Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2001, Qupperneq 24
44
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2001
Tilvera r>V
lífift
Sledge-systur
skemmta á
Broadway
Broadway og Bylgjan kynna
hinar einu sönnu Sister Sledge
sem eru á leiðinni til íslands og
halda tónleika á Broadway í
kvöld. Það verður raunveruleg
„Hollywood“ diskóstemning því
auk systranna stíga allir gömlu
plötusnúðamir úr hinni upp-
runalegu Hollywood á stokk og
þeyta gömlu diskóplöturnar eftir
tónleikana. Fyrir tónleikana
ætla upprimalegu islensku
súpermódelin úr Módel ‘79 halda
tískusýningu. Kynnir í kvöld er
enginn annar en Þorgeir Ást-
valdsson.
Leikhús_________________________
■ EVA Bersögli sjálfsvarnareinleikur-
inn Eva veröur sýndur í kvöld kl. 21 í
Kaffilelkhúsinu í Hlaövarpanum. Frá-
bær tragikómedía.
■ SJEIKSPÍR EINS OG HANN
LEGGUR SIG Sjeikspír eins og
hann leggur sig er sýndur í kvöld kl.
20 í Loftkastalanum.
■ SÝNP VEIÐI Leikritiö Sýnd veiöi
sýnt í kvöld kl. 20 í lönó.
■ VITLEYSINGARNIR í kvöld kl. 20
veröur sýning á Vitleysingunum eftir
Olaf Hauk Simonarson í Hafnarfjarö-
arleikhúsinu.
■ ÁSTKONUR PICASSOS Leikritið
Ástkonur Picassos eftir Brian
McAvera veröur sýnt í Smíöaverk-
stæöi Þjóöleikhússins í kvöld kl. 20.
■ ÖNPVEGISKONUR í BORGAR-
LEIKHUSINU I kvöld kl. 20 veröur I
Borgarleikhúsinu frumsýnt verkiö
„Ondvegiskonur" eftir Austurríkis-
manninn Werner Schwab í þýðingu
Þorgeirs Þorgeirsonar. Leikkonur
eru þær Hanna María Karlsdóttir,
Margrét Helga Jóhannsdóttir og
Sigrún Edda Björnsdóttir. Leikstjóri
er Viöar Eggertsson.
■ HORFÐU REIÐUR UM ÖXL
Horföu reiður um öxl eftir John Os-
born veröur sýnt.í kvöld kl. 20 í
Þjóöleikhúsinu. Örfá sæti laus.
Popp
■ FÖSTUPAGSBRÆÐINGUR Á
GEYSI KAKOBAR Þaö veröur klikk-
að Rokkkvöld á Geysi Kakóbar.
Rokkhljómsveitirnar moöhaus, Coral
og Heróglymur koma fram í kvöld og
spila melódískt rokk og ról fyrir
gesti. Húsiö opnaö klukkan um 20
og byrja tónleikarnir samstundis.
Þaö er ekkert aldurstakmark og frítt
inn. Ekki missa af þessu, brjálaö
stuö og rokk.
Klúbbar
Í SNERTU MIG A THÖMSEN ÞÍÖ
veröur nóg af stemningunni á Kaffi
Thomsen í kvöld eins og alltaf þegar
ungir Islendingar komast í helgarfrí.
gongódídjeijinn og sáluhjálþarinn
Ymir hjálpar fólkinu aö komast í
snertingu viö annaö fólk í kvöld á
efri hæðinni. Kjallarinn er þó lokaöur
vegna breytinga en hann verður opn-
aður aftur meö látum 19. jan.
■ Á MÓTI SÓL Á GAUKNUM Hljónv
sveitin A mótl sól veröur í góöum gír
í kvöld enda ætla kapparnir að spila
á Gauk á Stöng. Aö sjálfsögöu
munu strákarnir sjá til þess að gleð-
in ráöi ilkjum.
■ PJ DROOPY Á SPOTUGHT Það
veröur brjálaö djamm á Spotlight og
dj Droopy veröur í búrinu og sér um
tónlistina langt fram á nótt.
