Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2001, Page 23
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2001
I>V
Tilvera
43
Kirstie 46 ára
Gamanleik-
konan Kirstie
Allie fagnar í
dag 46 ára af-
mæli sínu.
Kirstie lék á
sínum tíma í
Staupasteini
en undanfarin
misseri hafa
íslenskir sjón-
varpsáhorfend-
ur einkum séö
hana í öðrum
gamanþáttum
sem nefnast á frummálinu Victor-
ia’s Secret.
Gildir fyrir iaugardaginn 13. janúar
Vatnsberinn (?0. ian.-18. fehr.>:
Þú færð að heyra
gagnrýni vegna hug-
mynda þinna í dag. Þú
átt auðvelt með að
meta aðstæður og ert öruggur í
starfi þínu.
Fiskarnir M9. fehr.-?0. mars):
Andrúmsloftið í kring-
þig verður þnmgið
spennu fyrri hluta
dagsins. Hætta er á
deilum yfir smáatriðum.
Hrúturinn (21. mars-19. aprill:
, Þú lærir mikið af öðr-
' um í dag og fólk verð-
ur þér hjálplegt, stund-
um jafnvel án þess að
vita af því.
Nautið í?0. apríl-20. maí>:
Vinátta og fjármál fara
ekki vel saman þessa
dagana. Ef rnn er að
ræða sameiginlegan
kostnað á einhvem hátt í dag
skaltu vera sparsamur.
Tviburarnlr i?i. maí-2.1. iúníi:
Þú ert dálitið utan við
þig í dag og ættir að
hefja daginn á því að
skipuleggja allt sem þú
ætlar að gera. Ekki treysta á að
aðrir geri hlutina.
Krabbinn m. iúní-?2. íúiíí:
Þú ættir að skipu-
leggja þig vel og vera
viðbúinn þvi að eitt-
hvað óvænt komi upp
á. Ekki láta óvænta atburði koma
þér í uppnám.
Liónið (23. iúlí- 22. ágústl:
Þú hefur í mörg hom
að lita og átt á hættu
að vanrækja einhvem
sem þér þykir þó afar
vænt um. Vertu heima hjá þér í
kvöld og slappaðu af.
Mevlan (23. áaúst-22. seot.l:
Reyndu að vinna verk-
in á eigin spýtur í dag.
Ef þú treystir alger-
lega á aðra fer allt úr
skorðum ef þeir bregðast.
Vogin (23. seat.-23. okt.):
Þú ættir ekki að treysta
algerlega á eðlisávísunina
þar sem hún gæti brugð-
ist þér. Þu hittir persónu
sem heillar þig við fyrstu sýn. Farðu
varlega þvi ekki er allt sem sýnist.
Sporðdreki (24. okt.-21. nóv.):
Þú ext í góðu ástandi
til að taka ákvarðanir
í sambandi við minni
háttar breytingar. Þú
átt auðvelt með að gera upp hug
þinn.
Bogamaður (22. nóv.-2l. des.):
Sambönd ganga í gegn-
um erfitt tímabil. Sér-
staklega er hætta á
spennu vegna sterkra
tilfinninga á rómantíska sviðinu.
Steingeitin (22. des.-19. ian.):
^ ^ Þú verður mikið á
ferðinni í dag og gætir
þurft að fara langa leið
í einhverjum tilgangi.
Þú þarft að skyggnast undir yfir-
borð hlutanna.
Drottningin og
prinsessan saman
Poppdrottningin
Madonna og
poppprinsessan Britney
Spears hyggjast taka
upp plötu saman, að því
er erlendir fjölmiðlar
hafa eftir ónafngreind-
um heimildarmanni
sem kunnugur er dag-
skrá Britney.
ABC-fréttastofan hef-
ur greint frá því að
Madonna og Britney
ætli að hittast í maí og ræða mögu-
lega samvinnu. Það er því ekki úti-
lokað að aðdáendur þeirra fái dúett
á næstu plötu Britney sem sam-
kvæmt áætlun á að vera komin í
sölu fyrir lok þessa árs.
