Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2001, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2001, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001 9 DV Fréttir f I Skíðasvæðiö í Hlíðarfjalli metvetur DV, AKUREVRI:_____________________ „Það er búið að vera vitlaust að gera hjá okkur að undanfórnu og helgarnar hafa verið hver annarri betri. Það hefur ekki verið til að skemma fyrir að skíðafæri hefur verið alveg einstaklega gott,“ seg- ir Guðmundur Karl Jónsson, for- stöðumaður skíðasvæðisins 1 Hlíð- arfjalli á Akureyri, en svo gæti farið að veturinn sem nú er langt kominn verði metvetur í Fjallinu hvað varðar aðsókn. Guðmundur Karl segir að lyft- urnar hafi verið ræstar fyrst 18. nóvember og sem dæmi um hversu vel hafi gengið hafi nú ver- ið opið í Fjallinu í um 100 daga. Á sama tíma og rigningar voru á Akureyri í desember og janúar snjóaði í Hlíðarfjalli og þar er mikill og góður snjór sem endast mun út skíðatímabilið sem stend- ur út aprílmámuð. „Ég reikna með að 50-60% þeirra sem hafa komið á skíði í Hlíðarfjalli í vetur hafi verið utan- bæjarmenn, en þeir hafa komið í hópum hingað. Það sést líka á töl- um frá sundlaug Akureyrarbæjar að utanbæjarmenn hafa verið fjöl- mennir i bænum en þar var aukn- ing gesta í janúar og febrúar um 35% sem segir sitt.“ Guðmundur Karl segir að ekki sé hægt að fullyrða að veturinn í vetur verði metvetur í Hlíðarfjalli. Frumvarp um 1000 manna lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga: Verið að kreista menn saman - segir Ólafur Magnús Birgisson, sveitarstjóri á Tálknafirði „Sveitarfélög ættu að hlutast til um það sjálf hvort þau vilja sam- einast öðrum eða ekki. Að kreista menn saman er ekki rétta leiðin," segir Ólafur Magnús Birgisson, sveitarstjóri á Tálknafirði, um frumvarp þess efnis að lágmarks- íbúafjöldi sveitarfélaga verði 1000 í stað 50, eins og nú er. Jóhann Ársælsson er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. „Þúsund manns er lágmarks- stærð sveitarfélags ef það á að uppfylla þær skyldur sem lagðar eru á herðar þess í dag. Eining- arnar verða að stækka og styrkj- ast og við erum í raun allt of sein með þessa þróun núna. Það þekk- ist hvergi að sveitarfélög séu jafn smá og hérna,“ segir hann. Ólafur sveitarstjóri er ekki hrif- in af þeirri hugmynd að samein- ast nágrannasveitarfélaginu Vest- urbyggð. „Tálknfirðingar hafa þegar fellt tillögur um sameiningu við Vest- urbyggð tvisvar í atkvæða- greiðslu. Við erum opin fyrir hvers kyns samstarfi á breiðum grunni en viljum ekki láta þvinga okkur út í að sameinast bæjarfé- lagi sem hefur átt jafn slæmt gengi og Vesturbyggð. Það er okk- ur einfaldlega ekki í hag,“ segir hann. Að sögn Jóhanns eru það hags- munir heildarinnar sem ráða. „í mörgum tilfellum njóta smærri sveitarfélög góðs af fram- kvæmdum innan marka sveitarfé- lagsins en önnur sveitarfélög á svæðinu mega lepja dauðann úr skel. Ef tillaga mín nær fram að ganga verður ekki farið í neitt óðagot heldur fá sveitarfélögin þrjú ár til þess að ná saman áður en félagsmálaráðuneytið gengur í málið. Styrking sveitarfélaga í stærri einingar má ekki ganga of hægt. Viö erum að tapa alls stað- ar í byggðamálum," segir hann. Hann segist hafa vitað að málið væri umdeilt og að stuðningur 'einhverra landsbyggðamanna væri í hættu. „Ég hef verið varaður við því að hrófla við málum af þessu tagi. En ef maður er svo mikill aum- ingi að þora ekki út í mál sem maður hefur trú á getur maður eins snúið sér að einhverju öðru en þingmennsku," segir Jóhann Ársælsson. -jtr „Páskahelgin er eftir og lokatöl- umar ráðast mjög af því hvemig aðsóknin veröur þá. Oft hefur um helmingur af gestafjölda í Hlíðar- fialli komið um páska og það velt- ur auðvitað mikið á hvernig veð- ur við fáum um páskana. Verði það gott og fiölmenni hér þá er ekki ólíklegt að veturinn verði metvetur í Hlíðarfialli," segir Guðmundur Karl. -gk DV-MYND BRINK Fjölmenni í Fjallinu Hópur nemenda og kennara frá Stykkishólmi voru í Hlíöarfjalli í gær og nutu bestu aóstæöna sem hægt er aö fá við skíöaiökun hér á landi. Stefnir í * i i Nissan deildin í handbolta menn þriðjudaeinn 20. mars kl. 20.00 X___ /_ _....._..__...- ..________ . _

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.