Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2001, Síða 10
10
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2001
DV
Peres í Washington
Utanríkisráöherra ísraels ræöir viö
ráöamenn í Washington í dag.
Peres hittir
Powell og áfram
er drepið á Gaza
ísraelskir hermenn skutu Palest-
ínumann til bana og særðu fjórtán
til viðbótar í átökum sem brutust út
á Gaza snemma í morgun.
Hermenn, með skriðdreka og
jarðýtur sér til aðstoðar eyðilögðu
bæði íbúðarhús og gripahús Palest-
ínumanna þegar þeir réðust inn í
flóttamannabúðir í Rafah.
Átökin brutust út aðeins
nokkrum klukkustundum áður en
Shimon Peres utanríkisráðherra
ráðgerði að hitta Colin Powell, utan-
ríkisráöherra Bandaríkjanna, í
Washington. Ráðherramir munu
ræða tilraunir bandarískra stjóm-
valda til að hafa milligöngu um
vopnahléssamkomulag svo binda
megi enda á átök undanfarinna sjö
mánaða.
Wahid minnist
varla á ávítur
Abdurrahman Wahid Indónesíu-
forseti minntist varla á ávíturnar
sem þing landsins veitti honum í
vikunni þegar hann flutti ávarp til
þjóðar sinnar í morgun. Þingið
ávítaöi hann öðru sinni vegna
tveggja fjármálahneykslismála sem
hann er tengdur.
Embættismenn og heimildar-
menn úr starfsliði forsetans ítrek-
uðu í morgun að hann myndi ekki
segja af sér embætti. Margir telja
hins vegar að hann sé búinn að vera
sem forseti. Wahid hefur gegnt emb-
ættinu í hálft annað ár.
•1 5
exxxotica
www.exxx.is
GERUM GOTT
KYNLÍF BETRA!
LANDSINS MESTA ÚRVAL AF
UNAÐSTÆKJUM ÁSTARLÍFSINS
Barónsstíg 27 - S: 562 7400
KAUP SALA
IF iDollar 96,330 96,820
KEjPund 137,900 138,600
8*i jKan. dollar 62,870 63,260
gSlPönskkr. 11,4760 11,5390
hHNorak kr 10,5850 10,6430
fSSænsk kr. 9,3960 9,4480
tfc^Fi. mark 14,4025 14,4891
jFra. franki 13,0547 13,1332
K ÍBolg. franki 2,1228 2,1356
U Sviss. frankl 55,5900 55,8900
BHoII. gylllni 38,8588 39,0923
”^Þýskt mark 43,7837 44,0468
B tJit. líra 0,04423 0,04449
r 7* :Aust. sch. 6,2232 6,2606
K ÍPort. escudo 0,4271 0,4297
[J’JJSpá. peseti 0,5147 0,5178
| ♦ jjap. yen 0,79030 0,79510
| jirskt pund 108,732 109,385
SDR 122,15000122,8800
EUecu 85,6335 86,1481
Bandaríkjaforseti greinir frá eldflaugavarnahugmyndum:
NATO fagnar sam-
starfsvilja Bush
George W. Bush Bandaríkjaforseti
hvatti í gær til þess að svokallaður
ABM-samningur um fækkun lang-
drægra kjarnaflauga yrði lagður á
hilluna til að gera Bandaríkjamönn-
um kleift að hrinda í framkvæmd
eldflaugavamakerfi sem bæði Rússar
og Kínverjar eru mjög andsnúnir.
ABM-samningurinn hefur verið
grundvöllurinn að stöðugleika í
kjarnorkumálum milli Rússa og
Bandaríkjamanna undanfarna þrjá
áratugi.
Eldflaugavarnakerfmu er ætlað að
verja Bandaríkin og bandamenn
þeirra fyrir árásum frá óvinveittum
ríkjum eða fyrir kjamorkuflaugum
sem hefur verið skotið á loft fyrir
misgáning.
Bush sagðist ætla að fækka ein-
hliða í kjamorkuvopnabúri Banda-
ríkjanna. Fréttaskýrendur segja að
það komi Rússum til góða þar sem
þeir hafi úr litlu að moða við að halda
kjamorkuvopnum sínum í horfmu.
George W. Bush
Bandaríkjaforseti greinir frá hug-
myndum sínum um eldflaugavarnir
til aö verjast árásum óvinveittra
ríkja. Rússar eru ekki hrifnir.
„Þessi samningur viðurkennir
ekki nútímann eða vísar okkur veg-
inn inn í framtíðina.
Hann varðveitir fortíðina," sagði
Bush sem ætlar að ráðfæra sig við
bandamenn sína, svo og Rússa og
Kínverja um ABM-samninginn frá
árinu 1972.
Evrópskir bandamenn og ráða-
menn í NATO fögnuðu því að Bush
skyldi vilja eiga samvinnu við þá um
eldflaugavarnaáætlun sína. Rússar
sögðust hins vegar vona að Banda-
ríkjamenn myndu ekki varpa ABM-
samningnum fyrir róða. Kofi Annan,
framkvæmdastjóri S.Þ., tók í sama
streng.
Rússar, rétt eins og bandamenn
Bandaríkjanna, fógnuðu hins vegar
yfirlýsingu Bush um einhliða niður-
skurð á kjamorkuvopnum.
Embættismenn i Moskvu vöruðu
þó við nýju vopnakapphlaupi ef Bush
léti verða af því að leggja ABM-samn-
inginn á hilluna.
Júmbódrottningarnar dansa dátt
Taílendingar héldu heldur óvenjulega feguröarsamkeppni í dýragaröi suöur af Bangkok i gær þegar fjöldi kvenna
keppti um titilinn Ungfrú júmbó. Þar er þaö ekki fingerö feguröin sem ræöur úrslitum heidur keppa stútkurnar um aö
vera sem líkastar fílum í öllu tilliti, aö svo mikiu leyti sem kona getur iikst fíl. Stúlkan lengst til hægri varö önnur.
Forseti Filippseyja ætlar
ekki að setja á herlög
Forseti Filippseyja, Gloria
Macapagal Arroyo, sem lýsti yfir
uppreisnarástandi vegna óeirða og
mótmæla gegn stjórninni, lýsti því
yfir í morgun að hún ætlaði ekki að
setja á herlög. Arroyo lýsti yfir upp-
reisnarástandi eftir aö þúsundir
stuðningsmanna Josephs Estrada,
fyrrverandi forseta Filippseyja,
efndu til mótmæla við forsetahöll-
ina í gær.
Stjórnvöld saka bandamenn
Estrada um að hafa æst mannfjöld-
ann til að ráðast á höllina. Sagt er
að Arroyo hafl notað ástandið til að
gefa út handtökuskipun á nokkra
helstu stjómarandstæðinga lands-
ins.
Að því er yfirvöld greindu frá í
morgun létu að minnsta kosti fjórir
lífið í óeirðunum í gær, þrír mót-
mælendur og einn lögreglumaður.
Gloria Macapagal Arroyo
Ætiar aö endurskoöa afstööu sina
haldi óeiröirnar áfram.
Arroyo sagði í morgun að hún
myndi endurskoða afstöðu sína
héldu óeirðirnar áfram.
Estrada, sem var fangelsaður í sið-
ustu viku vegna ákæm um gífurlega
spillingu, var í gær ásamst syni sín-
um fluttur frá aðalstöðvum lögregl-
unnar utan við Manila í fangelsi í um
60 km fjarlægð frá höfuðborginni.
Estrada lýsti yfir andstöðu gegn óeirð-
unum en ítrekaði gagnrýni sina á Ar-
royo.
Sagði hann hana hafa komist til
valda vegna brota á stjórnarskránni.
Estrada, sem flú ði forsetahöllina í
janúar síðastliðnum, heldur þvi fram
að hann sé enn forseti landsins. Ar-
royo ætlar hins vegar að beita járnaga
til þess að halda völdum. Þegar
Bandaríkin lýstu yfir stuðningi við
stjóm hennar kvaðst hún ekki þurfa
að hlaupa til Sáms frænda.
Gorbatsjov í 1. maí göngu
Mikhail Gorbat-
sjov, síðasti leiðtogi
<rwé Sovétríkjanna, fór í
göngu í gær, 1. maí,
í fyrsta sinn frá
hruni Sovétríkj-
anna. Tók hann
þátt í göngu þeirra
sem kröfðust betri
skilyrða fyrir rússneska verka-
menn.
Snjókoma á Spáni
Maímánuður hófst með óveðri á
Spáni. Húsþök fuku og tré rifnuðu
upp með rótum í Valencia og víða
snjóaði á N-Spáni.
Eldsvoði í rússíbana
Á sjötta tug manna slasaðist í gær
í eldsvoða í rússíbana í skemmti-
garðinum Phantasialand utan við
Köln í Þýskalandi.
ESB-nefnd í N-Kóreu
Háttsett nefnd Evrópusambands-
ins, undir forystu Görans Perssons,
forsætisráðherra Svíþjóðar, kom í
morgun til N-Kóru til að fá yfirvöld
þar til að hefja á ný friðarviðræður
við S-Kóreu.
Klansmaöur sekur
Félagi í Ku Klux Klan samtökun-
um, Thomas Blanton, var í gær
fundinn sekur um dráp á fjórum
blökkustúlkum í kirkju í Alabama
1963. Blanton var dæmdur í lífstíð-
arfangelsi.
50 prósent styðja Blair
Horfur eru á yfir-
burðasigri Tonys
Blairs, forsætisráð-
herra Bretlands, i
kosningunum í júní.
Samkvæmt nýrri
könnun nýtur
Verkamannaflokkur-
inn fylgis 50 pró-
senta kjósenda en íhaldsflokkurinn 32
prósenta. Frjálslyndir demókratar
hljóta 13 prósent atkvæða.
40 féllu í fangauppreisn
40 fangar létu lífið og 70 særðust í
átökum stríðandi fylkinga í fangelsi
í Venesúela í gær.
Lokkarnir látnir fjúka
Nýkjörinn for-
sætisráðherra Jap-
ans, Junichiro
Koizumi, hleypti
hárskera í ljóns-
makkann á sér og
þar með hurfu
permanentlokkarn-
ir sem aflað höfðu
Koizumi frægðar. Haft er eftir fjár-
málaráðherra Japans, Masajuro
Shiokawa, í dagblaði að forsætisráð-
herrann hefði litið betur út með
úfna lokkaflóðið.
Dingóhundum slátrað
Slátrun dingóhunda nálægt
ibúðabyggð á Frasereyju undan
strönd Ástralíu hófst í morgun eftir
að tveir villtir hundar höfðu drepið
níu ára dreng. Dingóhundarnir á
Frasereyju eru friðaðir.
Powell heitir stuðningi
Colin Powell, utanrikisráðherra
Bandaríkjanna, hefur heitið Tra-
jkovski Makedóníuforseta aðstoð
við pólítíska lausn á deilunum við
albanska skæruliða.