Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2001, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2001, Blaðsíða 26
34 ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 85ára__________________________________ Bára Pálsdóttir, Skarösbraut 17, Akranesi. 80 ára_________________________________ Agnes Magnúsdóttir, Hvassaleiti 56, Reykjavík. Kjartan Magnússon, Kveldúlfsgötu 16a, Borgarnesi. 75 árg_________________________________ Ulja Hallgrímsdóttir sjúkraliði, Vallartröö 4, Kópavogi. Lilja býöur ættingjum og vinum í kaffi í Ásgarö í Glæsibæ laugard. 31.3. milli kl. 15.00 og 19.00. Jón Aöalsteinsson, Vindbelgi, Reykjahlíö. Stefán E. Sigurösson, Steinageröi 1, Reykjavík. 70 ára ________________________________ Margrét Kristín | Siguröardóttir, K - iJyM deildarstjórí fjárhagseftir- I lits Landspítala-háskóla- ML sjúkrahúss, Laugarásvegi 12, Reykjavík. Eiginmaöur hennar er Ragnar Stefán Halldórsson, forstjóri og síöar stjórnar- formaður íslenska álfélagsins. Þau taka á móti gestum í Ásmundarsafni viö Sigtún í dag milli kl. 17.00 og 19.00. Ingibjörg Haraldsdóttir, Dvergabakka 10, Reykjavík. 60 ára_________________________________ Garöar Oddgeirsson, Grænagarði 2, Keflavík. Oddur Gústafsson, Stórateigi 14, Mosfellsbæ. 50 ára_________________________________ Guörún Matthildur Sigurjónsdóttir, húsmóöir að Höföa, Öxarfjarðarhreppi. Ingimundur Magnússon, Breiðafit, Mosfellsbæ. Jaime Enrique Buenano Fuentes, Kirkjuvegi 37, Keflavík. Katrín Ólafsdóttir, Hjallabraut 21, Hafnarfiröi. Steinunn Jónsdóttir, Akurholti 17, Mosfellsbæ. Svanur Guöbjartsson, Kambaseli 22, Reykjavík. Valdimar Öm Sverrisson, Brekkutúni 16, Kópavogi. 40 ára_________________________________ Ásta Richter, Vallarbraut 15, Seltjarnarnesi. Benjamín Jósefsson, Heiðargeröi 16, Akranesi. Gísli Guönason, Básahrauni 17, Þorlákshöfn. Halldór Jónsson, Hraunbæ 26, Reykjavík. Ingibjörg Kristieifsdóttir, Melbæ 8, Reykjavík. Jónas Hjartarson, Rauöalæk 20, Reykjavík. Karl Ingason, Smárarima 76, Reykjavík. Þóröur Ármannsson, Þórunnarstræti 130, Akureyri. Örn Stefán Jónsson, Vallartúni 4, Keflavík. Smáauglýsingar Allt til alls ►I550 5000 Andlát Ingi Karl Jóhannesson, löggiltur skjalaþýöandi og dómtúlkur og fyrrv. framkvæmdastjóri, Birkimel 8a, Reykjavík, lést aö heimili sínu 25.3. Rósmundur Runólfsson, Hléskógum 1, áöur til heimilis aö Melgerði 18, Reykjavík, lést á Landakoti laugard. 24.3. S Urval - Gott í flugið I>V Fólk í fréttum Kristján Gunnarsson formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla- víkur, telur sjómenn almennt mjög ósátta með frestun sjómannaverk- fallsins samkvæmt lagaboði. Starfsferill Kristján fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann var í Vogaskóla og Álftamýrarskóla, stundaði nám við sjóvinnudeild framhaldsdeild- anna við Lindargötu, hóf nám í húsasmíði við Pjölbrautaskóla