Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Qupperneq 11
11
ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001
X>V____________________________________________________________________________________________________Neytendur
Falleg
fermingargjöf
Bragðprófun á páskaeggjum
Bragðprófun DV á páskaeggjum:
kristalskrossar
SWAROVSKI
Fjórar gerðir,
verð frá 4.990.-
eyrnalokkar í stíl
Fermingargjöf sem er
framtíðareign
^ vKRISTALL
Kringlunni - Faxafeni
Góa
Móna
Nói-Siríus
Ópal
Dómhildur
☆☆fH
•Mrtctr
irtrMrtt
'írtrtrtri.
Úlfar
'trtrtrtrte
'trtrtrtrt
'frtctrk
'trtrtr
Sigmar
☆☆☆☆
'trtrtrk
'trtrtr
'trtrtr
Samt.
12,5
12.5
11.5
10.5
Fyrir skömmu fékk neytendasíða
DV bragðgæðingana Sigmar B.
Hauksson, Úlfar Eysteinsson og
Dómhildi Sigfúsdóttur til að
smakka á þeim páskaeggjum sem í
boði eru fyrir þessa páska. Ein-
göngu voru tekin egg frá íslenskum
framleiðendum sem fást i stórmörk-
uðum en þeir eru, eftir því sem
næst verður komist, aðeins fjórir.
Smökkuð voru egg frá Ópal, Góu,
Nóa-Síríus og Mónu. Auk þess feng-
um við bragðgæðingana til að
smakka sykurlaust egg og mjólkur-
laust egg sem framleidd eru af sæl-
gætisgerðinni Mónu. Það skal þó
tekið fram að þau egg voru dæmd út
frá öðrum forsendum en hin og
fylgja því ekki í grafinu sem er hér
á síðunni og sýnir stjörnugjöfina.
Bragðgæðingarnir gáfu öllum
eggjunum umsögn um útlit, inni-
hald og bragð og í framhaldi af því
var þeim gefin heildareinkunn sem
var á bilinu 1 til 5 þar sem 5 var
hæsta mögulega einkunn.
Mónu- og Góu-eggin best
Páskaeggin frá Mónu og Góu
hlutu bestu einkunnina að þessu
sinni eða tólf og hálfa stjörnu hvort.
Úlfar sagði eggið frá Mónu vera
„fallegt, með góðu innihaldi" og að
bragðið væri „milt og gott. Hann gaf
þessu eggi fjóra og hálfa stjörnu.
Dómhildi fannst „ekki gott eftir-
bragð“ af þessu súkkulaði en sagði
innihaldið „ríflegt og nokkuð fjöl-
breytt“. Henni fannst eggið ágæt-
lega útlítandi en tók það fram að öll
eggin væru „svipuð útlits“ og gaf
egginu fjórar stjömur. Sigmar sagði
þetta „bara snoturt egg“ og var
ánægður með innihaldið. „Eggið
var að springa, svo fullt var það af
fjölbreyttu sælgæti," sagði hann og
bætti við: „Bragðið er ljómandi gott
en þó ekki afgerandi" og gaf egginu
fjórar stjörnur.
Góu-eggið féll einnig vel í kramið
hjá bragðgæðingunum og fær, eins
og áður sagði, bestu einkunnina
ásamt Mónu-egginu. Sigmari fannst
eggið „ósköp venjulegt" og sagði að
í því væri „ mikið og fjölbreytt
magn af nammi“. Ekki fannst hon-
um bragðið þó afgerandi en sagði
það „ágætt súkkulaðibragð" og gaf
því fjórar stjörnur. Dómhildur gaf
bragði þessa eggs ekki mjög háa ein-
kunn en fannst súkkulaðið „mjúkt“.
Innihaldið sagði hún „mikið og fjöl-
breytt" og útlitið „svipað og á hin-
um eggjunum en þó sprautað á sam-
skeytin". Hún gaf egginu þrjár og
hálfa stjörnu. Úlfar var ánægður
með bragð Góu-páskaeggsins og
sagði það „mjög gott, að mínum
smekk“ og bætti við að mikið væri
Fullkomiö frá náttúrunnar hendi
Þó hafa menn dundaö sér viö aö
skreyta þau í aldanna rás og þá sér-
staklega aö vori til þar sem þau
hafa veriö tákn frjósemi í mörgum
menningarsamfélögum.
