Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 DV Fréttir Allt á suðupunkti í Járnblendiverksmiðjunni: Fimm verkstjórum sagt upp - verðum að lækka kostnað, segja stjórnendur „Við bjóðum þeim aðkomu að lækkuöum launum og þeir eru að hugsa málið,“ seg- ir Helgi Þórhalls- son, aðstoðarfram- kvæmdastjóri Járnhlendiverk- Helgi smiðjunnar á Þórhallsson. Grundartanga, en þar hefur fimm verkstjórum verið sagt upp. Starfsmenn segja allt á suðupunkti í verksmiðjunni og íhugi menn aðgerðir á vinnustað, verkstjórunum til stuðnings. „Ef menn ætla að grípa til aðgerða þá eru þær klárlega ólöglegar," segir aðstoðarframkvæmdastjórinn. Uppsagnir verkstjóranna fimm eru liður i ákveðnum breytingum á stjómun sem verið er að taka upp í Jámblendiverksmiðjunni og miöa að spamaði. Helgi Þórhalls- son segir verð á kísiljárni í sögu- legu lágmarki og því verði að lækka rekstrarkostnað verksmiðj- unnar á Grundartanga með öllum tiltækum ráðum. Uppsagnir verk- stjóranna séu liður í þeim spam- aði. Mikill hiti er í starfsmönnum vegna þessa og þá sérstaklega í ofnskálum þar sem unnið er allan Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga Reynt að spara - starfsmenn æfir. sólarhringinn og verkstjórarnir fimm hafa starfaö: „Ef menn ætla að valta svona yfir okkur þá lokum við einfaldlega verksmiðjunni," segja starfsmenn sem eru í stríðsskapi og virðast til alls líklegir. Þórður Björgvinsson aðaltrúnaðarmaður reynir þó að lægja öldurnar: „Þetta er ekki gott en það er lítið sem við getum gert skipulega. Þetta er bara svona,“ seg- ir Þórður og býst við að stjórnendur verksmiðjunnar hafi sitt fram. „Ég skil að mönnum hitni í hamsi en það er ekkert nýtt að við höfum þurft að fækka fólki hér vegna að- stæðna. I fyrra hættu sextán," segir Helgi Þórhallsson aðstoðarfram- kvæmdastjóri. -EIR Ákæra ríkissaksóknara í máli ungra manna í 8 kílóa amfetamínmáli: Áttu að fá 4 milljónir fyrir að senda efnin - einum gefið að sök að skipuleggja og útvega fé - tveimur að fara utan Þrír ungir menn, 21 árs Hafn- firðingur, 23 ára Reykvíkingur og 21 árs Seltirningur hafa verið ákærðir fyrir að hafa staðið sam- an að stórfelldum innflutningi á amfetamini, rúmum 8 kílóum, síð- asta sumar. Tveir þeirra hafa set- ið í gæsluvarðhaldi frá því í júlí en einum þeirra, meintum skipu- leggjanda, sem ávallt neitar sök, var sleppt úr haldi eftir að hafa setið inni í 8 vikur. Hinir tveir hafa þó sagt að hann hafi verið í vitorði með þeim. Reykvíkingnum er gefið að sök að hafa skipulagt innflutninginn, látið hinum í té farareyri til Amsterdam og Þýskalands og lof- að þeim greiðslu fyrir verkið og útvegað fé til kaupanna á efnun- um ytra. Þannig hafi verið ráðgert að kaupa efnin í Amsterdam og senda þau með hraðsendingu til íslands. Hinir tveir eru ákærðir fyrir að hafa fengið loforð um að fá 4 millj- ónir króna í þóknun fyrir feröina. Þeir hafi keypt efnin í Amster- dam, fengið þau þar afhent í tveimur hátölurum í kössum og flutt þá til Hamborgar, þar sem þeir sendu þá með hraðsendinga- þjónustu á nafn Hafnfirðingsins. Efnin fundust eftir að þau komu til landsins í vörugeymslu hrað- sendingarfyrirtækisins UPS við Héðinsgötu í Reykjavík. Miðað við magnið sem um er að ræöa er mál þetta eitt af þeim alvarlegustu sem upp hafa komið hér á landi. -Ótt Profin nalgast Þegar sólin hækkar á lofti fara landsmenn aö huga aö vorverkunum. Fólk er í óöaönn aö skipuleggia sumarfríiö eöa sumarvinnuna; sumir eru jafnvel farnir aö taka til í garöinum. Nemendur í framhaldsskólunum eru aftur á móti niöur- sokknir í lestur og fá víst ekki tækifæri til aö njóta vorsins og sólarinnar fyrr en eftir próf. Veftríö í kvöjd 8 ,-V. /8 0 REYKJAVIK AKUREYRI Solarlng í kvöld 20.47 1S.57 Sólarupprás á morgun 06.10 07.46 Síödegisflóð 20.10 00.43 Árdegisflóð á morgun 08.28 13.01 Skýrihgjar á veaurtiáíntum J^VINDÁTT 104-“II 15) ino Frost um allt land í nótt Norðaustlæg átt, 5 til 8 m/s. Snjókoma eöa él austan til, él á norðanveröu landinu en léttskýjaö suövestan til. Hiti 0 