Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Qupperneq 10
10 Viðskipti Umsjón: Vidskiptabladiö 40% leggja auka- framlag í lífeyrissjóð - samkvæmt athugun Samtaka atvinnulífsins Sparnaður hefur verið með minnsta móti hér á landi undan- farin ár þrátt fyrir aðgerðir stjóm- valda frá ársbyrjun 1999 í þá átt að aflétta tekjuskatti af 2% viöbótar- framlagi i lífeyrissjóð, auk þess að heita 0,2% mótframlagi af hálfu ríkisins. Þetta kemur fram á fréttasíðu Samtaka atvinnulífsins. Árið 1999 spöruðu rúmlega 20% launþega með þessum hætti (sam- kvæmt upplýsingum ríkisskatt- stjóra), en þaö var lægra hlutfall en vonast hafði verið til. Hvatinn jókst í fyrravor þegar samið var um að atvinnurekendur á almenn- um markaði bættu 1% við framlag ríkisins þannig að mótframlagið yrði alls 1,2% af launum. Um svip- að leyti var ákveðið að létta tekju- skatti af allt að 4% viðbótarfram- lagi í lífeyrissjóð og mótframlag ríkisins aukið þannig að þeir laun- þegar sem leggja 4% af launum sínum til hliðar fá 1,4% á móti. í byrjun árs 2002 hækkar mótfram- lag atvinnurekenda svo um 1%. í könnun Pricewaterhou- seCoopers i janúar 2000 sögðust 27% fólks á aldrinum 18-75 ára leggja viðbótarsparnað í lífeyris- sjóð. Þetta er líkast til ofmat því að samkvæmt skattagögnum var hlutfallið aðeins 20% mánuði fyrr. Lausleg athugun hjá 16 fyrir- tækjum í Samtökum atvinnulífs- ins bendir hins vegar til þess að þetta sé síst of há tala. Viðmæl- endum ber saman um að eftir ára- mótin hafi þeim fjölgað mikið sem spari á þennan hátt. Margir at- vinnurekendur hafa hvatt starfs- fólk sitt til að leggja meira í lífeyr- issjóð og dæmi eru um að þeir hafi lagt meira á móti en þeim ber samkvæmt kjarasamningum. Bankar og verðbréfafyrirtæki hafa einnig staðið fyrir mikilli kynningu á þessum sparnaði á vinnustöðum. Borgar þetta sig? Vegna tekjutenginga ýmissa elli- lífeyrisgreiðslna er óljóst hvort fólk með tiltölulega lítinn lífeyrisrétt hefur meira upp úr viðbótarlífeyris- sparnaði eða hefðbundnum sparn- aði (að því gefnu að tekjutengingar ellilífeyris Tryggingastofnunar haldist óbreyttar, sem er óvist, og að fjármagnstekjuskattur breytist ekki). Þegar mótframlag atvinnu- rekenda hækkar í 2% verður lífeyr- issparnaðurinn hins vegar hagstæð- ari fyrir alla, óháð tekjum. Hjá þeim sem eru með meðallaun eða meira er ekki vafi á að nú þegar borgar sig að leggja viðbótarframlag í lífeyris- sjóð. Lítill vafi er á að viðbótarlífeyris- framlagið hefur eflt sparnað lands- manna þó að það kunni að ein- hverju leyti að koma í stað annars langtímasparnaðar. Árangurinn er þó ekki nógu mikill þvi að þjóðhags- legur sparnaður minnkaði enn á liðnu ári. Hreinn sparnaður lands- manna var innan við hálft prósent af landsframleiðslu árið 2000 en mestallan áratuginn þar á undan var hlutfallið 3-5%. ALTECH selur róbótakerfi til álvers í Sviss - sölusamningar fyrir 120 milljónir fyrstu þrjá mánuði ársins íslenska fyrirtækið ALTECH JHM hf. gekk nýlega frá sölu á tæknibúnaði, svokölluðu „kraga- róbótakerfi," með tilheyrandi stýribúnaði til ALCAN-álversins í borginni Steg í Sviss. Álver þetta var áður í eigu Alusuisse. í frétt frá ALTECH kemur fram að kragaróbótakerfið verður sett upp í skautsmiðju álversins síðar á þessu ári. Söluverð kerfisins er 35 milljónir króna. Þetta kragaró- bótakerfi er það sjötta sem