Suð- umesja og lauk prófum í þeirri grein. Kristján stundaði sjómennsku frá 1975, fyrst á varðskipinu Óðni en var síðan á fískibátum, einkum frá Vestmannaeyjum og Suðurnesjum. Að loknu iðnnámi starfaði Kríst- ján hjá Félagslega húsnæöiskerfínu í Keflavík 1989-90 en hóf störf hjá Verkalýðs- og sjómannafélagi Kefla- víkur 1990 og hefur starfað þar síð- an. Kristján hefur verið formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla- víkur frá 1991. Hann situr í mið- stjórn ASÍ frá 1994, í stjóm Verka- mannasambandsins og stjórn Starfsgreinasambandsins. Kristján var varamaður í bæjar- stjórn Keflavíkur 1990-94 og hefur verið bæjarfulltrúi í bæjarstórn Keflavíkur, síðan Reykjanesbæjar, fyrir Samfylkinguna frá 1994. Hann situr í stjórnum á vegum bæjarfél- agsins, situr í stjórn íbúðalánasjóös og hefur starfað í Frímúrararegl- unni. Fjölskylda Kristján kvæntist 31.12.1974 Guð- rúnu Önnu Jóhannsdóttur, f. 5.1. 1954, starfsmanni hjá ÁTVR. Hún er dóttir Jóhanns Alexanderssonar, húsmóöir á Akranesi Björg Hallvarðsdóttir húsmóðir, Höfðagrund 10, Akranesi, er áttræð í dag. Starfsferlll Björg fæddist að Geldingaá í Leir- ársveit og ólst þar upp í foreldra- húsum. Hún hlaut almenna barna- fræðslu í formi farskóla sem m.a. var starfræktur á Geldingaá og stundaði síðar nám við Húsmæðra- skólann aö Staðarfelli 1942. Á unglingsárum starfaði Björg á matstofu á Akranesi og sá síðar um bakstur við Héraðsskólann á Laug- arvatni. Er Björg gifti sig hófu þau hjónin búskap á Hellissandi þar sem mað- ur hennar gerði m.a. út eigin bát. Þau fluttu á Akranes 1947, festu kaup á íbúðarhúsinu Bræðraparti þar sem þau bjuggu allan sinn bú- skap. Eftir lát eiginmanns síns seldi Björg Bræðrapart og festi kaup á húsi viö Höfðagrund þar sem hún hefur átt heima síðan. Fjölskylda Björg giftist 1945 Skúla Sigurjóni Lárussyni, f. 23.6. 1911, d. 18.6. 1994, húsasmiðs i Keflavík, og Kristínar Árdal Antonsdóttur húsmóður. Börn Kristjáns og Guðrúnar Önnu eru Jóhann Rúnar Kristjáns- son, f. 27.12. 1973, búsettur í Kefla- vík og á hann eina dóttur, Guðrúnu Önnu; íris Ósk Kristjánsdóttir, f. 27.5. 1977, starfsmaður hjá Flugleið- um, og á hún einn son, Pétur Snæ. Alsystur Kristjáns eru Steinunn Hrefna Gunnarsdóttir, f. 2.4. 1950, bóndi í Króki í Ásahreppi; Björg Kolbrún Gunnarsdóttir, f. 28.11. 1951, skrifstofumaður hjá Prent- tæknistofnun; Gunnur Kristín Gunnarsdóttir, f. 25.4.1953, húsmóð- ir í Reykjavík. Hálfsystkini Kristjáns, sam- mæðra, eru Katrín Kristbjörg Bald- vinsdóttir, f. 5.6. 1959, starfsmaður hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflug- velli; Guðjón B. Baldvinsson, f. 28.2. 1961, rafvirkjameistari í Keflavík; Börkur Bragi Baldvinsson, f. 8.6. 1963, dagsskrárgerðarmaður. Foreldrar Kristjáns: Gunnar Kristján Jónasson, f. 6.10. 1930, d. 23.9. 1953, bifreiðarstjóri í Reykja- vík, og Halla Engilráð Stefánsdóttir, f. 2.4. 