Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2001, Qupperneq 10
10
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 2001
I>V
Ástkonan
Christine Deviers-Joncour tók viö
tæpum milljaröi króna frá ríkisolíu-
fyritækinu Elf.
Ástkona Dumas
brast í grát í
dómsalnum
Fyrrverandi ástkona Rolands
Dumas, fyrrverandi utanríkisráð-
herra Frakklands, brast í gær í grát
fyrir rétti þegar yfirmenn ríkisolíu-
fyrirtækisins Elf-Aquitaine hlógu
að þeirri fullyrðingu hennar að hún
hefði unnið hörðum höndum fyrir
fyrirtækið.
Christine Deviers-Joncour,
Dumas og þrír framkvæmdastjórar
Elf eru ákærð fyrir að hafa dregið
sér fé frá fyrirtækinu. Yfirvöld telja
að Elf hafi ráðið Christine fyrir
beiðni Dumas. Elf borgaði ástkon-
unni háar fjárhæðir til að hafa áhrif
á pólitískar ákvarðanir Dumas. Þau
eru sökuð um að hafa dregið sér 1
milljarð íslenskra króna.
Bifreið stroku-
fanganna fundin
Lögregla fór hús úr húsi í einu
hverfi bæjarins Colorado Springs 1
gær eftir að þar hafði fundist sendi-
bíll sem talið er að strokufangarnir
tveir frá Texas hafi skilið eftir.
Mennirnir eru vel vopnaðir og stór-
hættulegir, að sögn lögreglu.
Fulltrúi alríkislögreglunnar FBI
sagði fund bílsins mikilvægan
áfanga en ekkert bólaði þó á stroku-
föngunum tveimur, þeim Patrick
Murphy og Donald Newbury.
Fjórir félagar þeirra voru hand-
samaðir í hjólhýsabyggð í Woodland
Park í Kóloradó á mánudag en sá
fimmti framdi sjálfsmorð fremur en
að gefast upp fyrir lögreglu.
Sjömenningamir struku úr fang-
elsi í Texas 13. desember.
Jonathan Motzfeldt
Grænienski heimastjórnarformaöur-
inn er ánægöur með bréfiö.
Motzfeldt fékk
bréf frá Bush
Jonathan Motzfeldt, formanni
grænlensku heimastjórnarinnar,
hefur borist bréf frá George W.
Bush, nýjum Bandaríkjaforseta, þar
sem sá síðamefndi lýsir yfir áhuga
sínum á viðræðum um sameiginleg
hagsmunamál, svo sem ratsjárstöð-
ina í Thule. Bandaríkjamenn hafa
mikinn áhuga á að gera hana að
hluta fyrirhugaðs eldflaugavamar-
kerfís.
Motzfeldt segir við Jyllands-Post-
en að bréfið frá Bush sýni Dönum
að Grænlendingar þurfi ekki lengur
á bamapiu að halda þegar þeir ræða
við granna sína um mikilvæg mál.
ísraelar fresta friðarviðræðum vegna morða:
Samningamenn
heim til viðræðna
Alls óvíst er um framhald friðar-
viðræðna ísraela og Palestínu-
manna eftir að ísraelar frestuðu
þeim í gær vegna morða á tveimur
ísraelskum borgurum á Vestur-
bakkanum.
Ehud Barak, forsætisráðherra
ísraels, kallaði helstu samninga-
menn sína heim frá Egyptalandi til
skrafs og ráðagerða. Aðeins tvær
vikur eru nú þar til ísraelar ganga
að kjörborðinu til að kjósa nýjan
forsætisráðherra.
„Við getum ekki látið þessi
hræðilegu morð ganga af friðarferl-
inu dauðu,“ sagði Yossi Beilin,
dómsmálaráðherra ísraels, um leið
og hann setti farangur sinn í bílinn
og hélt út á flugvöll.
Ahmed Korei, samningamaður
Palestínumanna, sagði að samn-
inganefnd sín myndi halda kyrru
fyrir í egypska strandbænum Taba
að sinni. Palestinumenn myndu
hins vegar einnig skoða hvort þeir
Beöið eftir ísraelum
Ahmed Korei, samningamaöur
Palestínumanna, ætlar að bíöa um
stund eftir ákvöröun ísraela um
framhald friöarviöræðnanna.
ættu að setjast aftur að samninga-
borðinu.
Ekki er nema um sólarhringur
síðan deilendur voru fremur bjart-
sýnir um gang mála í viðræðunum
þar sem rætt var um helstu þrætu-
epli þeirra, framtíð Jerúsalem, land-
nemabyggðir gyðinga, endanleg
landamæri og örlög palestínskra
flóttamanna.
Morðin í gær breyttu hins vegar
öllu. Fórnarlömbin tvö, veitinga-
húsaeigendur frá Tel Aviv, sátu að
snæðingi með arabískum viðskipta-
félaga i bænum Tulkarn þegar þeir
voru numdir á brott og drepnir.
Hin nýju stjómvöld í Washington
sögðu í gær að enn hefði ekki verið
ákveðið með hvaða hætti þau tækju
þátt í friðarumleitununum fyrir
botni Miðjarðarhafsins. Fyrstu við-
ræður háttsettra embættismanna
fóru fram á mánudag þegar Barak
ræddi við Colin Powell utanrikis-
ráðherra í síma.
Fyrirmenni heimsins í einangrun
Vígategir og vel vopnaöir lögregluþjónar standa vörö viö ráöstefnumiðstööina í svissneska fjallabænum Davos þar
sem helstu fjármálafurstar og stjórnmálamenn heimsins hefja árlegan fund sinn á morgun. Laganna vöröum er ætlað
aö koma í veg fyrir aö andstæöingar hnattvæöingar og kapítalisma komist nærri fundarstaönum meö mótmæli sín.
