 280 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Björt framtíð Um það verður ekki deilt að síðustu ár liðinnar ald- ar voru einstaklega hagstæð í flestu fyrir íslendinga. Gríðarlegar breytingar hafa orðið á íslensku samfélagi, ekki síst í efnahags- og viðskiptamálum. En mesta og róttækasta breytingin er hins vegar sjálft hugarfarið, þar sem bjartsýni, þor og kjarkur hafa tekið við af böl- sýni. Mikilvægt er að bjartsýni fái að ráða ferðinni á næstu misserum og árum en ekki drungi svartsýni á framtíðina. Trúin á framtíðina hefur verið undirstaða efnahagslegrar velsældar. í áramótaávarpi benti Davíð Oddsson forsætisráð- herra réttilega á að forystumenn stjórnmálanna hefðu hægt og bítandi verið að draga úr eigin valdi og færa það til fólksins í þeirri vissu að þjóðin sjálf kunni bet- ur með það að fara en þeir: „Sömu þróunar gætir við- ast hvar annars staðar i heiminum. Þessi valdatilfærsla frá foringjum til fjöldans hefur gengið vel síðustu tíu árin og eykur það líkur á að málum verði vel stjómað á þeirri öld sem í hönd fer. Því að mestu ófarir á öld- inni voru þrátt fyrir allt ekki óvæginni náttúru að kenna, heldur miklu fremur þeim smámennum, sem lyft var á stall ofurmenna, i skjóli „háleitra“ hugsjóna." Skilaboð forsætisráðherra um áramótin verða ekki skilin á annan hátt en þann að haldið verði áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið. Frelsi einstak- lingsins verður aukið og dregið úr áhrifum og völdum stjórnmálamanna. Þetta er í takt við það sem Davíð Oddsson hefur margítrekað á liðnum árum en á fimm ára afmælisráðstefnu Viðskiptablaðsins árið 1998 benti hann meðal annars á að engum kæmi lengur til hugar „að sitja á biðstofum stjórnmálamannanna til að verða sér úti um fé í gjaldþrota fyrirtæki. Rikisvaldið sér um að plægja akurinn, en fólki er látið eftir að sá og upp- skera. Nú kæmist enginn stjórnmálamaður upp með að segja að almenn efnahagslögmál eigi ekki við á íslandi.“ En þrátt fyrir að ýmislegt hafi verið vel gert eru mörg verkefni óunnin og sum hver erfið. Því miður fékk árið 2000 að líða án þess að rikisstjómin hefði póli- tískt þrek til að takast á við vanda heilbrigðiskerfisins, stór hluti fjármálamarkaðarins er enn i höndum ríkis- ins, samkeppnisleysi einkennir enn menntakerfið og orkubúskapurinn er enn í höndum hins opinbera. Landssímanum er enn stjórnað af stjórnmálamönnum. Afleiðingin af þessu öllu er að fákeppni eða samkeppn- isleysi einkennir stóran hluta íslensks samfélags sem aftur leiðir til of lítillar framleiðni vinnuafls og fjár- magns. Þessu verður að breyta á nýrri öld. Aukið efnahagslegt frelsi íslendinga hefur verið for- senda framfara og góðæris síðustu ára, en um leið skap- að góðan grunn til frekari framsóknar á öllum sviðum. Að því leyti var full ástæða fyrir forsætisráðherra að horfa bjartsýnn fram á veginn og inn í nýja öld. íslend- ingar eiga öll tækifæri til að láta drauma um enn betra líf á nýrri öld rætast sé rétt haldið á spilunum. Efna- hagsleg hagsæld gefur möguleika á að hyggja enn bet- ur að fjölskyldunni, sem á undir högg að sækja, og rót- tækum