Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Blaðsíða 27
r ÞRIÐJUDAGUR 10. APRlL 2001 35 DV Tilvera Steven Seagal 50 ára Hasarmyndaleikar- inn Steven Seagal verö- ur fimmtugur í dag. Seagal var unglingur þegar hann fékk áhuga á sjálfsvarnaríþróttum og tvítugur fór hann til Japans og kom ekki aftur til Bandaríkjanna fyrr en árið 1987 og setti þá á stofn skóla. Fljótlega eftir það fór hann að leika í kvikmynd- um og var það myndin Above the Law sem kom honum á landakortið í Hollywood. Um tima voru myndir Seagals vinsælar en nýir kappar á borð við Jackie Chan hafa gert það að verk- um að vinsældir hans hafa dalað. Gildlr fyrir miövikudaginn 11. apríl Vatnsberinn (90. ian.-ia. fehr.l: I Þú ættir að taka þér tak, hreyfa þig meira og reyna að fylgjast dá- lltið betur með. Hlust- aðu á eigin dómgreind og ekki láta aðra hafa of mikil áhrif á þig. Fiskarnir (19. febr.-20. marsl: Róttækar breytingar virð- last vera fram undan hjá þér. Þær verða þó ekki al- veg strax en betra er að vera vel undirbúinn. Breytingamar munu er ffam í sækir vera til góðs. Hrúturinn (21. mars-19. apríli: . Vinir þinir koma þér ' ánægjulega á óvart í kvöld. Þú ert léttur og kát- ur þessa dagana og flnnst gaman að vera til. Láttu draumana ræt- ast og gerðu það sem þig langar til. Nautið (?Q. anril-?Q. mai>r Þér fmnast hefðbundin . verkeihi orðin þreytandi og langar að breyta til. Ekkert kemur af sjálfu sér en með dugnaði mun þér takast að ráöa fram úr spennandi og verkefnum. Tvíbufarnir (91. maí-21. iúní): V Farðu eftir þeim fyrir- y^^mælum sem þú færð. —// Það auðveldar þér að komast fram úr því sem þú ert að gera. Happatölur þínar eru 4, 8 og 26. Krabbinn (22. iúní-22. íúiíu Þér finnst eins og allir | séu á móti þér en það er misskilningur. Reyndu að líta á björtu hliðamar, þá gengur allt betur. Liónið (23. iúlí- 22. ágústl: i Vinur þinn er eitthvað miður sín. Hann treystir aðallega á þig og þú skalt ekki bregð- ast trausti hans. Kvöldið verður óvenjulega skemmtilegt. Mevian (73. áeúst-22. sept.l: Gerðu eitthvað fyrir sjálfan þig en það er »nokkuð sem þú vilt oft og tfðum gleyma. Þig hendir eitthvert happ síðdegis og það á eftir að breyta heilmiklu hjá þér. Vogin (23. sept.-23. okt.): J Gerðu ekkert vanhugs- Oy að. Nú er ekki hag- stæður tími til að / f stunda viðskipti og þú skalt því láta þau bíða betri tíma. Sporðdreki (24. okt.-21. nóv.l: Stjörnumar era þér mjög hagstæðar mn ^þessar mundir og er |sjálfsagt að nýta sér það. Einhverra breytinga er að vænta í vinnunni hjá þér. Bogamaður (22. nóv.-21. des.i: ■Leggðu þig fram við það sem þú ert að fást við, þá nærðu miklu betri árangri. Horfðu bjartsýnum augum á lífið. Steingeitin (22. des.-i9. ian.): ^ _ Lánið leikur við þig í dag og þú ert fullur 'ZJr\ bjartsýni. Þess vegna er upplagt að fást við framkvæmdir sem hafa setið á hakanum. Fegurð á Norðurlandi Fegurðarsamkeppni Norðurlands var haldin í Sjallanum á föstudagskvöldiö. Sonja Rut Aðalsteinsdóttir var kosin fegurðar- drottning Norðurlands árið 2001. íris Eyjólfsdóttir lenti í öðru sæti og var hún einnig kosin Ijósmyndafyrirsæta kvöldsins. í þriðja sæti lentu þær Sigríður Þóra Eiösdóttir og Elsa Karen Kristinsdóttlr sem kosin var sportstúlka Norðuriands. Kvennasigur á raðmóti Snæfellings DV, GRUNDARFIRDI:______ Þær Kolbrún Grét- arsdóttir og Vigdís Gunnarsdóttir, Grund- arfírði, voru í tveimur efstu sætunum í B- flokki og í tölti á öðru vetrar-raðmóti Snæfell- ings sem haldið var á Hellissandi fyrir stuttu. í báðum flokkum var Kolbrún í 1. sæti á Ófeigi frá Galtamesi og Vigdís í 2. sæti á Jarl- hettu frá Neðra-Ási. Lárus Hannesson, Stykkishólmi, á Geysi frá Njarðvikum, var í þriðja sæti bæði í tölti og B-flokki. í bama- flokki vom það DV-MYND GUNNAR KRISTJÁNSSON Slgursæl Frá vinstri eru þau Lárus Flannesson, Stykkishólmi, á Geysi frá Njarðvíkum, Vigdís Gunnarsdóttir og Kolbrún Grétarsdóttir sem vann tvo sigra á Ófeigi frá Galtarnesi. frænkumar úr Grundarfirði, Eva Kristín Kristjánsdótt- ir