Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2001, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 IOV Fréttir Fiskverkafólk sent heim svo ekki þurfi aö borga „rauðu dagana“: Þetta er svívirða - segir Aöalsteinn Baldursson hjá Starfsgreinasambandi íslands „Þaö er því mið- ur eitthvað um að fyrirtæki 1 fisk- vinnslu ætli að láta sig hafa það að senda fiskverkafólk heim fyrir páskana, til þess eins að komast hjá því að greiða því laun fyr- ir svokallaða „rauða daga“ um páskana en segjast siðan ætla að taka fólkið aftur inn á launaskrá strax eða fljótlega eftir páskana," segir Aðalsteinn Baldursson, for- maður matvælasviðs Starfsgreina- sambands Islands, en undir það svið heyrir m.a. fólk sem starfar í fisk- vinnslu. Mörg fyrirtæki hafa orðið við þeirri ósk Starfsgreinasambandsins að taka fiskverkafólk sitt ekki út af launaskrá eftir að vinnslu á þvi hrá- efni lauk sem barst á land áður en verkfall sjómanna hófst að nýju í síðustu viku. Fyrirtækin greiða fólkinu fóst laun samkvæmt taxta en atvinnuleysistryggingasjóður greiðir fyrirtækjunum á móti upp- hæð sem nemur atvinnuleysisbót- um fyrir hvern starfsmann. Aðalsteinn Baldursson er ómyrkur í máli vegna þeirrar ákvörðunar margra fyrirtækja að greiða fólki í fiskvinnslu ekki laun um páskana. „Það er svoleiðis ver- ið að traðka á réttindum fisk- vinnslufólks að það er með algjör- um ólíkindum að menn skuli leyfa sér þvílíkt og annað eins. Það er hins vegar rétt að þetta á ekki við öll fyrirtæki og m.a. vegna þessa máls erum við farnir að flokka fyr- irtækin í fiskvinnslu upp í alvöru fyrirtæki og „skussafyrirtæki". Við munum vinna eftir páskana skýrslu um það hvernig hin ýmsu fyrirtæki hafa staðið sig í málum gagnvart fiskverkafólkinu, bæði þessu máli og öðrum. Það eru sem betur fer fyrirtæki sem hugsa vel um starfsfólkið sitt en því miður er þau mörg sem gera það ekki og traðka á réttindum þess,“ segir Að- alsteinn. Hann segir að þessi framkoma kalli á það enn meira en áður að stjórnvöld verði að fara að grípa inn í og breyta lögum um trygging- ar og starfsöryggi fiskverkafólks. „Það er svívirðilegt að þurfa að upplifa þessa framkomu," segir Aðalsteinn. -gk Aöalsteinn Baldursson. Sjómannaverkfallið dregur úr landvinnslunni: Margir að verða fisklausir - smábátaflotinn annar ekki markaðnum Vestmannaeyjar Löndunarmet á loönu. Loðnuveiðar: Mestur afli til Eyja Um 25 þúsund tonn eru óveidd af loðnukvótanum nú þegar flotinn liggur bundinn við bryggju i sjó- mannaverkfalli og sáralitlar líkur á að það takist að veiða þann aíla þar sem loðnan hefur hrygnt. Heildar- kvótinn var kominn i 918,6 þúsund tonn og alls veidd 893 þúsund tonn, þar af 126 þúsund tonn á sumar- og haustvertíð 2000. Mestu var landað í Vestmannaeyj- um hjá ísfélagi Vestmannaeyja og Vinnslustöðinni, eða 103 þúsund tonn- um, hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar 79 þúsund tonnum, 70 þúsund tonnum hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað, 59 þúsund tonnum hjá Samherja í Grindavík og 57 þúsund tonnum hjá Haraldi Böðvarssyni á Akranesi. -GG Óskar Þór Karlsson, framkvæmda- stjóri fiskvinnslunnar ísflsks í Kópa- vogi, sagði að nú fyrir helgina hafi menn verið að klára