Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2001, Side 8
8
Viðskipti__________
Umsjón: Viðskiptablaðið
DeCODE þarf að sanna sig
Verðbréf í líftæknifyrirtækinu
deCODE genetics Inc., móðurfélagi
íslenskrar erfðagreiningar ehf., hafa
farið töluvert lækkandi á síðustu
mánuðum. Á síðustu dögum hefur
verðið verið í sögulegu lágmarki, í
kringum 7 til 9 dollara á hlut, en bréf
fyrirtækisins komu á markað eins
og kunnugt er í júlí síðastliðnum.
Eftir skráningu fyrirtækisins á Nas-
daq hækkaði verðið úr útboðsgeng-
inu 18 dollara á hlut um hundruð
prósenta á mjög stuttum tíma. Síðan
hefur runnið af markaðsaöilum og
hefur verð fyrirtækisins lækkað
mjög mikið. Ekki er auðvelt að skýra
þessa miklu lækkun síðustu mánuði
en aukin svartsýni meðal fjárfesta
hefur gert vart við sig á markaðnum,
og þá sérstaklega í Bandaríkjunum,
og hafa margar atvinnugreinavísitöl-
ur lækkað umtalsvert á síðustu mán-
uðum, þar á meðal Amex-líftækni-
vísitalan.
Læsingatímabilinu lýkur
Hluti af skýringunni á þessu lækk-
andi gengi bréfa deCODE er sú að læs-
ingatímabilinu með bréf fjárfesta í
fyrirtækinu lýkur núna á mánudag-
inn næsta, 15. janúar. Stór hluti bréfa
fyrirtækisins mun þá koma á markað.
Þetta eru um 28 milljón bréf, eða 70%
af bréfum deCODE, sem munu fara á
markað eftir að þessu tímabili lýkur
en af þessum bréfum eiga 3 áhættu-
AFSLÁTTUR
• Stillanlegir rafmagnsrúmbotnar
• Latex- og svampdýnur
• Frönsk svefnherbergishúsgögn
• Amerísk rúm og margt fleira
Skútuvogi 11 • Sími 563 6363
www.lystadun.is
fjármagnsfyrirtæki um 9 milljónir
bréfa, eða 28%. Stefna slíkra fyrir-
tækja hefur hingað til verið að selja
bréfin um leið og sá möguleiki opnast.
Ef slíkur fjöldi bréfa streymir inn á
markað setur það mikla pressu á verð
bréfa í deCODE. Þessi viöbót á mark-
aðinn yrði svipuð og allt það magn
sem var í útboði deCODE á síðasta
ári. Þá munu margir fjárfestar sem
íjárfestu i upphafi og skuldbundu sig
til að halda bréfunum í ákveðið lang-
an tíma geta selt sín bréf. Liklegt má
telja að til skamms tíma geti gengi
deCODE enn þá lækkað þegar einhver
hluti þessara fjárfesta losar sig við
bréfin sín. „Líklegt má telja að mestu
lækkunaráhrif vegna loka læsinga-
tímabilsins séu komin fram,“ segir
Bragi Smith, sérfræðingur hjá Búnað-
arbankanum Verðbréf.
DeCODE á undir högg að
sækja á markaðnum
Lengi vel sveiflaðist verð bréfanna
á bilinu 20 til 30 dollarar. Um miðjan
nóvember fór verð bréfanna niður fyr-
ir 20 dollara og eftir það hefur leitnin
verið niður á við. Eins og sést á mynd-
inni hefur deCODE lækkað töluvert
meira upp á síðkastið heldur en
Amex-líftæknivísitalan sem mælir
gengi bréfa líftæknifyrirtækja.
DeCODE hefur einnig lækkað meira
en Nasdaq-vísitalan.
„Nú er líklegt að hefjist tímabil þar
sem markaðsaðOar fara að líta öðru-
vísi á líftæknifyrirtæki og fari að
skilja hafrana frá sauðunum. Áhætta
var mjög í tísku í fyrra og árið þar
áður því menn voru að græða á því.