til 4 stig sunnan frost 1 til 5 stig á Norðurlandi í dag. Dálítil él norðan til en léttskýjaö sunnanlands og frost 2 til 9 stig í nótt. xm Góð færft á Suðurlandi Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er ágæt færö um nágrenni Reykjavíkur, um Borgarfjörö og Suöurland. í morgun var unniö aö því aö hreinsa vegi á Vestfjörðum, Noröurlandi, Noröausturlandi og á Austfjöröum. Hálkublettir eru á fjallvegum. VINDSTYRKUR í metruin á soköndu ' Nfrost hsbskírt o 10 LÉTTSKÝJAD HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ iQ. %í Ía'Í RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA “í? ÉUAGANGUR PRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR POKA [ZZlSNJÓR mm ÞUNGFÆRT NÁLT ■WÓFÆRT iBKSEtaKEJISl Léttskýjað á norftanverðu landinu Austanátt, 8 til 13 m/s og smáskúrir allra syðst en annars hægari og skýjaö á sunnanveröu landinu en léttskýjaö noröan til. Hiti 1 til 5 stig á Suövesturlandi en frost 1 til 5 stig annars staöar. rimmtllihjgjJJ Suðaustan 10 tii 15 m/s, rlgnlng og hltl 1 til 6 stlg á Suður- og Vesturlandl en hæg sunnanátt, léttskýjaö og vægt frost norðaustan tll. Fremur hæg suðlæg eða breytlleg átt, skúrir og rlgning og hitl 2 til 7 stlg. Norðanátt, víða 8 tll 13 m/s. Éljagangur eða snjókoma og vægt frost noröan tll en skýjaö með köflum og hltl 1 tll 6 stlg á sunnanverðu landlnu. DV-MYND GUNNAR KRISTJÁNSSON Heimkoman Við komu Valdimars til hafnar í Grundar- firöi. Viö stýrishúsið standa, talið frá vinstri: Björgvin Lárusson, Siguröur Ólaf- ur Þorvarðarson, Guömundur Reynisson og Jóhannes Þorvaröarson. Valdimar SH 106 til Grundarfjarðar DV, GRUNDARFIRDI: ________ I gær kom til hafnar í Grundar- firði Valdimar SH 106, sem er 50 tonna eikarbátur, smíðaður í Stykk- ishólmi 1977, og er síðasti eikarbát- urinn sem þar var smíðaður. Hann er með 480 hestafla Caterpillar-vél, árgerð 1991. Útgerðarfélagið Sæból mun gera bátinn út en að því standa bræðumir Sigurður, Ólafur og Jó- hannes Þorvarðarsynir, Björgvin Lárusson og Guðmundur Reynis- son. Valdimar mun fara á rækju- veiðar til að byrja með en síðan er áformað að fara á net. -DVÓ/SHG Skógasandur: Flugvél hlekktist á við lendingu Lítilli eins hreyfils einkaflugvél hlekktist á við lendingu á Skóga- sandi um klukkan 11 á sunnudags- morguninn. Að sögn lögreglunnar í Rangárvallasýslu rak vélin skrúf- una niður í gljúpan sandinn þegar flugmaðurinn var að snúa henni eft- ir lendinguna. Flugvélin, sem er af gerðinni Cessna, skemmdist á skrúfublaði en flugmanninn, sem var einn á ferð, sakaði ekki. -SMK Innbrot í Breiðholti: Par handtekið meft þýfi Lögreglan í Hafnarflrði handtók par á sunnudagskvöldið, grunað um innbrot í heimahús í Breiðholti á sunnudagskvöld. Þjófarnir komust undan með töluverð verðmæti úr húsinu. Þýflð fannst i bifreið fólksins, auk meintra flkniefna og tækja til fikniefnaneyslu. Fólkið var fært í fangageymslur lögreglunnar í Hafnar- flrði sem fer með rannsókn málsins. Auk þessa stöðvaði lögreglan í Hafnarfirði tvo menn á ferð í bifreið á Garðavegi aðfaranótt mánudagsins. Við leit á mönnunum og í bifreiðinni fundust meint flkniefni og tæki til neyslu þeirra. Jafnframt kom í ljós að hvorugur mannanna hafði réttindi til aksturs bifreiðarinnar. -SMK AKUREYRI snjókoma BERGSSTAÐIR úrkoma BOLUNGARVÍK skýjaö EGILSSTAÐIR KIRKJUBÆJARKL. snjókoma KEFLAVÍK skýjaö RAUFARHÖFN snjóél REYKJAVÍK léttskýjaö STÓRHÖFÐI úrkoma -5 ■4 -5 -6 0 -2 -7 -2 1 BERGEN rigning 3 HELSINKI léttskýjaö 3 KAUPMANNAHÖFN skýjaö 4 ÓSLÓ skýjaö 1 STOKKHÓLMUR 1 ÞÓRSHÖFN skúrir 3 ÞRÁNDHEIMUR léttskýjaö O ALGARVE léttskýjaö 18 AMSTERDAM skúrir 9 BARCELONA skýjaö 10 BERLÍN alskýjaö 5 CHICAGO alskýjaö 8 DUBLIN skýjaö 8 HALIFAX frostúöi 0 FRANKFURT rigning 9 HAMBORG skýjaö 8 JAN MAYEN snjóél -10 LONDON skúrir 8 LÚXEMBORG rigning 7 MALLORCA þoka 8 MONTREAL alskýjaö 5 NARSSARSSUAQ heiöskírt 9 NEW YORK súld 9 ORLANDO skýjaö 21 PARÍS rigning 9 VÍN skýjaö 5 WASHINGTON alskýjaö 18 WINNIPEG þoka 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.