Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001
Fréttir DV
Rykmengun í Reykjavík:
Framkvæma þarf ná-
kvæmar efnagreiningar
- til að finna leiðir til að draga úr menguninni
Bílaumferð veldur rykmengun
Bílarnir sem aka um höfuðborgina eiga stóran hluta í mengunni, t.d. meö út-
blæstri og dekkjunum sem eru undir þeim.
Gera þarf nákvæmar efnagrein-
ingar til finna út hvaða leiðir henta
best til að draga úr rykmengun í
Reykjavík. Ljóst er að draga þarf úr
menguninni þar sem hún hefur ver-
ið yfir þeim viðmiðunarmörkum
sem taka á upp á evrópska efna-
hagssvæðinu í sumar.
Að sögn Birnu Hallsdóttur, sér-
fræðings á mengunarvamasviði
Hollustuverndar ríkisins, má rekja
rykmengunina hérlendis að stærst-
um hluta til bílaumferðar, landryks
og salts sem fýkur frá hafi. „Ekki
hafa verið gerðar nákvæmar efna-
greiningar hér á landi á því hversu
stóran hluta megi rekja til hvers
þáttar," segir Birna. Slíkar mæling-
ar þurfi að gera til að fá nákvæmar
niðurstöður um hvað valdi ryk-
menguninni. Bima segir að veður-
far hafi mjög mikið að segja varð-
andi þá mengun sem mælist í and-
rúmsloftinu. Úrkoma, og þá sérstak-
lega snjókoma, hreinsi loftið af ryki
og á hinn bóginn valdi miklar vetr-
arstillur því að rykið dreifist litið
og safnast fyrir.
Mikil rykmengun í vetur
„í mælingum okkar höfum við séð
toppa í rykmenguninni annars vegar
í nóvember og desember og hins veg-
ar í mars og apríl. Þá skapast
einmitt oft þær aðstæður sem hag-
stæðar eru mikilli rykmyndun, þ.e.
vetrarstillur og bílar á nagladekkj-
um og auðar götur,“ segir Bima og
bætir við að undantekning á þessu
hafi verið í fyrravetur en þá mældist
svo til engin rykmengun allan vetur-
inn, enda snjóaði svo til daglega.
Birna segir að þær óvanalegu að-
stæður sem verið hafi í veðráttunni
í vetur hafi valdi því að mjög mikil
rykmengun hefur mælst. Að sögn
Bimu er sótið í útblæstri bíla hka
mikill mengunarvaldur og að bilar
sóti meira þegar kalt er í veðri. „Það
er meira sót í útblæstri dísilbíla og
slíkum bílum hefur fjölgað mikið að
undanfórnu," segir Birna.
Stærsti hlutinn frá vegsliti
Ylfa Thordarson, nemi á þriðja
ári í umhverfis- og byggingarverk-
fræði, gerði á síðasta ári nýsköpun-
arverkefni þar sem rykmengun var
skoðuð. Ylfa skoðaði gögn frá Holl-
ustuvemd og Heilbrigðiseftirlitinu
og tengdi þau saman við umferðar-
gögn, veðurfar og fleira. „Ég fann al-
veg augljós tengsl á milli þess að á
nagladekkjatímabilinu er svifryks-
magn í andrúmsloftinu mun
meira,“ segir Ylfa. Að sögn Ylfu gat
hún metið að um 35 til 50% svifryks
í höfuborginni stafi af vegsliti, 20%
komi frá sjávarsalti, 20 til 30% frá
landryki og 10 til 15% frá útblæstri.
„Það virðist því vera að langstærsti
þátturinn stafi af vegsliti," segir
Ylfa. Hún segir að það hafi komið
sér á óvart hversu mikið vandamál
rykmengunin er og að verkefnið
hafi verið það fyrsta sinn tegundar.
