Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2001, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.2001, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 2001 I>V 29 Tilvera Árið 2000 á Suðaustur- og Austurlandi: Heitir dagar og heitar umræður DV-MYND JÚLÍA IMSLAND Bjartar vonir vakna Halldóra Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar, og Björn Bjarnason láta snjókomuna í fyrravetur ekkert á sig fá og taka skóflustungu Nýherjabúöa en viö þær binda Austfiröingar mikiar vonir. DV, AUSTURLANDI:_________________ Arið sem nú er að enda hefur ver- ið Austfirðingum að flestu leyti gott og ekki annað að heyra en menn beri gamla árinu vel söguna þrátt fyrir fólksflutninga frá svæðinu. Það sem einkenndi árið á Austfjörð- um voru heitir og góðir sumardagar - og heitar umræður um stóriðju í fjórðungnum. Snemma árs höföu Hornfirðingar þrjá bæjarstjóra og það var meira en almennt gerist hér á landi. En þegar líða tók á árið fækkaði þeim og nú situr Albert Ey- mundsson einn í bæjarstjórnar- stólnum og stjórnar sinni heima- byggð eins og ljúfur herforingi. Merkur áfangi - austfirskur háskóli Fimmtudagurinn 10. mars var há- tíðisdagur á Hornafirði og fánar blöktu við hún í tilefni þess að þennan dag voru undirritaðir samn- ingar um uppbyggingu Nýheima og byggingu Nýherjabúða, um 2400 fer- metra húss. Þeir sem undirrituðu samninginn voru Björn Bjamason menntamálaráðherra, Páll Skúla- son, rektor Háskóla íslands, og Garðar Jónsson, þáverandi bæjar- stjóri Hornafjarðar. Nýheimar er nýjung á sviði atvinnuþróunar og menntunar sem verið er að undir- búa á Höfn og meðal þeirra stofnana sem verða i Nýherjabúðum eru Austurlandssetur Háskóla íslands og Framhaldsskólinn í Austur- Skaftafellssýslu og er ætlunin að skólastarf hefjist' þar haustið 2002. Hornfiröingar í kjördæmi Sunnlendinga í byrjun árs var birt víðtæk skoð- anakönnun sem gerð var í lok síð- asta árs þar sem spurt var hvort Hornfirðingar vildu tilheyra Suður- kjördæmi eða Norðausturkjördæmi þegar kjördæmaskipan yrði breytt og var útkoman sú að rúmlega 62% vildu vera „Sunnlendingar" og var unga fólkið þar í meirihluta. Fleiri spurningar fylgdu skoðanakönnun- inni og m.a. kom þar fram að 87% aðspurðra voru ánægðir með skóla- mál staðarins, 94% voru sammála um að gott væri að búa í Homafirði og 80% töldu þjónustu sveitarfélags- ins við íbúana góða. I upphafi ársins tók verslunar- keðja KÁ við rekstri á vefnaðar- og matvöruverslun KASK á Höfn og 11- 11 keðjan tók við rekstri matvöru- verslana á Vesturbraut á Höfn og á Djúpavogi. Ferðaþjónustuaðilar eru ánægðir með sumarið en aðsókn að gististöðum var dræm í upphafi sumars og var jarðskjálftunum á Suðurlandi helst um kennt að fólk lagði ekki leið sína um Suðurland fyrr en síðast í júní. Brottfluttir Hornfiröingar snúa heim aftur Þó fækkað hafi um 38 manns í Homafiröi þetta ár, þar af 10 á Höfn, fengust þær góðu fréttir að nokkuð væri um að brottfluttir Homflrðing- ar hefðu flutt heim aftur og væru komnir í eigið húsnæði. Samkvæmt íbúatalningu 1. desember em íbúar Hafnar 1769. Samkvæmt upplýsing- um fasteignasölunnar á staðnum er mikið um að ungt fólk sem er að ljúka námi spyrjist fyrir um leigu- íbúðir á Höfn en því miður er mjög erfítt að fá leigt og hjá bænum er engin íbúð laus. Víða i fjórðungnum ber á að fólk sé á fóram, misjafnt eftir sveitarfélögum. Næg atvinna hefur verið i fisk- vinnslum víða um Austfirði en oft erfitt að fá fólk til starfa. Helstu byggingaframkvæmdir á Homafirði eru bygging nýs leikskóla sem tek- inn verður í notkun næstu daga, níu íbúða álma við Ekru, hús aldr- aðra, ný slökkvistöð og verið er að byrja á verslunarhúsi KASK í mið- bæ Hafnar sem KÁ mun taka á leigu undir verslun sina og á hún að vera tilbúin í vor. Bændur fengu metuppskeru á kartöflum í haust og veðráttan hefur veriö einstaklega góð það sem af er vetri og aðeins sést snjófol