Núna er sá tími liðinn og eru mark-
aðsaðilar farnir að einbeita sér að
stöndugum fyrirtækjum sem hafa
lengi verið við lýði. DeCODE er lítið
fyrirtæki á þessum markaði. Mjög
mörg líftæknifyrirtæki fóru á markað
á svipuðum tíma og deCODE og því
mjög mikil samkeppni til staðar. Ljóst
er aö mörg þessara fyrirtækja þurfa
að sanna sig vel núna til að halda velli
á markaðnum og á það einnig við um
deCODE." sagði Bragi að lokum.
Moody’s jákvætt í garð ís-
lenska bankakerfisins
Að mati bandaríska matsfyrirtæk-
isins Moody’s eru horfur í íslenskum
fjármálamarkaði almennt jákvæðar. í
nýrri skýrslu fyrirtækisins um ís-
lenska bankakerfið staðfestir Moody’s
meðallánshæfiseinkunnina A3 á lang-
tímaskuldbindingum þriggja stærstu
íslensku bankanna.
Moody’s segir þróun síðustu ára
hafa verið jákvæða og styrkt grund-
völl íslenska bankakerfisins. Þá gerir
Moody’s almennt ráð fyrir að afkoma
bankanna batni í framtíöinni.
I frétt frá Reuters er haft eftir Anne
Caris, höfundi skýrslunnar, að betri
afkoma íslenskra banka að undan-
fornu byggist á viðvarandi aukningu
útlána, þjónustutekna og þóknana.
Þessi vöxtur bankanna segir Caris að
haldist í hendur við jákvæðan viö-
snúning íslensks efnahagslífs síðustu
árin. Þá kemur fram að hagræðing í
greininni sé aö skila sér í samlegðar-
áhrifum bæði á tekju- og útgjaldahlið
í rekstri bankanna.
í þessu sambandi vekur Moody’s þó
jafnframt athygli á að samkeppnisráð
stóð í vegi fyrir sameiningu Lands-
banka og Búnaðarbanka í desember
síðastliðnum. Enn fremur er bent á að
bankamir hafi orðið fyrir verulegu
tapi vegna hækkunar vaxta á síðasta
ári sem leiddi til verðlækkunar á
verðbréfasöfnum bankanna.
Þegar fram líða stundir segir
Moody’s að afkoma bankanna byggist
að verulegu leyti á því hvernig þeim
takist að halda kostnaðarhlutfalli
lágu. Bent er á að íslenskir bankar
standi í því sambandi framarlega í
Internetvæðingu bankaþjónustunnar
en það er m.a. talinn grundvöllur þess
að draga úr kostnaði í greininni.
Moody’s telur að vaxtartækifæri
bankanna í framtíðinni kunni að fel-
ast í sérhæfðri þjónustu á borð við
eignastýringu og er vikið að vexti ís-
lenskra banka erlendis í því sam-
hengi.
Húsasmiðjan markaðsfyrir-
tæki ársins 2001
í dag tilkynnti forseti íslands um
val á markaðsfyrirtæki og markaðs-
manni ársins 2001 fyrir faglegt mark-
aðsstarf á árinu 2000. Húsasmiðjan hf.
var valin markaðsfyrirtæki ársins
2001 en auk þess voru Kaupþing hf. og
Skjár 1 tilnefhd til verðlaunanna.
Sigurður Helgason, forstjóri Flug-
leiða, var valinn markaðsmaður árs-
ins 2001.
ÍMARK, sem er félag íslensks mark-
aðsfólks, stóð nú í tíunda sinn fyrir
valinu á markaðsfyrirtæki ársins og
markaðsmanni ársins. Verðlaunin
eru veitt því fyrirtæki og þeim ein-
staklingi sem metið er að hafi skarað
fram úr á liðnu ári á sviði markaðs-
mála.
