Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001
I>V
Fréttir
5
DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON
Innbrot
Helgi Þorsteinsson viö vél senn brotist var inn í í fyrrinótt.
Akranes:
Skemmdarvargur
ofsækir vinnu-
vélaeiganda
- og stelur verðmætum
DV, AKRANESI:_______________________
Verktakafyrirtækið Þróttur ehf.
við Ægisbraut á Akranesi hefur á
undanfórnum fjórum árum orðið
illilega fyrir barðinu á þjófum og
skemmdarvörgum. Brotist hefur
verið inn í vinnuvélar fyrirtæksins
fimm sinnum og stolið úr þeim eða
þær skemmdar.
Nýlega var brotist inn í vinnuvél
og stolið þaðan geislaspilara og út-
varpi. Fyrir mánuði var brotist inn
í beltagröfu sem stóð upp við námu,
öllum ljósum stolið af henni, rúða
brotin og útvarpið eyðilagt.
Helgi Þorsteinsson, framkvæmda-
stjóri Þróttar, segir að þeir fái
greinilega ekki að vera í friði með
vinnuvélar fyrirtækisins. Þó er fyr-
irtækið vaktað af Öryggisþjónust-
unni og lögreglan keyrir stúndum
fram hjá þar sem vélarnar eru
geymdar. Eigi að síður takist mönn-
um að stela vélunum og skemma
þær og verst sé að þessir vesalingar
náist aldrei. Helgi segir að þarna sé
á ferðinni einhver sem er kunn-
ugurr öllum málum. Hann segir
jafnfamt að Öryggisþjónustan hafi
orðið vör við ákveðinn bíl í
fyrrinótt og hann hafi alltaf farið
undan þegar Öryggisþjónustumenn
hafi verið á ferðinni.
„Ég hef beðið lögregluna um að
athuga þessar vísbendingar því
þarna gæti þjófurinn hugsanlega
hafa verið á ferðinni," sagði Helgi
Þorsteinsson, framkvæmdastjóri
Þróttar ehf., við DV.
-DVÓ
Sögulegur aðalfundur Hitaveitu Suðurnesja:
Fyrsta hlutafélagið í
orkugeiranum stofnað
DV-MYND ÞORSTEINN G. KRISTJÁNSSON
Söguleg stund í Eldborginni
Hér eru samningar um sameiningu tveggja orkufyrir-
tækja innsigtaöir meö undirskriftum, og til veröur öfl-
ugt orkufyrirtæki, Hitaveita Suöurnesja hf.
DV, GRINDAVÍK:
Sögulegur aðalfund-
ur Hitaveitu Suður-
nesja var haldinn í
vikunni í Eldborg-
inni, kynningarhús-
næði HS. Frá og með
fundinum breytist HS
í hlutafélag og að auki
sameinast Rafveita
Hafnarijarðar hita-
veitunni. Á fundinum
var undirritaður
stofnsamningur, sam-
þykktir og samkomu-
lag eigendá Hitaveitu
Suðumesja hf. og var
HS þar með orðið
fyrsta hlutafélagið í orkugeiranum
og höfðu ræðumenn á orði að brotið
vaeri blað í sögu orkumála á Islandi.
í máli Júlíusar Jónssonar, for-
stjóra HS, kom fram að tekjur fyrir-
tækisins voru 2.173 m.kr. en gjöld
1.748 m.kr. og var mesta fjárfesting-
in í orkuveri 5, eða alls 560 m.kr. og
185 m.kr. í jörðum og hlutafé og i
öðrum fyrirtækjum.
Sigurður Ingvarsson, Gerða-
hreppi, var kosinn stjórnarformað-
ur, Magnús Gunnarsson, Hafnar-
firði, varaformaður og Óskar Þór-
mundsson, Reykjanesbæ, ritari. I
lok fundarins heiðraði Ingólfur
Bárðarson, fráfarandi stjórnarfor-
maður, Ingólf Aðalsteinsson, fyrsta
forstjóra HS, og gaf honum í virð-
ingarskyni lágmynd til eignar og
mun önnur verða sett upp á viðeig-
andi stað. -ÞGK
Mesta sementssala
frá upphafi í mars
DV, AKRANESI:______________________
Vel hefur viðrað til allra bygging-
arframkvæmda og það sést best á
því að met var sett í sementssölu í
mars. Salan í mánuðinum var 9.602
tonn sem er mesta sala í þeim mán-
uði frá upphaíl Sementssverksmiðj-
unnar. Mesta sala i mars var fram
að því árið 1974 eða 8.716 tonn. Sal-
an í mánuðinum var mikið meiri en
áætlað var. Heildarsalan fyrstu 3
mánuði ársins er 25.036 tonn en á
sama tíma í fyrra seldust 19.593
tonn. -DVÓ