Madonna lýsti því yfir
í viðtali við bandaríska
timaritið ERe að hún
skildi ekkert í þeim sem
alltaf væru að gagnrýna
Britney. „Sjálf geri ég
ekki annað en að hrósa
henni og styðja hana.
Hún er bara 19 ára. Það
er alveg frábært. Ég vildi
óska að ég hefði verið
komin jafn langt þegar ég
var á hennar aldri. í staðinn var ég
óörugg með sjálfa mig. Ég vissi ekki
einu sinni hvemig ég ætti að klæða
mig,“ sagði Madonna.
Jack Nicholson og Lara Flynn Boyle
Jack Nicholson og vinkona hans, Lara Flynn Boyle, vðktu að vonum at-
hygli þegar þau komu á frumsýningu myndarinnar The Pledge í Hollywood
sem Jack leikur í. Leikstjóri myndarinnar er Sean Penn.
Kata er ánægö
meö útlit sitt
Catherine-Zeta Jones þykir það
fyndið þegar stjömurnar eru að tala
um alla útlitsgallana sína. Sjálf hef-
ur hún alltaf verið hæstánægð með
sitt útlit. Og það er í langt í frá að
hún sé feimin við að hrósa sér af
þvi.
„Mér hefur aldrei liðið eins og ég
væri ljóti andarunginn," segir
stjaman í viðtali við blaðið Calgary
Sun. Hún bætir því við að henni
hafi aldrei fundist hún vera of feit.
Hún hafi heldur aldrei verið í vand-
ræðum með að ná sér i kærasta.
Catherine, sem er nýgift og ný-
bökuð móðir, hefur hvorki látið
móðurhlutverkið né eiginkonuhlut-
verkið stöðva leikkonuferilinn. í lok
þessa mánaðar hefjast tökur á
myndinni Americas Sweethearts en
í henni leikur Catherine á móti
Juliu Roberts og John Cusack.
Alveg gailalaus
Catherine með eiginmanninum,
Michael Douglas.
Verkfæra
15-40%
afsláttur
dagar
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR
BORGARTÚN 3-105 REYKJAViK • SÍMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um
deiliskipulag í Reykjavík
Sólvallagata, Ánanaust, Holtsgata, Framnesvegur,
svæðið innan þessa gatna.
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst
til kynningar tillaga að deiliskipulagi reits sem
afmarkast af Sólvallagötu, Ánanaustum, Holtsgötu
og Framnesvegi.
Tillagan felur í sér endurskipulagningu reitsins í heild
og gerir ráð fyrir talsverðum breytingum, sérstaklega
hvað varðar lóðirnar við Sólvallagötu og Ánanaust. í
henni er gerð grein fyrir réttindum og skyldum
fasteignaeigenda á svæðinu m.a. varðandi ný-
byggingar, niðurrif, hækkanir, viðbyggingar, verndun
o.fl.
Skúlagata, Klapparstígur, Lindargata, Ingólfs-
stræti, svæðið innan þessara gatna.
í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr.
73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst
til kynningar tillaga að breytingu á deiliskipulagi reita
sem afmarkast af Skúlagötu, Klapparstíg, Lindargötu
og Ingólfsstræti.
Tillagan felur í sér endurskipulagningu svæðisins,
innan framangreindra gatna, í heild og gerir ráð fyrir
talsverðum breytingum m.a. fjölda nýbygginga,
niðurrifi eldri bygginga, töluverðri fjölgun bílastæða,
verndun o.fl. Tillagan mælir fyrir um réttindi og
skyldur fasteignaeigenda á svæðinu til framan-
greinds o.fl.
Tillögurnar liggja frammi í sal Borgarskipulags og
byggingarfulltrúa í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga
kl. 10.00 - 16.00 frá 12. janúar til 9. febrúar 2001.
Ábendingum og athugasemdum skal skila skriflega til
Borgarskipulags Reykjavíkur fyrir 23. febrúar 2001.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillöguna. Hagsmunaaðilar á
framangreindum svæðum eru hvattir til þess að
kynna sér tillögurnar.
Reykjavík, 12. janúar 2001.
Borgarskipulag Reykjavíkur