Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2001, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2001
Fréttir
DV
Áminning heilbrigðiseftirlits vegna daggæslu barna á einkaheimili í Breiðholti:
Nítján börn í
25 fermetra rými
- útileiksvæðið „moldarflag“ og teppi „gömul og óhrein“
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
hefur áminnt tvo einstaklinga sem
reka sameiginlega daggæslu á
einkaheimili í Breiðholti. Við eftir-
lit reyndust 19 böm í gæslu, en
starfsleyfi gerir ráð fyrir 10 böm-
um að hámarki. Ella ber að sækja
um leyfi til leikskólareksturs. Hef-
ur heilbrigðiseftirlitið krafist þess
að starfsemin verði nú þegar færð
í það horf sem starfsleyfi gerir ráð
fyrir og verði innan ramma þess í
framtíðinni. Áminning heilbrigðis-
eftirlitsins hefur veriö kynnt á
fundi umhverfis- og heilbrigðis-
nefndar Reykjavíkur.
í áminningarbréfi heilbrigðiseft-
irlitsins til rekstraraðila umræddr-
ar daggæslu voru einnig gerðar at-
hugasemdir og kröfur varðandi hús-
næði. Þar segir m.a. „Gangur og hol
mældist 25 fermetrar. Þetta er að
sögn þaö rými sem notað er sem
leikaðstaða. Þegar eftirlit fór fram
voru þar 18 börn en eitt barn var
sofandi í barnavagni á lóð. Sam-
kvæmt reglum um dagvistun 6-10
bama á einkaheimilum, samþykkt-
um af Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur
þann 1. september 1995, skal leik-
svæði fyrir hvert bam vera 3,5 fer-
metra gólfflötur.... Vakin er athygli
á að þegar eftirlit vegna útgáfu
starfsleyfis fór fram áætlaði leyfis-
hafi að nýta stærri hluta húsnæðis-
ins fyrir starfsemina. Nauðsynlegt
er að nú þegar verið aukið rými tek-
ið til afnota fyrir börnin í samræmi
við ofangreindar kröfur, að lág-
marki 35 fermetrar miðað við tíu
börn.“
Þá gerði heilbrigðiseftirlitið at-
hugasemdir við „gömul og óhrein
teppi“ á holi og gangi. Einnig að lóð
sem væri notuð sem leiksvæði barn-
anna sé „ófrágengið moldarílag."
Jámstigi sem liggi frá gangstétt nið-
ur á lóðina sé „slysagildra og afar
hættulegur litlum bömum“. Nú þeg-
ar skuli hætta að nota lóðina sem
leiksvæði fyrir börnin, þar til frá-
gangi hennar og slysavömum hafi
verið sinnt. Þá sé stigi frá 1. hæð
niður í kjallara hættulegur þar sem
ekkert handrið sé til staðar. Þegar
skuli bæta úr því.
Heilbrigðiseftirlitið mun fylgja
því stranglega eftir að farið verði að
kröfum þess um úrbætur.
-JSS
Blönduós:
Slagsmál
í heimahúsi
Hörð slagsmál brutust út á
Blönduósi aðfaranótt sunnudagsins.
Svo virðist sem hópur aðkomu-
manna hafi átt ýmislegt vantalað
við ungan mann sem var ásamt fá-
einum kunningjum staddur á heim-
ili sínu í bænum. Heimildir blaðs-
ins herma að tvívegis hafi skorist í
odda milli mannanna og lögregla
verið kvödd á staðinn í bæði skipt-
in. 1 fyrra skiptið hafi ekkert orðið
úr átökum en síðar um kvöldið, þeg-
ar mennirnir knúðu aftur dyra hjá
unga manninum, brutust út mikil
slagsmál.
Lögreglan á Blönduósi kom á
staðinn skömmu síðar og tókst aö
stilla til friöar. Enginn var handtek-
inn vegna málsins og að sögn lög-
reglu tvístraöist hópurinn og fór
hver til síns heima. Húsráðandi og
félagi hans urðu fyrir minni háttar
meiðslum og hefur annar þeirra
lagt fram kæru vegna líkamsárásar.