í kjölfarið hafa síðan fleiri rann-
sóknir á rykmengun verið settar af
stað. Ylfa segir að til að fá nákvæm-
ari niðurstöður varðandi rykmeng-
unina þurfi að framkvæma efna-
greiningu. -MA
Húsfyllir á japanskri sjónvarpsmynd
-Sonja heimasæta á Lækjamóti og íslenski hesturinn voru í vinsælum þætti í sjónvarpi í Japan
DV, HUNAÞINGI:
Troðfullt var í Félagsheimilinu í
Víðihlíð þegar fjölskyldan á Lækja-
móti bauð fólki að koma og sjá jap-
anska sjónvarpsmynd um göngur í
Viðidal. Myndin, sem er rúmar 70
mínútur, var frumsýnd í japanska
ríkissjónvarpinu fyrir jólin og hefur
einnig verið sýnd á annarri stöð þar
í landi. Nú er unnið að styttri gerð
myndarinnar og verður hún sýnd
víðar.
Myndin fjallar um unga stúlku,
Sonju á Lækjamóti, sem er að fara í
fyrsta sinn í göngur og nýtur leið-
sagnar föður síns. íslenski hestur-
inn og náttúran setja mikinn svip á
myndina og þótti Japönunum eink-
um athyglisverð víðátta heiðanna
og það frelsi sem hrossin njóta. Þá
gerðu þeir því góð skil þegar Sonja
sundreið Víðidalsá og eins þegar
hún fylgdi Þóri foður sínum ríðandi
upp á jökul.
Sumum heimamanna þótti lítt
fara fyrir sagnfræðinni í myndinni
þegar gangnamenn á Víðidalstungu-
heiöi voru allt í einu komnir upp á
Lif og fjor
Að venju var líf og fjör í réttunum, og nærvera Japananna vakti forvitni margra.
DV-MYNDIR MAGNÚS ÓLAFSSON.
Stjarnan
Hér er Sonja filmstjarna ásamt japönsku kvikmyndagerðarmönnunum
Tatsumine Katayama, stjórnanda kvikmyndahópsins, og Hiroshi Yanase aðal-
myndatökumanni í Víðidalsrétt.
jökul en þetta var liður í viðleitni
Japananna að sýna sem fjölbreytt-
ast landslag. 1 heild er myndin mjög
góð landkynning og góð kynning á
íjölbreyttum hæfileikum íslenska
hestsins.
Þegar Þórir ísólfsson bóndi bauð
fólk velkomið í Víðihlíð sagði hann
að það hefði verið mjög lærdómsríkt
að vinna við gerð þessarar myndar
en alls tóku Japanarnir upp um 80
klukkustundir af myndefni. Lét
hann þess getið að það væru meiri
erflðleikar að koma öllum þeim fyrir
í Félagsheimilinu sem vildu sjá
myndina en aðstoða Japanana.
Myndin var sýnd í mjög vinsælli
þáttaröð í Japan þar sem fjallað er
um lífshætti og náttúru víða í heim-
inum. -MÓ
Átak Akraness veitir viðurkenningar:
Spurningaljón fá
stuðning samborgara
DV, AKRANESI:_____________________
Spumingaljónin úr Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi, FVA,
þeir Ómar Freyr Sigurbjömsson,
Ragnar Bjömsson og Sigurbjöm
Gíslason, eru í spurningaliði skóla
síns í spumingakeppni framhalds-
skólanna Gettu betur og þeir era
heldur betur vel staddir eftir fyrstu
umferð þar sem þeir unnu Verk-
menntaskólann á Akureyri í viður-
eign þeirra, 19-14.
Þetta er vissulega góður árangur
hjá strákunum og vonast nemendur
FVA eftir því að þeir komist í sjón-
varpið alveg eins og í fyrra. Átaki
Akraness, samtökum fyrirtækja,
einstaklinga og stofnana á Akra-
nesi, fannst eðlUegt að veita þessum
vösku sveinum verðlaun fyrir
glæsilegan árrangur.
