Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2001, Qupperneq 24
32
ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2001
HiiiSSMg
■ ■%#■■■■ VW'B
tölvui t*kni og vísinda
GameCube
á leiðinni
- Nintendo lofar byltingu
Nintendo er,
eins og flestir
vita, á leiðinni
með leikjavél-
ina GameCube.
Mikið hefur
verið spáð og
spekúlerað síðustu vikur í útgáfu-
dag leikjavélarinnar. Margt hefur
verið sagt og skrifað á Netinu og
ekki öllu treystandi eins og geng-
ur.
Nintendo hefur verið frekar
sparsamt á yfirlýsingar um málið
og hefur þögnin virkað eins og olía
á eld á sögusagnirnar. Nú hefur
Nintendo hins vegar loksins gefið
út yfirlýsingu um það hvenær
GameCube mun koma í hillur
verslanna í Bvrópu.
Dagsetningin sem Nintendo læt-
ur okkur neytendunum í té er vor
2002. GameCube mun birtast
nokkru fyrr í Japan, eða í júlí
næstkomandi, og síðan mun leikja-
vélin birtast í október í Bandaríkj-
unum.
Leikjavélin Game Boy Advance
er svo væntanleg þann 21. mars í
Japan og 11. júní í Bandaríkjun-
um. Nintendo hefur ekki gefið upp
neinar dagsetningar um það
hvenær Game Boy Advance birtist
i Evrópu.
Nintendo-fyrirtækið er ansi kok-
hraust þessa dagana og lét tals-
maður þess hafa það eftir sér að
GameCube eigi eftir að gjörbylta
tölvuleikjaheiminum. Það er bara
vonandi að Nintendo hafi rétt fyr-
ir sér og viti þá eitthvað sem við
hin vitum ekki.
Hann starir vongóður á GameCube en verður að bíða fram í júlí til að komast yfir eina vél.
Fox hættir við
- leikjaframleiðslu á Dreamcast
Afþreyingarfyr-
irtækið Fox
Interactive er
búið að vera
með í smíðum
ýmsa leiki,
byggða á sjón-
varpsþáttum fyrir Dreamcast-leikja-
vélina. Þar á meðal er leikurinn
Buffy the Vampire Slayer. Fox
Interactive eyddi á sinum tíma ansi
miklu púðri í að kynna þessa leiki
sína en það virðist allt hafa verið
unnið fyrir gýg. Nú hefur fyrirtæk-
ið ákveðið að fresta þessum leikjum
um óákveðinn tíma og virðist sem
það þýði einfaldlega að hætt hafi
verið við gerð þeirra.
Fox Interactive gaf engar alvöru-
ástæður fyrir liðhlaupi sínu en án
efa hefur ákvörðun Sega um að
hætta framleiðslu á Dreamcast-
leikjavélinni eitthvað með þetta að
gera.
Það er vonandi að ekki fylgi fleiri
fyrirtæki í fótspor Fox Interactive
þar sem eigendur Dreamcast-leikja-
véla eru ansi margir og vélin selst
eins og heitar lummur víðs vegar
um heim um þessar mundir.
Mikið selst af Dreamcast þessa dagana þar sem veröiö er afar hagstætt en
hins vegar veröur lítiö varið í aö eiga hana ef leikjaframleiöendur fara að
hætta framleiöslu ieikja á vélina.
Game Boy Advance:
Fullt af leikjum
Ekki er víst aö allir ieikirnir sem koma út í Japan komi út annars staðar eins og
venjulega gerist.
Game Boy
Advance
er væntan-
leg á
markað í
Japan á
næstu dög-
um. Fullt af leikjum kemur út
um leið og leikjavélin og er þar
eitthvað fyrir alla. Sumt af
leikjunum mun þó aldrei ná út
fyrir landsteina Japans enda
Japanar þekktir fyrir sérvisku
sína þegar kemur að tölvuleikj-
um.
Hér fylgir listi yfir þá leiki
sem koma út sama dag og
Game Boy Advance í Japan og
ætti hann að gefa einhverja
mynd af því hvers við Evrópu-
búar megum búast við þegar
röðin kemur að okkur:
Super Mario Advance, F-
Zero: Maximum Velocity,
Kuru Kuru Kururin, Napoleon,
Dodgeball Advance, Pocket GT
Advance, Mega Man EXE, EZ
Talk, Top Gear, All Japan GT,
Tweety and the Magical Jewel,
Castlevania: Circle of the
Moon, Konami Wai Wai
Racing, Golf Master, J-League
Pocket, Powerful Pro Kun Ba-
seball, Silent Hill Play Novel,
Monster Guardians, Dungeondice
Monsters, Fire Pro Wrestling A, Chu
Chu Rocket, I Am an Air Traffic
Controller, Mr. Driller 2, Pinobee:
Quest of Heart, Momotaro Festival
og Winning Post
Nóg af leikjum sem sagt og bara
vonandi að úrvalið verði eins gott
þegar röðin kemur að Evrópu.
'JuJyiÞ
: JiijJíjr
ÉtHMÉIMÍfeilHíNii
Packard Bell
BRÆÐURNIR
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.ls
Örgjörvi celeron 700
Móðurbord - Kubbasett Huston - i810e
Minni std/max 64/512
Flýtiminni | 128
Harður Diskur : 20 GB
Skjákort ámóðurborði
Kubbasett iSIOe
Skjáminni 4 Mb Share Dynamic
Skjár | 17”
CD-Rom /CD-RW* 48 x / 8 x*
3d-Hljóð í já
Fjöldi radda | 128
Faxmódem 56k. - V.90 Fax
Netkort 10/100
Vélbúnaður 1 ér
Simaaðstoð, v/hugbún j 3mán
Slmaaðstoð, v/vélbún 1 ár
Veglegur hugbúnaðarpakki fylgir
uppsettur á öllum Packard Bell tölvum
Tilvalin fyrir
heimilið og
skólann
verðfrá 116.900
með geislaskrifara kr. 134.900