á Pjakk frá Hvoh og Vilborg Sæmundar- dóttir á Bergdísi frá Bergi. Það var ekki fyrr en komið var að A-flokkskeppni sem kvennaveldinu var hnekkt en þar sigraði Guðmundur Ólafsson á hryssunni Dögg frá Ólafsvík. Glampandi sól var og stilla en nokkurð frost meðan á móti stóð. Þátttaka var góð i fullorðins- flokkum en slakari í yngri flokkunum. -DVÓ Aðeins tvær milljónir eftir Tiger Lily, 4 ára dóttir sjónvarpskonunnar Paulu Yates og söngvarans Michaels Hutchences, fær ekki nema tæpar 2 milljón- ir íslenskra króna í arf eft- ir móður sína. Þegar Paula lést í september síð- astliðnum af völdum of stórs skammts fíkniefna var hús hennar og aðrar eignir metið á um 100 milljónir króna. Þegar allar skuldir höfðu verið greiddar voru ekki nema tæpar 2 milljónir króna eftir, samkvæmt frásögn blaðsins The Sun. Blaðið hefur það eftir ónafngreindum vinum Paulu að hún hafi arfleitt Tiger litlu að eigum sínum þar sem hún hafi vitað að Bob Geldof, fyrrverandi eiginmaður hennar, myndi sjá fyrir hinum dætrum hennar. Paula átti þrjár dætur með Geldof. Paula vildi aldrei viðurkenna að Michael, sem hún sagði stóru ástina í lífi sínu, hefði svipt sig lífi. Hann fannst látinn á hótelherbergi 1997. I hörkurifrildi við kærastann Spenna ríkir nú í sambandi söng- konunnar Kylie Minogue og kærasta hennar, fyrirsætunnar James Gooding. Parið er sagt hafa rifist heiftarlega opinberlega eftir siðustu tónleika Kylie á nýlegu söngferðalagi. James mun hafa skammað verðina sem vildu ekki hleypa honum inn þar sem hann hafði ekki passa mikilmenna. Kylie reiddist og fór ein heim. Kærastinn neyddist því til að koma sér sjálfur heim í leigubíl, að því er erlend slúðurblöð greina frá. » : i Hristi Albert prins af sér Þegar Albert prins af Mónakó greip um beran handlegg Viktoríu Svíaprinsessu í veislu hjá hertogan- um af Lúxemborg vék hún sér und- an. Ljósmyndarar á staðnum voru vel vakandi og festu atburðinn á filmu. Þeir sáu hvernig prinsessan kippti pirruð að sér handleggnum. Hún setti þó fljótlega upp bros og smeygði handleggnum undir arm prinsins, sem var vandræðalegur, og bjargaði þar með málinu sem var orðið talsvert pínlegt. Greinilegt var að hún sætti sig ekki við káf prins- ins sem sagður er vera hinn mesti kvennabósi. Viktoría vakti mikla athygli ljós- myndaranna á svæðinu enda var prinsessan glæsileg í rauðleitum síðum kjól. Réöst bálreiöur á bílstjóra Kvikmyndaleik- arinn Hugh Grant leynir á sér. Hann er alls ekki jafn yf- irvegaður og hann lítur út fyrir að vera. íviðtali við tímaritið Heat greinir hann frá því að hann hafi í æðiskasti rifið vinnukonurnar af bíl sem rekist hafði á hans eigin bíl. Hugh kveðst hafa þotið út úr sínum bil og ráðist á hinn bílinn. Eftir að hafa steytt skapi sínu á þurrkunum róaðist leikarinn. Hann segist hafa borgað skaðabætur fyrir skemmdirn- ar seinna. Ball í Gúttó eftir Maju Árdal Frumsýning Uppselt 2. sýning fimmtud. 12. apríl kl. 20:00 Næstu sýningardagar laugardagur 14. apríl kl. 20:00 Annar í páskum kl. 20:00 Leikstjóri Maja Árdal Þýðing Valgeir Skagfjörð, Leikmynd og búningar Helga Rún Pálsdóttir, Ljósahönnun Alfreð Sturla Böðvarsson, Tónlistarstjórn Valgeir Skagfjörð, Dansar: Jóhann Gunnar Arnarsson. Leikarar: Hinrik Hoe Haraldsson, Saga Jónsdóttir, Sigríður E. Friðriksdóttir, Skúli Gautason, Þóranna K. Jónsdóttir og Þorsteinn Bachmann Dansarar: Aron Bergmann Magnússon, Friðgeir Valdimarsson, Guðjón Tryggvason, HilmaLMár Hálfdánarson, Ýr Helgadóttir, Katrín Rut Bessadóttir, Rakel Þorleifsdóttir, Sigursveinn ÞórÁrnason, Þórdls Steinarsdóttir, Þórhildur Ólafsdóttir T'Veir misþfm Vitlaasir A Akureyri og á leikferð Sniglaveislan eftir: Ólaf Jóhann Ólafsson Leikstjórn: Sigurður Sigurjónsson. Sýningar í Iðnó ÍLl ilmbiauiO^juiiuiuijl |lnlnlnlbJLjÍfilInI^fi ILEIKFELAG AKHRF.YRARÍ Miðasalan opin alla virka daga, nema mánudaga, frá kl. 13:00- 17:00 og fram að sýningu, sýningardaga. Sími 462 1400. www.leikfelag.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.