Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2001, Blaðsíða 29
37 j i . ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 2001 I>V Tilvera Bíófréttir Njósnakrakk- arnir héldu velli Blow Johnny Depp I hlutverki kókaínsmyglarans George Jung. Nýjar kvikmyndir setja svip sinn á listann yfir vinsælustu kvikmyndimar í Bandaríkjun- um um helgina, án þess þó að velta fjölskyldumyndinni Spy Kids úr efsta sætinu, en mjótt er á mununum. Spy Kids rétt hefur vinninginn yfir saka- málamyndina Along Came Spider, þar sem Morgan Freeman fer aftur í gervi lög- reglumannsins Dr. Alex Cross sem hann lék eftirminnilega í Kiss the Girls. Along the Spider er ekki framhald held- ur gerist myndin áður en atburðim- ir í Kiss the Girls gerðust. Þess má þó geta að Spy Kids er sýnd í mun fleiri bíósölum. Blow, sem skipar þriðja sætið, er einnig sakamála- mynd, en ólík Along Came Spider að því leytinu til að hún er byggð á sönnum atburðum. í henni segir frá ævi kókaínsmyglarans George Jung sem Johnny Depp leikur. Jung er sagður hafa verið fyrstur til að koma eiturlyfjabaróninum Pablo Escobar í sambönd innan Banda- ríkjanna. Mótleikarar Depp eru Penelope Cruz, Ray Liotta og Fanke Potente. I fjórða sæti er svo þriðja kvikmyndin um Pokémon krílin, Pokémon 3: The Movie. HELGIN 6. 8. apríl ALLAR UPPHÆÐÍR i ÞÚSUNDUM BANDARlKJADOLLARA. SÆTI FYRRI VIKA TITILL (DREIFINGARAÐILI) INNKOMA HELGIN: INNKOMA ALLS: FJÖLDI BÍÓSALA O í Spy Kids 17.079 48.257 3133 o Along Came a Spider 16.712 16.712 2530 o Blow 12.443 12.443 2249 o Pokémon 3: The Movie 8.240 8.240 2675 o 2 Someone Like You 5.347 17.776 2350 o 3 Heartbreakers 5.009 29.979 2708 o 6 Enemy of the bGates 3.353 39.214 1724 o 5 The Brothers 3.006 22.448 1307 0 8 Crouching Tiger, Hidden Dragon 2.820 117.525 1628 0 4 Tomcats 2.811 10.953 2617 © 7 Exit Wounds 2.677 45.415 2260 © Just Visiting 2.272 2.272 1590 0 9 Traffic 2.134 116.755 1339 © 11 Chocolat 1.217 66.082 956 0 12 The Tailor of Panama 1.133 3.527 225 © 10 The Mexican 1.125 64.101 1328 © 20 Memento 642 2.411 120 © 16 O Brother Where Art Thou? 796 39.923 685 © 13 Down To Earth 622 63.095 755 © 15 Hannibal 631 162.916 800 Kitsch á Kjar- valsstööum - Odd Nerdrum opnar syningu á verkum sínum Á laugardaginn var opnuð á Kjar- valsstöðum sýning á verkum norska kitsch-málarans Odds Nerdrums. Fjöldi fólks mætti á staðinn til að berja verk Nerdrums augum enda hafa þau vakiö mikið umtal og jafn- vel hneykslan. Við opnunina var einnig fluttur stuttur leikþáttur eft- ir Odd Nerdrum sjálfan þar sem fjallað var á heimspekilegan hátt um muninn á lit og handverki. Ustveldlö Leikararnir Siguröur Karlsson og Arnar Jónsson fluttu stuttan leik- þátt eftir Odd Nerdrum þar sem þeir brugöu sér í hlutverk norsku listamannanna Munchs og Ner- drums sjátfs. Gjörnlngakonur Eirún Siguröardóttir, Sigrún Hrólfs- dóttir og Jóní Jónsdóttir úr Gjörn- ingaklúbbnum, sposkar á svip. r- Forsætisráðherra og frú Davíö Oddsson forsætisráöherra og eiginkona hans, Ástríöur Thorarensen, litu inn á sýninguna áöur en þau héldu í afmælisveislu Geirs H. Haarde. Hér ræöa þau viö Eirík Þorláksson, forstööumann Listasafns Reykjavíkur. Góðir gestir Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri og Sverrir Guöjónsson söngvari á spjalli. DV-MYNDIR EINAR J I góðra vina hópi Listamaöurinn Odd Nerdrum ásamt Hrafni Gunnnlaugssyni leikstjóra og