Á sama tima fékk Verslunin Allý
viðurkenningu frá félaginu fyrir
best skreytta verslunargluggann
um jólin og Verslunin Mánablóm
fyrir að eiga framlegasta verslunar-
DV-MYND DANÍEL
Viðurkenningar
Frá afhendingu viðurkenninganna. Á myndinni eru, frá vinstri: Aöatheiöur
Oddsdóttir frá versluninni Allý, Ragnar Björnsson, Ómar Freyr Sigurbjörnsson,
Sigurbjörn Gíslason og Jón Arnar Sverisson frá Mánabiómi.
gluggann. Það er skoðun flestra lögðust þar margir á eitt um að
Skagamanna að mjög vel hafi tekist skapa skemmtilega hátíðastemn-
til um að skreyta bæinn um jólin og ingu. -DVÓ
............. Umsjón:
Hörður Kristjánsson
netfang: sandkorn@ff.is
Skóiausir á HM
íslenska
handboltalið-
ið, sem vænt-
anlega hamp-
ar heims-
meistaratitli
ef dómarar í
Frakklandi
reynast ekki ómögulegir, hefur átt í
vanda síðan farangurinn varð við-
skila við það á Lundúnaflugvelli. Þó
strákunum hafi tekist að finna á sig
einhverjar spjarir til að striplast í á
leikvellinum, þá er hætt við að þeir
verði að keppa skólausir. Frakkar
munu að öllu jöfnu ekki sérlega
lappastórir og hafa menn átt í
mesta basli með að fmna skóbúð
sem selur nógu stóra strigaskó.
Jafnvel eru taldar minni likur á að
skór fáist á leikmanninn Róbert
Julian Duranona en að strákarnir
lendi á hliðhollum dómurum ...
Fela fölsku tennurnar
Kári Stefáns-
son og íslensk
erfðagreining eru
nú að falast eftir
upplýsingum frá
tannlæknum um
gögn sjúklinga.
Þykja mikil verð-
mæti jiggja í upp-
lýsingum um
sjúkdóma í skoltum íslendinga og
skiptar skoðanir í hópi lækna um
ósk Kára. Mun áhugi Kára hafa
spurst út en misjafn skilningur
lagður í tilganginn. Nær pottþéttar
heimildir Sandkorns herma að á
elliheimili einu í borginni hafi
komið til vandræða í matartíma í
gær. Gamlingjum gekk erflðlega að
tyggja smásteik úr nautakjöti sem
á borðum var. Við athugun kom í
ljós að ástæðan var ekki sú að kjöt-
ið væri af afgömlum írskum riðu-
kúm heldur að gamla fólkið hafði
falið fólsku tennurnar af ótta við
ásælni Kára ...
Keypti demantshring!
Sigurður
Gísll Gísla-
son lögfræð-
ingur hjá
Lögreglu-
stjóraemb-
ættinu, sem
vann
; 400.000 I
Viltu vinna
milljón á Stöð 2, talaði um að hann
ætlaði að kaupa eitthvað handa
konunni fyrir verðlaunaféð. Mun
hafa sést til Sigurðar í skartgripa-
verslun þar sem hann handlék
stóran demantshring. Það mun
vera altalað hjá Lögreglustjóraemb-
ættinu að Sigurður hafi ekki að-
eins gefið konunni sinni stóran
hring, heldur borið upp bónorð í
leiðinni. Einnig hefur heyrst að
Sigurður ætli að hringja aftur til
að freista þess að komast öðru
sinni í þáttinn og fara heim með
milljón í það skiptið. Velta gárung-
ar fyrir sér hvað konan fái þá...?
Tapsárir MH-ingar
Undanfarin ár
hefur Menntaskól- yfl
við Hamrahlið |H|^fli^H
verið iðinn við aö
kæra eitt og ann-
að í sambandi við
Gettu betur
keppni Loga
Bergmanns Eiðs-
sonar og félaga i
Sjónvarpinu. Þess er skemmst að
minnast að lið MH kæröi tvídrátt
Þóru Arnórsdóttur stigavarðar á
sínum tima þegar MH lenti gegn
MR í annarri tilraun. Önduðu sum-
ir því léttar er MH féll úr keppn-
inni eftir viðureign við Verslunar-
skólann í upphafi vertíðar nú og
töldu að friðsamt yrði í ár. En viti
menn, stýrihópi Gettu betur barst
enn bréf frá liði MH þar sem óskað
var endurskoðunar á því að liðið
væri fallið úr keppni. Taldi bréfrit-
ari að stjómendur hefðu ekki
kynnt það nægilega vel fyrirfram
að tap þýddi fall úr keppni. Málinu
var vísað frá ...