Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2001, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2001, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001 7 :ov Fréttir Frá 6. mars til 3. apríl lækkaði auglýst verð á nokkuð á annað hundrað íbúða: Afsláttarverð á yfir 100 íbúðum - yfirspennan búin og farið að prútta, segja fasteignasalar Lauslegur samanburður DV á fasteignablaði Mbl. 3. apríl og ann- ars frá 6. mars leiddi í ljós að ásett verð hafði lækkað á á annað hund- rað notuðum íbúðum sem auglýstar voru í báðum þessum blöðum, frá 2ja herbergja og upp i einbýlishús. Afsláttur frá 100-400 þús. kr. er al- gengur en líka eru mörg dæmi um meiri afslátt, jafnvel að einbýlishús sé nú auglýst 2 milljónum ódýrara en i mars. Einnig er nokkuð um að fasteignasalar hafi tekið ásett verð út í nýjustu auglýsingunum. Úr 25,9 millj. í 23,5 Lítum á nokkur dæmi úr auglýs- ingum: Stúdíóíbúð við Austurbrún lækkar úr 8,7 millj. i 8 m. Önnur ósamþykkt íbúð við Eiðistorg lækk- ar úr 4,9 milljónum í 4,5 m og 2ja h. við Baldursgötu úr 7,9 millj. í 7,1 m. Þriggja herbergja íbúð við Vallarás lækkar úr 12,8 milljónum í 11,8 m. og við Funalind úr 12,7 millj. í 12,4 m. Hæð við Hraunteig lækkar úr 18,7 milljónum í 17,9 m„ einbýli við Aratún úr 19,8 millj. í 18,5 m„ ann- að við Austurbrún úr 28 millj. í 26,9 m. og það þriðja við Lambhaga úr 25,9 millj. í 23,5 milljónir. M.v. fjölda þinglýstra kaupsamninga í viku hverri (t.d. 146 á höfuðborgarsvæð- inu síðustu vikuna í mars) virðist sala samt í fullum gangi og m.a.s. líflegri í mars en næstu mánuði á undan. Eignir fyrir meira en 20 milljarða skiptu um eigendur sl. 3 mánuði. Leiörétting á rugli Runólfur Gunnlaugsson í fast- eignasölunni Höfða er ekki á því að ibúðaverð sé farið að lækka þótt auglýsingamar gefi það til kynna. „Ég man eftir einni eign í Hlíðun- um en það var vegna þess að eigand- inn vildi fá milljón meira en við mátum hana á og síðan gekk ekkert að selja. Það er alltaf eitthvað um svona lagað, en svo áttar fólk sig. Það er bara svona rugl sem verið er að leiðrétta. Fari menn eftir verð- leiðbeiningum okkar þá gerist þetta ekki. Þá er það bara þetta venjulega prútt; 2-34-5 hundruð þúsund eða hvað það nú er. Almennt sýnist mér þessar ásettu upphæðir halda en fólk er auðvitað farið að prútta meira núna heldur en þegar yfir- spennan var markaðnum. Þá voru oft 2-3 tilboð í gangi í sömu eignina sem spennti verðið oft yfir ásett verð sem er mjög óvenjulegt ástand. Sú yfirspenna er nú búin sem betur fer og markaðurinn almennt séð í góðu jafnvægi, en mér sýnist engin verðlækkun orðin raunin enn þá.“ Yfirspennu lokið Framboðið segir Runólfur ágætt en aUs ekki offramboð því eftir- spurn sé líka drjúg, jafnvel umfram- eftirspurn á „heitustu" svæðunum. Flestar eignir seljist á bilinu frá 2 vikum til 2-3 mánaða, séu menn ekki með glórulausar verðkröfur. Runólfur segir Netið orðið miklu sterkari miðil í fasteignasölunni sem margir hafi ekki áttað sig á enn þá. Árni Erlendur Stefánsson hjá Gimli tók í sama streng og Runólf- ur. Tíma yfirspennu og verðhækk- ana sé lokið og allra bjartsýnustu verðtölumar gangi ekki lengur, og markaðurinn sé í góðu jafnvægi. -HEI Lyfjastuldurinn á FSA: Enn þá óupplýstur Lyfjastuld- urinn á Fjórð- ungssjúkra- húsinu á Ak- ureyri er enn þá óupplýstur. Að sögn Hall- dórs Jónsson- ar, fram- kvæmdastjóra spítalans, höfðu i gær engar nýjar vísbendingar komið fram í málinu. Búið er að yfirheyra fjölda starfsmanna og var einn tiltekinn aðili á tímabili grunaður um þjófnaðinn. Sam- kvæmt heimildum DV gekkst við- komandi undir blóðrannsókn sem reyndist neikvæð en Halldór seg- ist ekki geta staðfest að þetta hafi gerst. „Ég þekki ekki allar hliðar málsins og veit ekki hvort lögregl- an hefur óskað eftir þessu við til- tekna einstaklinga," segir Halldór. - Stjórn FSA hefur ekki farið fram á það að tilteknir aðilar sættu blóðprufu? „Nei, það hefur að minnsta kosti ekki verið lagt inn á mitt borð,“ segir framkvæmdastjóri FSA. Mjög er búið að stórherða eftir- lit með lyfjaskápunum sem stolið var í fjórgang úr og segist Halldór bjartsýnn á að búið sé að fyrir- byggja frekari stuld en ekkert sé öruggt. „Maður skyldi aldrei segja aldrei." -BÞ Halldór Jónsson. Emmess Skafís Irlsh Emmess Skafis Oaím URVALS Lambaiæri Freyju Rískubbar '199 kr/i7o URVALS Lambahryggur Freyju Hríspokar (Flóð) 226 kr/200g Göteborg Condis Göteborg Remi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.