Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2001, Side 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001
Útlönd
Vefsíða barnaklámhringsins
Alþjóölegur barnaklámhringur, meö
bækistöövar í Rússlandi, hefur veriö
upprættur.
Níu handteknir
vegna barna-
kláms á Netinu
Níu manns í alþjóðlegum
barnaklámhring, sem rak starfsemi
sína frá íbúð í Rússlandi, hafa verið
handteknir. Bandarísk tollayfirvöld
greindu frá þessu í gær. Fylgst hafði
verið með starfsemi klámhringsins
í eitt ár áður en látið var til skarar
skríöa. Rannsókn á starfsemi klám-
hringsins fer einnig fram í Svíþjóð,
Danmörku og Hollandi.
Á myndböndunum, sem seld voru
á 200 til 300 dollara stykkið, var sýnt
kynferðislegt ofbeldi gagnvart ung-
um rússneskum drengjum. Flestir
drengjanna komu frá heimilum þar
sem aðstæður voru erfiðar eða
voru munaðarlausir.
T\ejr misjíft/'P
•vitlaasir
Laugardagur 31. mars
Bakkaijörður kl. 11.00
Laugardagur 31. mars
Raufarhöfn kl. 17.00
Sunnudagur 1. apríl
Þórshöfn kl. 14.00
Fermingar
Prentum á
fermingarservíettur.
Gylium á sálmabækur
og kerti.
Ýmsar gerðir af
servíettum fyrirliggjandi.
Hlíðarprent
Tryggvabraut 22,
Akureyri
Símar 462 3596
og 462 1456
Fermingar
Prentum á
fermingarservíettur
Gyllum á sálmabækur
og kerti
Margar gerðir af
servíettum fyrirliggjandi
nlprent
Glerárgötu 24-26
Akureyri
| ..s:.4.ö2rl.844. _[
r>v
Rússar hræddir viö gin- og klaufaveikina:
Innflutningur á
fiski bannaður
Rússnesk stjómvöld ákváðu í gær
að banna innflutning á fiski og sjáv-
arafurðum til að koma í veg fyrir að
gin- og klaufaveikin berist til Rúss-
lands. Að sögn sjónvarpsstöðvarinn-
ar TV2 nær innflutningsbannið til
fiskinnflutnings meðal annars frá
Noregi og Danmörku.
„Við reynum hvað við getum tO
að finna lausn á þessu,“ sagði
Christen Andre Mordal, sjávarút-
vegsráðunautur við norska. sendi-
ráðið í Moskvu, við norsku frétta-
stofuna NTB.
Norska sendiráðið fékk í gær til-
kynningu um innflutningsbannið
frá dýralæknisdeild rússneska land-
búnaðarráðuneytisins. Með fiski og
sjávarafurðum á lista Rússanna yfir
bannvöru em kjöt og kjötafurðir og
mjólk og mjólkurafurðir, svo og fóð-
ur.
Yfirvöld i Noregi vísa því alfarið
Beðiö förgunar
Dauöar rollur og nautgripir bíöa
þess aö vera fargaö á Bretlandi.
á bug að fiskar geti smitast af gin-
og klaufaveiki.
„Við vonum að þetta sé til komið
vegna misskilnings," sagði Bjorn
Berge, starfandi talsmaður norska
utanríkisráðuneytisins, við NTB.
Breska blaðið The Times greindi
frá því í morgun að gin- og klaufa-
veikifaraldurinn í Bretlandi megi
rekja til smyglaðs kjöts sem var
framreitt á kínverskum veitinga-
stað í norðaustanverðu Englandi.
Smituðu kjöti var smyglað til
Bretlands frá Austurlöndum fjær.
Afgangarnir frá veitingastaðnum,
sem ekki hefur verið nafngreindur,
fóru síðan í fóður handa svínum í
Norðymbralandi.
Upplýsingar þessar koma fram í
skýrslu sem Nick Brown, landbún-
aðarráðherra Bretlands, leggur
fram í neðri deild breska þingsins í
dag.
Sigra jafnaöarmanna fagnaö á óvenjulegan hátt
Eudolf Edlinger, fyrrum fjármálaráöherra Austurrikis, lét lita hluta hárs síns rauöan til aö fagna sigri jafnaöarmanna-
flokks hans í borgarstjórnarkosningunum í Vínarborg um helgina. Edlinger haföi lofað aö lita háriö á sér í flokkslitun-
um ef jafnaöarmenn fengju meira en 42 prósent atkvæöa og tvisvar sinnum meira en Frelsisflokkur hægriöfgamanns-
ins Jörgs Haiders. Kratar fengu 46,8 prósent atkvæöa en Frelsisflokkurinn 20,3 prósent.
