Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Blaðsíða 13
13
ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001________________________________________________________________________________________________
PV_______________________ Útlönd
Bresku forsætisráðherrahjónin:
Vildu ekki sitja til
borðs með Sophie
Cherie og Tony Blair, forsætis-
ráöherrahjón Bretlands, eru sögð
hafa tilkynnt að þau kæmust ekki í
kvöldverðarboð þar sem þau áttu að
sitja til borðs með Sophie Rhys-Jo-
nes, greifynju af Wessex, og eigin-
manni hennar Játvarði prinsi. Full-
yrt var að Cherie og Tony hefðu átt
að sitja til borðs með Sophie og Ját-
varði.
Allt er nú á öðrum endanum í
Bretlandi vegna ummæla Sophie
um stjórnmálamenn, bresku kon-
ungsfjölskylduna og hvernig hún
notaði tengslin við fjölskylduna al-
mannatengslafyrirtæki sínu til
framdráttar. Ummælin lét Sophie
falla við blaðamann sem var dulbú-
inn sem arabískur fursti.
Andstæðingar konungdæmisins
hafa fengið vind í seglin. Þekktir
róttæklingar eins og þingmennirnir
Tony Benn og Jeremyn Corbyn
Við opinber skyldustörf
Þrátt fyrir allt fjaörafokiö hafa Sophie og Játvaröur prins oröiö aö sinna opin-
berum skyidustörfum undanfarna daga.
segja tíma til kominn að Bretar
kjósi sér þjóðhöfðingja. Ekkert þyk-
ir þó benda til dramatískra breyt-
inga í náinn framtíð. Tony Blair for-
sætisráðherra vill alls ekki heitar
umræður um framtíð konungdæm-
isins í upphafi kosningabaráttunn-
ar.
Flestir stjórnmálaskýrendur í
Bretlandi segja að ummæli Sophie
hafi í raun verið í sama dúr og aðr-
ar yfirstéttarkonur segja. Það þykir
hins vegar alvarlegra fyrir Elísa-
betu drottningu að tengdadóttir
hennar skuli hafa viðurkennt í við-
tali við „arabíska furstann" að hún
notfærði sér stöðu sína i starfinu.
Breska blaðið The Guardian ráð-
leggur Sophie að fá sér annaðhvort
starf innan heilbrigðisgeirans eða í
menningargeiranum. Vilji hún
standa á eigin fótum verði hún að
afsala sér titlum og forréttindum.
Svíþjóð:
Nautgripir ekki
sýktir af gin- og
klaufaveikinni
Grunur um að gin- og klaufaveik-
in hefði stungið sér niður á naut-
gripabú nærri Stokkhólmi reyndist
ekki á rökum reistur.
Sænsk yfirvöld höfðu einangram
bóndabæ nærri Osthammar, um 120
kilómetra norður af Stokkhólmi, eft-
ir að dýralæknir var kallaður til að
skoða veikan kálf. Hann reyndist
svo ekki hafa fengið gin- og klaufa-
veiki.
Nú er hafin áttunda vikan frá því
gin- og klaufaveikifaraldursins varð
vart í Bretlandi. Þar hafa menn enn
áhyggjur af því að sjúkdómurinn
breiðist stjórnlaust út.
Sjúkdómurinn hefur borist til
þriggja annarra Evrópulanda, ír-
lands, Frakklands og Hollands, þar
sem óeirðalögregla beitti háþrýsti-
vatnsdælum gegn hundruðum
bænda sem stóðu fyrir mótmælaað-
gerðum.
Bændurnir höfðu lokað öllum
leiðum að og frá litlu þorpi í mið-
hluta Hollands til að mótmæla því
að heilbrigðum dýrum væri slátrað
í baráttunni gegn sjúkdóminum.
Landbúnaðarráðherrar Evrópu-
sambandsins hittust í Östersund i
Svíþjóð þar sem þeir ræddu meðal
annars um bólusetningu sem aðferð
í baráttunni gegn faraldrinum.
Hollenskir bændur í vígahug
Reiöir hollenskir bændur, vopnaöir járnstöngum og lurkum, komu sér fyrir í skóflu vélgröfu viö þorpiö Kootwijkerbroek
í miöhluta Hollands í gær. Bændurnir iokuöu öllum leiöum aö og frá þorpinu til aö mótmæla þeim fyrirætlunum
stjórnvalda aö slátra heilþrigöum skeþnum í baráttunni gegn gin- og klaufaveikinni.