Skreytt páskaegg
Egg hafa verið skreytt og lituð frá
örófi alda. Egyptar og Persar skipt-
ust á skreyttum eggjum í upphafi
vors til aö fagna frjóseminni sem
voriö gaf fyrirheit um. í dag tengist
þessi hefð páskum og á mögum
heimilum eru til listilega máluð egg
sem oftar en ekki eru afrakstur
vinnu þeirra yngstu á heimilinu.
Þegar eggin eru skreytt ræður
ímyndunaraflið eitt ríkjum og hægt
er að nota ýmsa hluti sem til eru á
heimilinu til þessa verks. Matarlitur
hentar vel og er auðveldur í meðför-
um og hér eru nokkur góð ráð sem
nýtast þegar lita á egg með honum.
Takið fram eina skál fyrir hvern
lit sem nota skal. Þær verða að vera
nægilega djúpar til að egg komist í
þær.
Klippið hólka úr eldhúsrúllum
niður í búta þannig að þeir nýtist til
að halda eggjunum uppréttum á
meðan þau þoma.
Setjið nægilega mikið af heitu
vatni í skálarnar þannig að það nái
að hylja eggið þegar það er sett ofan
í. Bætið matarlitnum út í. Ef notað-
ur er fljótandi matarlitur eiga 7-10
dropar að nægja. Hrærið. Að lokum
er einum fjórða bolla af ediki hrært
saman við en það verkar sem festir
fyrir litinn.
Blásið úr eggjum, eða harðsjóðið
þau. Því næst er þeim dýft í lita-
blöndurnar. Notið til þess málm-
skeið eða tangir.
Setjið eggin í eggjahaldarana úr
eldhúsrúlluhólknum á meðan þau
þoma.
Hægt er að gera doppótt egg með
því að láta heitt kertavax drjúpa á
þau áður en þau eru sett í litablönd-
una eða eftir að þau hafa verið lituð
einu sinni og lita þau síðan aftur í
dekkri lit.
Athugið að litablandan má ekki
vera heit þegar þessi aðferö er not-
uð. Vaxið má síðan skafa af með
fingumögl eða hita það og þurrka af
með pappírsþurrku.
Ef þið viljið flóknari mynstur en
fá má með heitu kertavaxi má nota
vaxliti til að teikna á eggin áður en
þeim er dýft í litablöndurnar. Þegar
litablandan hefur þomað þá er eggj-
unum stungið í 150“C heitan ofn i ca
5 mínútur, eða þar til vaxlitirnir
eru orðnir mjúkir. Þá eru þeir
stroknir af með pappírsþurrku.
DVJVIYNDIR E.ÓL.
Bragðgæöingar DV
Úlfar Eysteinsson, Dómhildur Sigfúsdóttir og Úifar Eysteinsson hámuöu í sig
súkkulaöiö í þragöprófun DV á páskaeggjum.
í því og útlitið „fallegt" og fékk egg-
ið hæstu einkunn hjá honum, eða
fimm stjörnur.
Nói-Síríus og Ópal
Nóa-Síríus eggið fékk ellefu og
hálfa stjörnu hjá bragðgæðingunum
að þessu sinni. Úlfari fannst útlit
þess „gott“ og innihaldið „allt í lagi“
en var ekki mjög hrifinn af bragð-
inu. „Þetta bragð er leiðigjarnt þeg-
ar maður hefur borðað mikið,“ sagði
hann og gaf egginu þrjár og hálfa
stjörnu. Dómhildur var hrifnari af
þessu eggi og fékk það fimm stjörn-
ur hjá henni með umsögninni „gott
og mjúkt súkkulaði, gott og fjöl-
breytt innihald“ og „gott útlit“. Sig-
mari fannst þetta egg vera „ósköp
venjulegt" í útliti og innihaldið „fjöl-
breytt og vel samansetf‘. Hins vegar
fannst honum súkkulaðið ekki mjög
gott og sagði vera af því „lítið
stjörnu. Dómhildi líkaði þó vel þetta
egg og gaf því fjóra og hálfa stjörnu.
