Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2001, Page 25
FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2001
DV
_______45 «■
Tilvera
vera hluti af lífinu
Véitir ráöleggingar á Speglinum um heílsurækt og heilbrigt líferni
Ágústa Johnson segir lykilatriöi aö fólk taki heilsuræktina af skynsemi og fari ekki ofgeyst afstaö.
....
Ágústa Johnson líkamsræktarþjálfari:
Heilsurækt á að
Stal senunni í
afmæli prinsins
Þegar sænski prinsinn Carl hélt
upp á níræðisafmæli sitt á Grand
Hotell í Ósló var það ekki hann
sjálfur sem var í sviðsljósinu heldur
Mette-Marit, unnusta Hákonar Nor-
egsprins. í afmælinu hitti Mette-Ma-
rit sænsku konungshjónin og einnig
þau belgísku. Prinsinn sænski, sem
býr á Spánarströnd, kom til Noregs
til að fagna tímamótunum þar sem
eiginkona hans er norsk. Bróðir eig-
inkonunnar er hótelstjóri Grand
Hotell svo að ef til vill hefur prins-
inn fengið afslátt á veislufóngunum.
ivlelanie
meðferðinni
í tilefni af heilsuátaki DV, Leið til
betra lífs, mun Ágústa Johnson lík-
amsræktarþjálfari veita ráðlegging-
ar um heilsurækt og heilbrigt líf-
erni á Speglinum á Vísi.is. Að sögn
Ágústu er best þegar fólk ákveður
að hefja likamsrækt að það finni sér
einhverja tegund þjálfunar sem það
hefur áhuga á því það er ekki væn-
legt til árangurs að pina sig í lík-
amsrækt af eintómri skyldurækni.
Ágústa segir að á flestum líkams-
ræktarstöðvum sé boðið upp á ráð-
gjöf og fólk geti pantað sér tíma og
fengið ráðgjöf til að koma sér af
stað. „Lykilatriðið er að fólk taki
þetta með skynsemi og fari ekki of
geyst af stað,“ segir Ágústa og bæt-
ir við að oft vilji fólk sjá árangurinn
strax. Hlutimir ger-
ast hins vegar ekki \f
þannig og því þarf ,
fólk að setja sér lang- , c\Q ''
tímamarkmið. „Helst *'
þarf fólk að ákveða í
eitt skipti fyrir öll að þetta verði
partur af lífinu,“ segir Ágústa.
Mikilvægt sé að byrja rólega og
hentugast sé fyrir þá sem vilja fara
í þolfimitíma að byrja á tímum fyr-
ir byrjendur. Ef tækjasalurinn verð-
ur fyrir valinu sé best að byrja á að
ganga rösklega og
, taka léttari þyngdir
o þv } tækjunum.
Ágústa segir að ef
farið sé of geyst í byrjun sé
hætta á að fólki fái strengi og van-
líðan dagtnn eftir og það sé oft
ástæðan fyrir því að menn hætti. Að
sögn Ágústu er nauðsynlegt að
hugsa líka um mataræðið þegar
kemur að þvi að hugsa um heilsuna
og litlar breytingar, eins og að
borða meiri ávexti og grænmeti en
minnka kjötneyslu og sætindi, er
nokkuð sem allir geta gert og það
skilar sér í bættri heilsu og útliti.
Margir aðrir hlutir geta einnig
hjálpað til þegar fólk vill rækta lík-
amann og stunda heilbrigt lífemi,
t.d. eins og að leggja bilnum nokkuð
frá vinnustaðnum og ganga eða
hlaupa upp stiga í stað þess að taka
lyftu og vera úti með börnunum.
-MA
Melanie Grifflth, eiginkona
hjartaknúsarans Antonios Banderas,
hefúr nú verið útskrifuð af stofnun-
unni í Los Angeles þar sem hún var í
meðferð vegna ofneyslu lyfja. Melanie
segb í viðtali að löngun hennar í
verkjalyf hafl verið svo sterk að hún
hafl ekki getað farið framhjá apóteki
án þess að fara inn og kaupa sér lyf.
„Það varar mann enginn við því að
lyfi geti orðið vanabindandi. Þegar
maður er áfengissjúklingur og fíkill er
þetta mjög hættulegt," segb leikkonan
í viðtalinu.
Eyrbyggjar, hollvinasamtök Grundarfjarðar, afhenda framfaraverðlaun 2000:
Fjarkennsla og flutningabílar
DV, GRUNDARFIRÐI:_________________
Á þrettándanum veittu Eyrbyggj-
ar, hollvinasamtök Grundarfjarðar,
framfaraverðlaun í annað skipti.
