Dagblaðið Vísir - DV - 02.05.2001, Qupperneq 11
f
11
m
MIÐVIKUDAGUR 2. MAÍ 2001
I>V Útlönd
Spænskur dómari vill að þinghelgi Berlusconis verði aflétt:
Skoðar skattamál
fjölmiðlakóngsins
Spænskur dómari hefur opinber-
lega farið fram á það við ítölsk
stjórnvöld að þau aflétti þinghelgi
fjölmiðlakóngsins Silvios
Berlusconis, næsta forsætisráð-
herra Ítalíu, ef bandalag mið- og
hægriflokkanna fer með sigur af
hólmi i þingkosningunum 13. maí.
Spænska blaðið E1 Mundo greindi
frá þessu í gær.
Beiðni dómarans tengist rann-
sókn á meintum skattsvikum þar
sem spænska sjónvarpsstöðin Tele 5
kemur við sögu. Að sögn spænska
blaðsins var beiðninni komið á
framfæri við hátt settan embættis-
mann í ítalska utanríkisráðuneyt-
inu í síðustu viku.
Talsmaður utanríkisráðuneytis
Italiu gat ekki staðfest fréttina i gær
þegar fréttamaður Reuters leitaði
eftir því.
Stjórnendur Fininvest, fyrir-
tækjasamsteypu Berlusconis í
Mílanó sem á hluta í Tele 5, gagn-
Silvio Berlusconi
Forsætisráðherraefni hægrimanna á
Ítalíu, sem sætir rannsókn bæði
heima og á Spáni, hefur lofað að
skapa 1,5 milljónir nýrra starfa.
rýndu harðlega tímann sem var val-
inn til að leggja fram beiðnina,
svona skömmu fyrir kosningarnar.
Spænska blaðið sagði í frétt á
mánudag frá staðhæfingum um að
fé frá Tele 5 hefði verið látið renna
til annarra fyrirtækja. Ráðamenn
Fininvest vísa öllu slíku á bug.
Það er spænski rannsóknardóm-
arinn Baltasar Garzon sem óskar
eftir því að þinghelgi Berlusconis
verði aflétt. Garzon stjórnar rann-
sókn á fjármálaumsvifum
Berlusconis á Spáni.
E1 Mundo sagði að ekki væri bú-
ist við svari frá Ítalíu fyrr en eftir
kosningarnar.
Garzon reynir einnig að fá þing-
helgi Berlusconis hjá Evrópuráðinu
og Evrópusambandinu aflétt.
Berlusconi segir að staðhæfing-
arnar um skattsvik á Spáni séu með
öllu tilhæfulausar og hann lýsti um-
fjöllun spænska dagblaðsins sem
stríðsyfirlýsingu.
Barist gegn kapítalismanum
Fjandmaður auðvaldsins kastar reyksprengju í mótmælaaðgeröunum 1. maí á Oxfordstræti í London. Til ryskinga
kom milli fjölmenns lögregluliðs og mðtmælenda á þessari fjölsóttu verslunargötu og um tíma lamaðist öll starfsemi
þar. Lögreglan í London hafði mikinn viðbúnað i gær til að átök síðustu ára endurtækju sig ekki.
Færeyingar vilja nyjar
viðræður um sjálfstæði
Lögmaður Færeyja, Anfmn Kalls-
berg, hefur farið fram á nýjar við-
ræður við Poul Nyrup Rasmussen,
forsætisráðherra Danmerkur, um
sjálfstæði Færeyja.
í bréfi til danska forsætisráðherr-
ans leggur lögmaðurinn til að
haldnar verði viðræður síðari hluta
maímánaðar til að komast að nýju
samkomulagi um fjárstuðning og
hvemig standa eigi að yfirtöku Fær-
eyinga á eigin málaflokkum sem
lögþingið hefur ákveðið að verði
ekki lengur undir stjórn Dana.
Núverandi samningur um fjár-
stuðning Danmerkur til Færeyja
rennur út í lok þessa árs. Samning-
arnir um fjárstuðning, sem nú nem-
ur um 10 milljörðum íslenskra
króna á ári, hafa hingað til verið
gerðir til þriggja ára í mesta lagi.
Stóru stjómarandstöðuflokkarnir
Poul Nyrup Rasmussen
Danski forsætisráðherrann gerir á
morgun grein fyrir skoðun sinni á
frumvarpi Færeyinga.
í Færeyjum, Sambandsflokkurinn
og Jafnaðarmannaflokkurinn, eru
mótfallnir ákvæði í nýsamþykktu
sjálfstæðisfrumvarpi um 3 til 4
milljarða króna lækkun á fjárstuðn-
ingnum frá og með byrjun næsta
árs.
Frá því að Anfinn Kallsberg af-
lýsti þjóðaratkvæðagreiðslu um
sjálfstæði Færeyja og kynnti í stað-
inn frumvarpið sem var samþykkt
hefur danski forsætisráðherrann
verið mjög þögull um nýjustu að-
gerðir Færeyinga. Kallsberg aflýsti
þjóðaratkvæðagreiðslunni þegar
Nyrup ítrekaði þá afstöðu sína að
sjálfstæðisferlið hefði í fór með sér
fullveldi Færeyja og þar með yrði
fjárstuðningnum til Færeyja hætt á
fjögurra ára aðlögunartímabili.
Hagfræðingar segja það geta haft
alvarlegar afleiðingar.
112.428kr,
Allt frá ml»IB
á tilboði
hjá Rekstrarvðrum
Söiumenn okkar eru vio símann fra kl. 8-17.
Hringdu í síma 520 6666 eða líttu á úrvalið i
stórverslun okkar a
Opið ki. 8-18 a
itrarvörur %
vinna með þér I mlf
V
w
CsiofíT)
Réttarhálsi 2*110 Reykjavlk • Sími 520 6666
Bréfasími 520 6665 • sala@rv.is
Austursíöu 2 • 603 Akureyri
Sími 464 9000 • Fax 464 9009
Netfang asgeiri@sjofn.is
l
i
í
i
i
J
i
I