Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001
Fréttir I>V
Dýralæknar grandskoða fósturvísainnflutning:
Málið undir smásjá
- segir landbúnaðarráðherra - er loks að bakka, segir þingmaður Samfylkingar
„Ég geri ekki lítið úr ótta fólks
gagnvart kúariðu en fósturvísar
eru að mati færustu vísindamanna
taldir áhættulausir," segir Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra.
Öll spjót hafa staðiö á landbúnað-
arráðherra aö undanfómu vegna
þessa máls og innflutningur nauta-
kjöts frá írlandi fyrir jólin varð enn
til að magna gagnrýnina vegna ótta
fólks við kúariðu. Virðist sem
nokkurt bakslag sé nú komið í hörð
rök fyrir fósturvísainnflutningi úr
norskum kúm.
Jón Bjarnason, þingmaður
Vinstri-grænna, lét hafa eftir sér í
DV í gær að verið væri að leika sér
að eldinum með innflutningi fóstur-
vísa úr norskum kúm. Vísaði hann
til þingsályktunartillögu stjómar-
andstöðunnar um að innflutningi
fósturvísa verði frestað eða ákvörð-
un um slíkan innflutning alveg
dregin til baka. í svipaðan streng
hefur Sigurgeir Þorgeirsson, fram-
Guðni Jón
Ágústsson. Bjarnason.
kvæmdastjóri Bændasamtaka ís-
lands, tekið og telur rétt að menn
íhugi frestun á innflutningi á
norskum fósturvísum.
„Auðvitað er það svo að varúðar
er þörf á öllum sviðum og bænd-
urnir sem fengið hafa þessa heimild
verða auðvitað að meta sína stöðu,
ekki síst í ljósi þeirra miklu tilfinn-
inga sem í umræðunni eru. Það
sem ég hef lagt upp úr núna er að
dýralæknar, Halldór Runólfsson,
Sigurður Sigurðarson og jafnvel
Sigurgeir Sigríöur
Þorgeirsson. Jóhannesdóttir.
fleiri, fari til Noregs og fari þar
gjörsamlega yfir málið. Þeir ræði
við Norðmenn og fylgist með hvað
vísindamenn segja í Evrópu.
Það viöurkenna það allir menn
að þetta mál er undir smásjá og það
þarf að hafa það i mjög nákvæmri
skoðun. Bæði í samræmi við þá vís-
indalega umræðu sem fram fer og
ekki síöur að taka tillit til þeirra
miklu tilfinninga sem víða ólga í
kringum þessi mál,“ segir Guðni
Ágústsson og leggur áherslu á að
vísindamenn og leyfishafar verði
nú að meta stöðuna.
Sigríður Jóhannesdóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, segist
hafa það á tilfinningunni að land-
búnaðarráðherra sé loks að bakka í
málinu. „Enda er það skynsamleg-
ast í stöðunni, þó ég sé ekki þar
með að segja að endilega berist
kúariðusmit með þessum fósturvís-
um. Hins vegar þurfum við að
halda ímynd Islands eins hreinni
og við getum í þessari umræðu og
erum í alveg einstakri aðstöðu til
þess. Við erum með hreint kyn og
hér hefur aldrei komið upp
kúariða. Það væri því afar misráð-
ið eins og umræðan er í Evrópu að
fara að bauka við að flytja hér inn
fósturvísa úr norskum kúm og
hreint fáránlegt,“ Sigríður segir að
í landbúnaðamefnd sé auk þess
mjög mikill vilji til að herða veru-
lega allar innflutningsreglur.
-HKr.
Bjargaö í náttmyrkri og haugasjó:
Aldrei á ævinni
orðið eins hræddur
- segir Sigurbjörn Utley sjómaður
DV, NESKÁUPSfAD:
„Ég hef aldrei á ævinni orðið eins
hræddur," sagði Sigurbjörn Utley sjó-
maður, sem hafið hafnaði, í samtali
við DV í gær, en hann bjargaðist aft-
ur um borð í bát sinn, Birting NK, eft-
ir að hann fór í sjóinn frá skipi sínu
þar sem það var að veiðum 60 mílur
austur af Norðfjarðarhorni seint í
fyrrakvöld. Veður var afar slæmt og
aðeins þeir hörðustu voru að kasta.
