Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2001, Qupperneq 22
26
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001
x>v
Ættfræði__________________
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
< 85 ára_________________________________
Bjarni Helgason,
Þingási 1, Reykjavík.
Hjörný Tómasdóttir,
Hringbraut 50, Reykjavík.
80 ára________________________________
Elín Jóhanna Hannam,
Rafstöövarvegi 41, Reykjavík.
Sigrún Guöbrandsdóttir,
Hlunnavogi 10, Reykjavík.
75 ára________________________________
Bragi Guömundsson,
Hjaltabakka 6, Reykjavík.
Guöbjörg Árnadóttir,
Smárahlíð 9a, Akureyri.
* Jón Hólmsteinn Júlíusson,
Skólagerði 38, Kópavogi.
Ragnar Sveinn Olgeirsson,
Borgarvík 19, Borgarnesi.
Sigríður Guömundsdóttir,
Árskógum 8, Reykjavík.
Þórarinn S. Öfjörö,
Laugarnesvegi 102, Reykjavík.
70 ára________________________________
Bergþóra Víglundsdóttir,
Vesturholti 7, Hafnarfirði.
80 ára________________________________
Bryngeir V. Kristjánsson,
Lækjasmára 2, Kópavogi.
Sveinbjörn Danielsson,
Noröurgötu 58, Akureyri.
ára_______________________________
Arnfríður Hansdóttir,
Norðurbrún 8, Reykjavík.
Ásdís Teresita Einarsson,
Borgarheiöi 20, Hveragerði.
Ásta Margrét Sigfúsdóttir,
koltröð 2, Egilsstöðum.
I igunn Hávaröardóttir,
\ allarási 2, Reykjavík.
t sltar Ingiberg Axelsson,
L rannargötu 5, Keflavík.
igurbjörg Guöný Björnsdóttir,
Laugartúni 8, Akureyri.
£ avar Rafn Hallgrímsson,
I óiabraut 21, Skagaströnd.
40 ára________________________________
*iiís!i Guðberg Gíslason,
l.eynisbrún 11, Grindavík.
Srímur Þorkell Jónasson,
Norðurbrún 34, Reykjavík.
Halla Steina Káradóttir,
Löngubrekku 32, Kópavogi.
Iflaría Traustadóttir,
i lugagötu 45, Vestmannaeyjum.
Ólafur Þorsteinsson,
Osi 1, Akranesi.
Sigurjón M. Alexandersson,
'4010110 4, Sauðárkróki.
Halldóra Nanna Guöjónsdóttir frá Flatey
andaðist á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð,
Garöabæ, fimmtud. 28.12.
Rannveig Dýrleif Matthiasdóttir frá
Grímsey er látin. Jarðarförin hefur farið
’ram í kyrrþey.
Jóhann Guönason lést fimmtud. 28.12.
k á hjartadeild Landspítalans við
Hringbraut.
s
IJrval
- gott í sófann
Fólk í fréttum
Ari Teitsson
formaður Bændasamtaka íslands
Ari Teitsson, formaður Bænda-
samtaka íslands, lætur vel af árferði
nýliðins árs eins og fram kom í DV-
frétt á þriðjudaginn var.
Starfsferill
Ari fæddist 13.3. 1943 að Brún í
Reykjadal. Hann lauk landsprófi
1960, búfræðiprófi frá Hvanneyri
1961 og búfræðikandídatsprófi það-
an 1973. Ari var ráðunautur hjá
Búnaðarsambandi Suður-Þingey-
inga frá 1973, er formaður Bænda-
samtaka islands frá 1995, starfrækir
lítið sauöfjárbú að Hrísum ásamt
konu sinni, Erlingi bróður sínum og
konu hans, sem eru auk þess með
kúabú á Brún.
Ari sat í stjórn Búnaðarfélags
Reykdæla, sat í stjórn Stéttarsam-
bands bænda í nokkur ár, hefur set-
ið í fjölda stjórnskipaðra nefnda um
landbúnaðarmál, var formaður
Framsóknarfélags Reykdæla, sat í
stjórn kjördæmaráðs framsóknar-
manna í Norðurlandi eystra, situr í
miðstjórn Framsóknarflokksins, sat
um skeið i stjórn Kaupfélags Þing-
eyinga og er stjórnarformaður
Sparisjóðs Suður-Þingeyinga.