í tvo daga. Fólki fjölgar á Djúpavogi Á Djúpavogi hefur fólki fjölgað um 22 og er eina sveitarfélagið á Austurlandi sem getur státað af fjölgun íbúa. Jöfn og stöðug atvinna allt árið og gott mannlíf telur Ólafur Ragnarsson sveitarstjóri ástæöuna fyrir þessari góðu þróun. Unnið hef- ur verið að undirbúningi laxeldis- stöðvar í Berufirði og eru tilheyr- andi leyfi fengin til að framkvæmd- ir geti byrjað á næsta ári. Lakkrís- verksmiðjan Kerhamar í Álftafirði var formlega opnuð 30. ágúst. Á Reyðarfirði eru uppi mun stærri hugmyndir, álver, en talsverður pirringur var í mönnum vegna stór- iðjuframkvæmda á árinu, umræður oft heitar og óljóst hvemig mál þró- ast. Ár menningar og lista Aldrei hefur verið jafn mikið um k flölbreytta menningar- og listvið- burði í fjórðungnum og þetta ár og mikið samstarf verið á þeim sviðum milli byggðarlaganna og hefur um leið verið stór liður í ferðaþjónustu- málum á svæðinu. Sameiginleg Kristnihátíð fyrir allt Austurland, sem eru 30 sóknir, var haldin á Seyðisfirði um hvítasunnuna og var fjölmenni á hátíðinni. LungA- Lista- hátíð ungsfólks á Austurlandi var haldin á Seyðisfirði í júlí þar sem þátttakendur komu víðs vegar af landinu og voru viðfangsefni hátíð- arinnar m.a. ljósmyndun, leiklist, tónlist, fatahönnun, dans og laga- smiði. Snælandskórinn, blandaður kór kirkjukórasambands Austur- lands gerði víðreist í byrjun sumars og hélt til Kanada ásamt hópi dans- ara úr þjóðdansaklúbbinum Fiðrild- um á Egilsstöðum. Kór og dansarar komu fram á nokkrum stöðum og skemmtu Vestur-íslendingum og tóku þátt í hátíðarhöldum 17.júni. Sólríkt sumar og mikil berjaspretta. Heitir og sólrikir dagar einkenndu sumarið á Austurlandi og ekki kom dropi úr lofti í fleiri vikur.Víða var farið að skorta vatn þar sem vatns- ból og lækir þornuðu og miðla þurfti vatni í Lagarfljót til að ferjan Lagar-«* fljótsormur kæmist sínar leiðir. Trjágróður fór illa í þurrkunum en varð ekki fyrir varanlegum skemmdum. Berjaspretta var meiri en elstu menn muna og var svo um allar tegundir berja og var sama hvar á Austurlandi var. Stöðfirðing- ar höfðu berin nánast við bæjar- dyrnar hjá sér og það tók ekki langa stund að tina nokkra litra. Vegir um Austurland hafa batnað mikið á árinu og vegir eða vegslóðar á þá firði og víkur þar sem ekki er búið hafa margir verið lagfærðir og eru færir fleiri bílum en áður. Mikill straumur ferðafólks var um alla þessa staði í sumar og inn á hálend- ið þar sem hið umdeilda virkjunar- svæði er. f Landsins stærsta kæli- geymsla Síldarvinnslan í Neskaupstað tók fyrir stuttu í notkun nýtt frystihús sem reist var á þessu ári og er það búið öllum fullkomnasta búnaði. Kæligeymsla hússins er um það bil 15.000 rúmmetrar og sú stærsta á landinu. Þrátt fyrir fækkun fólks í þessum landshluta eru menn bjart- sýnir á framtíöina og að sá tími fari að koma að fólk geri sér grein fyrir þeim mörgu kostum sem því fylgir, að búa í afslöppuðu, fögru umhverfi úti á landi. -Júlia Imsland. í Dúndrandi dans í Kostaríku Þær þurftu ekki aö dúöa sig, ungu stúikurnar í Kostaríku þegar þær stigu hinn þokkafulla comparsa-dans á kjötkveöjuhátíö á aöatgötu höfuöborgarinn- ar San José milli jóla og nýárs. Þúsundir tóku þátt í gleöskapnum. Eminem kjörinn listamaður ársins Hinn umdeildi rappari Eminem var kjörinn listamaður ársins af tónlistartfmaritinu Rolling Stone fyrir áramótin. Það voru bæði lesendur og gagnrýnendur blaðsins sem völdu Eminem sem besta hip hop-listamann ársins, besta karllistamanninn og plötuna The Marshall Mathers sem mestu plötu ársins. Síðast en ekki sist var Eminem, sem er 27 ára, kjörinn besti listamaður ársins. Þrátt fyrir marga umdeilda texta sína og lífsstU sinn var Eminem heiðraður hvað eftir annað á síðasta ári. Eminem ögrar en aðdáendurnir og gagnrýnendur hylla hann. Emlnem Rapparinn ögrandi var heiöraöur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.