Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2001, Page 11
11
MIÐVIKUDAGUR 11. APRÍL 2001
Útlönd
Hótelkeðja í Taílandi segir upp samningi við fyrirtæki Sophie:
Æf vegna yfirlýsinga
um kynlífsveislur
Minnisvarði um móður Gagaríns
Ferdar fyrsta geimfarans, Rússans Júrís Gagaríns, sem fór þrjá hringi umhverfis jöröu 12. apríl 1961, er nú víöa
minnst. í tilefni þess aö 40 ár eru liöin síöan var í gær afhjúpaöur minnisvaröi um móöur Gagaríns, Önnu, í
Rússiandi.
Áhrifa ummæla Sophie Rhys-
Jones, greifynju af Wessex, og
starfsfélaga hennar, Murrays Hark-
ins, við blaðamann S dulargervi
arabísks fursta er farið að gæta.
Stjórnendur lúxushótelkeðjunnar
Banyan Tree í Taílandi eru æfir og
sögðu í gær upp samningi við fyrir-
tæki Sophie sem hljóðaði upp á um
200 milljónir króna.
í viðtalinu, sem tekið var upp á
segulband í leyni, gortaði Murray
Harkin af því að geta skipulagt kyn-
lifsveislur með drengjum fyrir við-
skiptavinina. Sagði hann við „arab-
íska furstann" að best væri að leigja
smáhýsi á vegum Banyan Tree-hót-
elkeðjunnar.
„Við erum ekki ánægðir með að
hótelið sé notað eða því lýst á þenn-
an hátt,“ sagði markaðsstjóri þess
við breska blaðið The Sun. Harkin,
sem er samkynhneigður, gat þess
einnig í viðtalinu að hann neytti
flkniefna og kynti undir orðrómi
um meinta samkynhneigð Játvarð-
ar prins, eiginmanns Sophie.
Hneykslismálið vegna ummæla
Sophie um stjórnmálamenn, kon-
ungsíjölskylduna og gagnið af
tengslunum við hana í viðskiptum
varpar einnig skugga á fyrirhugað
kynningarstarf Andrésar prins fyrir
breskt viðskiptalíf. Prinsinn er
þekktur fyrir áhuga sinn á hinu
ljúfa lífi. Fyrr á þessu ári voru tekn-
ar myndir af honum með berbrjósta
dömum í Taílandi og hann heim-
sótti einnig vændishverfið í Pat-
pong.
Breska þjóðin er þó enn hrifm af
konungsfjölskyldunni sinni. Niður-
staða skoðanakönnunar, sem gerð
var um helgina og birt var í gær,
sýnir að 70 prósent aðspurðra vilja
halda konungdæminu en 23 prósent
leggja það niður. Niðurstaða
könnunar blaðsins The Express
sýndi svipaða niðurstöðu en 69
prósent lesenda blaðsins The
Mirror vilja leggja konungdæmið
niður.
Um 50 þingmenn, flestir úr
Verkamannaflokknum, kröfðust
þess í gær að viðskiptatengsl kon-
ungsfjölskyldunnar yrðu gerð opin-
ber. Nauðsyn væri á meiri hrein-
skilni í kringum fjárreiður kon-
ungsfjölskyldunnar til að hægt yrði
að forðast hagsmunaárekstra.
A móti líknardrápi
Mikill fjöldi andstæöinga líknardráps
lagöi leiö sína til Haag í Hollandi í
gær til aö mótmæla frumvarpi um
aö lögleiöa þessa umdeildu iöju.
Einn mótmælenda hélt á lofti mynd
afJesú Kristi til aö sýna andstööu
sína viö frumvarpiö.
Hollenska þingið
samþykkti lög
um líknardráp
Hollenskir stjórnmálamenn og
stuðningsmenn líknardráps lýstu í
gær yfir þeirri von sinni að ákvörð-
un hollenska þingsins í gær að
heimila líknardráp yrði til þess að
örva umræðumar um þetta um-
deilda mál annars staðar.
Efri deild hollenska þingsins lét
þúsundir mótmælenda ekki hafa
áhrif á sig og féllst á það með drjúg-
um meirihluta atkvæða að lögleiða
líknardráp. Holland er þar með
fyrsta landið í heimi sem það gerir.
Líknardráp hefur hins vegar verið
stundað óátalið í meira en tvo ára-
tugi.
Mikill fjöldi mótmælenda safnað-
ist saman við hollenska þingið í
Haag til að lýsa yfir andstöðu sinni
við frumvarpið.
Játvarður og Sophie
Pólitískur ritstjóri breska blaösins The Sun hvetur Brown fjármálaráöherra
til aö gefa honum sama tilboö um starf eöa menntun eins og
atvinnulausir unglingar fá.
SM
m
| Verð aðeins
1.980 kr
hvor bók
Fróðleikur
í vasann
HEIMS!
ATLAS
ms
Heimsattas
Fánar heimsins
Hentugar vasa-
handbækur fyrir þá
sem vilja kynna sér
fljótt og örugglega
það helsta um lönd
og þjóðir nútímans.
Bækur fyrir skólann,
vinnuna og
feróalagió.
Mál og menmng
TnaiDgrnBnning-is
Laugavegi 18 • Sími 515 2500 • Síðumúla 7 • Sími 510 2500
Norðmenn lítt hrifnir af nýjustu hugmyndunum frá Brussel:
ESB vill ráða yfir olíu-
lindum á neyðartímum
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins f Brussel hefur í undir-
búningi frumvarp tii laga sem á að
tryggja tilfærslu orkugjafa milli að-
ildarlandanna komi til orkukreppu
í Evrópu, svipað og gerðist árið
1973, þegar olíuframleiðendur skrúf-
uðu fyrir kranana, að því er breska
blaðið The Sunday Times greindi
frá um helgina.
Norska blaðið Aftenposten sagði
frá því í gær að ef þessar hugmynd-
ir framkvæmdastjórnar ESB yrðu
að veruleika gæti það þýtt að Norð-
menn myndu glata yfirráðum yfir
eigin olíulindum á norska land-
grunninu, vegna aðildar þeirra að
Evrópska efnahagssvæöinu.
Einar Bull, sendiherra Noregs hjá
ESB, sagði í viðtali við Aftenposten
að ef hugmyndirnar næðu fram að
ganga myndi væntanlega þurfa að
taka þær upp innan EES. Norð-
menn gætu þó neitað að taka slík
lög.upp.
Bull sagðist ekki telja að Norð-
menn gætu samþykkt tilskipanir frá
ESB sem sviptu þá umráðarétti yfir
olíulindum sínum á neyðartímum.
„Það er klárt að þetta kann að
hafa verið lagt fram á algjöru frum-
stigi, án þess að Norðmönnum hafi
enn verið kynnt það,“ sagði Bull í
viðtalinu við Aftenposten.
Olav Akselsen, olíu- og orkumála-
ráðherra Noregs, sagði Aftenposten
að hann hefði aldrei fengið neinar
upplýsingar um að slíkar hugmynd-
ir væru uppi á borðinu innan Evr-
ópusambandsins.
Að sögn Sunday Times snýst mál-
iö ekki bara um umráðaréttinn yfir
olíulindunum á neyðartímum. Evr-
ópskum olíufélögum yröi uppálagt
að selja olíu sína til annarra landa
Evrópusambandsins, en ekki á
frjálsum markaði.
Bresk stjórnvöld hafa þegar lýst
vanþóknun sinni á tillögum þessum
og Francis Maude, ráðuneytisstjóri
i breska utanríkisráðuneytinu,
sagði að með þeim væri Evrópusam-
bandið að reyna að hrifsa til sín ol-
íuforða Breta.
Eigum allar stærðir á lager!!!
Minnst: 110 sm x 90 sm
borðhæð 38 sm
Burðun 350 kg.
Verð kr. 33.500
Stærst: 230 sm x 135 sm
borðhæð 45 sm.
Burður. 1.000 kg.
Verð: 187.700,-
Einnig hestakerrur og bilakerrur.
FRABÆRAR KERRUR
í öllum stærðuml
*
** jC
EVRÓ
Grensásvegi 3 (Skeifumegin)
Reykjavík • s: 533 1414