1932, fyrrv. verkakona, búsett í Mosfellsbæ. Stjúpfaðir Kristjáns er Baldvin Lárus Guðjónsson, f. 26.7. 1933, fyrrv. iönaðarmaður, sonur Guð- jóns B. Baldvinssonar, formanns BSRB. Ætt Gunnar Kristján var sonur Jónas- ar, b. í Vétleifsholti í Holtum, Krist- jánssonar, b. i Stekkholti í Biskups- tungum, Kristjánssonar. Móðir Gunnars Kristjáns var Ágústa Þorkelsdóttir, trésmiðs í Bolungarvík, Guðmundssonar, smiðs í Brekkum í Hvolhreppi, Þor- útvegsmanni og skipstjóra á Akra- nesi. Hann var heiðraður af sjó- mannadagsráði fyrir sjómannsstörf skömmu áður en hann lést. Böm Bjargar og Skúla eru Anna Kristín, f. 10.1.1945, búsett í Reykja- vík, maður hennar er Jón Ingi Har- aldsson bifreiðarstjóri og eiga þau fjögur börn og fimm barnaböm; Lárus, f. 10.9.1947, véltæknifræðing- ur á Akranesi, sambýliskona hans er Anna María Mikaelsdóttir; Mál- fríður Guðbjörg, f. 23.9. 1948, hús- móðir, maður hennar er Gísli Hall- bjömsson, vélstjóri og útgerðarmað- ur, og eiga þau fjögur böm en þrjú þeirra eru á lífi auk þess sem barna- börnin eru fimm; Skúli, f. 15.9.1954, vélfræðingur á Akranesi, kona hans er Margrét Rögnvaldsdóttir og eiga þau þrjú börn og eitt barnabarn; Guðmundur, f. 31.7. 1959, skipstjóri á Akranesi, kona hans er Guðrún ísleifsdóttir húsmóðir og eiga þau þrjú börn; Hallveig, f. 29.11. 1961, hjúkrunarfræðingur á Akranesi, maöur hennar er Stefán Jónsson húsasmiður og eiga þau tvö börn. Hálfsystur Bjargar, sammæðra, voru Ásta Guðjónsdóttir, f. 1902, nú kelssonar, smiðs á Ljótarstöðum, Jónssonar, b. á Ljótarstöðum, Þor- kelssonar. Móðir Þorkels trésmiðs var Ólöf Jónsdóttir, b. i Hlíðarenda í Fljótshlíð, Þórðarsonar, hrepp- stjóra í Eyvindarmúla, bróður Jóns, langafa Ingibergs, fóöur Egils Skúla, fyrrv. borgarstjóra, og langafa Har- alds, afa Halla og Ladda. Þórður var sonur Jóns fálkafangara, ísleiksson- ar. Móðir Jóns í Hlíðarenda var Ólöf Bergsteinsdóttir, lrm. í Þor- lákshöfn, Ingimundarsonar, b. í Hól- um, Bergssonar, ættfóður Bergsætt- ar, Sturlaugssonar. Móðir Ágústu var Þórunn Magnúsdóttir, b. á Mið- engi á Vatnsleysuströnd, Berg- steinssonar. látin, var búsett í Vestmannaeyjum, maður hennar var Valtýr Brands- son; Lára Pálsdóttir, f. 1908, d. 10.5. 1953, búsett í Reykjavík, maður hennar var Stefán Jón Björnsson. Alsystkini Bjargar: Svava Hall- varðsdóttir, f. 17.12. 1913, d. 25.6. 1990, búsett á Akranesi, var gift Mána Böðvari Guðjónssyni; Ólafur Hallvarðsson, f. 16.6.1916, nú látinn, bóndi á Geldingaá; Jóhann Hall- varðsson, f. 8.8. 1924, fyrrv. yfir- deildarstjóri Pósts og síma, búsettur í Reykjavík, var kvæntur Soffíu Jónsdóttur talsimakonu sem er lát- in; Sigrún Hallvarðsdóttir, f. 8.8. 1924, d. 11.7. 