Gefst ekki upp
Francesco Rutelli hyggst ekki gefast
uþp þótt auöjöfrinum og hægri
manninum Berlusconi sé spáö sigri.
Ítalíuforseti
stillir til friðar
Forseti Ítalíu, Carlo Azeglio Ci-
ampi, kallaði nýlega forsætisráð-
herraframbjóðendurna Silvio
Berlusconi og Francesco Rutelli á
sinn fund í forsetahöllinni. Bað for-
setinn keppinautana að hætta per-
sónulegum árásum í baráttunni fyr-
ir kosningarnar í næsta mánuði og
reyna i staðinn að einbeita sér að
stjórnmálum. Berlusconi, sem er i
framboði fyrir bandalag mið- og
hægri manna, var í þætti í ítalska
ríkissjónvarpinu sakaður um
tengsl við mafiuna og spillingu.
Sjálfur sakar Berlusconi stjórnar-
flokkana um að hafa komið sinum
eigin mönnum fyrir í toppstöðum
hjá hinu opinbera. Hann fullyrðir
einnig að flestir dómarar séu tengd-
ir flokkum á vinstri vængnum.
Mannæta búin að
gefa sig fram
Filippseyingurinn Norberto
Manero, sem flýði úr fangelsi í far-
angursgeymslu bíls konu sinnar í
mars síðastliðnum, hefur gefið sig
fram viö lögreglu. Manero var
ásamt tveimur bræðra sinna og fjór-
um öðrum dæmdur 1987 fyrir dráp á
ítölskum presti og fyrir að hafa lagt
heila hans sér til munns. Manero
var félagi 1 vígasveitum, hliðhollum
stjórnvöldum í Manila, sem börðust
gegn skæruliðum í suðurhluta
landsins.
Ekki gott að vera venslaður Milosevics þessa dagana:
Eiginkona og dóttir gerðar
afturreka úr heimabænum
Eiginkona og dóttir Slobodans
Milosevics, fyrrum Júgóslavíufor-
seta, voru gerðar afturreka úr
heimabæ fjölskyldunnar á dögunum
og þar voru að verki menn úr fyrr-
um stjómarandstöðu landsins.
„Við höfum rekið Mirjönu
Markovic og dóttur hennar Mariju
frá Pozarevac vegna þess að fjöl-
skyldan öll er ekki velkomin í bæ
okkar,“ sagði Momcilo Veljkovic, fé-
lagi í námsmannahreyfingunni
Optor í austurhluta Serbíu, í viðtali
við fréttamann Reuters.
Marija Milosevic, sem sætir nú
rannsókn lögreglunnar fyrir að hafa
skotiö úr skammbyssu þegar faðir
hennar var handtekinn og fluttur
frá íbúðarhúsi sínu í Belgrad í apr-
ílbyrjun, kom til Pozarevac í svört-
um BMW á fimmtudag í síðustu
í heimsókn hjá bóndanum
Mirjana Markovic á leiö úr fangels-
inu þar sem hún heimsótti eigin-
mann sinn, Slobodan Milosevic.
viku. Hún var í fylgd nokkurra ann-
arra bíla.
Eftir að eiginkona Milosevics
kom í fjölskylduvilluna á fóstudag
bankaði Veljkovic upp á og til-
kynnti öryggisvörðunum að Otpor
myndi efna til mótmælaaðgerða ef
hún hefði sig ekki á brott.
Konurnar hurfu á brott úr bæn-
um hálfri klukkustund síðar, að
sögn sjónarvotta.
Talið er að mæðgumar hafi fariö
aftur til Belgrad og haldi til þar.
Áður er mæðgumar fóm burt frá
Pozarevac á fostudag sáu frétta-
menn óeinkennisklædda lögreglu-
þjóna gæta hússins en lögregluþjón-
ar í búningi komu í veg fyrir að
nokkur gæti nálgast það. Frétta-
mönnum var skipað að hafa sig á
brott frá staðnum.
Eigum allar stærðir á lager!!!
Einnig hestakerrur og bilakerrur.
Stærst: 230 sm x 135 sm
borðhæð 45 sm.
Burður 1.000 kfl.
Vorð: 167.700,-
Minnst: 110 sm x 90 sm
borðhæð 38 sm
Burðun 350 Kg.
Verð kr. 33.500
EVRÓ
Grensásvegi 3 (Skeifumegin)
Reykjavík • s: 533 1414
/ öllum stærðum!