Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2001, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2001, Blaðsíða 13
13 MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2001 DV DV-MYNDIR HARI Halldóra Geirharösdóttir Jóhanna Vlgdís Arnardóttir Sóley Elíasdóttir Sögurnar byggöar á viðtölum við meira en 200 konur á öllum aldri og úr ólíkum þjóðfélagsstigum. Kynfræðsla á 3. hæð Píkusögur Eve Ensler, sem voru frumsýndar í nýjum sal á 3. hæð Borgarleikhússins á sunnu- dagskvöld, bera þess merki að vera upphaflega skrifaðar sem eintöl fyrir eina rödd þó þrjár leikkonur skipti með sér textanum. Leikkonum- ar eru allan tímann á sviðinu en þegar þær eru ekki að fara með texta verða þær að þöglum áhorfendum líkt og þeir sem sitja úti í sal. Á milli þeirra er engin spenna eða díalógur og einmitt þess vegna minnir verkið meira á kennslustund en lifandi leikhús. Til að fyrirbyggja strax allan misskilning er ekki við leikkonumar að sakast í því efni né Sig- rúnu Eddu Björnsdóttur sem með þessari upp- færslu þreytir frumraun sína sem leikstjóri i at- vinnuleikhúsi. Það er bygging verksins sem veldur því sögumar sem sagðar eru á sviðinu tengjast ekki að öðru leyti en því að allar snúast þær um þennan líkamspart kvenna sem vísað er til í titlinum. Eins og kemur fram í texta og í leikskrá em sögumar byggðar á viðtölum við meira en 200 konur á öllum aldri og úr ólíkum þjóðfélagsstig- um. Sumar eru átakanlegar, eins og saga bosn- ísku konunnar sem var nauðgað markvisst dög- um saman, og var flutningur Halldóru Geir- harðsdóttur á þessari hryllingssögu sérlega magnaður. Aðrar eru í léttari dúr, eins og sagan af konunni sem naut þess að gera píkur ham- ingjusamar, og þar fer Jóhanna Vigdís Arnar- dóttir á kostum í útfærslu á ólíkum tegundum stuna. Allar miðla þær reynslu og upplifun kvenna sem tengist þessum líkamshluta sem viö nefnum sjaldnast upphátt og þá helst undir rós. Þannig er til að mynda saga konunnar sem er nauðgað tíu ára af vini foður hennar því hún notar ávallt orðið budda. Sóley Elíasdóttir flutti þetta eintal og var bæði einlæg og skemmtilega bamaleg þar sem það átti við. Leiklist Raunar væri hægt að tilgreina miklu fleiri góða spretti hjá leikkonunum því þær stóðu all- ar vel fyrir sínu og vitanlega er það fjölbreyttri túlkun þeirra að þakka að Píkusögumar eru ágætis skemmtun, auk þess að vera fræðandi. Þýðing Ingunnar Ásdísardóttur var lipur og þjál þó enn sé ég ekki alveg búin að sætta mig við að píka skuli notað um enska orðið „vagina", en tit- ill verksins á ensku er The Vagina Monologues. Leggangaeintölin væri því réttara heiti en vissu- lega er oftar verið að tala um píkuna, þ.e. sköp- in sjálf, en leggöng í textanum. Kannski verður þessi sýning til þess að orðið píka hættir að hafa neikvæða merkingu og þá er líklega tilganginum náð. Þriðja hæðin er viðbót við sýningarsali Borg- arleikhússins og hentar þessari sýningu ágæt- lega. Rýmið er ekki stórt en þar má auðveldlega koma fyrir einleikjum og sýningum sem eru ein- faldar í útfærslu líkt og Píkusögumar. Leik- mynd Axels Hallkels er í raun aðeins þrír stólar og jafnmargir hljóðnemar á fæti. Búningamir eru sömuleiðis látlausir og í dökkum litum og því ekkert sem beinir athyglinni frá sögunum sem þær stöllur eru að segja áhorfendum. Eins og vera ber skapaði lýsing og hljóð viðeigandi stemningu. Eins og áður segir er þetta frumraun Sigrún- ar Eddu sem