Javier Solana í heimsókn til Tetovo:
Leitar pólitískrar lausnar
á átökunum í Makedóníu
Javier Solana, öryggismálastjóri
Evrópusambandsins, heimsótti í
morgun borgina Tetovo í Makedón-
íu þar sem stjórnarherinn hefur
barist við albanska skæruliða síð-
ustu daga og lýsti því yfir að hann
væri þangað kominn til að lýsa yfir
stuðningi sinum við makedónsku
þjóðina og til að leita að friðsam-
legri lausn.
„Mig langaði til að koma hingað
og sýna samstöðu Evrópusambands-
ins. Flestir ibúanna vilja frið og
vilja lifa í friði,“ sagði Solana við
fréttamenn.
Aðspurður hvort hann teldi að
átökunum væri lokið, sagðist hann
vona það en halda yrði áfram að
vinna að pólitískri lausn átakanna.
Solana or fýrstí háttseftl véstræhi
Solana í Skopje
Javier Solana, öryggismálastjóri
ESB, ræöir viö Boris Trajkovski
Makedóníuforseta í Skopje.
embættismaðurinn sem heimsækir
Tetovo síðan átök brutust út. milli
albanskra skæruliða og stjórnar-
hersins í hæðunum umhverfis borg-
ina.
George Robertson, framkvæmda-
stjóri NATO, og Solana ræddu í
tvær klukkustundir viö ráðamenn i
Makedóníu, þar á meðal við Boris
Trajkovski forseta, í höfuðborginni
Skopje seint í gærkvöld.
Robertson bar lof á stjórnarher
Makedóníu fyrir þá stillingu sem
hann sýndi í árás sinni á skæruliða
við Tetovo um helgina.
Makedónskir embættismenn
sögðu í gær að þorp uppreisnar-
manna og allar helstu stöðvar
þeirra hefðu fallið í áhlaupinu á
sunnudag.
Friöaður í eitt ár
Dómsmálaráð-
herra Serbíu, Vlad-
an Batic, fullyrti í
gær að alþjóða-
stríðsglæpadóm-
stóllinn í Haag
hefði samþykkt að
veita Júgóslavíu
frest í eitt ár til að
framselja Slobodan Milosevic, fyrr-
verandi forseta. Talsmaður dóm-
stólsins vísar þessu á bug. í gær
voru sjö fyrrverandi starfsmenn
Milosevics handteknir í Belgrad
vegna gruns um misnotkun valds.
Lestarslys í Belgíu
Að minnsta kosti fjórir týndu lífi
og tugir slösuðust í árekstri tveggja
járnbrautarlesta i sunnanverðri
Belgíu snemma í morgun.
Innrás í Noreg undirbúin
Á árunum 1971 til 1974 höfðu Sov-
étríkin samband við finnskan her-
foringja í því skyni að fá að stað-
setja sovéska hermenn í N-Finn-
landi. Sovétmenn vildu einnig fá að-
stoð við mögulega innrás í Noreg.
Þetta kemur fram í Stasiskjölum
sem fundust í Freiburg.
Kjarnorkuúrgangur
Mörg þúsund kjarnorkuandstæð-
ingar víða að úr Evrópu ætla í dag
að reyna að hindra för lestar með
kjarnorkuúrgang að geymslustöð-
inni í Gorleben í Þýskalandi. Lestin
kom frá Frakklandi í nótt.
Nýnasistum sleppt
Tveimur norskum nýnasistum,
sem gripnir voru um helgina, var
sleppt í gær. Mennimir em grunað-
ur um að breiða út kynþáttahatur.
Kjósendur hafna Mori
Mikill meirihluti
japanskra kjósenda
vill að Yoshiro
Mori forsætisráð-
herra segi strax af
sér, að þvi er ný
fylgiskönnun sýnir.
Leiðtogar flokks
Moris karpa enn
um hver eigi að verða eftirmaður
hans.
Forskot hægri minnkar
Samsteypustjórn mið- og vinstri
flokkanna á Italíu hefur saxað á for-
skot hægrimanna samkvæmt nýrri
könnun.
Munkur myrti nunnu
18 ára munkur hefur verið
ákærður í Miami-sýslu í Flórída fyr-
ir að hafa myrt nunnu sem hann
starfaði með í einkaskóla.
Uppstokkun í S-Kóreu
Forseti S-Kóreu,
Kim Dae jung,
skipti í gær út níu
af 20 ráðherrum
ríkisstj órnarinnar.
Litið er á uppstokk-
unina sem lið í að
hraða friðarferlinu
á Kóreuskaganum.
Drottningin ekki mikilvæg
Leynileg könnun, sem breska
konungsfjölskyldan pantaði, sýnir
að meirihluti Breta telur konung-
dæmiö ekki mikilvægt. Þetta kemur
fram í breska blaðinu Daily Mail
sem kveðst hafa séð niðurstöðu
könnunarinnar.