Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2001, Blaðsíða 13
13
MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001
I>V
DV-MYND E.ÓL.
Einar og Orn með Karólínu Lárusdóttur á milli sín
Hvarvetna var leikur þeirra markviss og tilfinningaþrunginn, nákvæmur og öruggur.
tónsmíðin væri prýðilega ílutt. Kannski
væri ekki galið að stytta hana, sérstaklega
seinni hlutann.
Flúruð, lífleg og kímin
Annað sem þeir Einar og Örn léku rann
ljúflega niður. Fimm dansprelúdíur eftir
Lutoslawski voru hver annarri glæsilegri,
ólíkar stemningar voru túlkaðar af innlifun
og næmni, og var styrkleikajafnvægi hljóð-
færanna úthugsað. Örn fær plús hjá undir-
rituðum fyrir að ná þolanlegum hljóm út úr
takmörkuðum flygli Salarins, og átti kulda-
legur tónninn ekki illa við tónlist Lutos-
lawskis. í rómantískum impressjónismanum
í rapsódíu Debussys saknaði maður hins
vegar hlýlegri blæbrigða þó Örn reyndi hvað
hann gat, það er bara ekki hægt að búa til
silkipoka úr svínseyra. Heyrst hefur sá
orðrómur að Steinway-flygill sé á leiðinni,
sem er vonandi rétt. Ef einhvers staðar ætti
að vera góður flygill er það einmitt í Salnum
í Kópavogi, þar sem flestir píanótónleikar
eru haldnir hér á landi.
Síðasta verkið á efnisskránni var sónata
eftir Poulenc, með týpískum laglínum sem
nánast þöndu sig yfir hálft píanóhljómborð.
Tónlist Poulencs er einstök, hún er sér-
kennilega flúruö, lífleg og jafnvel kímin, og
var túlkun þeirra Einars og Arnar i fremstu
röð. Hvarvetna var leikur þeirra markviss
og tilfinningaþrunginn, og svo nákvæmur og
öruggur að maöur gat allt eins verið að
hlusta á geislaplötu. Var þetta frábær endir
á tónleikum með framúrskarandi listamönn-
um.
Jónas Sen
Tvær íslenskar tónsmíðar voru
frumíluttar á tónleikum sem þeir
Einar Jóhannesson klarínettuleik-
ari og Öm Magnússon píanóleik-
ari héldu í Salnum í Kópavogi á
sunnudagskvöldið. Þetta voru För
eftir Misti Þorkelsdóttur og
Capriccio eftir Karólínu Eiríks-
dóttur. Fyrra verkið hafði reynd-
ar verið frumflutt erlendis, en
þetta var í fyrsta sinn sem það er
leikið hér á landi. Erfitt er að lýsa
þessari tónlist, hún virðist eiga
sér rætur í einhverjum draum-
kenndum veraleika þar sem innra
flæði ræður ferðinni fremur en
rökréttar formúlur. Oft verða
langir tónar að einhverju allt öðru
á fullkomlega eðlilegan hátt, og
undirliggjandi hljómarnir eru
framandi, en samt þægilegir
áheyrnar. Útkoman er afslöppuð,
þetta er sérlega fallega skrifuð
músík fyrir bæði hljóðfærin, og
var hún svo vel flutt á tónleikunum að unað-
ur var á að hlýða. Einari tókst að galdra
fram svo fagra tóna að maður trúði varla
eigin eyrum, og leikur Arnar var sömuleiðis
einstaklega nákvæmur og tær.
Verk Karólínu er að mati undirritaðs ekki
eins áhrifamikið þó þar komi fyrir margar
góðar hugmyndir. í grófum dráttum má
skipta tónsmíðinni í tvo hluta, og einkennist
sá fyrri af hryssingslegum hljómum og
hvassri hrynjandi sem skapa magnaða
stemningu. Seinni hlutinn er í fullkominni
andstæðu, íhugulir hljómar reika um í
stefnulausri lognmollu, sem er áhugavert
fyrst en verður heldur langdregið er á líður.
Var útkoman á tónleikunum einhvern veg-
inn ekki sannfærandi, og breytti þar engu þó
Gal
Odd Nerdrum laðar að sér fjölda áhugasamra á Kjarvalsstöðum
Eftir flóðið
Maóur og hestshaus (1993) eftlr Odd Nerdrum
Viö erum stödd í óvissri framtíö þegar mannlífi eins og viö þekkjum þaö hefur veriö
tortímt.