breytingum á íslensku menntakerfi. Framsókn á nýrri öld liggur í gegnum sterka fjölskyldu og vel rek- ið menntakerfi. Óli Björn Kárason I>V Skoðun Þarfasti þjónninn „í villtum fögnuði skaut landinn upp flugeldum til að lýsa upp skammdegið og fagna nýju ári. Margir voru þó sem sinntu sínum húsdýrum og köttum og hundum og gáfu þeim róandi til að komast gegnum fögnuðinn. “ íslenski hesturinn bar áður það sæmdarheiti hér á landi að vera kall- aður þarfasti þjónninn og í frásögnum er hund- urinn oft nefndur besti vinur mannsins. Það var á þeim timum er harbýlt var hér á landi og náttúran og maður- inn voru tengd órjúf- andi böndum. Lífsbar- áttan var ströng og þjóð- in át flest sem tönn á festi, þó var í heiðri haft bann við áti á hrossaketi og ýmsir siðir tengdir fiski og fuglaveiðum. Því brá mér í brún er þær raddir heyrðust síðla sumars að réttast væri að veita veiðileyfi á fuglana sem i aldanna rás hafa gefiö þjóðinni vissuna um aö hún hafði þraukað af harðræði þorrans og góunnar og framundan væru Ijúfir sumardagar og bjartar nætur. Mófuglarnir sem um hafa verið kveðin svo mörg og hjartnæm ljóð áttu nú að auka fjölbreytileikann í matargerðarflóru landsmanna. Þótt harðnað hafi á dalnum minnist ég ekki frásagna af því að þjóðin hafi lagt sér spörfugla til munns. Það setti því að mér hroll. Hvert mál margar hliðar Ekki vil ég gera lítið úr því eðli mannsins að draga björg í bú. En á þeim allsnægtatímum sem þjóðin býr við skýtur skökku við að vega að vorboð- unum. Var ekki nóg gert þegar lönd bænda voru ræst fram og þurrkuð svo vaðfuglarnir flosn- uöu upp og hurfu? Sem betur fer erum við ekki uppi á þeim tímum er fjölskyldan þurfti að draga fram lífið af veiði fjöl- skyldufoðurins. I dag er veiði mest- megnis sport og menn liggja tímun- um saman í skurðum hálffullum af vatni eða þramma snjóinn í klof til að fullnægja veiðilöngun sinni. Stundum fer þó öðruvísi en ætlað er og veiðimenn týnast á fjöllum uppi og verður þá að kalla björgunarsveit- ir til leitar. En það er önnur saga. Hvert mál hefur margar hliðar. Hjá þjóð sem hefur nóg að bíta og brenna og gumar af því að eiga hreina náttúru og frjálst dýralíf er það í hrópandi mótsögn að ætla að gefa út veiðileyfi á þær gersemar náttúrunnar sem ósnortið fuglalíf er og á sinn þátt í að laða ferðamenn til landsins. En snúum okkur þá aftur að þeim sem í gegnum aldimar var nefndur þarfasti þjónninn. Hesturinn hefur létt þjóðinni lífið í þessu harðbýla landi, flutt lækna og ljósmæður yfir óbrúuð vötn til að bjarga mannslíf- um, presta til að þjónusta sóknar- börn og búslóðir fólks milli lands- hluta. I dag notum við öflug ökutæki sem þeysa eftir vegum og yfir brúað- ar ár og allir hafa gleymt frásögnum af hetjudáðum hestanna. Gáfu dýrum róandi Áramótin liðu með áramótabrenn- um, álfadansi og flugeldum. í villtum fögnuði skaut landinn upp flugeldum til að lýsa upp skammdegið og fagna nýju ári. Margir voru þó sem sinntu sínum húsdýrum og köttum og hund- um og gáfu þeim róandi til að kom- ast gegnum fögnuðinn. Um næstliðin áramót gerðist það að hrossastóð týndist og var