Framfaraverðlaunin eru veitt þeim
aðilum sem að mati Eyrbyggja hafa
unnið samfélaginu í Grundarflrði
vel á því ári sem var að líða.
Stjóm Eyrbyggja var sammála
um að tveb aðilar í Grundarflrði
verðskulduðu sérstaka viðurkenn-
ingu fyrir síðasta ár. Annars vegar
fékk verkefnið Fjamám á fram-
haldsskólastigi í Grundarfirði, við-
urkenningu fyrir mjög gott starf við
að auka möguleika til menntunar
og uppbyggingu framhaldsskóla-
menntunar i Grundarfirði og hins
vegar fyrirtækið Ragnar og Ásgeir
ehf. fyrir öfluga uppbyggingu og
þátt þess í að efla atvinnulífið í
Gmndarfbði
Fjarnám á framhaldsskólastigi i
Grundarfirði er tibaunaverkefni
Eyrarsveitar, menntamálaráðuneyt-
isins, Verkmenntaskólans á Akur-
eyri og Fjölbrautaskóla Vestur-
lands, um fjarnám á framhalds-
skólastigi. Námið hófst haustið 1999
og mættu þá sjö nemendur til leiks.
Það sem er nýstárlegt við verkefnið
er að öfl kennsla er í höndum fjar-
kennsludeildar Verkmenntaskólans
á Akureyri en nemendur mæta í
fjarnámsver í Grundarfirði á hverj-
komi inn til löndunar og setji fisk i
gáma sem Ragnar og Ásgeb ehf.
flytja síðan suður fyrir skipafélögin.
Um 90% af öllum flutningi hjá fyrb-
tækinu eru frystur og ferskur fisk-
ur. I febrúar 1999 byrjuðu Ragnar og
Ásgeir ehf. að flytja vörur fyrb
Vöruflutningamiðstöðina til Snæ-
feflsbæjar og Grundarfjarðar en
áður var einungis flutt fyrb Land-
flutninga Samskip. í dag era Ragnar
og Ásgeir ehf. með afgreiðslur í
Grundarfirði og Snæfellsbæ og eru
starfandi hjá fyrirtækinu um 20
manns. -DVÓ/SHG
190 E-2,0
Árgerð 1990, ekinn 105 þkm.
Sjálfskiptur, rafdrifin topplúga,
ABS hemlar, álfelgur, armpúði,
höfuðpúðar aftan, litað gler,
Lorinzer viðar- og leður stýri,
samlæsingar, útvarp / CD ofl.
hbimport
be smart ehf. sími
699 5009
DV-MYND SÆDÍS HELGA GUÐMUNDSDÖTTIR.
Viðurkenning.
Á myndinni eru taliö frá vinstri Sigríður Finsen og Anna Bergsdóttir sem
veittu móttöku verölaunum vegna Fjarnámsverkefnisins og Ragnar Haralds-
son og Ásgeir Ragnarsson flutningabílstjórar sem lengi hafa staöiö vaktina
og unnu til verðlauna.
um morgni ásamt umsjónarmanni
og stunda nám sitt. Fjarnámsverk-
efnið hefur haft margvísleg áhrif á
samfélagið. Unglingamir eru nú
heima yfir vetrartímann og gæða
samfélagið lífi, menntunarstig í
samfélaginu er að aukast, og vegna
fjamámsins hafa fleiri tileinkað sér
nauðsynlega tölvuþekkingu til að
stunda námið, sem mun tvi-
mælalaust nýtast þeim síðar.
Ragnar Ingi Haraldsson og Rósa
Björg Sveinsdóttir hófu rekstur
flutningabíla haustið 1970. Á þess-
um árum vora ferðir farnar tvisvar
til þrisvar í viku og var vöruaf-
greiðslan í forstofunni hjá þeim
hjónum. Þegar fiskmarkaðirnir
tóku til starfa eftb 1990 fóru fisk-
flutningar að aukast mikið á bílum
út um allt land. Ragnar og Ásgeb
ehf. flytja fiskinn af fiskmörkuðum
á Snæfellsnesi suður á land. Einnig
er mikið um að togarar og bátar
Raðhús óskast
Raðhús í Staðahverfi í Grafarvogi óskast keypt.
Þarf að vera 3-4 svefnherbergi.
Tvöfaldur bílskúr æskilegur
en ekki nauðsynlegur.
.
.
Tilboð, merkt „Grafarvogur",
sendist auglýsingadeild DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík.