Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.2001, Blaðsíða 24
60
MIÐVIKUDAGUR 11. APRIL 2001
' Tilvera
I>V
í f iö
) l( V J IJ N U
Ball í Gúttó
Leikfélag Akureyrar frumsýn-
* ir í kvöld kl. 20 leikverkið Ball í
Gúttó eftir Maju Árdal en hún
er jafnframt leikstjóri. Ball í
Gúttó gerist áriö 1942 og er flók-
in og falleg ástarsaga um fólk og
hamingjuleit þess á tímum þegar
þjóðfélagið umtumaðist á ör-
skotsstundu.
Leikarar em Þóranna Kristín
Jónsdóttir, Sigriður E. Friðriks-
dóttir, Hinrik Hoe Haraldsson,
Skúli Gautason, Saga Jónsdóttir
og Þorsteinn Bachmann. Ball í
Gúttó er sýnt í Samkomuhúsi
Leikfélagsins á Akureyri.
Pojp______________ .
■ UNGLINGATONLEIKAR I HK-
HEIMILINU Hljómsveitirnar Andlát,
Borgarbandiö og Sóldögg spila á
unglingatónleikum í HK-heimilinu,
Digranesi. Húsið opnar kl. 20.
Klúbbar
■ STORVtÐBUHOUR A THOMSEN
Miles Holiway og Elliot Eastwick
saman, bak í bak, á bak viö spilar-
ana á Kaffi Thomsen. Viö höfum
heyrt í þeim sínum í hvoru lagi. Nú
er kominn tími til aö heyra snilling-
ana á bak viö þjóðsöguna um Haci-
enda spila saman sem einn. 20
meölimir á póstiista Thomsens
.. veröa á gestalista. Skráöu þig á
www.thomsen.is.
Klassík
■ FOSfUVAKÁ I HÁTEIGSKIRKJU
Dr. Sigurjón Arni Eyjólfsson héraös-
þrestur flytur erindið Þeir vita ekki
hvaö þeir gjöra um þjáningu og fyrir-
gefningu. Kirkjukór Háteigskirkju og
kammersveit flytja Missa Brevis eft-
ir Joseph Haydn og kórverk eftir
Franz Liszt og Hugo Distler, undir
stjórn dr. Douglas A. Brotchie org-
anista. Dagskráin hefst kl. 20 og
aögangur er ókeypis.
■ TÓNLEIKAR Á HÖFN í HORNA-
FIBÐI Hávaröur Tryggvason kontra-
bassaleikari og Guömundur Krist-
mundsson víóluleikari halda tónleika
í Pakkhúsinu á Höfn í Hornafirði. Á
__ efnisskrá veröa meöal annars verk
' eftir J.S. Bach, Dittersdorf, Bartok,
Sperger og Gliere. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 20.30 og eru skipulagðir af
menningarmálanefnd Hornafjaröar, í
samstarfi við Félag íslenskra tónlist-
armanna.
■ TÓNLEIKAR í HALLGRÍMS-
KIRKJU Listvinafélag Hallgríms-
kirkju stendur fyrir tónleikum í Hall-
grímskirkju, kl. 20 undir yfirskriftinni
0, crux ave. Prófessor Hans-Dieter
Möller frá Dússeldorf í Þýskalandi
leikur orgeltónlist eftir Bach, Nivers,
Tournemire og Messiaen, auk þess
sem hann leikur af fingrum fram
orgeltónlist yfir gregorísk stef
dymbilvikunnar. Sönghópurinn Voces
Thules syngur gregoríska helg-
isöngva sem mynda grunninn aö
spuna Möllers. Viöfangsefnin tengj-
_ ast helgihaldi dymbilvikunnar, frá
pálmasunnudegi til föstudagsins
langa.
Leikhús
■ SYNGJANDI í SKÝFALUNU Leik
ritiö Syngjandi í rigningunni eftir
Comden, Green, Brown og Fred
verður sýnt klukkan 20 í kvöld á
Stóra sviöi Þjóöleikhússins. Örfá
sæti laus.
■ SNIGLAVEISLAN Sniglaveislan
eftir Olaf Jóhann verður sýnd í lönó
klukkan 20 í kvöld. Gunnar Eyjólfs-
son, Sigurþór Albert Heimisson,
Sunna Borg og Hrefna Hallgríms-
" dóttir fara meö helstu hlutverk og
leikstjóri er Siguröur Sigurjónsson.