Nýtt kjöthneyksli í Þýskalandi og Austurríki:
Svín stútfull af sýklalyfjum
Hormónahneyksli skekur nú
Austurríki og Bæjaraland í Þýska-
landi. Eftir vísbendingar frá dýra-
verndunarsinnum gerði lögregla
um helgina skyndileit hjá fjölda
dýralækna og svínaræktenda. Við
leit lögreglunnar fannst mikið
magn lyfja sem notuð höfðu verið
sem fóðurbætir. Um 10 dýralæknar
eru gmnaðir um að hafa selt mörg
tonn af lyfseðilsskyldum sýklalyfi-
um og vaxtarhormónum án þess að
kanna hvort dýrin þyrftu á læknis-
meðferð að halda.
Einn dýralæknanna, sem þátt tók
í uppljóstrun málsins, þorði ekki að
koma fram undir nafni í útvarps-
viðtali af ótta við hefndaraðgerðir.
Rödd hans hafði verið breytt.
Heilbrigðisyfirvöld í Múnchen
töluðu um dýralæknamaflu sem
starfað hefði báðum megin
landamæranna. Dýraverndunar-
sinnar í Austurríki hafa kært 1500
svínaræktendur í báðum löndum
Neyddlst til að segja af sér
Barbara Stamm, heilbrigðisráöherra
Bæjaralands, varö aö segja af sér
vegna svínamálsins.
fyrir að nota lyf til að flýta vexti
dýranna. Talið er að afhjúpanirnar
í S-Þýskalandi og Austurríki séu
bara toppurinn á ísjakanum.
Augljóst þótti að heilbrigðisráð-
herra Bæjaralands, Barbara
Stamm, yrði að segja af sér í þetta
sinn. Það vakti athygli að hún
skyldi sitja áfram er í ljós kom al-
varlegur skortur á eftirliti í Bæjara-
landi vegna kúariðusmits. Félag
dýralækna hafði fyrir nær 2 árum
varað Stamm við lyfiamisnotkun
við svínarækt. Ráðherrann hunsaði
málið. Málið þykir einnig alvarlegt
vegna þess að bent hefur verið á
svínakjöt sem góðan kost þegar
menn óttast kúariðu. Neysla á
nautakjöti hefur minnkað um 80
prósent í Þýskalandi frá því í nóv-
ember.
Neytendamálaráðherra Þýska-
lands, Renate Kúnast lagði í gær til
aö bannað yrði að setja lyf út i
dýrafóður.
mm
ttiU
Gaf ekki skipun um dráp
Augusto Pinochet,
fyrrverandi einræð-
isherra Chile, full-
yrti við yfirheyrslu
hjá rannsóknardóm-
aranum Juan Guz-
man í gær að hann
hefði ekki fyrirskip-
að dráp. Ábyrgðin
hefði verið hjá yfirmönnum ein-
stakra herdeilda. Ráðgjafar Pin-
ochets höfðu sagt honum að svara
ekki spurningum dómarans en
hann hlýddi ekki.
Einræktun á mönnum
Breska þingið hefur leyft ein-
ræktun á mönnum. Vísindamenn
geta því rannsakað stofnfrumur í
fóstrum til að reyna að finna lyf við
sjúkdómum.
Flugræningi yfirbugaður
Maður, sem kvaðst styðja Saddam
íraksforseta, rændi í gær innanrik-
isflugvél í Jemen og krafðist þess að
flogið yrði til Bagdad. Áhöfninn
tókst að yfirbuga flugræningjann.
Pabbinn fær forræðið
Faðir bandarísku tvíburann, sem
seldir voru tvisvar á Netinu, fær
forræði yfir þeim. Dómstóll í
Missouri í Bandaríkjunum
úrskurðaði þetta í gær.
Estrada í ferðabann
Joseph Estrada,
sem var neyddur
til að segja af sér
embætti forseta
Filippseyja síðast-
liðinn laugardag,
hefur verið bann-
að að fara úr
landi. Estrada er
sakaður um að hafa þegið mútur
frá spilavítiskóngum og dregið sér
fé ríkisins.
Galdranorn í skóla
Bandarískri stúlku, Brandi Black-
bear, hefur verið vikið úr fram-
haldsskóla í Oklahoma vegna
meintra galdra. Kennari stúlkunnar
varð skyndilega veikur og rektor
skólans sakaði Brandi um galdra.
Hún bar galdramerki á hendinni og
viðurkenndi að vera í nýaldarhreyf-
ingunni Wicca. Kenncirinn reyndist
vera með bráða botnlangabólgu.
Stuðningur frá SÞ
Jose Ramos-Horta,
utanrikisráðherra A-
Tímor, sagði I morg-
un að Sameinuðu
þjóðimar styddu
stríðsglæpadómstól
brygðist dómskerfi
Indónesíu í rann-
sókn á ofbeldisverkum á eyjunni.
Jarðskjálfti á Grænlandi
Tveir vægir, 3 og 4 á Richter jarð-
skjálftar riðu yfir Maniitsoq fyrir
norðan Nuuk á Grænlandi á mánu-
daginn. Jarðskjálftar eru sjaldgæfir
á Grænlandi.
Vissi um árás NATO
Carla del Ponte, yfirsaksóknari
stríðsglæpadómstólsins í Haag,
sagði í Belgrad í gær að Slobodan
Milosevic, fyrrverandi Júgóslavíu-
forseti, hefði vitað fyrir fram um
árás NATO á sjónvarpshúsið. Hann
hefði samt ekki látið rýma húsið.