Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2001, Qupperneq 6
6
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2001
Fréttir I>V
Hæstiréttur Islands
Embætti hæstaréttardómara veröur laust í vor og er taliö líklegt aö kona veröi ráöin í stööuna en gengiö var fram hjá þremur konum þegar
Árni Kolbeinsson var skipaöur í vetur.
Nýr hæstaréttardómari skipaður í vor:
Konur fámennar
innan Hæstaréttar
Þann 25. janúar rennur út um-
sóknarfrestur um stöðu dómara við
Hæstarétt íslands. Dóms- og kirkju-
málaráðherra Sólveig Pétursdóttir
sér um að skipa i stöðuna og marg-
ir renna grun í að hún sé nú undir
pressu að ráða konu til þessara
starfa.
Þegar Arnljótur Björnsson sótti
um lausn frá embætti sóttu fjórir
aðilar um starfið, þrjár konur og
einn karlmaður. Ámi Kolbeinsson
var ráðinn til starfa 1. nóvember
2000 í staö Amljóts, en gengið var
fram hjá þeim Ólöfu Pétursdóttur,
Ingibjörgu Benediktsdóttur og Sig-
ríöi Ingvarsdóttur.
Síðan hefur Hjörtur Torfason ósk-
að eftir lausn frá embætti og mun
Sólveig ráða í stöðu hans fyrir 1.
mars næstkomandi. Talið er líklegt
að konumar þrjár, sem gengið var
fram hjá við ráöningu Árna Kol-
beinssonar, muni sækja aftur um
stöðu hæstaréttardómara.
Karlaveldi
Konur hafa verið fáséðar meðal
hæstaréttardómara síðan Hæstirétt-
ur íslands tók til starfa 16. febrúar
1920, en í dag skipa átta menn og ein
kona stöður hæstaréttardómara.
Guðrún Erlendsdóttir er eini kven-
maðurinn sem skipaður hefur verið
hæstaréttardómari, en hún gegnir
embætti varaforseta dómsins í dag.
Hún var skipuö árið 1986 en hafði
áður verið sett til skamms tíma, frá
- líkur á því að kona verði skipuð
Ólöf Pétursdóttir,
dómstjóri
Héraösdóms
Reykjaness.
Sigríöur
Ingvarsdóttir,
héraösdómari
í Reykjavík.
Ingibjörg
Benediktsdóttir,
héraösdómari í
Reykjavík Var sett-
ur hæstaréttar-
dómari 1. janúar
1994 til 31. des-
ember sama ár.
Guörún
Eriendsdóttir
Eina konan sem
skipuö hefur
veriö í embætti
hæstaréttar-
dómara
á íslandi.
15. september 1982 til 1. júlí 1983.
Árin 1991 og 1992 gegndi hún emb-
ætti forseta dómsins.
Auk Guðrúnar hefur aðeins ein
önnur kona verið sett hæstaréttar-
dómari í afleysingum, Ingibjörg
Benediktsdóttir, héraðsdómari í
Héraðsdómi Reykjavíkur. Ingibjörg
er ein hinna þriggja kvenna sem
sóttust eftir starfi Amljóts fyrr í
vetur, en hún var settur hæstarétt-
ardómari frá 1. janúar 1994 til 31.
desember sama ár í fjarveru Þórs
Vilhjálmssonar. Ingibjörg starfaði
einnig sem sakadómari við Saka-
dóm Reykjavíkur á sínum tíma. í
samtali við DV sagðist Ingibjörg
vera búin aö taka ákvörðun um það
hvort hún sækir um eða ekki, en
vildi ekki gefa upp opinberlega í
hvora áttina ákvörðun hennar fell-
ur.
Hinar tvær konumar sem sóttu
um embætti hæstaréttardómara í
Sigrún María Kristinsdóttir
blaöamaöur
haust eru Sigríður Ingvarsdóttir og
Ólöf Pétursdóttir.