Uppselt.
■ Á SAMA TÍMA SÍÐAR Leikritiö Á
sama tíma síöar veröur sýnt í kvöld
klukkan 20 í Loftkastalanum. Nokk-
ur sæti eru laus.
Sjá nánar: Lffiö eftir vlnnu á Vísi.is
DVJHYND HARl
Hapra Melsted
„Ég veit ég er aö svíkja lit meö því aö búa í Kópavogi!"
Stórafmæli hjá Haukunum á morgun:
Tvíheilagt hjá Hörpu
„Það verður stórhátíð á morgun
því Haukarnir eiga 70 ára af-
mæli,“ segir Harpa Melsted, fyrir-
liði handboltaliðs Hauka, bros-
andi, „og það skemmtilega er að
hann pabbi minn hefði líka átt af-
mæli þann dag og hann var í
hljómsveitinni Haukum," bætir
hún við. Hún segir þó ekkert sam-
band milli íþróttafélagsins og
hljómsveitarinnar. „Faðir minn,
Gunnlaugur Bjarni Melsted,
kynntist aldrei iþróttafélaginu
Haukum en hljómsveitin hans var
vinsæl á sinni tíð, meðal annars
fyrir lögin Þrjú tonn af sandi,
Fiskinn minn, nammi, nammi,
namm og fleiri góða slagara."
Harpa kveðst hafa misst pabba
sinn ung að árum og flutt eftir það
Bíógagnrýní
í Hafnarfjörð. „Ég var 7-8 ára þeg-
ar ég flutti í Fjörðinn, fór beint í
Hauka og hef haldið mikilli tryggð
við þá.“ Sem dæmi um hollustuna
við félagið nefnir Harpa að oft hafi
hún fylgt handboltastrákunum á
ferðalögum og hvatt þá til dáöa,
meðal annars hafi hún verið í
klappliðinu sem fór til Portúgal á
dögunum. „Fólkið sem stendur að
Haukunum er eins og ein stór fjöl-
skylda og það er ómetanlegt fyrir
þá sem standa í eldlínunni og
keppa,“ segir Harpa. Hún segir
mömmu sína, Sigurbjörgu Þor-
varðardóttur, sem starfi á endur-
skoðunarskrifstofu í Hafnarfirði,
vera eina af stuðningsmönnunum
og uppeldisföður sinn, ísleif Val-
týsson, líka.
Dálítið erfitt með
sjúkraþjálfuninni
Harpa er tuttugu og sex ára.
Hún gekk í MR, fór eftir það í fjög-
urra ára háskólanám og útskrifað-
ist með BS-gráðu í sjúkraþjálfun.
Nú vinnur hún í Sjúkraþjálfun
Kópavogs og segir handboltann
vera eins og aukavinnu. „Æfing-
arnar taka mikinn tíma og auðvit-
að er þetta dálítið erfitt með
sjúkraþjálfuninni. Á vissum tíma-
punktum verður maður mjög
þreyttur," viðurkennir hún. Upp-
skeran er líka góð, það sannaðist
um síðustu helgi þegar liðið henn-
ar krækti í íslandsmeistaratitil-
inn, þriðja árið í röð. „Þetta var
yndislegur sigur," segir hún og
brosir breitt.
Háskólabíó - Girlfight 'Á’ -Ar
Hafnfirðingur í Kópavogi
Þegar haft er orð á að hún búi í
Kópavogi en ekki Hafnarfirði
verður hún hins vegar pínulítið
skömmustuleg á svipinn. „Ég veit
ég er að svíkja lit. En ég fann
þessa góöu íbúð á viðráðanlegu
verði fyrir þremur árum og sló til.
Það voru ekki allir sáttir við þessa
ráöstöfun og allra síst ég. Auðvit-
að er ég Hafnfirðingur þótt ég búi
í Kópavogi enda er Lindahverfið,
sem ég er í, örstutt frá Hafnar-
firði. Svo sný ég örugglega til
baka einhvern daginn!" -Gun.