Birtingur var að fylla þegar atvikið
varö og kom til Neskaupstaðar með
200 tonn í gærmorgun.
„Ég hreinlega veit ekki hvað
kom fyrir,“ sagði Sigurbjörn á
ómenguðu sjómannamáli þegar
DV ræddi við hann í Neskaupstað
í gær.
„Báturinn valt og ég datt á
milli. Ég reyndi að komast á kork-
Dáöadrengir dv-myndir helgi gardarsson
Tveir skipsfélagar Sigurbjörns á Birtingi NK, ánægöir með hversu vel tókst að bjarga félaga þeirra.
Fjölskyldan stækkar
Sigurbjörn heimtur úr helju og kona
hans, Þórunn Maggý Jónsdóttir, sem
mun ala þeim barn undir vetrarlokin.
inn, tókst það ekki en náði að
halda mér í netinu. Þeir voru svo
fljótir aö kasta út til mín björgun-
arhring þegar þeir áttuöu sig á
hvað hafði gerst, það var nú það
besta af öllu saman,“ sagði Sigur-
björn.
Þórunn Maggý Jónsdóttir, kona
Sigurbjörns, sagði í gær að henni
hefði brugðið illa þegar maður
hennar hringdi í fyrrinótt og
sagði söguna af giftusamlegri
björgun. „Mér dauöbrá en mikið
var ég fegin að fá hann aftur í
morgun, heilan á húfi, þaö er guöi
að þakka,“ sagöi Þórunn Maggý.
„Hann var ekki nema um fimm
mínútur í sjónum, við tókum
strax eftir þessu,“ sagði Guð-
mundur Garðarsson, skipstjóri á
Birtingi, í gærdag. Hann fagnaöi
því hversu vel tókst til.
- Þú ert væntanlega lemstraður
eftir þessi ósköp?
„Ég er að mestu í lagi en ég ætla
að láta kíkja á löppina á mér, ég
slóst einhvers staðar utan í,“
sagði Sigurbjörn, en honum var
vel fagnað við heimkomuna af
unnustu sinni sem er gengin 7
mánuöi á leið með fyrsta barn
þeirra. -HG
Yfirvofandi atvinnumissir í Vestmannaeyjum:
Eyjamenn fara ekki til sálfræðings
- depurð og kvíði í skólabörnum, segir sálfræðingurinn á staðnum
Stjóm ísfélagsins í Vestmanna-
eyjum ákvað í gær að hætta vinnslu
á bolfiski sem leiðir til þess að um
60 manns missa vinnu sína. Eyja-
menn eru mjög slegnir vegna þessa.
„Hjá okkur eru erfiðir tímar,
verkefnaleysi og það er þungt í öll-
um Eyjamönnum út af ástandinu,"
segir Birkir Agnarsson, fram-
kvæmdastjóri Netagerðarinnar Ing-
ólfs í Vestmannaeyjum, en þar eru
að auki átta starfsmenn í óvissu um
framtíð sína. Netagerðin er í eigu ís-
félagsins á staðnum og hafa aðhalds-
og spamaðaraðgerðir stjórnenda
arfsmannanna ^ um og veit ekki í
oselianlegar
■ ástandið hjá Vestmannaeyjar depurð og kvíða-
Btageröinni tákn- Erfiðir tímar, verkefnaleysi og þungt köst hjá börnum
ent fyrir allt at- í öllum. hér í Vestmanna-
eyjum en mér hefur ekki tekist að
tengja það beint við atvinnuástand-
ið,“ segir Jón Pétursson, sálfræðing-
ur i Vestmannaeyjum. „Það er mik-
ið rót á fólki hér og það kemur nið-
ur á skólastarfinu eins og gefur að
skilja. En eitt er það sem ekki hefur
breyst í Eyjum; bömunum íjölgar,"
segir Jón Pétursson sem metur
ástandið í Vestmannaeyjum helst út
frá starfi sinu með skólabörnum.