AL- TECH smíðar en fyrirtækið er í viðræðum við 10 önnur álver um þessa tækni. Samkvæmt upplýsingum AL- TECH er róbótakerfið sem selt var til ALCAN-álversins notað til að setja á sjálfvirkan hátt hitaþolna pappakraga utan um tinda skaut- gaffla í rafskautum úr kolefni. Síö- an eru kragarnir fylltir sjálfvirkt með kolefnissalla sem bakast utan um tindana í hitanum þegar skautin eru komin í kerin en kragarnir sjálfir brenna og eyðast eftir nokkra daga. Kolefnisskautin eyðast í rafgreiningu í kerunum og er skipt um þau á 25 daga fresti. Með þessari tindavörn má nota rafskautin nokkrum dögum lengur í kerunum án þessa að járntindarnir tærist í raflausninni þegar skautin eyðast. í þessu felst mikill sparnaður í notkun raf- skauta. Einnig minnkar járnsmit frá tindunum í álið og batna þannig gæði framleiðslunnar. Með þessari sölu til ALCAN hef- ur ALTECH þegar gengið frá sölu- samningum fyrir 120 milljónir króna fyrstu þrjá mánuði ársins og eru áframhaldandi söluhorfur verulega góðar, að sögn fram- kvæmdastjóra fyrirtækisins. ALTECH JHM hf. hefur einbeitt sér að þróun og framleiðslu tækni- búnaðar til álvera og þá einkum í skautsmiðjur þeirra. Tæknimenn fyrirtækisins hafa þegar þróað og selt 25 mismunandi tæki og heild- arkerfi til 15 álvera í öllum fimm heimsálfum fyrir 14 milljónir doll- ara, eða yfir einn milljarö króna á síðastliðnum flmm árum. Fyrir- tækið á núna í viðræðum viö flest Aðalfundur Lina.net: Aðalfundur hlutafélagsins Línu.Nets hf. kt. 490799-3039, Skúlagötu 19, Reykjavík, fyrir starfsárið 2000 verður haldinn þriðjudaginn 24. apríl 2001 að Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38, Reykjavík, og hefst hann kl. 17:00. Dagskrá fundarins er sem hér segir: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 14. grein samþykkta félagsins. 2. Önnur málefni, löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofu þess að Skúlagötu 19, Reykjavík, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Stjórn Línu.Nets hf. Skúlagötu 19, IS 101 Reykjavík kt. 490799-3039 Sírrii: ♦ 354 595 1200 Myndriti: 4 354 595 1299 www.lina.net öll álver í heiminum um sölu á ýmsum tækjum og heildarkerfum. Þá er ALTECH í viðræðum við nokkur álver um hönnun og bygg- ingu skautsmiðja þeirra með öll- um tilheyrandi tækjabúnaði. AL- TECH hefur þegar reynslu af slík- um verkefnum í sambandi við uppsetningu skautsmiðju Norður- áls árið 1998 og endurbætur á skautsmiðju ALBA álversins í Ba- hrain 1996-97. Tíu tæknimenn starfa hjá ALTECH og er fram- leiðsla tækjanna einkum hér á ís- landi hjá nokkrum vélsmiðjum og raftöfluframleiöendum. Áætlað er að sala ársins 2001 hjá ALTECH skapi um 40 ársverk hjá innlend- um smiðjum. Marel byggir í Garðabæ - heildarkostnaður 1,1 milljarður króna Marel hf. hefur ákveðið að hefja bygg- ingu skrifstofu- og framleiðsluhúsnæðis á lóð félagsins við Austurhraun í Garða- bæ. í frétt frá Marel hf. kemur fram að áætlað er að heildarkostnaður við fram- kvæmdirnar verði 1,0-1,1 milljarður króna, miðað við verðlag í febrúar 2001. Framkvæmdin verður að mestu eða öllu leyti Qármögnuð með lánsfé. Það er jafn- framt til skoðunar hvort fasteignafélag mun kaupa húseignina á síðari stigum. Ráðgert er að hefja framkvæmdir nú í apríl og áætlað að þeim verði lokið á 15 mánuðum, eða í júll árið 2002. Samið hefúr verið við verktakafyrirtækið