Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2001, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2001, Blaðsíða 10
10 Útlönd MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 DV Nelson Mandela Mandela, fyrrverandi forseti S-Afríku, er meö ný gögn frá Gaddafi. Mandela kynnir ný gögn um Lockerbiemálið Fyrrverandi forseti S-Afríku, Nel- son Mandela, kveðst hafa ný gögn um Lockerbiemálið. Nýju gögnin eiga að geta sannað sakleysi Líbíu- mannsins sem dæmdur var í lífstið- arfangelsi fyrir sprengjuárásina á flugvél Pan American-flugfélagsins yfir skoska bænum Lockerbie 1988. 270 manns létu lífið er flugvélin fórst. íviðtali við breska blaðið The Guardian kveðst Mandela hafa feng- ið gögnin frá Muhammad Gaddafi Líbíuleiðtoga. Mandela ætlar að af- henda Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, gögnin síðar í apríl. Hann ætlar samtímis að fara fram á Bretar afnemi refsiaðgerðir sínar gegn Líbíu eins og þeir höfðu lofað ásamt Bandaríkjunum. „Ég lofa engu en Gaddafi hefur greint mér frá staðreyndum sem mér voru ekki kunnugar og ég ætla að heimsækja Bretland hið fyrsta til að ræða málið við Blair,“ segir Mandela. Forsetinn fyrrverandi átti stóran þátt í að telja Gaddafi á að framselja tvo Líbíumenn, sem ákærðir voru fyrir sprengjuárásina, fyrir tveimur árum. Bandarískur gagnnjósnari í raðir Real IRA Bandarískur gagnnjósnari, sem laumaði sér inn í raðir Real IRA, samtaka sem eru á móti friðarsam- komulaginu á N-írlandi, verður lík- lega afgerandi vitni í réttarhöldun- um yflr Michael McKevitt, meintum leiðtoga samtakanna. Real IRA eru talin bera ábyrgð á sprengjuárás- inni í Omagh 1998 þegar 29 manns létu lífið. Samtökin eru einnig talin bera ábyrgð á fjölda sprengjuárása í London að undanfömu. Bandaríska alríkislögreglan, FBI, og breska leyniþjónustan, MI5, hafa í samein- ingu aflað sönnunargagna gegn Real IRA. Gagnnjósnarinn, David Rupert, er fyrrverandi vörubílstjóri frá 111- inois. Hann gekk sjálfur i Real IRA en iðraðist og hóf samvinnu við FBI og MI5. Með aðstoð hans hefur ver- ið hægt að rekja hverjir hafa veitt samtökunum fjárhagsstyrki. Vopna- kaup hafa verið rakin, meðal ann- ars til Balkanskaga. Þegar McKevitt bað Rupert um þátttöku i hryðju- verki lét hann sig hverfa. exxxotica www.exxx.is PÁSKATILBOÐ 40% AFSLÁTTUR af eggjum ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR AF ÖÐRUM VÖRUM Barónsstíg 27 - S: 562 7400 Harðir bardagar á Gaza í nótt: ísraelar réðust á flóttamannabúðir Harðir bardagar brutust út milli ísraelskra hermanna og hundraða palestínskra byssumanna í nótt þeg- ar Palestínumenn sögðu að ísraelar hefðu brotið sér leið inn í flótta- mannabúðir á Gaza með jarðýtum og skriðdrekum. Palestínskir sjónarvottar sögðu að tilkynningum hefði verið útvarp- að um hátalarakerfi moskunnar í Khan Younis búðunum þar sem all- ir þeir sem höfðu vopn undir hönd- um voru hvattir til að snúast til vamar, í nafni hins heilaga stríðs gegn ísraelskum hermönnum. Átökin blossuðu upp skömmu eft- ir að palestínskur embættismaður hafði lýst því yfir að háttsettir ör- yggismálafulltrúar ísraels og Palest- ínumanna myndu hittast síðar í dag til að reyna að binda enda á átökin. Sex mánuðir eru nú liðnir síðan allt fór í bál og brand milli ísraela og Palestinumanna, eftir heimsókn hægrimannsins Ariels Sharons, Blóði ötuð höndin Palestínskur lögregluþjónn réttir upp hönd sína sem hann dýföi í blóö sem rann úr félaga hans sem týndi lífi í flugskeytaárás ísraelska hersins á bækistöövar palestínsku lögregl- unnar á Gaza í gær. sem nú er orðinn forsætisráðherra ísraels, til Musterishæðarinnar í Jerúsalem þar sem miklir helgidóm- ar múslíma eru. George W. Bush Bandaríkjafor- seti ræddi við Abdullah Jórdaníu- konung vestur í Washington í gær og sagðist við það tækifæri hafa mikinn áhuga á að vinna að því að fá stríðandi fylkingar til að leggja niður vopn. Talsmaður ísraelska hersins sagði að ráðist hefði verið inn í Khan Younis flóttamannabúðirnar til að eyðileggja hús og olíuviðar- lund þar sem palestínskir byssu- menn höfðu leitað skjóls eftir að hafa skotið á ísraelska landnema og hermenn. Að sögn starfsfólks Nasr-sjúkra- hússins i flóttamannabúðunum voru tuttugu særðir fluttir þangað eftir átökin. Flytja átti