Fjölskylda
Ari kvæntist 2.1. 1972 Elínu
Magnúsdóttur, f. 28.6. 1943, hús-
stjórnarkennara. Hún er dóttir
Magnúsar Bjarnasonar, bónda í
Birkihlíð í Reykholtsdal, og k.h.,
Brynhildar Stefánsdóttur, sem er
látin, húsfreyju.
Börn Ara og Elínar eru Elín, f.
19.5. 1973, rekstrarfræðingur í námi
í byggðarfræðum i Kanada en mað-
ur hennar, Ingvar Björnsson, er í
framhaldsnámi í búvísindum;
Magnús, f. 25.6. 1974, i mastersnámi
í verkfræði við Edinborgarháskóla
en kona hans er Elísabet Eik Guð-
mundsdóttir; Teitur, f. 5.4. 1979,
nemi í eðlisfræði við HÍ.
Systkini Ara eru Björn, f. 11.10.
1941, skólameistari á ísafirði; Sigríð-
ur, f. 6.2.1946, sérkennari við Öskju-
hlíðarskóla; Erlingur, f. 6.2. 1946,
bóndi á Brún; Helga, f. 8.8.1947, hús-
stjómarkennari á Flúðum; dr. Ingv-
ar, f. 2.2.1951, læknir á Akureyri.
Foreldrar Ara voru Teitur
Bjömsson, f. 14.10. 1915, d. 1998,
bóndi að Brún og heiðursfélagi Bún-
aðarfélags íslands, og k.h., Elín Ara-
dóttir, f. 3.11. 1918, d. 2000, hús-
freyja.
Ætt
Teitur er bróðir Hróars, föður
Sigurðar leikhússtjóra. Teitur er
sonur Bjöms, b. á Brún, bróður
Tryggva, föður Inga, fyrrv. for-
manns Stéttarsambands bænda.
Björn var sonur Sigtryggs, b. á Hall-
bjarnarstöðum, Helgasonar, b. þar,
Jónssonar. Móðir Helga var Her-
borg, systir Bjargar, langömmu Þor-
gríms Starra, fóður Kára í Garði.
Önnur systir Herborgar var Þuríð-
ur, móðir Sigurðar, ráðherra á Ysta-
felli, fóður Jóns rithöfundar, föður
Jónasar búnaðarmálastjóra. Her-
borg var dóttir Helga, ættföður
Skútustaðaættarinnar, Ásmunds-
sonar. Móðir Sigtryggs var Sigur-
veig Sigurðardóttir frá Arnarvatni.
Móðir Björns var Helga Jónsdóttir,
b. á Arndísarstöðum, Árnasonar, og
Herdísar Ingjaldsdóttur, dbrm. á
Mýri, Jónssonar, b. þar, Jónssonar,
af Mýrarætt, bróður Sigurðar, fóður
Jóns, alþm. á Gautlöndum, fóður
ráðherranna Péturs og Kristjáns og
afa ráðherranna Haralds Guð-
mundssonar og Steingríms Stein-
þórssonar.
Móðir Teits var Elín, systir Sigur-
geirs, föður Ingólfs, bókbindara í
Vallholti. Elín var dóttir Tómasar,
b. í Stafni, Sigurðssonar, b. þar, Sig-
urðssonar. Móðir Elínar var Ingi-
björg Jónsdóttir, b. í Lundarbrekku,
Sigurðssonar, b. þar, Sigurðssonar.
Meðal systkina Elínar er Bjarni,
ráðunautur í Borgamesi. Elín er
dóttir Ara, b. á Grýtubakka, bróður
Sigfúsar, tengdaföður Pálma, alþm.
á Akri, fyrrv. landbúnaðarráðherra.
Ari var sonur Bjarna, b. á Grýtu-
bakka, Arasonar, og Snjólaugar,
systur Þóru, ömmu Garðars Gísla-
sonar hæstaréttardómara, Þóru
Kristjánsdóttur listfræðings og
Garðars Halldórssonar, húsameist-
ara rikisins. Snjólaug var dóttir Sig-
fúsar, b. á Varðgjá, Guðmundsson-
ar, og Margrétar Kristjánsdóttur.
Móðir Elínar var Sigríður, systir
Gunnars, fyrrv. gjaldkera Búnaðar-
félagsins, og Jóhannesar, afa Stein-
gríms Sigfússonar alþm. Sigríður
var dóttir Áma, b. á Gunnarsstöð-
um, Davíðssonar, b. á Heiði, bróður
Ingibjargar í Stafni. Móðir Árna var
Þuríður, systir Jóns, langafa Jónas-
ar búnaðarmálastjóra. Þuriður var
dóttir Árna, b. á Sveinsströnd, Ara-
sonar, bróður Kristjönu, móður
Jóns Sigurðssonar á Gautlöndum.
