Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2001, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001
Fréttir
I>V
Bílstjóri dæmdur fyrir manndráp af gáleysi:
Þrýst á atvinnubíl-
stjóra að brjóta lög
- svartur blettur á ferðaþjónustu
Óskar Stefánsson, formaður bif-
reiðastjórafélagsins Sleipnis, segir að
atvinnubílstjórar séu stundum hálf-
neyddir til að vinna meira en lög leyfa.
Hvíldartími sé ekki virtur og slíkt
bjóði hættunni heim. í þessu samhengi
má minna á Skeijafjarðarflugslysið og
þann mokstur sem er á fólki um versl-
unarmannahelgar. Margt bendir til að
löngunin í stundargróða sé skynsem-
inni yfírsterkari á köflum og lýsa
heimildamenn DV þessu ástandi sem
svörtum bletti á íslenskri ferðaþjón-
ustu.
Bifreiðarstjórar hafa fylgst af mikilli
athygli með máli sem dæmt var í Hér-
aðsdómi Norðurlands eystra sl. fóstu-
dag. Þar var atvinnubílstjóri, Kópa-
vogsbúi á fimmtugsaldri, dæmdur sek-
ur um manndráp af gáleysi eftir að
hann lenti í árekstri við fólks-
bil við Þelamerkurskóla í
Glæsibæjarhreppi um versl-
unarmannahelgina i fyrra.
Bílstjórinn sveigði yfir á rang-
an vegarhelming til að koma í
veg fyrir aftanákeyrslu og lést
ökumaður bíls sem kom úr
gagnstæðri átt. Bílstjórinn var
dæmdur í þriggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi til
þriggja ára, ökuleyfissvipt-
ingu og greiðslu alls málkostn-
aðar. Fram kom að bílstjórinn hafði
ekki hlotið lögskyldan hvíldartíma
samkvæmt Evróputilskipun.
Þetta er annað málið á skömmum
tíma þar sem brot atvinnubílstjóra
valda slysi eða dauða, sbr. óhappið við
Jökulsá í sumar. Formaður Sleipnis
segir að félagið hafi ítrekað
talað gegn því að menn brytu
af sér með of miklu vinnu-
álagi en launin séu hins veg-
ar lág og margir telji freist-
andi að ganga jafn langt og
mögulegt er. Spurður hvort
þrýstingur sé frá atvinnurek-
endum um að bOstjórar vinni
meira en lög leyfa, segir Ósk-
ar að svo sé í allnokkrum tU-
fellum. „Já, ég hef heyrt
menn kvarta yfir því að þeir
séu þvingaðir tU að fara fram úr sér. í
því sambandi má vísa tU uppbygging-
ar ferðamála almennt í þessum bransa.
Oft er þessi vinna að koma upp með
stuttum fyrirvara og þá verður ein-
hvem veginn að leysa það að koma far-
þegunum mUli áfangastaða. Það er
töluverður þrýstingur yfir háálagstím-
ann og þetta slys verður á mesta álags-
tíma ársins," segir Óskar. Sömu sögu
má segja um slysið í Jökulsá en þar
björgðust farþegar og áhöfn með
naumindum.
í manndrápsmálinu við Þelamerk-
urskóla mótmælti bUstjórinn sök og
gaf m.a. þær skýringar á slysinu að
vegurmn hefði verið sleipur vegna
olíu. Því trúði dómurinn ekki en hon-
um hins vegar þótti ósannað að bU-
stjórinn hefði verið að tala í síma þeg-
ar slysiö varð eins og kom fram í
ákæru. Maðurinn var með hreina
sakaskrá fyrir dóminn og var það virt
tU refsUækkunar. Hann er búinn að
starfa sem atvinnubUstjóri í 6-7 ár og
segist hafa keyrt hringveginn í hundr-
uð skipta. -BÞ
Óskar Stefáns-
son, formaöur
Sleipnis.
Hljóp kapp í kinn
vegna gin- og
klaufaveiki
Til harðra orðaskipta kom milli
þingmanna stjómarmeirihlutans á
Alþingi í gær. TUefnið var fyrir-
spum Kristján Pálssonar, Sjálfstæð-
isflokki, en hann lýsti áhyggjum af
gin- og klaufaveikinni í Bretlandi.