Það var múgur og marg-
menni á opnun hjá Odd
Nerdrum á Kjarvalsstöðum
á laugardaginn var, enda
maðurinn vel þekktur hér á
landi þótt aldrei hafi hann
sýnt hér fyrr. Hann sagðist
í opnunarræðu sinni hafa
dregið það eins lengi og
hann gat að sýna á íslandi,
honum þætti svo vænt um
margt fólk hér að hann
hefði ekki viljað svekkja
það og kannski missa vin-
skap þess með því að láta
það sjá þetta dót sem hann
væri að framleiða.
Kits kallar hann mynd-
irnar sínar sem þýðir að
hann lítur ekki á þær sem
frumlega list heldur úr-
vinnslu úr eldri list, því
sem búið er að gera, búið að
vera vinsælt. Endur-
vinnsla. Drengurinn með
tárið. Þess vegna segir
hann að listgagnrýnendur
hati myndirnar sínar og
gefi þeim ævinlega vonda
einkunn. Ekki hefur þegar
þetta er ritað nokkur ís-
lenskur listrýnir tekið
ögrun hans og skrifaö um
sýninguna - enda vandséð
hvað eigi að segja: Ef mað-
ur hallmælir henni er mað-
ur að hlýða málaranum; ef
maður hælir henni þá er
maður bara að sýna að
maður sé ekki eins og hin-
ir!
Af einhverjum ástæðum kemur skáldsag-
an Eftir flóðið sem sænski rithöfundurinn
P.C. Jersild skrifaöi fyrir rúmum 20 árum og
Njörður P. Njarðvík íslenskaði (1983) aftur
og aftur upp í hugann á sýningu Odds Ner-
drums. Sagan gerist eftir þriðju heimsstyrj-
öldina; það er enn mannlíf en geislun hefur
valdið gróðurdauða og ekki er lengur neitt
sem heitir siömenntað líf á jörðinni. Sömu
tilfmningu gefa myndir Odds. Þetta er ekki
fortíð, ekki miðaldir eins og manni gæti iðu-
lega dottið í hug af klæðnaði persónanna,
heldur framtíð þegar ekki verður lengur raf-
magn eöa bílar eða borgarlíf eins og við
þekkjum það. Afskræming margra persóna á
myndunum bendir lika til geislunaráhrifa.
En ekkert af þessu stafar listamaðurinn ofan
í okkur heldur leyfir
hugsununum og áhrifun-
um að seytla inn.
Listveldi í Víðsjá
Á undan opnun á Kjar-
valsstöðum var fluttur
leikþátturinn „Listveldi"
eftir málarann sjálfan í
þýðingu Aðalsteins Dav-
íðssonar. Þetta er samtal
tveggja manna, Odds
sjálfs og annars enn þá
frægari Norðmanns, list-
málarans Edvards Munch
sem dó nokkrum mánuð-
um áður en Odd fæddist.
Listveldið er vamarræða
Odds, réttlæting á því
hvers vegna hann málar
eins og gerir - hann lætur
Munch sannfæra sig um
að hann sé kitsmálari og
hafi rétt til þess að vera
það. Samtalsþátturinn var
upphaflega birtur í banda-
ríska listtímaritinu Art
News fyrir tveimur árum.
Hér var hann fluttur af
Sigurði Karlssyni og Arn-
ari Jónssyni undir stjórn
Hávars Sigurjónssonar, og
þeir sem ekki komust á
opnunina geta heyrt hann
í Víðsjá á Rás 1 í dag. Víð-
sjá hefst kl. 17.03.
Þess má að lokum geta
að Listasafn Reykjavíkur
verður opið alla páskana
eins og ekki væri stórhátíð heldur venjuleg
helgi. Kjarvalsstaðir verða opnir alla daga
kl. 10-17 og til kl. 19 í kvöld, miðvikudag. Á
mánudaginn kemur, annan i páskum, verð-
ur leiðsögn um sýningu Odds Nerdrum kl.
15. Hafnarhúsið verður opið kl. 11-18 alla
daga og til kl. 19 á skírdag, en Ásmundarsafn
kl. 13-16 alla daga.
___________Meiming
Unisjón: Silja Aöalsteinsdóttir
Ragna sýnir í New York
Ragna Sigrúnardóttir opnaði sýningu á olíumál-
verkum í Agora Gallery í New York í vikunni sem
leið og stendur sýningin fram yfir páska eða til 21.
apríl. Sýningin ber heitið Visions From Life og sýn-
ingarsalurinn er á Broadway 560 í Soho. Hann er op-
inn þrið. - laug. kl. 12-18.