leikstjóra og má hún vel við una. En það þarf meira „leikhúsverk“ til að meta hæfileika hennar á sviði leikstjómar og vonandi að það verði sem fyrst. Halldóra Friðjónsdóttir Leikfélag Reykjavíkur sýnir á 3. hæö Borgarieikhúss- ins: Píkusögur eftir Eve Ensler. Þýöing: Ingunn Ásdísar- dóttir. Hljóö: Ólafur Örn Thoroddsen. Lýsing: Ögmundur Þór Jóhannesson. Leikmynd og búningar: Axel Hallkell. Leikstjórn: Sigrún Edda Björnsdóttir. Birkir Freyr Blue Mitchell Það er ekki á hverjum degi sem íslensk- ir djassleikarar taka sig til og leika tón- smíðar og uppáhaldslög þeirra Adderley- bræðra. Altóistinn Julian Adderley og bróðir hans, kornetleikarinn Nat Add- erley, voru án nokkurs vafa vinsælustu djassleikarar sjötta áratugarins og langt fram á þann sjöunda. Ég ségi vinsælustu vegna þess að vinsældir þeirra, í Banda- ríkjunum og víðar, náðu langt út yfir landamæri djassheimsins. Lög þeirra, „Work Song“, „Dis heah“, „Dat dere“ o.fl. voru á tímabili leikin oftar i útvarpsstöðv- um en vinsælustu dægurlögin. Forystumenn ÓJ & Möller, píanóleikar- inn Carl Möller og tenóristinn Ólafur Jónsson, fengu með sér trompetleikarann Birki Frey Matthíasson, Birgi Bragason bassaleikara og trommuleikarann Pétur Grétarsson í þetta sinn. Að vísu átti sænski trommuleikarinn Erik Qvik að leika með þeim félögum en Pétur hljóp í skarðið á siðustu stundu þegar Erik for- fallaðist. Ekki er fyrir alla að leika og túlka „sál- arfönk“ Adderley-bræðra. Það var greini- legt strax í upphafí tónleikanna. Þó verð- ur að segja ÓJ & Möller til mikils hróss að þeir gerðu heldur ekki minnstu tilraun til þess að leika lögin í þeirra upprunalega stíl. Það hefði verið skemmtileg æfing en vafalaust kostað lengri tíma og yfirlegu af hálfu kvintettsins. Ólafur Jónsson er góður tenóristi. Á góðum degi leikur hann skemmtilegri línur og yfirvegaðri en flestir yngri tenóristarnir okkar. Hann líður fyrir, sérstaklega þegar hann fær ein- leikstækifæri með Stórsveit Reykjavíkur, að tónn hans er mattur og stundum flatur. Margir viku! Á tónleikunum kom afar slæmur hljóm- burður í veg fyrir að tónn Ólafs væri áheyrilegur. Það var ekki laust við að mað- ur færi að velta fyrir sér hvort Óli hefði ekki átt að spreyta sig á lögum altóistans Adderleys á sitt gamla hljóðfæri, altósaxó- fóninn. En sennilega var nú stefnan sem þeir félagar tóku (viljandi eða óviljandi) hárrétt. Ólafur spilar ekki parkerstíl Add- erleys, leikur Péturs á lítið skylt við leik Louis Hayes, Carl leikur ekki eins og Za- vinul og því síður eins og McKenna og Birgir leikur ekki „sálarfonk" bassalínur. Þrátt fyrir öll þessi ósköp var ÓJ & Möll- er-kvintettinn léttur og skemmtilegur í sinni persónulegu túlkun á Adderley. Það var dálitið merkilegt að yngsti félagi kvin- tettsins, Birkir Freyr Matthíasson, trpt., lék eins og hann væri uppalinn í New York eða Chicago á árunum 1950-60. Birk- ir sýndi snilldartakta, lék hverja bop-lín- una á fætur annarri með prýðilegum „fra- seringum.