gripanna lengi leitað. Þegar skepnurnar fundust varð ljóst að þær höfðu lent í sjálfheldu og drepist úr hungri. Álitið var að þær hefðu fælst hávaðann og blossana frá áramátaflugeldunum. - Hestamenn. Sýnið ávallt nærgætni, og hýsið hrossin ykkar um áramót. Gunnhildur Hrólfsdóttir Gunnhildur Hrólfsdóttir rithöfundur Á hraðferð í óefni Mannskepnan hugsar ekki í öld- um heldur hefur nóg með að reyna að fóta sig milli ára. Þetta er í senn hluti af vanda hennar og lausn und- an oki tilverunnar. Tilraun til að gera úttekt á vegferð okkar í öldum er þannig lítið annað en skemmtileg dægradvöl. Fyrir tvítugan einstak- ling eru þrjú ár til baka hálfgerð fomeskja, hvað þá lengri tími. Við á efri árum eigum bágt með að setja okkur raunsætt í þau spor sem við stóðum í fyrir nokkrum áratugum. Skilin milli draums og veruleika verða harla óljós á skemmri leið. Ný- liðin öld með allri sinni upplýsingu ætti þó m.a. að sýna okkur fram á hversu tvíbentar tækniframfarir eru hjá mannkyni sem lítil tök hefur á framvindu mála innan einstakra samfélaga sem og alþjóðlega. Heims- styrjaldimar tvær bera þessa glöggt vitni og öngstræti kjarnorkunnar á seinni hluta aldarinnar. Umhverfisumræöan góðs viti Ekki er nema aldarþriðjungur frá því hugtakið umhverfi og umhverfis- mál skaut upp kollinum. Framan af var það litið með mikilli tortryggni af flestum og kröfur um umhverfis- vemd taldar öfgar sem beindust gegn farsælli tækniþróun og framfórum. Nú er staðan sú að fjölmargir hafa já- kvætt viðhorf til hugtaksins en þau kerfi sem ráða þróuninni, tæknilega og efnahagslega, hafa ekki nema í litl- um mæli viðurkennt takmörk sín og vandann sem við er að fást. Veislan endalausa Fjöldi stjómmálamanna og hags- munasamtaka tekur undir nauðsyn umhverfisverndar í orði en vill ósköp lítið vita af því um hvað málið snýst. Samfélag iðnrikja og það islenska meðtalið geng- ur fyrir vexti á öllum sviðum, efnislegum vexti og meiri um- svifum, stækkandi köku og auknurn úrgangi. Ráðstafanir til að taka á eftirköstum þess- arar miklu veislu eru flestar fálmkenndar og felast margar í því að sópa undir teppið. Þó er mörgum ljóst að það er skammgóður vermir. Samt eru róttækar kröfur um breyt- ingu umsvifalaust stimplaðar sem öfgar og reynt að gera þær tor- tryggilegar. Kannast menn nokkuð við slikt á íslandi við aldarlok? Sjálfbær þróun nafnið tómt Enn sem komið er svífa hugmynd- irnar um sjálfbæra þróun í lausu lofti. Þetta lausnarorð sem varð til á undirbúnings- stigi Ríóferlisins hefur enn litlu handföstu skilað. Þegar Sameinuðu þjóðirn- ar lögðu mat á árangur- inn 1997, fimm árum eftir Ríóráðstefnuna, var nið- urstaðan heldur dapurleg. Leiðsögninni I Dagskrá 21 hefur ekki verið fylgt nema af fáum. Áfram stefnir í óefni með andrúmsloft jarðar og loftslagsbreytingar af manna völdum. íslensk stjórnvöld vilja helst ekkert af þeim vita. Heims- höfin líða fyrir vaxandi rányrkju og mengun þrátt fyrir Hafréttarsáttmál- ann. Gróður og jarðvegur á þurrlendi er á undanhaldi og stöðugt þrengist um vegna sívaxandi fólksmergðar. Viðleitnin til varnar hefur enn litlu skilað