Fullorðnir sæki síður til hans eða
eins og hann orðar það sjálfur:
„Eyjamenn fara ekki til sáifræðings.
Alla vega ekki karlmennirnir.“-EIR
íhuga prófmál
Þeir Ólafur
Ólafsson, formaður
Félags eldri borg-
ara í Reykjavík, og
Benedikt Daviðs-
son, formaður
Landssambands
eldri borgara, stað-
festu það í samtali
við Dag í gær að samtökin ætluðu
að óska eftir viðræðum við ríkis-
stjórnina um leið og öryrkjafrum-
varpiö hefur verið samþykkt. Dag-
ur greinir frá.
Kostnaður ráöuneyta hækkar
Ferða- og risnukostnaður ríkis-
stofnana og ráðuneyta var tæpar
2.110 milljónir árið 1999 og hafði
hækkað um 220 milljónir króna frá
1998. Þetta kemur fram í svari sem
fjármálaráðherra hefur gefið við
fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardótt-
ur, þingmanns Samfylkingarinnar
á Alþingi.
Skorar á forseta
Ástþór Magnús-
son, formaður Frið-
ar 2000 og fyrrum
forsetaframbjóð-
andi, hefur skorað
á Ólaf Ragnar
Grimsson að undir-
rita ekki öryrkja-
frumvarp ríkis-
stjórnarinnar. í yfirlýsingu Ástþórs
segist hann telja að forseti svíki
kjósendur ef hann undirritar lögin.
Vísir greinir frá.
Fósturvísainnflutningur
Stjórn Bændasamtaka Islands
kemur saman til reglubundins
fundar í dag þar sem meðal umfjöll-
unarefna er fyrirhugaður innflutn-
ingur á fósturvísum úr norskum
kúm.
Hugsanlega í Félagsdóm
Formaður Eflingar telur allar lík-
ur á að kjarasamningum verði sagt
upp í næsta mánuði. Hann segir það
vekja tortryggni að ekki væri hægt
að fá skýr svör um kostnað við
samning kennara.
Frumstæð hagstjórn?
Sveinn Hannesson, framkvæmda-
stjóri Samtaka iðnaöarins, viðraði
nýlega þá skoðun sína að núverandi
vaxtastefna Seölabankans væri
frumstæð hagstjórn. Jafet S. Ólafs-
son, framkvæmdastjóri Verðbréfa-
stofunnar, segir vexti hér í hróp-
andi ósamræmi við það sem gerist í
nágrannalöndunum. Dagur greinir
frá.
Kosið um flugvöll
Borgarráð samþykkti á fundi sín-
um 1 gær að atkvæðagreiðsla um
framtíð Reykjavíkurflugvallar fari
fram laugardaginn 17. mars næstkom-
andi. Á fundinum var einnig sam-
þykkt að sunnudaginn 18. febrúar
verði efnt til opins fundar til kynn-
ingar og umræðu um málið.
Söluaukning á kjöti
Heildarneysla á kjöti á síðasta ári
var 69,1 kg á íbúa og þarf að fara aft-
ur til ársins 1985 til að finna sam-
bærilegar sölutölur en þá nam heild-
arsalan 69,3 kg á íbúa. Mbl. greinir
frá.
Búnaðarbanki í rannsókn
Mál Búnaðar-
bankans vegna við-
skipta með hluti i
Pharmaco sem ríkis-
lögreglustjóri hefur
haft til skoðunar að
beiðni fjármálaeftir-
litsins er nú komið
til opinberrar rann-
sóknar. Snýst það m.a. um meinta
misnotkun upplýsinga kaupendum
hluta í fyrirtækinu til hagsbóta.-HKr.