Kristján benti á að enn væri leyfður
innflutningur á gæludýrafóðri frá
Bretlandi og það teldu sumir vís-
indamenn að orkaði mjög tvímælis.
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra brást mjög hart við og spurði
hvort það væri pólitískur fengur í
því fyrir Kristján að segja að hér
væri ekki gengið nógu langt. „Mér
finnst það ekki heiðarlegur mál-
flutningur að láta svo í veðri vaka
aö við séum ekki vakandi. Mínir
vísindamenn em mjög vel á verði,“
sagði Guðni.
Kristján sagði með ólíkindum að
ráðherrann skyldi halda að hann
ætlaði sér að græða atkvæði með
henni. Guðni viðurkenndi að sér
hefði hlaupið kapp í kinn en ástæða
þess væri sú að vefengt væri að við-
brögð yfirvalda hérlendis væru
nógu sterk við fárinu. „Menn eiga
ekki að tala svona,“ sagði hann. -BÞ
Varöist fimlega
Mörg spjót stóöu á Guöna Ágústssyni landbúnaöarráöherra á Alþingi í gær. Hann var gagnrýndur fyrir aö leyfa laxeldi í
Klettsvík þar sem Keikó svamlaöi fyrir. Þá kom til haröra oröaskiþta milli þingmanna stjórnarmeirihlutans vegna gin-
og klaufaveiki. Guöni varöist fimlega og var glaðbeittur þegar hann ræddi viö þrjá þingmenn Samfylkingarinnar.
S j ómannasamningarnir:
Allt í hnút
Tíu klukkustunda samningafund-
ur sjómanna og útvegsmanna hjá
sáttasemjara í gær reyndist algjör-
lega árangurslaus, en nýr fundur
átti að hefjast klukkan 10 í morgun.
Sáttasemjari er með fréttabann á
samningamenn, en einn úr þeirra
röðum tjáði ÐV í morgun að á fund-
inum í gær hefðu menn aðallega
verið að reyna að ræða verðmynd-
unarmálin en ekkert hefði miöað.
„Þaö er allt í hnút og ég hef á til-
fmningunni að útvegsmenn ætli
ekkert að semja við okkur, þeir ætla
bara að fá aftur á okkur lög, það er
mín tilfinning,“ sagði einn samn-
ingamanna í morgun en sá kom
skiljanlega úr röðum sjómanna. -gk
Borgarnes:
Fjórir bílar
skemmdust
ökumaður missti stjórn á bíl sín-
um i hálku innanbæjar í Borgamesi
í gær með þeim afleiðingum að bíll
hans skall utan í tvo kyrrstæða,
mannlausa bíla. Síðan kastaðist
hann framan á fjórðu bifreiðina
sem kom aðvífandi. Engin slys urðu
á fólki í árekstrinum en að sögn lög-
reglunnar í Borgamesi eru bílarnir
töluvert skemmdir. -SMK
Engin vímuefni fundust í heimavist Fjölbrautar á Sauðárkróki:
Þrír hasshundar að sunn-
an leituðu í gærkvöldí
DV, SAUPÁRKRÓKI:
Eftir að einn nem-
enda Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra á
Sauðárkróki varð upp-
vis að hassneyslu fyrir
helgina, óskuðu nem-
endaráð og heimavist-
amemendur eindregið
eftir að fikniefnaleit
yrði framkvæmd á
heimavistinni. Rann-
sóknarlögreglan kom
með þrjá leitarhunda
að sunnan til Sauðár-
króks í gærkvöldi og framkvæmd var
leit á vistinni. Hún leiddi það í ljós að
þar er engin fikniefni að finna.
Ámi Pálsson, rannsóknarlögreglu-
maður á Sauðárkróki, sagðist mjög
ánægður með þetta frumkvæði nem-
enda og þeir ættu hrós skilið. Heima-
vistin væri „hrein“ og vel væri unnið
í forvarnarmálum í skólanum.
„Þarna brugðust nemendur hárrétt
við,“ sagði Ámi.
Ársæli Guðmundssyni, settum
skólameistara, var greinilega létt í
gærkvöldi þegar hann kom út af vist-
inni að leit lokinni, enda ekki góðar
fréttir þegar nemandi verður uppvís
að neyslu fíkniefna. Ársæll kvaðst
vilja ítreka þær fregnir að nemand-
inn hefði sjálfur kosið að hætta í skól-
anum og leita sér meðferðar og eng-
inn hefði verið rekinn vegna þessa.