nema undanhaldi. Róttækra aðgerða þörf Baráttan fyrir sjálfbærri þróim er rétt að byrja. Sem flestum þarf að verða ljóst að hugsjónin um heilbrigt og lífvænlegt umhverfi rætist ekki án baráttu og róttækra breytinga á undirstöðum samfélagsins. Markaðs- öflin ein og sér leysa ekki vandann. Til að sigrast á manngerðum eyð- ingaröflum þarf vitræna stjórnun, bæði innan ríkja og alþjóðlega, og virkni og fómfýsi af hálfu fjöldans. Jöfnun lífsgæða og bremsur á óhófseyðslu verða að koma til. Verði ekki brugðið á ný ráð fljótlega er hætt við að nýja öldin fái enn lakari eftir- mæli en sú sem vorum að kveðja. Hjörleifur Guttormsson „Áfram stefnir í óefni með andrúmsloft jarðar og loftslagsbreytingar af manna völd- um. íslensk stjómvöld vilja helst ekkert af þeim vita. Heimshöfin líða fyrir vaxandi rányrkju og mengun þrátt fyrir Hafréttarsáttmálann. “ Með og á móti TWmmm marmanna á fiskiskipum Úrelt ákvæöi j „Við höfum ~ lengi búið við K mjög úrelt ákvæði ■QHpf hvað varöar mönnun fiski- skipaflotans þar sem ekki hef- ur verið tekið tillit til tækni- þróunar. Gjörbreyting hefúr orðið á tæknivæðingu fiskiskipa, hvort sem um er að ræða gömul skip eða ný. __ Þó mikið sé um eldri skip er búið að skipta um vélbúnað í flest- um þeirra. Því er ekki þörf á sama fjölda vélstjóra um borð. Viðgerðir á vélum fiskiskipa fara nú flestar fram í landi og í mörgum Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmda- stjóri LÍÚ. sem er tilfellum þarf ekki vakt yfir þeim þar sem þær eru búnar nemum sem láta vita komi eitthvað upp á. í fluginu hefur sama þróun þegar átt sér stað, nú eru t.d. flugvélstjórar orðin fágæt sjón í flugvélum. Fjöldi vélstjóra um borð hafa veriö meiri hér og það er kominn timi til að laga sig að nútímanum og breyttum að- stæðum og gera þær líkari því í löndunum í kringum okkur.“ Aöför aö öryggi sjómanna „Vélstjórafélag ís- lands er alfarið á móti frumvarpi samgönguráðherra „um mönnun skipa.“ Einfaldlega vegna þess að ef það verður að lögum í nú- verandi mynd er það aöför að ör- yggi sjómanna þar sem það mun hafa í fór með sér verulega skert öryggi þeirra en félagið er eðli- lega ekki tilbúið að bera ábyrgð á slíku. Einnig mun það leiða til þess að störf vélstjóra verða mun erfiðari, en þau eru nú, sem mun aftur leiða til þess að enn erfiðara verður að manna þessar stöður í framtíðinni. Það mun enn auka ásókn í undanþágur fyrir réttindalitla menn sem er þegar of mikil. Þessi breyting verði hún að veruleika mun þannig fæla ungt fólk frá þessum störfum og um leið draga úr aðsókn að vél- stjómamámi sem nú þegar er aútof lítil. Það sem er alvarleg- ast við þetta frumvarp er það að, að baki þessum tÖlögum til breytinga á gildandi lögum era engin haldbær rök, það sem hér er komið i frumvarpsform era ýtrustu kröfur útgerðarmanna, sem veikur meirihluti þeirrar nefndar sem undirbjó frumvarpið tók upp á sína arma og gerði að sínum en hafði ekki fyrir því að rökstyðja á neinn máta. Enda rökin nokkuð torfundin." Helgi Laxdal, formadurVéistjóra- félags íslands. Samgönguráðherra hefur lagt fram frumvarp þar sem lögð er til fækkun