Sjá nánar: Lífið eftlr vinnu á Vísi.is
Félag íslenskra græðara:
Tilgangurinn að öðlast
viðurkenningu
- græðari er gamalt íslenskt orð yfir þá sem hlúa að eða græða sár
í lok siðasta árs voru stofnuð
regnhlífarsamtök sem nefnast Félag
íslenskra græðara (FÍSG). Að sam-
tökunum standa sex félög þ.e.a.s.
Félag íslenskra nuddara, Acupunkt-
úrfélag íslands, Cranio Sacral félag
Islands, Félag höfuðbeina- og spjald-
hryggjajafnara, Samband svæða- og
viðbragðsfræðinga og Félag lit-
himnufræðinga.
Þeir sem hlúa að
„Félagið heitir ekki þessu nafni
vegna þess að við græðum svo
mikla peninga", segir Ástríður
Svava Magnúsdóttir, nuddari og for-
maður félagsins. „Græðari er gam-
alt íslenskt orð yfir þá sem hlúa að
eöa græða sár. Það eru sex félög
sem standa að samtökunum og meg-
intilgangurinn er að vinna að því að
fá viðurkenningu fyrir það sem við
erum að gera. Til þess að svo verði
þurfum við að sýna fram á góða
grunnmenntun, þannig að við ætl-
um að stuðla að góðri undirstöðu-
menntun fyrir meðhöndlara innan
okkar raða.
Annars staðar á Norðurlöndun-
um hafa verið starfandi sams konar
samtök sem berjast fyrir velferð og
viðurkenningu félagsmanna sinna.
Á síðasta ári var stofnað sam-
norænt félag um heildrænar með-
ferðir undir nafninu Nordisk Sam-
arbejds Komite for ikke-konvention-
el medisin/terapi (NSK) og Félag ís-
lenskra græðara er meðlimur í
þeim félagsskap."
Ástríöur Svava vinnur aö svæöanuddi
Meðhöndlun af þessu tagi er sífellt að vaxa ásmegin og verða vinsælli aö sögn formanns Félags íslenskra græðara.
Skortur á rannsóknum
„Það er mjög misjafnt eftir lönd-
um hvað störf meðhöndlara eru við-
urkennd. í Danmörku og Noregi
þurfa þeir t.d. ekki að borga virðis-
aukaskatt ef þeir uppfylla ákveðnar
kröfur um menntun. Annars er það
Bíógagnrýni
mismunandi eftir löndum hvaöa
greinar eru viðurkenndar, Dönum
þykir t.d. sjálfsagt að svæðanuddar-
ar séu viðstaddir fæöingar og í Sví-
þjóð njóta nálastungur talsverðrar
virðingar."
Ástríður Svava segir að með-
höndlun af þessu tagi sé sífellt að
vaxa ásmegin og verða vinsælli.
„Fyrir skömmu var stofnað þróun-
ar- og fræðisetur við háskólann í
Þrándheimi þar sem fólk fær sér-
staka menntun til að rannsaka
óhefðbundnar meðferðir. Það vant-
ar allar vísindalegar rannsóknir á
því sem við köllum óhefðbundnar
lækningar.
Draumur er sá að í framtíðinni
verði stofnað samnorrænt rann-
sóknar- og fræðslusetur fyrir óhefð-
bundnar meðferðir og að við verð-
um virkir þátttakendur í því.“
-Kip
Laugarásbíó/Háskólabíó - Meet the Parents ★ ★
Farsi í fjötrum
Gunnar Smári
Egilsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Ben Stiller
Þarf aö vera bæöi heilbrigðastur og mesti aulinn.
Er ekki rétt að líta svo á, á þess-
um síökapítalísku tímum, að
markaössetning bíómynda sé hluti
verksins - og verkið þá eins konar
hreyfilist; markmiðið að fá sem
flest fólk í bíó; atburðarásin eftir
miðasöluna eins konar eftirmáli.