Lögreglan hefur kæruna nú til með-
ferðar.
-aþ
1. maí
Milli fimm og sex þúsund manns tóku þátt fyrsta maí göngunni í Reykjavík í gær. Ræöumenn dagsins voru Ögmundur
Jónasson alþingismaöur og Guömundur Gunnarsson, formaöur Rafiönaöarsambandsins. Göngumenn létu veöriö ekki
aftra sér og báru spjöld til aö minna á kröfu sínar um hærri laun og jafnari kjör í landinu.
Hvítasunnukirkjan í sárum vegna Thermo Plus:
Trúverðugleiki okkar sem
predikara er algjörlega horfinn
- fundað verður um helgina, segir Snorri Óskarsson
Snorri Óskarsson, safnaðarhirðir söfnuðimir séu i sárum vegna undan-
Hvítasunnukirkjunnar í Vestmanna- genginna atburða í tengslum við
eyjum, segir erfitt að segja annað en gjaldþrot Thermo Plus í Keflavík.
Snorri
Óskarsson.
DV-MYND EINAR ORN
Buena Vista Social Club í Laugardalshöll
Þaö fór fiöringur um þann mikla fjölda áhorfenda sem lagöi leiö sína í Laug-
ardalshöll á mánudagskvöld og í gærdag þegar öldungarnir í Buena Vista
Social Club stigu á sviöiö og tóku kúbverska sveiflu af miklum eldmóöi. Eftir
því sem leiö á tónleikana varö andrúmsloftiö rafmagnaöra og fór svo aö í lok-
in gátu sumir ekki stillt sig um aö taka sporið. Á myndinni er ein af stjörnun-
um, söngvarinn Ibrahim Ferrer, aö taka í hönd á aödáendum.
Eins og ítrekað hefur komið fram í
DV hafði Hinrik
Þorsteinsson, for-
stöðumaður safnað-
arins í Kirkjulækjar-
koti, bein afskipti af
starfsemi fyrirtækis-
ins, m.a. sem stjóm-
arformaður og með
því að selja hluta-
bréf í nafni fyrir-
tækisins sem fjöldi manns hefur nú
tapað stórum upphæðum á.
Trúverðugleiki horfinn
„Við lítum þetta auðvitað grafalvar-
legum augum þvi þetta gerir það að
verkum að trúverðugleiki okkar sem
predikara er algjörlega horfmn," seg-
ir Snorri Óskarsson. Hann segir hina
einstöku söfnuði í raun lítið geta gert
í málinu. Hver söfnuður velji sér for-
stöðumann og engin yfirstjóm sé yfir
söfnuðunum í heild, líkt og gerist með
biskupsembætti þjóðkirkjunnar. Þeg-
ar atvik sem þessi koma upp á þá er
þaö í raun komið undir forstöðu-
manninum sjálfum hvort hann segir
upp starfi sínu eða þá að viðkomandi
safnaðarstjórn segi af sér. Aðrir söfn-
uðir Hvítasunnukirkjunnar geta lítið
gert annað en koma með ábendingar
eða ályktanir.
Fundur á laugardaginn
Sumir safnaðarmeðlima hafa tekið
eindregna afstöðu með Hinriki í mál-
inu en aðrir vilja að söfnuðurinn geri
hreint fyrir sínum dyrum. Snorri seg-
ir að meðlimir safnaðanna hafi verið
að hringja sig saman til fundar á laug-
ardaginn. Þeim sem tekið hafa þátt í
hlutafjárkaupum í Thermo Plus hefur
veriö bent á að lýsa sig vanhæfa til að
fjalla um málið og vonast menn til að
þannig verði komist hjá árekstrum í
væntanlegum umræðum.
„Þetta er allt spuming um trúverð-
ugíeika," segir Snorri Óskarsson sem
er nú á fórum frá Vestmannaeyjum.