í dómnefnd fyrir val á markaðs-
manni ársins voru eftirfarandi aðilar:
Bogi Ágústsson, fréttastjóri Sjón-
varpsins, Halldór J. Kristjánsson,
bankastjóri Landsbankans, Hrönn
Greipsdóttir, hótelstjóri Radisson SAS
Hótel Sögu, Ingólfur Guðmundsson,
formaður ímark, Ólafur Ingi Ólafsson,
formaður SlA, Sigríður Ragnarsdóttir,
framkvæmdastjóri ÍMARK, Þorgeir
Baldursson, forstjóri prentsmiðjunnar
Odda, og Þorgeir Örlygsson, ráðuneyt-
isstjóri i iðnaðar- og viðskiparáðu-
neytinu.
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2001
I>V
Þetta helst
HEILDARVIÐSKIPTI 2260 m.kr.
Hlutabréf 1080 m.kr.
Húsbréf 720 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
OSamheiji 427 m.kr.
0 Eimskip 307 m.kr.
© Íslandsbanki-FBA 96 m.kr.
MESTA HÆKKUN
O íslenska járnblendifélagið 4,8%
© Landsbankinn 2,1%
© Marel 1,3%
MESTA LÆKKUN
OKögun 3,6%
©Opin kerfi 2,6%
©Delta 2,2%
ÚRVALSVÍSITALAN 1234 stig
- Breyting O 0,54%
Bridgestone
segir af sér
Yoichiro Kaizaki, forstjóri
Bridgestone, hefur sagt af sér í kjölfar
erfiðleika fyrirtækisins vegna ásakana
á hendur fyrirtækinu um að hjólbarð-
ar þess væru tengdir 180 dauðaslysum
í umferðinni.
Kaizaki mun verða ráðgjafi fyrir-
tækisins eftir sem áður en Shigeo
Watanbe tekur við forstjórastöðunni.
Uppsögnin er tekin sem viðurkenning
á að fyrirtækið hafi ekki brugðist rétt
við ásökunum um að Firestone-dekk
Bridgestone hafi átt þátt í dauða 179
manns í Bandaríkjunum og Suður-Am-
eríku.
„Það er jákvætt að Kaizaki hafi sagt
af sér vegna þeirrar tilfmningar al-
mennings að hann hafi ekki höndlað
þessa krísu fyrirtækisins rétt,“ sagði
Chris Redl, sétfræöingur hjá UBS War-
burg í Tokyo.
Yahoo! sér
fram á hæg-
ari vöxt
Intemetfyrirtækið Yahoo! hefur
sent frá sér afkomuviðvörun þar sem
fram kemur að útlit sé fyrir að hagnað-
ur fyrirtækisins á yfirstandandi ári
verði minni en í fyrra og að verulega
dragi úr vexti tekna vegna minnkandi
auglýsingasölu.
Afkomuviðvörunin frá Yahoo! var
birt eftir lokun hlutabréfamarkaða í
Bandaríkjunum í gærkvöld og í við-
skiptum utan markaða lækkaði gengi
hlutabréfa félagsins um 25% í kjölfar
tilkynningarinnar.
12.01.2000 kl. 9.15
KAUP SALA
HSuollar 83,870 84,300
Bfwd 125,620 126,260
l*lltan. dollar 56,100 56,450
| " ÍDönsk kr. 10,7130 10,7720
pf~Norsk kr 9,7680 9,8220
CSsænsk kr. 9,0470 9,0960
SBr. mark 13,4477 13,5285
IjFra. franki 12,1893 12,2625
| Belg. frankj 1,9821 1,9940
<3 Sviss. franki 51,9900 52,2700 j
C3hoII. gyilini 36,2827 36,5007
™:Þýskt mark 40,8812 41,1268
F It. líra 0,04129 0,04154
: CPAust. sch. 5,8107 5,8456
"Port. escudo 0,3988 0,4012
iJLfsjSpá. pcseti 0,4805 0,4834
r«]jap. yen 0,71120 0,71550
1 |irskt pund 101,523 102,134
SDR 109,4700 110,1200
1 79,9566 80.4371