Umræddur nemandi var tekinn
með tvö grömm af hassi í tengslum
við meintan ölvunarakstur aðfara-
nótt föstudags en þrír ungir menn
vom einnig í bílnum. Auk þessa
óveralega magns efnis fundust einnig
tæki til neyslu i bílnum. Þetta mál er
frágengið að sögn lögreglunnar, sem
reynir eins og venjan er að rekja
þetta mál til stærri mála, en væntan-
lega eru þessi hassgrömm úr mun
stærri sendingu. -ÞÁ
Enm&.i
Hörö gagnrýni
Össur Skarphéð-
insson, formaður
Samfylkingarinnar,
hóf utandagskráru-
mæðu á Alþingi í
gær vegna við-
skiptahallans og
gagnrýndi efna-
hagsstefnu rikis-
stjórnarinnar harðlega. Forsætis-
ráðherra, Davíð Oddsson, veitti
andsvör og benti á að þriðjungur
hækkunarinnar væri vegna olíu-
verðs og annar þriðjungur vegna
vaxtahækkunar.
Ekið á hross
Hross drapst er jeppa var ekið á
það á Suðurlandsveginum, skammt
frá bænum Þjóðólfshaga í Holta- og
Landsveit um tvöleytið aðfaranótt
mánudagsins. Maðurinn sem ók bif-
reiðinni slapp ómeiddur en bíllinn,
sem var með hestakerru aftan í, er
mikið skemmdur eftir atvikið.
Kaupa Bills Dollar Stores
Baugur hefur hug á að kaupa
verslunarkeðjuna Bills Dollar Stor-
es en velta keðjunnar er áætluð 300
milljón dollarar á árinu 2001. Þá hef-
ur Baugur hf. gert samning við með-
eigendur sína í A-Holding um kaup-
rétt á öllum hlutabréfum í A-Hold-
ing. Stjórnin hefur óskað heimildar
til að hækka hlutafé félagsins um
allt að 500 milljónir króna að nafn-
verði.
Innherjaviðskipti
Embætti rikislögreglustjóra hefur
gefið út ákæru á hendur Gunnari
Sch. Thorsteinsson, fyrrum stjórn-
armanni í Skeljungi, vegna brota á
lögum um verðbréfaviðskipti með
kaupum hans á hlutabréfum í Skelj-
ungi 7. júlí 1999. Þá var Gunnar
stjórnarformaður. Þetta er fyrsta
kæra vegna innherjaviðskipta á ís-
landi.
Geysir kyrrsettur
Siglingastofnun hefur kyrrsett
flutningaskipið Geysi í Hafnarfjarð-
arhöfn. Skipið hefur siglt með varn-
arliðsflutninga fyrir Atlantsskip hf.
Skipið er í mjög slæmu ástandi og
fær ekki að sigla fyrr en gert hefur
verið við það. Sama skip var stöðv-
að hér fyrir tæpu ári.
VÍS á Verðbréfaþing
Stjórn Vátryggingafélags íslands
hf. (VlS) hefur samþykkt að stefna
að skráningu félagsins á Verðbréfa-
þing Islands á þessu ári. Gert er ráð
fyrir að skilyrðum skráningar verði
m.a. náð með útgáfu nýs hlutafjár
sem selt verði starfsmönnum og
stjórnendum VÍS.
Andlát
Björgvin
Schram, fyrrver-
andi stórkaupmað-
ur, lést í Reykjavík
24. mars sl. Hann
var fæddur 3. októ-
ber 1912. Hann
kvæntist Aldísi
Brynjólfsdóttur
1937 og átti með henni sjö börn.
Björgvin lætur eftir sig 58 barna-
börn og barnabarnabörn.
Stolinn bíll skemmdur
Vinnubíl var stolið innanbæjar í
Ólafsvík á sunnudaginn og fannst hann
svo mikið skemmdur upp úr hádegi á
mánudag Lögreglan í Ólafsvík leitar nú
sökudólgsins og biður þá sem geta gefið
upplýsingar um bílinn að hafa samband
við sig.
-HKr./-BÞ/SMK