Móðir Sigríðar var Arnbjörg Jó-
hannesdóttir, systir Áma, pr. i
Grenivík, föður Ingimundar söng-
stjóra.
■HH
Sveinbjörg Ingimundardóttir
fyrrv. húsfreyja að Teygingalæk
Sveinbjörg Ingimund-
ardóttir, fyrrv. húsfreyja
að Teygingalæk, nú til
heimilis að Skerjavöllum
3, Kirkjubæjarklaustri,
varð sjötug i gær.
Starfsferill
Sveinbjörg fæddist á
Melhóli í Meðallandi i
Skaftárhreppi og ólst þar
upp við öll almenn sveitastörf sins
tima. Auk þess stundaði hún ýmis
almenn störf sem ung kona, s.s.
þjónustustörf á læknasetrinu á
Breiðabólstað.
Sveinbjörg flutti að Teygingalæk
1951 og var þar búsett í tæpa hálfa
öld eða fram til síðasta hausts. Hún
var lengst af húsfreyja á Teyginga-
læk.
Fjölskylda
Sveinbjörg giftist 25.1. 1953 Ólafi
J. Jónssyni, f. 2.11. 1927, fyrrv.
bónda á Teygingalæk. Hann er son-
ur Jóns Jónssonar, bónda á Teyg-
ingalæk, og k.h., Guðríðar Auðuns-
dóttur, húsfreyju og bónda þar.
Böm Sveinbjargar og Ólafs eru
Valgeir Ingi Ólafsson, f. 29.11. 1952,
búsettur í Reykjavík; Margrét Ólafs-
dóttir, f. 13.1. 1954, búsett
í Reykjavík.
Systkini Sveinbjargar
eru Guðjón Ingimundar-
son, f. 27.5. 1927, húsa-
smiður og fyrrv. starfs-
maður hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, búsettur í
Reykjavík, kvæntist Sig-
rúnu Stefánsdóttur; Guð-
laugur Árni Ingimundar-
son, f. 10.7. 1935, múrari, búsettur í
Reykjavík, kvæntist Guðrúnu Kára-
dóttur; Bergur Ingimundarson, f.
13.12. 1942, múrari, búsettur í
Reykjavik.
Foreldrar Sveinbjargar voru Ingi-
mundur Sveinsson, f. 2.2. 1893, d
7.5. 1982, bóndi á Melhóli í Meðal
landi, og k.h., Valgerður Ingibergs
dóttir, f. 9.4. 1905, d. 8.8. 1994, hús-
freyja að Melhóli.
Ætt
Ingimundur var sonur Sveins
Ingimundarsonar, b. á Undirhrauni,
og k.h., Gróu Bjarnadóttur hús-
freyju.
Valgerður var dóttir Ingibergs
Þorsteinssonar á Melhól og s.k.h.,
Guðríðar Árnadóttur húsfreyju.
Fímmtugur
Björgvin Ólafsson
skipasali
Björgvin Ólafsson skipasali,
Garðhúsum 12, Reykjavík, verður
fimmtugur á morgun.
Starfsferill
Björgvin fæddist í Vestmannaeyj-
um og ólst þar upp. Hann lauk
fyrsta stigs prófi frá Vélskóla Vest-
mannaeyja, stundaði nám við Iðn-
skólann þar, lærði ketil- og plötu-
smíði í Vélsmiðjunni Magna og lauk
fyrsta stigs prófi frá Stýrimanna-
skólanum í Vestmannaeyjum.
Björgvin var til sjós á sumrin frá
fjórtán ára aldri, fyrst á Andvara
VE, síðan á Öðlingi VE og á Stakki
VE. Hann stundaði síðan eigin út-
gerð á Bylgju VE ásamt Matthíasi
Óskarssyni.
Björgvin flutti til Reykjavíkur
1981. Þar starfaði hann fyrst við
verslunarrekstur en starfrækir nú,
ásamt konu sinni, skipasölufyrir-
tækið B.P. skip ehf.
Fjölskylda
Eiginkona Björgvins er Guðrún
Jacobsen, f. 8.2. 1951, danskennari.
Hún er dóttir Hauks Jacobsen, sem
nú er látinn, kaupmanns í Reykjavík,
og Inge-Liss Jacobsen húsmóður.