Henni fannst innihaldið „gott og fjöl-
breytt" og eggið „bragðgott og með
góðu eftirbragði". Sigmar sagði
„bragðiö ágætt til að byrja með, en
svo kemur einkennilegt gervibragð".
Honum fannst eggið innihalda
„sæmilegt úrval af sælgæti, þó of
mikið af karamellum og kúlum" og
bætti því við að það væri „ekki gott
fyrir tennurnar". Hann gaf þessu
eggi þrjár stjörnur. í þetta sinn var
Úlfar honum sammála og fékk eggið
því einnig þrjár stömur frá honum.
Útlitið sagði hann vera „þokkalegt"
og innihaldið „ekki ríkulegt". Einnig
sagði hann „of mikið gervibragð"
vera af súkkulaðinu.
Egg fyrir sykursjúka
Til gamans voru bragðgæðingarn-
ir einnig fengnir til að smakka tvö
egg sem sælgætisgerðin Móna fram-
leiðir og er annað þeirra sérstaklega
fyrir sykursjúka og hitt mjólkur-
laust.
Eins og áður sagði eru þau egg
ekki dæmd á alveg sömu forsendum
og hin þar sem tekið er tillit til sér-
stöðu þeirra. 1 ljós kom að þeir voru
mjög ánægðir með mjólkurlausa
eggið og gáfu því 13 stjömur sem er
hæsta einkunnin sem sást í þessari
bragðprófun. Sigmar sagði „frábært
að til skuli vera mjólkurlaust páska-
egg fyrir alla þá sem þjást af of-
næmi“ en fannst innihaldið „frekar
fátæklegt, sem er skiljanlegt" og út-
litið „snoturt en einfalt“. Hann gaf
þessu eggi fjórar stjörnur. Dómhild-
ur gaf því íjóra og hálfa stjörnu og
sagði súkkulaðið vera „gott
suðusúkkulaði" á meðan Úlfar gaf
egginu ijóra og hálfa stjörnu og
fannst það „fallegt“ og bragðið
„gott“.
Páskaeggið fyrir sykursjúka fékk
flórar stjörnur frá Úlfari en honum
fannst það „fallegt" og „mjög gott“ á
bragðið. Sigmari fannst „bragðið
einkar gott ef haft er í huga að egg-
ið er ekki með neinum sykri" en
sagði innihaldið ekki mikið og útlit-
ið „venjulegt og einfalt“ og gaf hann
egginu þrjár störnur. Dómhildur gaf
þessu eggi svipaða umsögn og fékk
það þrjár og hálfa stjörnu frá henni.
-ÓSB
Svipuð útlits
Eins og sjá má eru skreytingar allra eggjanna heföbundnar og lítill munur á útliti þeirra.
Misjafnt innihald
Hér má sjá innihald eggjanna og eins og sjá má eru flest þeirra fyllt alls kyns
góögæti sem gleöur litla munna.
súkkulaðibragð, gervibragö" og gaf
egginu aðeins 3 stjömur.
í þessari bragðprófun rak Ópal-
eggið, sem er framleitt af Nóa-Sír-
íusi, lestina með samtals tíu og hálfa
Málshættirnir sem fylgdu eggj-
unum voru mismunandi og í raun
ekki hægt að segja að um máls-
hætti væri að ræða i öllum tilvik-
um. 1 Mónueggjunum þremur var
fremur um að ræða spakmæli. Til
gamans birtum við hér þá máls-
hætti og spakmæli sem úr eggjun-
um komu.
Betra er að þiggja ráð en gefa
- Góa
Með gleði skal harmi hrinda
- Nói-Síríus
Misjöfn verða morgunverkin
- Ópal
Gallar annarra eru eins og bíl-
ljós, þeir skera okkur meira í aug-
un en okkar eigin - Móna
Ungbarn í húsinu er gott dæmi
um minnihlutastjórn - Móna
Betra er að hafa elskað og misst
en að hafa aldrei elskað - Móna
Góa og Móna fá
hæstu einkunn