1975, var búsett í Skil- mannahreppi. Halla Engilráð er dóttir Stefáns, b. í Grundargerði og í Kúskerpi í Akrahreppi, Jónssonar, vinnu- manns á Reynisstað, Eiríkssonar, b. í Bjarnargili í Fljótum, Jónssonar, b. í Hringveri, Jónssonar. Móöir Ei- ríks var María Jónsdóttir. Móðir Jóns á Reynisstað var Kristbjörg Bjömsdóttir, b. í Málmey, Björns- sonar og Ingibjargar Bjarnadóttur. Móðir Stefáns var Halla Engilráð, dóttir Hans Péturs, vinnumanns á Mosfelli í Gönguskörðum, Jónsson- ar og Ingibjargar Helgadóttur frá Vermundarstöðum. Móðir Höllu Engilráðar var Stein- unn Jónsdóttir. Foreldrar Bjargar voru Hallvarð- ur Ólafsson, f. 12.6. 1884, d. 24.8. 1956, bóndi á Geldingaá i Leirár- sveit, og k.h., Anna Kristín Jó- hannsdóttir, f. 1886, d. 1966, hús- freyja. Ætt Hallvarður var sonur Ólafs, hreppstjóra á Geldingaá, Jónssonar, stúdents á Leirá, Ámasonar. Móðir Jóns var Halldóra Kolbeinsdóttir, pr. og skálds í Miðdal, Þorsteinsson- ar. Móðir Ólafs var Ragnhildur Ólafsdóttir, b. á Lundum, Þorbjarn- arsonar, gullsmiðs á Lundum, Ólafssonar. Móðir Þorbjarnar var Þorkatla Sigurðardóttir Islands- trölls, sýslumanns í Stóra-Skógi, Vigfússonar. Móðir Ragnhildar var Ragnhildur Henriksdóttir, b. á Reykjum í Tungusveit, Eiríkssonar. Móðir Hallvarðs var Björg Ein- arsdóttir, b. i Galtarholti, Þor- bjömssonar og Guðrúnar Jónsdótt- ur, b. í Tandraseli, Sigmundssonar. Anna Kristín var dóttir Jóhanns, b. á Efri-Hömrum í Ásahreppi, Ólafssonar, af Víkingslækjarætt og Sigrúnar Þórðardóttur, b. á Króki, Þórðarsonar. Björg verður að heiman. Attræð Björg Hallvarðsdóttir Merkir Islendingar Valtýr Pétursson, myndlistarmaður og myndlistargagnrýnandi, fæddist í Greni- vík 27. mars 1919. Hann var sonur Péturs Einarssonar, kennara í Höfðahverfi í Suður-Þingeyjarsýslu, og k.h., Þórgunn- ar Ámadóttur húsmóður. Valtýr lærði verslunarfræði og stundaði listnám jöfnum höndum. I Hann var í Verslunarskóla Islands í tvo vetur og stundaði nám í teikningu ’ hjá Bimi Bjömssyni, teiknikennara í Reykjavík, jafnlangan tíma, stundaði verslunamám í Bryan College á Rhode Island í Bandaríkjunum 1944-1945, við Academia dei Belle Arte í Firenze á Ítalíu 1948, stundaði framhaldsnám i París 1949-1950, nám í mósaikgerð hjá G. Severini í Valtýr Pétursson París 1956-1957 og fór í námsferðir víða um Evrópu. Valtýr var í hópi þekktustu myndlistar- manna hér á landi um og eftir miðja öld- ina. Hann var brautryðjandi í abstrakt- list hér á landi, einn af stofnendum Septemberhópsins og fyrstur til að sýna hér svo nefnd strangflatarmál- verk þar sem óhlutbundin form eru einlita, áferðarlaus og skýrt afmörkuð á myndíletinum. Þá vann hann stein- fellumyndir með islenskum grjótflís- um. Hann hélt fjölda einkasýninga hér á landi og erlendis, tók þátt í mörgum sam- sýningum og skrifaði mikið um myndlist í Morgunblaðið um árabil. Valtýr lést 15. maí 1988. Góður bíl&tjójri / .... er ciLltafi 7 |í'góðum gír tóuttn UMFERÐAR RÁÐ a umt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.