Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Blaðsíða 8
8 Tilboðsverð Fjöldi bifreiða á skrá og á staðnum Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut Kopavogi, simi 567-1800 Löggild bílasaia Toyota Corolla Luna '98, ek. 75 þús. km, 5 g., rafdr. rúður, þjófavörn, álfelgur, topplúga o.fl. Verð 990 þús. Einnig: Toyota Corolla Luna '98, ek. 59 þús. km, 5 g., rafdr. rúður, fjarst. samlaes. o.fl. 100% bílalán. Verð 990 þús. Renault Laguna rt 2,0 I '96, ek. 75 þús. km, rafdr. rúður, samlæs., álfelgur, 100% bilalán. Verð 990 þús. Toyota Yaris Terra '99, ek. 57 þús. km, bílalán 470 þ. Verð 770 þús. Subaru Legacy '97, ek. 75 þús. km, bílalán 1120 þús. Verð 1.250 þús. Toyota LandCrusier MPW TD '95, ek. 77 þús. km, 33’ álfelgur, þungaskattsmælir o.fl. Verð 1.690 þús. Ford Transit 150 T. dfsil, árg. 2000, ek. 0 km, bílalán 1.590 þús. Verð 2.390 þús. Peugeot 306 Symbio '98, ek. 49 þús. km, 5 g., rafdr. rúður, fjarst. samlæs., álfeigur, 2x spoiler o.fl. Verð 990 þús. ÚTSALA 890 þús. MMC Pajero TDI '98, ek. 105 þús. km, 5 g., rafdr. rúður, samlæs., álfelgur o.fl. Verð 2.090 þús. ÚTSALA 1.890 þús. VW Golf Comfortline 1,6 st. , árg. 2001, ek. 0 þús. km, ssk., allt rafdr., álfelgur, sumardekk á felgum o.fl. Verð á nýjum bíl 1820 þús. en verð á þessum er 1.780 þús. VW BORA Comfortl. '99, ek. 25 þús. km, 5 g„ rauður, álfelgur, rafdr. rúður., fjarst. samlæs. o.fl. Verð 1.440 þús. Útsala 1.390 þús. ____________________________________________________________________________________ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 Fréttir X>V Sláturhúsamál á Hólmavík í brennidepli: Goði heldur á lyklun- um að framtíð byggðar - telja bændur sem líst illa á ef hætt verður slátrun DV, HÓLMAVlK: „Þið haldið á lyklunum að fram- tíð þessarar byggðar," voru orð eins fundarmanns á allíjölmennum fundi sem fyrirtækið Goði hf. hélt í Sævangi nýverið. Gerð var grein fyrir afkomu og sölu- og markaðs- horfur kynntar. Farið var yfir nokkra þætti endurskipulagningar sem unnið er að með VSÓ Ráðgjöf, auk margs annars. Bændum á fundinum, sem þó báru ekki allir mikið lof á fyrirtæk- ið og töluðu jafnvel um viðskiptaó- vild sem fyrirtækið hefði aflað sér, m.a. vegna villandi afreikninga, leist miður vel á ef afráðið verður að hætta slátrun á Hólmavík en sláturhúsið er óhentugt og uppfyllir ekki lengur kröfur sem nú eru gerð- ar um frágang og búnað. Það þarfn- ast því endurbóta verði slátrun þar haldið áfram. Sláturhús þetta er það eina sem tilheyrir Goða á Vest- fjarðasvæðinu. Á síðasta hausti var tæplega 16 þúsund fjár slátrað þar og fallþungi var þar sá hæsti á land- inu 17,61 kíló. Nýr framkvæmdastjóri Goða, Kristinn Þór Geirsson, sagði afkomu- horfur fyrir þetta ár miður góðar en reiknað væri með afkomubata og að hagnaður yrði á næsta ári. Kæmi þar fleira en eitt til, t.d. væri verið að vinna að því að kjötvinnsla yrði á einum stað, sem telst hagkvæmt, og skipulagsbreytingar aðrar stæðu fyr- ir dyrum, sem yrðu kynntar þegar lengra kæmi fram á árið. Bændur vildu gjalda varhug við hagkvæmni stærðarinnar og bentu á einingar, kaupfélög í nágrenninu sem væru með sláturhús og skiluðu viðunandi afkomu. Starfræksla slát- urhúss á þessu svæði væri einnig og ekki síður mikilvæg og nauðsyn- leg fyrir þær sakir að Strandasýsla er án allra búfjársjúkdóma, en það hefur ekki síst hefur gert búsetu á þessu svæði varanlega og búskap nokkuð afkomutryggan. -GF Áhyggjufullir Strandamenn Bændur á Ströndum óttast afleiöing- ar þess fyrir byggö ef hætt veröur aö slátra á Hólmavík. íslandsbanki - FBA: Arðgreiðsla til látins manns - sem andaðist fyrir um það bil 40 árum „Þetta eru að sjálfsögðu mistök," sagði Þorgils Óttar Mathiesen hjá Íslandsbanka-FBA um ávísun sem bankinn sendi í vikunni til einstak- lings sem lést fyrir um 40 árum. í bréfl sem fylgdi ávísuninni sagði, að meðfylgjandi væri arður af hluta- fjáreign viðkomandi einstaklings. Bréfið ásamt ávisuninni var sent á heimiisfang á Sauðárkróki, þar sem hann átti lögheimili fyrir margt löngu. Ekki var um háa