Hann hættir sem safnaðarhirðir þar í
bæ 30. júní og flytur á eftir konu sinni
til Akureyrar. Þar mun hann hverfa til
starfa við grunnskólakennslu. -HKr.
Landlækni stefnt
Kona hefur stefnt i
Landlækni fyrir
hönd ólögráða dóttur
sinnar. Hún hafði
óskað eftir því að
upplýsingar um lát-
inn föður hennar
færu ekki í miðlæg-
an gagnagrunn á I
heilbrigðissviði. Þeirri beiðni hafnaði
landlæknir.
Tiu frávísanir frá gildistöku
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflug-
velli, sem sér um landamæraeftirlit,
hefur vísað tíu einstaklingum frá
landi síðan Schengen-samstarfið hófst
25. mars síðastliðinn. Fréttablaðið
greindi frá.
Nær 7% bensínhækkun
Verð á bensíni hækkaði í gær, 1.
maí, um 6 krónur og 60 aura á lítrann
eða um tæp 7%; og kostar 95 oktana
bensín. nú 102 krónur og 90 aura lítr-
inn. Ej|Mlolía hækkar um 3 krónur og
90 agrajlítrinn og kostar nú 50 krónur
og 60 áura. Hækkunin á bensínverð-
inu samsvarar 1.650 miljóna króna
kostnaðarauka á ári fyrir bíleigendur.
íslensk verðbréf í kröggum
Fjármálaeftirlitið bannaði kaup Líf-
eyrissjóðs Norðurlands á 50% hlut í
islenskum verðbréfum i lok mars sl.
íslensk verðbréf voru rekin með 51
milljónar króna tapi á síðasta ári og
fóru forsvarsmenn fyrirtækisins að
leita leiða til að styrkja rekstrar-
grundvöllinn.
Grænmetisnefnd með tillögur
Verð á innfluttu grænmeti og
ávöxtum gæti lækkað verulega nái til-
lögur Grænmetisnefndarinnar
svokölluðu fram að ganga. Nefndin
hefur sent landbúnaðarráðherra
áfangatillögu í 6 liðum til að bregðast
við tollum og verði á grænmeti og
ávöxtum.
Leigja Litluá í 10 ár
Pálmi Gunnarsson
tónlistarmaður og
Erling Ingvason,
tannlæknir á Akur-
eyri, hafa tekið
Litluá í Kelduhverfi
á leigu í 10 ár og
hyggjast byggja sjó-
birtingsstofninn þar
upp með aðferðum sem hingað til hafa
aðeins verið reyndar i laxveiðiám hér-
lendis. RÚV greindi frá.
Með þrlðjung karfakvótans
Grandi hf. og Samherji hf. eru með
rúman þriðjung úthafskarfakvótans á
vertíðinni sem nú er hafin. Alls eru
þessar tvær útgerðir með tæplega
15.700 tonna kvóta en heildarkvótinn
á vertíðinni er samtals 45.000 tonn.
InterSeafood.com greindi frá.
Tryggingamál í ólestri
Tryggingasamn-
ingar lögreglumanna ]
áttu að renna út á I
miðnætti í fyrrinótt.
Landssamband lög-1
reglumanna ákvað
hins vegar að gang-1
ast í ábyrgð fyrir tryggingunum í
mánuð í viðbót og ræða framhaldið
við dómsmálaráðuneytið í vikunni.
Haldiö til haga
Rúnar Gíslason héraðsdýralæknir
vill taka fram vegna greinar um Borg-
arnesfundinn um lyfiareglugerð: í
greininni segir orðrétt:
„I dag eru fiórar af hverjum tíu
kúm ónæmar fyrir sýklalyfium".
Á fundinum var ekki verið að tala
um ónæmi gegn sýklalyfium almennt
heldur ónæmi gegn einfóldu penici
ini. Júgurbólgugerlar eru mun nær
ari fyrir öðrum algengum júgurbólg
lyfium, t.d. er næmi gegn penicillinc
brigðinu cloxacillin 99,8%“. -HK