fjóra alvar- lega særða til Shifa-sjúkrahússins í Gazaborg. Hvutti þefar af kjötpokum Sóttkvíarhvuttinn Jessie þefar af kjötvörum sem geröar hafa veriö upptækar á alþjóöaflugvellinum í Sydney í Ástralíu. Ástralir eru mjög á veröi vegna gin- og ktaufaveikifársins í Bretlandi og víöar í Evrópu. Farþegar frá Bretlandi og Evrópu hafa veriö hvattir til aö greina tollayfirvöldum frá öllum matvörum eöa ööru sem kynni aö bera meö sér smit. Endataflið í njósnaflugvélardeilunni í Kína hafið: Bandaríska áhöfnin jafn- vel látin laus um helgina Teikn eru á lofti um að lokakafli deilu bandarískra og kínverskra stjórnvalda um bandarísku njósna- flugvélina og áhöfn hennar á Hain- an-eyju sé hafmn. Ellefu dagar eru nú liðnir síðan bandaríska flugvélin nauðlenti eftir árekstur við kín- verska orrustuþotu yfir Suður-Kína- hafi. Svo virtist í morgun sem kín- verskir ríkisfjölmiðlar væru farnir að búa þjóðina, sem er reið vegna atviksins, undir tilkynningu um andlát kínverska flugmannsins sem fór í hafið eftir áreksturinn. Jiang Zemin Kínaforseti hafði áð- ur sagt í Úrúgvæ, þar sem hann er í opinberri heimsókn, að Bandaríkja- menn og Kínverjar „ættu að finna lausn við hæfl á þessum vanda“. Hugmannsins leitaö Mikill fjöldi fiskibáta leitar aö líki kín- verska orrustufíugmannsins sem fór í hafíö fyrir ellefu dögum eftir árekst- ur þotu hans viö bandaríska njósna- fíugvél yfir Suöur-Kínahafi. Kínaforseti minntist ekkert á þá kröfu, sem stjórnvöld í Peking hafa ítrekað hvað eftir annað frá upp- hafi, að Bandarikjamenn bæðust af- sökunar á árekstrinum. Kínasérfræðingur í Washington, sem tengist George W. Bush Banda- ríkjaforseta, sagði að bandarískir embættismenn væru farnir að láta það berast að 24 manna áhöfn njósn- avélarinnar kynni að verða leyst úr haldi um helgina. Leit stendur enn yfir að kín- verska flugmanninum en kinversk blöð sögðu að næstæðsti maður sjó- hersins hefði sagt eiginkonu hans að líkurnar á þvi að hann fyndist á lífi færu sífellt minnkandi. Það þyk- ir jafnvel til marks um að leitinni verði hætt fljótlega. Ekki í forystu íhaldsins Chris Patten, framkvæmdastj ór i hjá ESB, lýsti því yfir í blaðaviðtali í morgun að hann ætlaði ekki að sækj- ast eftir leiðtoga- embætti íhalds- flokksins í Bret- landi tapi flokkurinn í kosningun- um í júní. Grunaður um morð Lögreglan í Miami á Flórída hef- ur handtekið mann sem grunaður er um að hafa fyrir 5 árum nauðgað og kyrkt 13 ára breska stúlku sem var á skólaferðalagi í Frakklandi. í fangelsi vegna spillingar Dómstóll á Taívan hefur dæmt 43 menn í allt að 20 ára fangelsi fyrir fjársvik. Byggingafyrirtæki og bankar tengjast málinu. Kjarnorkumótmæli Grænfriðungar hlekkjuðu sig í gær við lest í Þýskalandi sem flytja átti kjarnorkuúrgang til vinnslu- stöðvar í Frakklandi. Lögreglu tókst að fjarlægja mótmælendur. Dómarar segi frá aðild Dómsmálaráðherra Noregs, Hanne Harlem, vill að dómarar, sem eru félagar í frímúrarareglum, opinberi félagsaðild sína. Skuldir efst á baugi Gífurlegar skuld- ir Rússa voru í brennidepli í við- ræðum Gerhards Schröders Þýska- landskanslara og Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta i St. Pétursborg í gær. Rússar vilja fá hluta skuld- anna, sem nema um 2 þúsund millj- örðum króna, afskrifaðan. Stórstríð yfirvofandi V-afrískir leiðtogar héldu í gær fund í Abuja, höfuðborg Nígeriu, til að reyna að finna lausn á átökunum á landamærum Líberíu, Gíneu og Síerra Leóne. Fundurinn var talinn síðasta tækifærið til að koma í veg fyrir stórstríð á svæðinu. Castro á tali við Costner Kevin Costner kvikmyndaleikari og Fidel Castro Kúbuforseti ræddust við fram á nótt í fyrradag eftir að hafa horft saman á myndina Thirteen Days í Havana. Bandalag iengst til hægri Mið- og vinstri bandalag ítalska flölmiðlakóngsins Silvios Berluscon- is hefur myndað kosningabandalag með flokknum Fiamma Tricolore á Sikiley sem þykir öfgaflokkur til hægri. Flokkurinn hefur lýst yfir stuðningi við Frelsisflokk Haiders í Austurríki. Mengun frá páfa Umhverfisráðherra Italíu, Willer Bordon, ítrekaði í gær hótun sína um að taka útvarp páfagarðs úr sambandi. Tilkynntu yflrvöld þar ekki hvenær þau ætluðu að draga úr rafsegulgeislum frá loftnetum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.