Sonur
Björgvins og
Guðrúnar er
Björgvin
Gunnar, f.
9.12. 1987.
Dætur Björgvins eru Þórey Guð-
rún, f. 25.8. 1969, búsett í Svíþjóð;
Ólöf Sigrún, f. 9.7.1971, búsett í Nor-
egi; Aldís, f. 3.2. 1974, búsett í
Bandaríkjunum.
Synir Guðrúnar eru Haukur Jens
Jacobsen, f. 3.3.1969, búsettur í Dan-
mörku; Helgi Örn Jacobsen, f. 13.4.
1973, búsettur í Reykjavík.
Systkini Björgvins eru Þyrí, f.
16.11. 1949, búsett í Vestmannaeyj-
um; Gunnhildur, f. 14.1. 1953, búsett
í Reykjavík; Guðrún, f. 25.8. 1956,
búsett á Akranesi; Ólafur Þór, f.
17.7. 1961, búsettur í Hafnarfírði;
Anne Merie, f. 12.2. 1967, búsett í
Englandi.
Hálfsystir Björvins: Erla Ólafs-
dóttir, f. 6.10. 1945, búsett í Dan-
mörku.
Foreldrar Björgvins: Ólafur Páls-
son, f. 3.11. 1927, flskmatsmaður í
Kópavogi, og Þórey Guðrún Björg-
vinsdóttir, f. 9.4.1931, húsmóðir.
- Björgvin er á Kanaríeyjum.
Merkir Islendingar
Pálmi Hannesson, rektor Menntaskólans
í Reykjavík, fæddist 3. janúar 1898 á
Skíðastöðum í Lýtingsstaðahreppi í
Skagafirði. Hann var sonur Hannesar
Péturssonar, bónda á Skíðastöðum, og
k.h., Ingibjargar Jónsdóttur. Pálmi var
bróðir Péturs sparisjóðsstjóra, föður
Hannesar skálds. Hannes á Skíðastöð-
um var bróðir Jóns á Nautabúi, afa
Pálma Jónssonar, stofnanda Hagkaups
og Elínar Pálmadóttur blaðamanns.
Pálmi lauk gagnfræðaprófi á Akur-
eyri 1915, stúdentsprófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavík 1918, cand.phil.-prófi
frá Kaupmannahafnarháskóla 1919 og
stundaði nám í dýrafræði, grasafræði, jarð-
fræði, eðlisfræði og efnafræði og lauk magister-
prófi í dýrafræði 1926. Hann var ráðunautur
Búnaðarfélags íslands og Fiskifélags ís-
lands um veiðimál 1926-1929 og jafnframt
kennari við Gagnfræðaskóla Akureyrar.
Jónas frá Hriflu var stórhuga mennta-
málaráðherra 1927-1931. Hann veitti
Gagnfræðaskólanum á Akureyri
menntaskólaréttindi, stofnaði héraðs-
skóla á landsbyggðinni, lét endurbæta
húsnæði MR og skipaði Pálma þar
rektor 1929 sem sinnti því starfl með
sóma til dauðadags 1956. Pálmi var
alþm. Skagfirðinga fyrir Framsókn-
arflokkinn 1937-42, bæjarfulltrúi i
Reykjavík, var formaður Veiðmálanefndar
um árabil, sat í Útvarpsráði, Menntamála-
ráði og í Rannsóknarráði ríkisins.
Pálmi Hannesson
yj__________Jarðarfarir
Dagný Helgadóttir frá Kaldárholti,
Dofraborgum 38, veröur jarðsungin frá
Fella- og Hólakirkju miövikud. 3.1. kl.
13.30.
Útför Jósíönu Magnúsdóttur, Lindargötu
14, Reykjavík, fer fram frá Fossvogs-
kirkju miðvikud. 3.1. kl. 10.30.
Siguröur Finnsson, útgerðarmaður frá
Siglufirði, verður jarðsunginn frá Há-
teigskirkju miðvikud. 3.1. kl. 13.30.
Sigurbjörg Ólöf Guðjónsdóttir, Grýtu-
bakka 10, Reykjavík, verður jarösungin
frá Seljakirkju miðvikud. 3.1. kl. 13.30.
Valgeir Magnús Gunnarsson verður jarð-
sunginn frá Digraneskirkju miðvikud.
3.1. kl. 15.00.
Hrólfur Ásmundsson verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju fimmtud. 4.1. kl.
13.30.