Sigríður, sem starfar sem dómari
í Héraðsdómi Reykjavíkur, sagði í
samtali við DV í gær aö hún væri
enn ekki búin að ákveða hvort hún
myndi sækja um stöðu Hjartar. Sig-
ríöur hefur viðamikla reynslu í for-
sjármálum og öðmm málum sem
viðkoma bömum og var meðal ann-
ars formaður barnavemdarráðs
árin 1986-1991 og 1993-1997. Sigríður
starfaði einnig sem héraðsdómari
við bæjarfógetaembættið í Kópa-
vogi.
Ólöf Pétursdóttir hefur verið
dómstjóri og dómari við Héraðsdóm
Reykjaness frá árinu 1992 þegar að-
skilnaður dómsvalds og fram-
kvæmdavalds komst í framkvæmd.
Áður hafði hún verið héraðsdómari
við bæjarfógetaembættið í Kópa-
vogi. Ekki náöist í Ólöfu, sem ér
stödd erlendis þessa dagana.
Hætta við 65 ára aldur
Samkvæmt upplýsingum frá
dómsmálaráðuneytinu óska flestir
hæstaréttardómarar eftir lausn frá
embætti skömmu eftir að þeir ná 65
ára aldurstakmarkinu, en sam-
kvæmt 61. grein stjómarskrárinnar
geta þeir hætt störfum við 65 ára
aldur og haldið eftirlaunum, sem
em full laun hæstaréttardómara.
Samkvæmt sömu upplýsingum em
ekki þess dæmi að dómarar æski
lausnar frá embætti fyrir þann ald-
ur, en ef það yrði þá myndu þeir
missa réttindi sín til eftirlauna.
Forseti íslands veitir dómurunum
lausn frá embætti þegar þeir æskja
þess. Hæstaréttardómurum má ekki
víkja úr embætti nema með dómi og
ekki má flytja þá í annað embætti
gegn vilja þeirra, nema verið sé að
koma nýrri skipan á dómstóla.
Ekki má skipa yngra fólk en 35
ára í embætti hæstaréttardómara og
gildir þar sama regla og með forseta
íslands.
Skagafjörður:
Fólki fjöigar
íslendingur keypti fyr-
irtæki SÍF í Noregi
DV, SKAGAFIRDI:____________________
Skagfirðingum fjölgaöi um tólf á
nýliðnu ári. í sveitarfélaginu Skaga-
firði voru 4190 íbúar þann 1. desem-
ber sl. en voru 4184 á sama tíma
árið á undan.
I Akrahreppi voru 229 íbúar og
hafði einnig fjölgað um sex á árinu.
Alls voru Skagfirðingar því 4419
talsins samkvæmt upplýsingum
Hagstofu Islands.
Þetta er hagstæðari þróun en árið
á undan því þá fækkaði íbúum um 9
í Skagafjarðarsýslu. Þess má geta að
íbúum Norðurlandskjördæmis vestra
fækkaði um 32 miúi ára og voru
þann 1. des sl. 9432 talsins. -ÖÞ
Ágúst Sigurðsson keypti sl. haust
fyrirtækin Eidet Fisk og
Skárvágbruket í Vesterálen í Noregi.
Fyrirtækin eru umsvifamikO í
vinnslu á uppsjávarfiski og er áætl-
uð velta þessa árs um 600 milljónir
ísl. kr. Tvö norsk útgerðarfyrirtæki
stóðu að kaupunum ásamt Ágústi.
Ágúst Sigurðsson hefur starfað
fyrir SÍF í Noregi frá árinu 1997.
Áður var hann framleiðslustjóri
Borgeyjar í Homafirði. Hjá Eidet
Fisk er lögð áhersla á frystingu síld-
ar og loðnu. Milli vertíða er stunduð
hefðbundin framleiösla á þorski, ýsu
og ufsa. Hjá fyrirtækinu vinna um 45
manns og er áætlað að frysta um
15.000 tonn af síld og loðnu á þessu
ári og 500 tonn af hvítfiskflökum.
Skárvágbruket framleiðir saltfisk og
fersk flök. Þar vinna 10 manns og er
áætluð velta fyrirtækisins á þessu
ári um 250 milljónir ísl. kr. Hráefni
kemur að mestu frá bátum með
strandkvóta sem veiða aflann með
hringnót, í net og í dragnætur.
