Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2001, Side 5
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2001
ÐV
5
Fréttir
Héraðsdómur Norðurlands eystra:
Milljónir vegna
vinnuslyss
DV, AKUREYRI:________
Héraðsdómur Norðurlands eystra
hefur dæmt rúmlega tvítugum Dal-
víkingi skaðabætur vegna vinnu-
slyss sem maðurinn lenti i árið 1996
í fiskverkun á Dalvík.
Maðurinn, sem þá var 18 ára,
starfaði í fiskvinnsluhúsi Blika hf.
sem síðar var sameinað öðru fyrir-
tæki og það síðan sameinað enn
öðru, og þá undir nafninu BGB-
Snæfell, og var málið höfðað gegn
því fyrirtæki.
Maðurinn var að pressa þurrkaða
skreiðarhausa í svokallaðri skreið-
arpressuvél þegar hann lenti með
fjóra fingur hægri handar í press-
unni.
Þegar slysið átti sér stað var mað-
urinn búinn að fylla pressuna og
stóð við handfang sem stjórnar
vökvatjakk pressunnar. Hann not-
aði vinstri hönd á handfangið en
var með hægri hendi i falsinu með
þeim afleiðingum að höndin
klemmdist þegar lokið kom niður.
Áverkar voru á fjórum fingrum
sem voru allir brotnir, auk yfir-
borðsáverka, og var gert að sárun-
um með skurðaðgerð. Við skoðun
lækna árið 1999, eða þremur árum
eftir slysið, kom fram að maðurinn
hefur ekki náð bata, m.a. sé grip-
kraftur hægri handar mikið skert-
ur, finhreyfingar erfiðar vegna
stirðleika og mikið kuldaóþol á
áverkasvæðinu.
í skýrslu Vinnueftirlits ríkisins
um slysið segir að í kjölfar slyssins
hafi verið gerðar kröfur um breyt-
ingu á stjórnbúnaði pressunnar og
settur í hana tveggja handa rofi.
Dómurinn taldi að fyrirtækinu
hefði borið, þegar pressan var tekin
í notkun, að búa hana þannig að
ekki væri hætta á að hendur starfs-
manna klemmdust við notkun
hennar. Varð það því niðurstaða
dómsins að fyrirtækið væri skaða-
bótaskylt. Þó taldi dómurinn að
maðurinn hefði sýnt gáleysi við
notkun pressunnar og þvi þótti rétt
að hann bæri þriðjung tjónsins
sjálfur.
Kröfur mannsins um bætur námu
5,3 milljónum auk vaxta en niður-
staða dómsins var að fyrirtækinu
bæri að greiða honum 3.559 milljón-
ir króna með vöxtum og dráttar-
vöxtum og fyrirtækið var einnig
dæmt til greiðslu 600 þúsund króna
málskostnaðar. -gk
Íþróttalíf á Sauðárkróki í kreppu:
Tindastóll skuld-
ar 30 milljónir
- rekstur íþróttafélaga hálfgert rugl, segir íþróttafulltrúi
Ungmennafélagið
Tindastóll á Sauðár-
króki er komið að fót-
um fram vegna slæmr-
ar fjárhagsstöðu og hef-
ur óskað eftir skyndi-
hjálp frá sveitarfélag-
inu á staðnum til að
hefðbundið íþrótta- og
æskulýðstarf leggist
ekki af. Tindastóll
skuldar 30 milljónir og
þar af eru 20 milljónir
vegna reksturs knatt-
spyrnudeildarinnar.
“Þetta er uppsafnað-
ur vandi síðustu ára
vegna ferða- og þjálfara-
kostnaðar. Það verður
að rætast úr þessu í
næstu viku ef ekki á
illa að fara,“ segir Kári
Maríssön framkvæmda-
stjóri Tindastóls. Kári
segir vanda Tindastóls
ekki frábrugðinn vanda
annarra íþróttafélaga
viðs vegar um landið
sem eigi flest hver við
ramman reip að draga,
Hriktir í stoðum Tindastóls
Sveitarfélagið verður að reiða fram fé í næstu viku ef ekki á
illa að fara.
íþróttafélögunum sé hald-
ið í svelti af ríki og sveit-
arfélögum og það sé í
hrópandi ósamræmi við
yfirlýsingar sömu aðila á
tyllidögum um mikilvægi
íþróttastarfsins í forvörn-
um gegn fikniefnum og
annarri óáran.
Tindastóll hefur óskað
eftir fundi með sveitar-
stjórninni í Skagafirði og
um þá ósk segir Ómar
Bragi Stefánsson íþrótta-
fulltrúi í Skagafirði:
„Skuldamál Tindastóls
eru í skoðun en sannleik-
urinn er sá að þetta er
orðið hálfgert rugl að
reka íþróttafélög eins og
gert er. Það verður að
finna einhverjar nýjar
leiðir."