Frið- jón og Viðar ehf. um byggingu hússins og frágang lóðar. Bæði skrifstofu- og framleiðslubyggingar verða stálgrindar- hús sem keypt eru af Sindra-Stáli hf. Teiknistofa Ingimundar Sveinssonar hefur hannað húsin. Marel gerði samning við Garðabæ um 48 þús. fermetra lóð á árinu 1997. Unnið hefur verið að undirbúningi framkvæmda og hönnun hússins í um eitt ár eins og áður hefur komið fram. Húsið, sem er sniðið að þörfum Marels, verður alls um 14.200 fermetrar. Af þeim verða 10.200 fermetrar nýttir fyrir fram- leiðslu og 4.000 fermetrum ráðstafað fyr- ir skrifstofur. Starfsemi Marels hf. hér á landi hefur hingað til farið fram á tveimur stöðum í Reykjavík: að Höfða- bakka og á Tunguhálsi. Mikill kostnað- ur hefur fylgt slíkri skiptingu sem staö- ið hefur frekari hagræðingu og vexti fyrirtækisins fyrir þrifum. ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 J3V 8 HEILDARVIÐSKIPTI 1700 m.kr. - Hlutabréf 670 m.kr. - Húsnæðisbréf 520 m.kr. MEST VIÐSKIPTI | 0 Haraldur Böðvarsson 478 m.kr. | £ Delta 26 m.kr. Q íslenskir aðaiverktakar 24 m.kr. MESTA HÆKKUN ! O Tangi 12,7 % o Haraldur Böðvarsson 7,7 % O MP-Bio 4,8 % MESTA LÆKKUN o íslenskir aöalverktakar 5,6 % o Baugur 3,3 % O Össur 2,1 % ÚRVALSVÍSITALAN 1137 stig - Breyting 1 O 0,18 % Jákvæð greining á Arcadia í nýrri greiningu frá SchroderSal- omonSmithBarney segir að gífurleg- ur viðsnúningur hafi orðið í rekstri Arcadia á undanförnum mánuðum og staðfestir bankinn fyrra mat sitt á félaginu, sem er 1H, sem merkir kaup með talsverðri áhættu. Þetta kemur fram í Morgun- punktum Kaupþings í gær. Þar seg- ir að mikla athygli veki að mark- verð Arcadia er hækkað frá 180 p. í hvorki meira né minna en 3 pund, en greiningin miðast við markaðs- verð um 2,40 pund. Fram kemur að hálfs árs uppgjör Arcadia hafi verið langt yfir væntingum markaðsaðila. Þá kemur fram að SchroderSal- omonSmithBarney hafi sjálft spáð 23 milljóna punda hagnaði fyrir þetta tímabil og í ljósi þess hversu langt Arcadia hafi farið fram úr þeirri spá hækkar bankinn spá fyr- ir heildarhagnað ársins um 36%, í 45 milljónir punda. Raunar benda Morgunpunktar Kaupþings á að tek- ið sé fram að þarna sé varlega áætl- að og að hagnaður geti hæglega orð- iö talsvert meiri. Hr. Ólafur Ragnar Grímsson veitir dr. Magnúsi Má Haiidórssyni og dr. Orra Vésteinssyni, hvatningarverðlaun. Hvatningaverð- laun Rannís Hvatningarverðlaun Rannsókn- arráðs íslands voru veitt af hr. Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta íslands, i gær. Verðlaunahafarnir voru tveir, eins og reyndar oft áður. Þeir eru dr. Magnús Már Halldórsson tölvunarfræðingur og dr. Orri Vésteinsson, sagnfræð- ingur og fornleifafræðingur. 10.04.2001 ki. 9.15 KAUP SALA Dollar 92,270 92,740 ISPund 133,270 133,950 1*11 Kan. dollar 59,000 59,370 jj Dönsk kr. 11,0890 11,1500 OHSrj Norsk kr 10,1860 10,2420 £25 Sænsk kr. 9,0800 9,1300 mark 13,9134 13,9970 . 1 Fra. franki 12,6114 12,6872 ! jMJTj Belg. franki 2,0507 2,0630 ; EÍI Sviss. franki 54,1500 54,4500 ;C2h°II. gyllini 37,5392 37,7648 Þýskt mark 42,2969 42,5510 f Ít. líra 0,04272 0,04298 | QQ Aust. sch. 6,0119 6,0480 J Port. escudo 0,4126 0,4151 i r>‘*1 Sná. peseti 0,4972 0,5002 | • |jap. yen 0,74120 0,74560 Illlrsktpund 105,039 105,670 SDR 116,9400 117,6500 r§Ecu 82,7255 83,2226

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.