að vinna þann fisk sem vinnslumar voru búnar að birgja sig upp með fyrir verkfall sjó- manna. „Það áttu margir fisk út vikuna en það hefur verið erfitt að fá fisk síðan verkfallið byrjaði. Það munar mikið um alla vertíðarbátana sem hafa stöðvast í verkfallinu," segri Óskar. Hann segir smábátana vissulega mikil- væga fyrir fiskvinnsluna en þeir dugi bara ekki til og verðið sé orðið hátt á mörkuðum. Það em helst litlu vinnslumar, sem era með smábáta í fóstum viðskiptum, sem halda vinnslunni gangandi á fullu. Hjá stóm frystihúsunum er ástand- ið misjafnt. Vinnsla er t.d. enn í gangi hjá Granda þó ekki sé þar unnið á full- Frystihúsin stöövast Sjómannaverkfalliö er fariö aö þrengja aö fiskvinnslunni og mörg frystihús aö stöövast vegna hráefnisskorts. um afköstum, að sögn Guðmundar Einars Jónssonar vinnslustjóra. Reiknaði hann með að lokið yrði að vinna þann fisk í kvöld sem kom inn fyrir verkfall. Þrátt fyrir það verður ekki um vinnslustöðvun að ræða hjá Granda því Guðmundur reiknar með að farið verði að vinna frystan fisk í sérpakkningar eftir páska. Hann bjóst ekki við að gripið yrði til uppsagna vegna sjómannaverkfallsins. Sveinn Guðjónsson, verkstjóri hjá Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru hf. í Hnífsdal, segir hráefnið duga þá vinnu- daga sem eftir em í þessari viku. „Eft- ir það er sjálfhætt," segir Sveinn og reiknar ekki með að bolfiskvinnslan fari í gang að nýju fyrr en verkfaffið leysist. Þá sagði hann brælu hafa ver- ið hjá smábátaflotanum og því lítið tif skiptanna á fiskmörkuðum. -HKr. Reynt til þrautar að semja um framhald á smíði Ófeigs VE í Kína: Má ekki veiða innan fjögurra mílna Fulltrúar Stiganda í Vestmannaeyj- um, útgerðar Ófeigs VE, sem sökk 7. mars sl. í HuangPu-skipasmíðastöð- inni í Kína, halda af stað til Kina i dag til viðræðna um framhald á smíði skipsins. Þorsteinn Viktorsson, fram- kvæmdastjóri Stíganda, segir að miklu meiri líkur séu á að það náist samningar um framhald smíðinnar en að smíðasamningnum verði rift, enda væri ekki verið að fara til Kína nema staða málsins væri sú og raun- ar væri verið að loka örfáum endum. Ef það gengi ekki væri hinn kostur- inn í stöðunni. „Skipið verður lengt um 12 metra en úr því að það þurfti að lengja það til að auka stöðugleikann var hann ekki lengur með veiðiheimild innan fjögurra mílnanna i togbátahólfi við suðurströndina. Aðalvélinni verður breytt úr 1400 hö í 2880 hö, skrúfu- hringur verður settur á og stækka þarf frystikerfið fyrir stærri lest. Þetta var gert í samráði við Kínverj- ana en það þurfti ekki að lengja hann svona mikið vegna stöðugleik- ans, jafnvel ekki nema um 2 metra. Um þetta þarf allt að semja auk þess sem semja þarf um eftirlit með smíöinni og dagsektir," segir Þor- steinn Viktorsson. -GG Hellissandur: Próflaus öku- maður velti bíl Þrjár ungar stúlkur sluppu með skrekkinn er bifreið þeirra fór nokkrar veltur á Hellissandi um miðnættið aðfaranótt mánudagsins. Ökumaðurinn var 16 ára og því ekki með réttindi til bílprófs og telur lög- reglan á Ólafsvík að reynsluleysi og of hraður akstur hafi ollið slysinu. Hinar stúlkurnar tvær voru á svip- uðu reki. Bíllinn fór nokkrar veltur og er talinn ónýtur en stúlkurnar