Gesualdo í Hallgrímskirkju
Kammerkórinn Schola cantor-
um heldur tónleika í Hallgríms-
kirkju að kvöldi föstudagsinn
langa kl. 21 undir stjórn Harðar
Áskelssonar. Þar verða m.a. flutt
verk eftir norska tónskáldið Knut
Nystedt og ítalska endurreisnar-
tónskáldið Carlo Gesualdo sem
þykir einn af stórbrotnustu tilraunamönnum í sí-
gildri tónlist. Algert namm.
J óhannesarpassían
Annað algert namm, meira að
segja sama dag verður Jóhann-
esarpassían BWV 245 eftir J. S.
Bach flutt tvisvar af Kór Lang-
holtskirkju, á fóstudaginn langa,
kl. 16 og 20. Einsöngvarar verða
Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Nanna
María Cortes, Þorbjörn Rúnars-
son, Eiríkur Hreinn Helgason og
Bergþór Pálsson sem sýngur hlut-
verk Jesú. Kammersveit Langholtskirkju leikur með
og konsertmeistari er Júlíana Elín Kjartansdóttir.
Stjórnandi er Jón Stefánsson.
Músík í Mývatnssveit
Um páskana verður í fjórða
sinn haldin tónlistarhátíð við Mý-
vatn undir yfirskriftinni Músík í
Mývatnssveit og undir stjórn
Laufeyjar Sigurðardóttur. Fyrri
tónleikamir verða að kvöldi föstu-
dagsins langa í Reykjahlíðar-
kirkju. Þar verða meðal annars
flutt verk eftir Scarlatti, Handel
og Schubert. Á tónleikum í Skjól-
brekku síðdegis á laugardag verður Silungakvintett-
inn eftir Schubert á dagskrá ásamt íslenskum og
ítölskum sönglögum. Einsöngvari er Jóhann Frið-
geir Valdimarsson tenór.
Þjóðvegurinn
Þjóðvegurinn, síðasta stóra leikritið sem August
Strindberg skrifaði, verður páskaleikrit Rásar 1 að
þessu sinni og hefst kl. 13 á páskadag. Aðalpersóna
þess er fórumaður sem gengur ofan úr Alpafjöllum
gegnum skógi vaxna dali eftir mjóum, krókóttum
stíg. Þórarinn Eldjárn þýddi verkið, Stefán Baldurs-
son leikstýrir og Hjalti Rögnvaldsson leikur aðal-
hlutverkið.
Parsifal á páskum
Richard Wagner félagið á ís-
landi sýnir óperuna Parsifal af
myndbandi í Norræna húsinu á
laugardaginn kl. 13. Sú hefð hefur
skapast hjá félaginu að sýna þessa
óperu á páskum enda hæfir það
vel bæði efni hennar og boðskap.
Að þessu sinni verður sýnd upp-
taka frá Metropolitan óperunni i
New York sem gerð var 1992, hefð-
bundin og afar falleg sýning. Sungið er á þýsku en
enskur skjátexti fylgir. Hljómsveitarstjóri er James
Levine en leikstjóri Otto Schenk. í helstu hlutverk-
um eru Siegfried Jerusalem og Waltraut Meier. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
Líf í ljóðum
Vika bókarinnar hefst þriðjudaginn eftir páska
eins og nánar verður getið þá, en rétt er að bók-
menntaáhugamenn leggi strax á minnið að fyrsta
kvöldiö, þriðjudagskvöldið kl. 20.30, hefst í Þjóð-
menningarhúsinu fyrsta ljóðadag-
skrá vikunnar. Þá lesa Sigurður
Pálsson, Þorsteinn frá Hamri, Vil-
borg Dagbjartsdóttir, Kristján
Þórður Hrafnsson og Sigurbjörg
Þrastardóttir eigin ljóð en Hjalti
Rögnvaldsson les ljóð Kristjáns
Karlssonar og Matthíasar Johann-
essens.
Ljóðin sem lesin verða eru úr
gjafabókinni Líf í ljóðum, ljóðasafni 22 íslenskra ljóð-
skálda sem gefin er út í 8.000 eintökum, og fá við-
skiptavinir bókabúða sem versla fyrir 1.000 krónur
eða meira bókina að gjöf frá bóksölum.