vélstjórnarmanna á fiskiskipum. Vélstjórar telja að með frumvarpinu fækki vélstjórum um þriðjung. Samgönguráðherra telur hins vegar að með frumvarpinu sé tekið mið af miklum breytingum á véibúnaði skipa, m.a. aukinni sjálfvirkni. Óráðin framtíð „Framtíð ís- lenskrar fjölmiðl- unar er óráðin. Margt bendir til að alþjóðleg fjölmiðl- un taki við af henni áður en langt um líður. Hún er fyrirferðar- mesti þátturinn í íslenzkum sjón- vörpum. Erlendur skemmtiiðnaöur er þar nánast allsráðandi og engu líkara en metnaður íslenzkra sjónvarps- stöðva standi helzt til þess að verða eins konar amerískt útihús hér norð- ur í ballarhafi. Þetta er heldur dapur- leg framtíðarsýn. En vonandi marka þessir fjölmiðlar sér íslenzka stefnu með þá arfleifð að bakhjarli sem er dýrmætasta eign okkar." Matthías Johannessen i Reykjavíkur- bréfi Mbl. 31. desember. Spaugið á liðna árinu „Það má alltaf finna einstaka punkta inn á milli sem hægt er að gera eitthvað snið- ugt úr. Olympiu- leikamir og pólfarinn eru til dæmis eitthvað það sem endalaust er hægt að gera sér efnivið úr. En kannski segi ég þetta bara vegna þess að mér finn- ast íþróttir vera svo spaugilegar." - Um karakter ársins: „Mér finnst pólfarinn alveg óborganlegur. Hvað var maðurinn eiginlega að pæla þama einn úti á ísnum.“ Brynhildur Guöjónsdóttir leikkona í Dags-viötali 30. desember, um Áramótaskaup Sjónvarpsins. Selt inn í framhaldsskóla Vatnsmýrin, landfórn- ir og umferðarslys Svo er komið í Bret- landi að sveitarfélögum er bannað með lögum að byggja hverfi eins og Garðabæ og Álftanes. Slík byggð er að mati Breta of dýr og óhagkvæm 1 rekstri. Dreifðri byggð fylgja miklar vegalengdir sem m.a. þýðir að rekstur almenningssamgangna ber sig ekki. Dreifð byggð kallar á mikla einkabila- notkun sem aftur veldur stöðugt vaxandi loftmeng- un og fjölgun slysa. Þá krefst gerð slíkra hverfa gríðarlegra landfórna. Á altari þessarar skipulagsstefnu er nú verið að fórna áratuga skóg- ræktar- og uppgræðslustarfi í Graf- arholti sem unniö var af miklum fiölda unglinga og greitt fyrir með útsvörum Reykvíkinga. Búið var að planta trjám í allt holtið og næsta ná- grenni og lagður hafði verið góður grunnur að því að eftir 10 til 15 ár ættum við Reykvíkingar aðra „Öskjuhlíð". Með núverandi skipulagsstefnu að leiðarljósi tóku borgaryfirvöld ákvörðun um að leggja „hina Öskju- hlíðina", þ.e. Grafarholtið, undir byggð. Þá eru borgaryfirvöld að eyði- leggja eina sérstæðustu náttúruperlu á Suðvesturlandi, eiðið í Eiðsvík, milli Geldinganess og lands, með því að leggja eftir eiðinu veg fyrir þungavinnuvélar til að geta hafið grjótnám í Geldinganesi. Með sömu skipulagsstefnu aö leiöarljósi ætia Kópavogsbúar út í miklar landfórnir á bökkum Elliða- vatns. Reykjavíkurflugvöll í Skerjafjörð Ef gerð yrði 20.000 til 30.000 manna byggð í Vatns- mýrinni í stað þess að leggja tíu til tuttugu sinnum stærra svæði undir jafnfjölmenna úthverfabyggð, þá munu ár- lega sparast milljarðar vegna minni bifreiðanotkun- ar og færri slysa. Sparnaður samfélagsins af því að hafa slíka byggð í Vatnsmýrinni í stað þess að hafa