Ástríöi Andersen, fyrrverandi sendiherrafrú. Töffarinn Shaft íslenski draumurinn ætlar að verða vinsælasta myndin á myndbandaleigum um pásk- ana, haldi hún sínu striki, en hún er aðra vikuna í röð í efsta sæti listans. íslenski draumurinn er gamanmynd eins og þær gerast bestar. í öðru sætinu er einnig gaman- mynd, Road Trip, þar sem seg- ir frá nokkrum skólafélögum sem taka sér fimm þúsund kílómetra ferð til að koma í veg fyrir að myndbandsspóla berist til viðtakanda. Ný mynd, Shaft, er svo í þriðja sæti. Um er að ræða endurgerð myndar sem er aðallega þekkt fyrir að vera fyrsta al- vörukvikmyndin þar sem svört lögguhetja var aðalpersónan. Hinn nýi Shaft, sem Samuel L. Jackson leikur, er sami töffarinn og fyr- irrennari hans. Það er fátt sem kemur honum á óvart - óheiðarlegar iöggur, eiturlyfjasalar, vænd- iskonur og annar óþjóðalýður - þetta er hans daglega brauð sem rannsóknarlög- reglumaður í New York. Á góðum degi glímir hann við lögg- ur og glæpamenn sem vilja hann feigan og réttarkerfi sem stýr- ist af peningum en ekki réttlæti. Vf s vt 9 Shaft Samuel I. Jackson í hlutverki löggutöffar- ans Shafts. 7-rranr FYRRI VIKUR SÆTI VIKA TITILL (DREIRNGARAÐIU) Á USTA © í íslenski draumurinn (sam mynböndi 1 © 3 Road Trip (sam myndbönd) 2 & _ Shaft (SAM MYNDBÖND) 2 2 Scary Movie skífan) 1 © 4 The Cell imyndform) 3 © 5 Hollow Man (skífanj 3 & 6 Nurse Betty <sam myndbönd) 1 o 8 Play It To the Bone isam myndböndi 1 © 7 Boys and Girls (skIfan) 7 _ Loser (skífanj 11 © _ Chicken Run (sam myndböndi 2 13 Coyote Ugly (sam myndbönd) 5 15 Den eneste ene (háskólabIó) 6 ffji _ Whipped (MYNDF0RM) 16 © 11 Frlends 7, 9_12 (sam myndbönd) 3 © 16 Love, Honour and Obey (háskóubIó) 2 © 20 Frlends 7, 5_8 isam myndbönd) 3 © 18 X-Men (skífan) 5 © _ Titan A.E. (SkIfan) 7 i'Tij 9 Snatch iskífan) 3 Pær fegurstu koma úr Grindavík - litla systir ungfrú íslands 1999 varö ungfrú Suðurnes Fegurðarsamkeppni Suðurnesja var haldin í Festi í Grindavík á laugardagskvöldið með miklum glæsibrag, 14 stúlkur tóku þátt að þessu sinni, þar af 6 frá Grindavík. Var dómnefndin í miklum vanda þar sem stúlkurnar voru hver annarri glæsilegri en niöurstaðan varð sú að Svanhildur Björk Her- mannsdóttir, 19 ára Grindavíkur- mær, var valin fegursta stúlkan og Fegurðln á Suðurnesjum Þaö var fagur hópur sem keppti um titlana í Festi á laugardagskvöldiö. Litla systir Svanhildur Björk, feguröardrottning Suöurnesja 2001. Stóra systir varö feguröardrottning íslands 1999. voru fagnaðarlætin mikil. í öðru sæti lenti Hrund Ottósdótt- ir, einnig úr Grindavík, og þriðja sætið hlaut Hulda María Jónsdóttir úr Keflavík og auk þess var Gerður Björg Jónsdóttir úr Grindavík valin besta ljósmyndafyrirsætan og fara þær allar í keppnina um ungfrú ís- land. Er óhætt aö segja að stúlkur úr Grindavík hafi staðið sig vel í keppninni. Þá var María Rut Sören- sen valin vinsælasta stúlkan og hlaut Svanhildur Björk einnig titil- inn Gallery-förðunarstúlkan og líka netstúlka Suðumesja. Systir Svan- hildar Bjarkar, Guðbjörg Her- mannsdóttir, var feguröardrottning íslands árið 1999 eftir að hafa unniö titilinn ungfrú Norðurland. Hulda María Jónsdóttir úr Keflavík fékk titilinn K-sport-stúlkan og Gerður Björg Jónsdóttir úr Grindavík Studio Huldu-stúlkan og Orobleu- stúlkan var valin Þóra Jónsdóttir úr Vogunum. -ÞGK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.