Kynningarefni um bíómyndir hef-
ur þá það eitt markmið að fá fólk
til að kaupa miða og skiptir þá
engu hvort það spillir ánægjunni
sem fólk kann að hafa haft af
myndinni. Nýlegt dæmi um þetta
er sálfræðitryllirinn What Lies
Beneath. Helsta tromp myndarinn-
ar var að eftir hlé kom í ljós að
Harrison Ford var ekki traustur
eiginmaður heldur fúlmenni. Þaö
kom hins vegar engum á óvart sem
hafði séð „trailerinn" um mynd-
ina: þar hamaðist Fordarinn viö að
murka líflð úr Michelle Pfeiffer.
Og það er orðið fátítt að gaman-
myndir bjóði upp á fleiri brandara
en sést hafa í trailemum; þannig
var það til dæmis um Me, Myself &
Irene og þannig er það með Meet
the Parents.
Auðvitað er misjafnt hvernig
myndir lifa af svona meðferð. Sum-
ar eru svo öflugar að það má næst-
um sætta sig við þetta. Trailerinn
er þá eins og óheppni; aö rekast á
mann við afgreiðslukassann í
bókabúð sem vill endilega segja
manni hver er morðinginn í
reyfaranum sem maður er að
kaupa. Aðrar myndir ná aldrei að
hrista trailerinn af sér og enn aðr-
ar eru einfaldlega miklu verri en
kynningarefnið. Meet the Parents
er ein þeirra.
Og ástæðan er einfold. Hugmyndin
að baki myndinni er betri en útfærsl-
an. í grunninn er þetta ærslafullur
farsi en leikstjórinn, Jay Roach
(Austin Powers-myndirnar og My-
stery, Alaska), hefúr bitið það í sig að
það væri sniðugt „karíermúf ‘ hjá sér
að dempa framvinduna, leikinn og yf-
irbragðið; hefur líklega talið að það
væri inntökuskilyrði í hóp viröingar-
verðra leikstjóra. Niðurstaðcm er
hins vegar farsi í fjötrum. Einhver
bjánaleg löngun til að gera persón-
umar hálfraunsæjar virkar eins og
fangakúla um ökklann á leikurunum
og í ofanálag eru þeir neyddir til að
læða bröndurunum út úr sér eins
þeir timi þeim varla - líklega af því
að Roach heldur að það sé siðfágaðra,
fínna. Roach sýndi það í Austin
Powers-myndunum að hann fer vel
með kjánalega fyndni. Hér er hann
hins vegar kominn í allt aðra deild -
og fellur.
Ben Stiller (There’s Something
About Mai-y, Permanent Midnight)
er fantagóður leikari. En hlutverk
tengdasonarins í Meet the Parents
er honum samt ofviða. Honum tekst
ekki að vera hvort tveggja í senn,
heilbrigðasti maðurinn á svæðinu
og mesti aulinn. Robert De Niro nýt-
ur fortilveru sinnar á tjaldinu; hann
þarf varla að yggla sig til að vera
ógnvekjandi. Það er náttúrlega bölv-
uð frekja að ætlast til að De Niro
sýni látlaust svipaða frammistöðu
og í Raging Bull eða The King of
Comedy. Ef honum sýnist svo hefur
hann unniö til þess að eyða ellinni í
átakalausum gamanmyndum - og
nýtur þess augljóslega. En fyrir okk-
ur hin er þetta hálfsorglegt.
Meet the Parents er ekki alvond
mynd. Stundum lifnar yfir henni og
hún virðist ætla á flug en fatast síð-
an, höktir en hrekkur samt aftur í
gang. Þegar hún lendir lofar hún
framhaldi: Meet the Inlaws. Von-
andi sleppir þá Jay Roach beislinu
af kjánanum í sér.
Leikstjórn: Jay Roach. Handrit: James
Herzfeld og John Hamburg, byggt á hand-
riti Greg Glienna og Mary Ruth Clarke.
Tónlist: Randy Newman. Leikarar: Robert
De Niro, Ben Stiller, Teri Polo, Owen Wil-
son o.fl.