sluppu með lítil meiðsl. -SMK Um 1500 hafa kos- ið ungfrú Gateway Keppnin um ungfrú Gateway 2001 hefur verið framlengd til 16. apríl að beiðni dómnefndar. í keppninni er kosið um fallegustu svartskjöldóttu kúna á íslandi og eru aðstandendur hennar Landssamband kúabænda og Aco í Skaftahlíð sem flytur inn Gateway-tölvur. Úrslit verða til- kynnt miðvikudaginn 18. apríl. Al- menningur hefur tekið virkan þátt í kosningunni á heimasíðu keppninn- ar sem vistuð er á www.aco.is og hafa um fimmtán hundruð manns nýtt sér kosningarétt sinn. -BG y,5; Sólargangur og sjávarföll REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag í kvöld 20.50 20.40 Sólarupprás á morgun 06.06 05.47 Siðdeglsfló& 20.50 00.22 Árdegisflóó á morgun 09.10 13.43 Skýringar á veóurtáknum J^VINDÁTT 10V-HITI >1 15 M'INDSTYRKUR I niðtrum & ötíkiindu -10; Nfrost H0DSKÍRT $6> tfy ^3 LÉTTSKÝJAD HALF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ Allt aö 12 stig frost sums staðar Suðaustlæg átt, 5 til 10 m/s og skýjaö meö köflum en þykknar smám saman upp vestanlands. Yfirleitt frostlaust sunnanlands síðdegis en annars allt aö 12 stiga frost. Gengur í SA 13-18 m/s suövestan til í kvöld meö slyddu eöa snjókomu og síðar rigningu. RIGNiNG SKÚRiR *!@ ' IfT SLYDDA SNJÓK0MA ÉUAGANGUR ÞRUMU- SKAF- VEÐUR RENNINGUR Þ0KA Færó Fært um helstu þjóövegi Samkvæmt upplýsingum frá Vegageröinni eru helstu þjóövegir landsins færir. Hálka eða hálkublettir eru þó á heiöum á Vestfjöröum. Á Norðausturlandi og Austurlandi er snjóþekja og hálka á vegum. Góö færö er í nágrenni Reykjavíkur og um Suðurland og Vesturland. cruSNJÓR BPUNGFÆRT ■bófært Rigning sunnan- og vestanlands Sunnan og suðaustan 10 til 18 m/s og rigning sunnan- og vestanlands en úrkomulítiö norðaustan til. Hiti 0 til 6 stig, hlýjast sunnanlands. Fösfiiria Hiii T til 2 Sunnan- og suóvestanátt, yflrleltt 5 tll 10 m/s. Skúrlr eða súld með köflum en þurrt aö mestu á Norður- og Austurlandi. Hltl 2 tll 7 stlg. Laug.’tn Vindur: t 3-8 Hiti 6° til -2° Fremur hæg norðvestlæg átt, dálitll él og vægt frost norðanlands en annars léttskýjað og hltl 1 tll 6 stlg. Sunnii Vindur: ( 3-5 hiaL, Hiti 6° til -2° Hægvlðri. Léttskýjað eða skýjað með köflum. Hltl 1 til 6 stlg að deginum, hlýjast sunnanlands en víða vægt næturfrost. TOfflliW AKUREYRI léttskýjaö -12 BERGSSTAÐIR léttskýjaö -10 BOLUNGARVÍK léttskýjaö -3 EGILSSTAÐIR -14 KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö -2 KEFLAVÍK skýjaö -2 RAUFARHÖFN skýjað -17 REYKJAVÍK léttskýjaö -3 STÓRHÖFÐI skýjaö 2 BERGEN léttskýjaö 3 HELSINKI skýjaö 2 KAUPMANNAHÖFN skýjaö 3 ÓSLÓ léttskýjað 0 STOKKHÓLMUR 1 ÞÓRSHÖFN skúrir 1 ÞRÁNDHEIMUR snjóél 0 ALGARVE heiöskírt 20 AMSTERDAM rigning 7 BARCELONA léttskýjað 10 BERLÍN rigning 8 CHICAGO þokumóöa 11 DUBLIN léttskýjaö 1 HAUFAX alskýjaö 0 FRANKFURT skýjaö 7 HAMBORG alskýjaö 5 JAN MAYEN léttskýjaö -12 LONDON alskýjaö 7 LÚXEMBORG þokumóöa 4 MALLORCA skýjaö 12 MONTREAL heiöskirt 4 NARSSARSSUAQ alskýjað 5 NEW YORK Skýjaö 9 ORLANDO alskýjaö 21 PARÍS skýjaö 8 VÍN skýjað 7 WASHINGTON alskýjað 12 WINNIPEG alskýjað 4 ■ivYdACTiarogrdH.fiKLMóiwittf.BBSiMai BYGGT A UPPLYSINGUM FRA VEGAGERP RIKISINS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.