Ágúst býr ásamt fjölskyldu sinni í
Noregi og lætur vel af dvölinni þar.
Hann segir að stundum sakni þau
auðvitað fjölskyldu og vina á íslandi.
Fjölskyldan er stór en Ágúst og kona
hans, Elma Jóhannsdóttir, eiga fimm
börn. -DVÓ
Sandkorn
Höröur Kristjánsson
netfang: sandkorn©ff.is
Pappa-Helgar
Þaö var
vel til
fundið hjá
vinum
hins sex-
tuga
Helga
Laxdal,
formanns
Vélstjórafélags íslands, að gefa hon-
um afrit af sér í fullri líkamsstærð.
Nú er Helgi til í 30 eintökum og
munu margir hugsa sér gott til
glóðarinnar. FuUyrt er að Helgi
hafi veriö í stöðugu sambandi við
ónefnt ráðuneyti eftir afmælisveisl-
una á þriðjudagskvöldið. Þar hafi
ráðherra verið að falast eftir leyfi
til aö fjölfalda nokkur hundruð
svona Pappa-Helga til viðbótar.
Ástæðan mun vera vandræði með
að fá vélstjóra á fiskiskipaflotann
og ráðherra hafi fundið það út að
með rýmkuöum reglum megi sem
best ráða Pappa-Helga í lausar
stöður til að koma skipum á sjó ...
I Seölabanka?
Gróa gamla á I
Leiti hefur |
áhyggjur af Dav-
íð Oddssyni for-1
sætisráðherra og
hvert verði hans
næsta hlutverk
þegar hann
hverfur úr póli-
tíkinni. Margir I
hafa gaukað að
Gróu ýmsum möguleikum, allt frá
ritstjórastöðu á Mogga og upp í for-
seta eða jafnvel stöðu aðalritara
Sameinuðu þjóðanna. Gróa er lítt
hrifin af að senda Davið úr landi
og því er hún skotnari í þeirri hug-
mynd að lögum um Seðlabanka
verði breytt og Davíð gerður þar að
yfirbankastjóra þegar Birgir ísleif-
ur stendur upp úr stólnum. Þá fær
Finnur Ingólfsson líka aftur sinn
gamla yfirmann úr stjómarráð-
inu...
Uppgrip fram undan
Garðar
Sverrisson, for-
maður Öryrkja-
bandalagsins,
lætur ekki deig-
an síga þó ríkis-
stjómin hafi
sýnt honum
klæmar með
nýju frumvarpi
til laga sem
svari við dómi Hæstaréttar í ör-
yrkjamálinu. Garðar og lögfræðing-
ur bandalagsins, Ragnar Aðal-
steinsson, búast við að öryrkjar
fari nú í mál við ríkið þúsundum
saman til að rétta sinn hlut. í upp-
siglingu eru því uppgrip hjá lög-
fræðingum og jafnvel horfur á
miklum skorti á lögfræðingum.
Gárungar benda mönnum á að
hringja bara til Bandaríkjanna. Þar
séu þúsundir lögfræðinga nú at-
vinnulausar eftir að skrípaleik for-
setakosninganna lauk ...
Ný stöð í burðarliðnum?
Það er ekki
hverjum des
sem stórkanón
umar i frétta-
mannaheimin-
um sjást sötra
saman kaffi á
öldurhúsum
bæjarins. Því
komust strax
sögur á kreil
þegar sást til Sigursteins Más-
sonar og Halls Hallssonar á
kaffihúsi í Reykjavik i vikunni.
Sem kunnugt er losnaði um Sigur-
stein af Skjá einum fyrir nokkru
og Hallur, sem hagvanur er í sjón-
varpssölum, mun lika vera á
lausu. Gámngar velta fyrir sér
hvort Stöð þrjú sé komin á teikni-
borðið. - Varla hafi félagamir ver-
ið að eyða sínum mikilvæga tíma
í að ræða kaup á Omega eða tima-
ritinu Æskunni...