“ Leikur hans minnti af og til á bopsnillinginn Blue Mitchell sem var upp á sitt besta í New York þegar Birkir fædd- ist úti í Vestmannaeyjum! Það fór ekki á milli mála að Birkir Freyr var „stjarna kvöldsins" enda kunnu áheyrendur Múl- ans auðheyrilega vel að meta leik hans. Tónleikarnir voru í heildina mjög áheyrilegir. Adderley-lögin standa alltaf fyrir sínu og strákamir voru góðir. Ég skemmti mér vel. Takk fyrir. Ólafur Stephensen ÓJ & Möller-kvlntettinn: Tónlist Cannonballs Adderleys. Djassklúbburinn Múlinn í Húsi Málarans 26. apríl. Carl Möller píanóleikari Ekki er fyrir alla að leika og túlka „sálarfönk“ Adderley-bræöra. tenóristar með svipaðan tón hafa lagað þennan galla með sérstökum hljóðnemum. Þetta gerði hetjan Zoot Sims m.a. í samleik með Brook- meyer hér einu sinni. Vandi Zoots var bara sá að hann týndi hljóðnemanum a.m.k. einu sinni I Menning Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttir Megas skáld Fer á nýjar slóðir með sköpun sína á nýjum hljómorðadiski. Óðurinn til spill- ingarinnar Magnús Þór Jónsson eða Megas sendi nýlega frá sér hljómdisk sem nefnist Haugbrot/Glefsur úr neó-reyk- vískum raunveruleika. Á diskinum les Megas gamla og nýja prósa við seið- andi undirleik Hilmars Arnar Hilm- arssonar, Guðlaugs Kristins Óttarsson- ar og Pollock-bræðranna Michaels og Daníels. Stjórn upptöku og hljóð- blöndu er í höndum Hilmars Árnar. Á diskinum fer Megas á nýj- ar slóðir með sköpun sína og les upp í stað þess að syngja. Upplesturinn er bæði skýr og skiljanlegur og getur enginn kvartað yfir því að skilja ekki texta hans. Stærstur hluti textans er helgaður þeim kumpánum Birni og Sveini, söguhetjum í samnefndri skáldsögu Megasar, ævintýrum þeirra og tengsl- um við undirheima Reykjavíkur, am- fetamin, ungmennafélög og gullsturt- una. Prósi Megasar málar mannlífið sterkum litum eins og þegar hann mærir amfetamín og segir: „Orð ná ekki að lýsa með fátæklegasta hætti þeirri tifmningu sem hrærist í briósti mér - eða í innstinnsta búri miðtauga- kerfisins - er ég nálgast heilagleika þinn og sístreymandi gjafmildi. Mörg eru nöfn þín líktog alls þess sem guð- legt er [. . .] Ég mæri þig ólgandi upp- ljómun. Duftaða súpernóva. Ég er á hnjánum hver sem ég er...“ Eða þegar hann lýsir fjöldanum sem eins konar risamartröð eöa „mega-möru“. Hljómorðadiskur Megasar krefst at- hygli. Menn verða að gefa sér góðan tíma til að hlusta á speki skáldsins og ekki dregur seiðandi og draumkennd tónlistin úr áhrifunum. Til hamingju með upprisuna. -Kip Þess má geta aö settur hefur veriö á fót sérstakur klúbbur fyrir fylgismenn Megasar, Hinn klúbburinn, skráning á megas@edda.is Tónleikar Þóru Á sunnudaginn kemur kl. 20 heldur Þóra Einarsdóttir sópransöngkona tón- leika á Stóra sviði Borgarleikhússins. Þóra hlaut nýlega fastráðningu við óp- eruhúsið í Wiesbaden í Þýskalandi en þar hafa nokkrir af okkar bestu söngvurum verið starfandi á síðustu árum, m.a. Kristinn Sigmundsson og Gunnar Guð- björnsson. Þóra hefur sungið í óperuhúsum í Bretlandi, Svíþjóð og Sviss síðan hún lauk námi og nú síðast hér heima i upp- setningu íslensku óperunnar á La Boheme. Hún hefur einnig sungið á tón- leikum víða um heim. Á efnisskrá tón- leikanna verða sönglög eftir Mozart og Schubert og aríur eftir Mozart, Verdi, Carl María von Weber og Johann Strauss. Þóra heldur utan um miðjan maí og eru tónleikarnir í Borgarleikhúsinu þeir síðustu sem hún kemur fram á hér á landi í bili. Undirleikari verður Jónas Ingimundarson en Ármann Helgason leikur á klarínett í einu verkanna. Svavar Sigmundsson nafnfræðingur heldur fyrirlestur í Sjóminjasafni ís- lands, Vesturgötu 8 í Hafnarfirði, á morgun kl. 20.30. Fyrirlesturinn nefnir Svavar „Hvað á skipið að heita?" og þar fjallar hann um nöfn á íslenskum skipum og bátum frá fornu fari til okk- ar tíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.