Yfirvöld í Skagafirði
hafa áður orðið að koma
Tindastóli tU hjálpar í
fjárhagsþrengingunum
og allt bendir til að nú
verði að endurtaka þann
leik. -EIR
DV-MYND SÆDÍS HELGA GUÐMUNDSDÓTTIR
Þegar sóiin kom aftur
Þau tóku þátt í ístöltmótinu og eins og sést þá sást sólin fyrst
i byggð i Grundarfirði.
ískappreiðar á
þrettándanum
DV, GRUNDARFIRÐI:____________________
Á laugardaginn voru haldnar
kappreiðar á ís við bæinn Þórdísar-
staði í tUefni þess að sólin sást fyrst
í byggð í Grundarfirði. í fyrsta sæti
var ísólfur Líndal Þórisson, tamn-
ingamaður í Suður-Bár, á Valdisi, 4
vetra, frá Blesastöðum. I öðru sæti
var Ulugi G. Pálsson, tamningamað-
ur á Þórdísarstöðum, á Leiftri, 5
vetra, frá Bjamarhöfn. í þriðja sæti
var síðan HaUur Pálsson, formaður
hestamannafélagsins SnæfeUings, á
Gosa, 7 vetra, frá Naustum. Tvö
önnur opin töltmót á ís eru ráðgerð
í Grundarfirði. -DVÓ/SHG
Staðardagskrá 21:
Undirritað í Hlíðarfjalli
PV, AKUREYRI:____________
Samningur um verk-
efnið Staðardagskrá 21
var undirritaður í Hlíð-
arfjalli við Akureyri í
vikunni af Siv Friðleifs-
dóttur umhverfisráð-
herra og VUhjálmi Þ.
VUhjálmssyni, for-
manni Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga.
Staðardagskrá 21 er
áætlun um markmið
sveitarfélaganna í um-
hverfisvemd og em 8 ár
síðan samþykkt var á
Siv Friðleifsdóttir
Undirritaði samning um
Staðardagskrá 21.
ráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna að öUum sveit-
arfélögum bæri að starfa
eftir slíkri áætlun.
Markmiðið er að sjálf-
bær þróun skipi sífeUt
stærri sess í lífi þeirra
sem taka þátt í áætiun-
inni.
í máli Sivjar Friðleifs-
dóttur við þetta tækifæri
kom fram að á íslandi
taka nú um 40 sveitarfé-
lög þátt í verkefninu og í
þeim búa um 250 þúsund
manns. -gk
2001 TILBOÐ
SHARP AL-840
sj # Packard Bell
STAFRÆN
LJÓSRITUNARVÉL & PRENTARI
• Hraði: 8 eintök á mínútu
• Fmmrita/afritastærð:
A4 stærst A6 minnst
• Minnkun og stækkun:
50%-200%
• Sjálfvirk lýsing afrita
• Sérstök Ijósmyndastilling
• Tvö prentaratengi
l-CONNECT 1700ce
• Celeron 700 MHz
• Windows Millennium
• Vinnsluminni 64/max512
• 20 Gb harður diskur
• 17” skjár
• Geisladrif 48x
• Módem 56k.-V.90Fax
• 3 mán. frítt internet
• 10/100 ethemet kort
Listaverð 69.900 Tilboðsverð 59.500
Verð 124.900
SHARP CS-2653E
BORÐREIKNIVÉL
• 12 stafa Ijósaborð.
• Rauður mínus.
, • Flýtileiðrétting á innslætti.
/ • Innsláttarteljari.
• Álagningartakki (MU).
• Hraðvirk og hljóðlát.
• Sjálfvirkur útreikn.
fyrir gjaldmiðla.
Listaverð 11.900 Tilboðsverð 9.490
SHARP AR-161
STAFRÆN LJÓSRITUNARVÉL
• Hraði: 16 eintök á mínútu
• Frumrita/afritastærð
A3 stærst A6 minnst
• Minnkun & stækkun 50%-200%
• Sjálfvirk lýsing afrita
• Sérstök Ijósmyndastilling
• 250 blaða papplrsskúffa
• 100 blaða framhjámatari
* Prentaratengi er aukabúnaður
Listaverð 149.900 Tilboðsverð 105.900
PRENTARI*
INTIMUS 152
PAPPÍRSTÆTARI
• Pappírsinntak 220 mm
• Tætir 4-5 blöðíeinu
• Skurðarstærð 3,5x18 mm
• Hraði 2.4m/mínútu
• Pappírsgeymsla 22 Itr.
• Sjálfvirk ræsing
SHARP XG-NV51XE
SKJÁVARPI
• Birta 1000 Ansi lumen
• Upplausn XGA
• Þyngd 4,5Kg
• Myndstærð
102 - 762 sm
• Vörpunarfjarlægð
1,6-18,1 m
• Video; PAL
NTSC, SECAM
Listaverð 14.800 Tilboðsverð 11.800
Tilboðsverð 385.000
Veríö velkomin
í skrífstofutækjadeild okkar
BRÆÐURNIR
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.ls