Stelpa í strákaleik
Hilmar
Karlsson
s krifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Diana tilbúin í slaginn
Micheie Rodríguez sýnirgóöan leik í erfiöu hlutverki.
Hetja verður til er oftast þemað í
kvikmyndum sem fjalla um afreks-
fólk í íþróttum. Slíkar myndir eru
eins misjafnar og þær eru margar.
Meðal betri hetjumynda í þessum
flokki má nefna fyrstu Rocky-mynd-
ina þar sem Sylvester Stallone skap-
aði hina dæmigerðu íþróttahetju
sem rís úr öskustónni og verður
hetja í augum íjöldans og Chariot of
Fire þar sem ekki aðeins var lögð
áhersla á afrek aðalpersónanna
heldur einnig vinskap. Raging Bull
og Eight Men out eru með alvarleg-
um undirtóni þar sem neikvæðar
hliðar eru dregnar fram og svo eru
það myndir eins og The Natural og
Field of Dreams þar sem dulúð er
varpað yfir íþróttahetjuna.
Allar þessar myndir eru komnar
nokkuð til ára sinna og ástæðan fyr-
ir því að nýrri myndir eru ekki
nefndar í þessu sambandi er aö jafn-
frambærilegar kvikmyndir á þessu
sviði hafa ekki verið gerðar fyrr en
nú að Girlfight kemur með ferskan
andvara inn í staðlað umhverfi. Þaö
er ekki bara aö íþróttahetjan okkar
er stúlka, sem telur það best fyrir
hennar sálarheill að losa sig við
reiðina gagnvart umhverfmu með
því að slást, heldur þarf hún að berj-
ast við fordóma gagnvart stúlkum í
hnefaleikum, föður sem litur á hana
sem vinnukonu og gera upp á milli
tilfmninga sinna gagnvart ungum
manni sem hún er hrifin af og
íþróttarinnar þegar þau þurfa að
berjast í hringnum.
I upphafi kynnumst við Diönu
Guzman (Michelle Rodriguez) þar
sem hún er að efna til slagsmála í
skólanum. Hún er kölluð fyrir
skólastjóra sem segir henni að ef
hún einu sinni enn verði staðin að
slagsmálum innan veggja skólans
verði hún rekin. Þetta er fáum mán-
uðum fyrir útskrift. Diana er mjög
reið ung stúlka, samansafnaða reiði
má rekja til uppeldis hennar og þess
að móðir hennar framdi sjálfsmorð
sem hún telur föður sinn vera
ábyrgan fyrir. Þá hefur faðir henn-
ar veðjað á bróður hennar og sett
hann í hnefaleikaþjálfun. Diana vill
slást og stelur peningum frá föður
sinum til að geta borgað fyrir tima i
hnefaleikum. Það kemur fljótt í ljós
að hún hefur hörkuna, keppnisskap-
ið og viljann sem til þarf.
Það sem aðgreinir Diönu frá öðr-
um íþróttahetjum er að hún er fyrst
og fremst að berjast fyrir sjálfa sig
og er ekki i leit að frægð og frama.
Hvort hún heldur áfram er ósvarað.
Hún hefur afrekað mikið í lokin og
fundið sér fótfestu í lífinu. Það er
þessum bakgrunni sem leikstjórinn
og handritshöfundurinn Karyn
Kusama sinnir einstaklega vel og
það gerir myndina dýpri. Með því
að æfa hnefaleika verður Diana
betri samfélagsþegn og á auðveldara
með að samlagast skólafélögum sín-
um.
Stór plús við Girlfight er Michelle
Rodriguez. Þessi unga leikkona er
trúverðug í hlutverki sínu, hún get-
ur verið jafngrimm á svipinn og
Mike Tyson og síðan á einu andar-
taki breyst í unga ráðvillta stúlku
sem vill vel en er í vöm gagnvart
þjóöfélaginu. Þá er greinilegt að
Rodriguez hefur mikið lagt á sig til
aö ná styrk og tækni þegar kemur
að hnefaleikum. Ung leikkona sem
vert er að fylgjast með.
Leikstjórn og handrit: Karyn Kusama.
Kvikmyndataka: Patrick Cady. Tónlist:
Theodore Shapiro. Aöalleikarar: Michelle
Rodrigguez, Jamie Tirelli, Paul Calderon
og Santiago Douglas.