upphæð að ræða, 672 krónur, en ávísunin tvíyf- irstrikuð og stíluð á hinn látna. Þorgils Óttar sagði að nýlega hefðu verið sendar arðgreiðslur til hluthafa Íslandsbanka-FBA sem séu um 13.400. Hlutabréf í bankanum hefðu verið rafvædd í október 2000 og væru nú skráð hjá Verðbréfa- skráningu íslands. Sérstök nafna- skrá væri þó til þar sem haldið væri utan um nöfn hluthafa sem vildu láta senda arðgreiðslur annað en skráð væri í þjóðskrá. Meðal þeirra væru nöfn látinna einstaklinga og arður sendur á skráð dánarbú. „Ekki er að fullu Ijóst hvað hefur gerst í þessu umrædda tilviki en þessi einstaklingur var hluthafi í einum af forverum íslandsbanka hf. og þar með var nafn hans skráð í hlutaskrá bankans við sameining- una árið 1990, þrátt fyrir að hann Íslandsbanka-FBA Sendi fyrir mistök arögreiöslur til löngu látins manns. væri látinn,“ sagði Þorgils Óttar. „Erfingjar virðast ekki hafa komið fram. í slíkum tilfellum reynir bankinn að hafa uppi á erfingjum en það tekst ekki alltaf og er eign og arður þá geymdur áfram á nafni hins látna. Við rafræna skráningu hlutabréfa i bankanum á síðasta ári virðist svo sem nýtt heimilisfang hafi komið inn á nafn þessa látna manns og því barst arðgreiöslan til Sauðárkróks. Þó lögð sé mikil áhersla á að hafa skráningar í hlutaskrá réttar er alltaf eitthvað um að arðgreiðslur séu endursend- ar vegna rangra heimilisfanga. En við fógnum þvi ef þetta verður til þess að erfingjar látna mannsins geti nú vitjað arðgreiðslunnar." -JSS Hrein sýn Eitt afþví sem menn sjá greinilega þegar sólin hækkar á lofti oggeislar hennar skína inn um gluggann er hversu óhreinir gluggarnir eru og hvaö mik- iö ryk hefur safnast fyrir inni í húsum yfir veturinn. Voriö er því besti tíminn til aö gera hreint, ekki síst aö þrífa gluggana og hleypa sólinni inn. Fólskulega líkamsárás á sambýliskonu: Situr mánuð í fangelsi DV, AKRANESI:____________________ Héraðsdómur Vesturlands dæmdi nýlega karlmann frá Akra- nesi í eins mánaðar fangelsi fyrir líkamsárás og greiðslu alls sakar- kostnaðar. Manninum var í þessu máli gefið að sök að hafa tekið hálstaki sam- býliskonu sína og slegið hana nokk- ur hnefahögg í andlit á heimili þeirra. Konan hlaut mar og bólgur víða I andliti og á vinstra eyra, sprungna neðri vör og mar framan- vert á hálsi. Atburðurinn átti sér stað aðfara- nótt sunnudagsins 12. nóvember 2000. Kona á Akranesi hringdi i lög- reglu og óskaði aðstoðar vegna lík- amsárásar á vinkonu hennar. Tveir lögreglumenn komu þar að sem konan sat við eldhúsborð. „Greinilegt var að hún hafði margsinnis verið barin í andlitið og voru miklir áverkar sjáanlegir á andliti og hálsi," segir í skýrslu lög- reglunnar. Fram kemur í sakavottorði að ákærða hefur á tímabilinu 1990 til 1998 sex sinnum verið refsað, í öll skiptin fyrir brot á umferðarlögum. í fjögur skipti er þar um að ræða ölvunarakstur, en ákærði var í september 1996 dæmdur í 2 mánaða fangelsi fyrir ölvunarakstur og sviptingarakstur. Af gögnum máls má sjá að árás ákærða á sambýliskonu sína og bamsmóður hefur verið fólskuleg og skaðvænleg, þótt afleiðingarnar hafi ekki orðið alvarlegar, segir i dóminum. Ákærði hefur ekkert sér til málsbóta. Að þessu athuguðu og enn fremur því aö ákærði hefur ekki fyrr gerst sekur um ofbeldis- brot, þykir dómara refsing hans hæfilega ákveðin eins mánaðar fangelsi. Finnur Torfi Hjörleifsson dæmdi. -DVÓ Nektarstaöur í Reykjavík: Vildu fá lengri þjónustu Tveir karlmenn kvörtuðu við lög- regluna í Reykjavík undan þjónustu á veitingastað í miðbæ Reykjavíkur, auk framkomu starfsfólks við þá. Á heimasíðu lögreglunnar kemur fram að mennimir höfðu greitt veit- ingastaðnum ákveðna upphæö og töldu sig eiga aö fá kampavín og léttklæddar konur í staðinn. „Þótti þeim þjónustan standa stutt og lögðu fram kvörtun þess efnis við starfsfólk," segir á heima- síðunni. Kvörtunin mætti litlum undirtektum starfsfólks staðarins, því mönnunum var hent út af staðn- um. Ekki kemur fram hversu háa upphæð mennirnir greiddu. -SMK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.