Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2001, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2001, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 7 I>V Fréttir Myndarlegt lerki fellur Rúnar ísleifsson fellir tæplega 12 metra lerkitré. DV. EGILSSTODUM:__________________ Nú stendur yfir skógarhögg í elsta lerkiskógi svokallaðrar Fljóts- dalsáætlunar á Víðivöllum í Fljóts- dal. Um 60 prósent af felldum trjám fara í girðingarstaura sem er óvenjuhátt hlutfall vegna aukinnar eftirspurnar. Afsag, greinar og börkur fer í göngustígakurl. Tæp- lega 40 prósent fer í borðvið og planka sem selt er til smiða og svo í arinvið. Þegar rist er utan af stærstu trjábolunum verður til efn- ið sem notað er í húsið í rjóðrinu góða ásamt og með greinarstubbum. Plöntun á Víðivöllum hófst 25. júní 1970. Verið er því að fella um 25 til 30 ára gömul tré sem eru 10 til 14 metra há. Að sögn Helga Bragason- ar, skógarbónda og verkstjóra á svæðinu, eru 12 til 15 menn sem vinna við skógarhöggið nú en þetta jafnar sig upp með að 10 manns starfi við skógarhögg í fjóra mánuði á ári. Talnaglöggir menn reikna út að þarna skapist hlutfallslega fleiri störf við skógarhögg en við álver og jámblendi á höfuðborgarsvæðinu. Þessi vinna fer ört vaxandi eftir því sem skógarreitir eldast og fyrsta grisjun í þeim hefst. „Það er því orðið ljóst að þessi at- vinnugrein er komin til að vera á ís- landi,“ sagði Helgi. -SM Dv-MYNDIR SKULI MAGNUSSON Fjórtán hressir skógarhöggsmenn Þessi hópur er líklega fyrsti hópur alvöru skógarhöggsmanna á íslandi. Barinn í skóginum Þetta sérkennitegs hús er fyrirhugaö til brúkunar á hátíöis- og tyllidögum. Fljótsdalsáætlun á Víðivöllum: Skógarhögg slær út álver - og járnblendi á höfuðborgarsvæðinu Hæstiréttur: Vísar launa- kröfu bæjar- sljóra til heimahaganna DV, BORGARBYGGD:_ Hæstiréttur hefur ómerkt dóm Héraðsdóms Vesturlands í máli Óla Jóns Gunnarssonar, fyrrver- andi bæjarstjóra Borgarbyggðar, gegn sveitarfé- laginu. Óla Jóni var sagt upp starfi bæjar- stjóra þann 1. maí 1999 þegar slitnaði upp úr samstarfi Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks. Nýr meirihluti bæjarstjórnar Borgarbyggðar bauð Óla Jóni 6 mánaða biölaun auk tveggja mánaða launa en þessu svaraði hann ekki enda taldi hann sig vera með ráðning- arsamning til júní árið 2000 eða 13 mánaða laun og fór fram á 7,5 milljónir króna í bætur eða til vara 4,5 milljónir hjá Héraðsdómi Vesturlands. Héraðdómur Vesturlands féllst ekki á kröfur Óla og sýknaði Borg- arbyggð af öllum kröfum Óla. Skutu hann og lögmaður hans, Jón Steinar Gunnlaugsson, mál- inu til Hæstaréttar. í dómi Hæsta- réttar segir: „Héraðsdómur var kveðinn upp rúmum fjórum vik- um eftir að málið hafði verið dóm- tekið. Var ekki leitað eftir því hvort aðilarnir væru samþykkir því að dómur yrði felldur á málið án þess að það yrði munnlega flutt á ný. Varð þvi sjálfkrafa að ómerkja dóminn og vísa málinu heim í hérað til munnlegs flutn- ings og dómsuppsögu að nýju.“ Mál þetta dæmdu hæstaréttar- dómararnir Markús Sigurbjöms- son, Ámi Kolbeinsson og Ingi- björg Benediktsdóttir. -DVÓ Peugeot 306 Brake 1,6, nskr. 03.98, ek. 65 þ. km, bsk., álfelgur. Verð 940 þús. Toyota Avensis Wagon 1,6, nskr. 04.98, ek. 42 þ. km, bsk. Verð 1.130 þús. Kia Sephia LS 1,5, nskr. 09.00, ek. 2 þ. km, ssk., álfelgur, CD. Verð 1.130 þús. Daihatsu Applause XI 1,6, nskr. 03.99, ek. 30 þ. km, ssk., álfelgur. Verð 1.090 þús. Notaðir bílar Þar sem þú færð notaða bíla á kóresku verði! MMC Lancer Wagon 4x4 1,6, nskr. 09.96, ek. 65 þ. km, bsk. Verð kr. 920 þús. Hyundai Sonata 2,0, nskr. 09.97, ek. 31 þ. km, ssk. Verð kr. 1.070 þús. Renault 19 RN 1,4, nskr. 02.96, ek. 55 þ. km, bsk. Verð kr. 550 þús. Nissan Vanette Combl 2,4, nskr. 08.97, ek. 83 þ. km, bsk., dísil. Verð kr. 1.080 þús. Jeep Cherokee Jamboree 2,4, nskr. 09.95, ek. 77 þ. km, bsk. Verð kr. 950 þús. Suzuki Baleno GL 1,3, nskr. 08.97, ek. 45 þ. km, bsk. Verð kr. 740 þús. KIA KIA ISLAND FLATAHRAUNI 31 • HAFNARFIRÐI • SIMI 555 6025 • www.kia.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.