hana uppi á Álfsnesi eða úti í Kapelluhrauni mun borga upp gerð nýs Reykjavíkurflugvallar á örskömmum tíma. Þá liggur fyrir að kostnaður við gerð samgöngu- mannvirkja yrði svipaður, hvort heldur byggð á stærð við Kópavog yrði reist í Vatnsmýrinni eða á Álfs- nesi. Ef ákveðið verður að taka Vatns- mýrina undir miðborgarbyggð má leysa málefni innanlandsflugsins á ýmsan hátt, t.d. hafa einkaaðilar boð- ist til að gera nýjan flugvöll á fylling- um í Skerjafirði gegn byggingarétti í Vatnsmýrinni. Með því að hafa flug- völlinn í Skerjafirði er verið að koma til móts við óskir um að áfram verði flugvöllur við miðbæinn og um leið að ekki verði aðflug yfir byggð. Með ákvörðun borgaryfirvalda að áfram veröi flugvöllur í Vatnsmýr- inni í stað þess að nýta svæöið und- ir miðborgarbyggð þá var veriö að taka ákvörðun um sóun mikilla verðmæta. Með því var borgarstjórn að taka ákvörðun um að auka bif- reiðanotkun í borginni, að auka loft- mengun og fjölga slysum. Framtíðarborg Mikilvægasta verkefni okkar á komandi árum á að vera að skapa hér á höfuðborgarsvæðinu þær að- stæður að við getum haldið í at- hafna- og menntafólkið okkar og þau fyrirtæki sem hér eru, ekki síst þau sem sprottið hafa upp á síðustu árum. Við munum á komandi árum lenda í vaxandi samkeppni við er- lendar borgir sem vilja seiða til sín þetta fólk og þessi fyrirtæki. Höfuðborgin þarf að bjóða upp á slíkar aðstæður að íslensk fyrirtæki vilji um ókomin ár hafa höfuðstöðv- ar sínar hér og borgin þarf að vera það aðlaðandi að hingað komi erlend fyrirtæki vegna þeirrar aðstöðu sem hér standi til boða. Þessi grundvöll- ur verður ekki tryggður nema hér rísi ný og glæsileg miðborg. Við eigum að færa næstu kynslóð nýja miðborg með blandaðri starf- semi, miðborg iðandi af mannlífi, miðstöð verslunar, fjármála-, tölvu- og hátæknifyrirtækja ásamt þéttri íbúöabyggð. Við eigum að bjóða sem kost, á móti hinum sannarlega glæsi- legu úthverfum okkar, miðborgar- umhverfi þar sem 5 mínútna gangur er frá vinnustað og heimili að fjölda matsölustaða, kaffihúsa og verslana. Slíka miðborg er hvergi hægt að gera nema í Vatnsmýrinni. Friðrik Hansen Guðmundsson Friðrik Hansen Gudmundsson verkfræöingur „Nú veit ég ekki hvað eitt námsár í framhaldsskóla kostar en það hljóta að vera nokkur hundruð þúsund. Ef menn þyrftu að borga þetta úr eigin vasa þá yrðu sumir að neita sér um menntun vegna blankheita svo ef til vUl hugsa einhverjir sem svo að betra sé að búa við ókostina sem fylgja „ókeypis" skólum heldur en að hætta á að menntun verði aðeins fyr- ir böm efnamanna. En það er hægt að sameina kosti „ókeypis" skóla og venjulegra viðskipta þar sem menn reyna að fá sem mest fyrir pening- ana. Leiðin til að gera þetta er stund- um kölluð „ávísanakerfi“.“ Atli Haröarson í Rabbi Lesbókar Mbl. 30. desember. „Efgerð yrði 20.000 til 30.000 manna byggð í Vatnsmýrinni í stað þess að leggja tíu a til tuttugu sinnum stœrra svœði undir jafnfjölmenna úthverfabyggð, þá munu ár- lega sparast milljarðar vegna minni bifreiðanotkunar og fœrri slysa. “

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.