Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2001, Qupperneq 24
28
Tilvera
FIMMTUDAGUR 3. MAl 2001
DV
lí f iö
E F T I R V I II M U
Ljós og skuggar
Norðmaðurinn Gisle Nataas
opnar sýningu í dag á Mokka-
kafíi við Skólavörðustíg sem ber
heitið EITT ANDARTAK og
aðrar samræður. Innsetningin
byggist á þremur stórum
ljósmyndum í stærðinni 100x70
sm og standa þær í rýmislegu
samhengi við tilsvarandi flöt þar
sem samræður milli HANS og
HENNAR eiga sér stað...
Leikhús
■ EVA Eva - bersögull sjálfsvarnar-
einlelkur verður sýndur klukkan 21 í
kvöld i Kaffileikhúsinu. Miöasala í
síma 551 9055. Örfá sæti laus.
■ PÍKUSÖGUR Píkusögur eftir Eve
Ensler verður sýnt í kvöld klukkan
20 í Borgarlelkhúsinu. Leikstjóri er
Slgrún Edda Björnsdóttir en leikkon-
ur eru þær Halldóra Geirharðsdóttir,
Sóley Elíasdóttir og Jóhanna Vigdís
Arnardóttir. Uppselt.
■ PLATANOV Nemendaleikhúsið og
Hafnarfjarðarleikhúsið sýna í kvöld
Platanov eftir Anton Tsjekhov. Sýn-
ingin hefst klukkan 20 og miðinn
kostar 700 krónur.
■ VÍST VAR INGJALDUR Á RAUÐ-
UM SKOM Ahugamannaleikhúsiö
Hugleikur sýnir í Tjarnarbíói verkið
Víst var Ingjaldur á rauðum skóm
Sýningin hefst klukkan 20.
■ SJEIKSPÍR EINS OG HANN
LEGGUR SIG Halldóra og co sýna í
kvöld klukkan 20 aukasýningu á
verkinu Sjeikspír eins og hann legg-
ur sig í Loftkastalanum.
Sýningar
I KLIDMJUK UOSSINS
KROFUGANGA Borgarskjalasafn
Reykjavíkur opnaði sýningu undir
heitinu Kliðmjúk Ijósslns
kröfuganga á baráttudegi
verkalýösins. Þar eru skjöl og
Ijósmyndir, tengdar
verkalýðsbaráttunni í Reykjavík á
fýrri hluta 20. aldar. Sýningin er opin
til 21. maí á mánudögum til
fimmtudaga kl. 10-20 og föstudaga
til sunnudaga kl. 13-17.
■ MÓÐURMÁLK) - NÁTTÚRAN -
SAGAN I Þjóðarbókhlöðunni
stendur yfir sýning sem ber heitiö
Þróun námsefnis á 20. öld.
Móöurmáliö - náttúran - sagan og
er hún sú fyrsta sinnar tegundar hér
á landi. Sýningin stendurtil 31. maí
og er opin á opnunartíma safnsins.
■ MYNDIR ÚR MARÍU SÖGU
Átján útsaumaöar smámyndir eftir
Elsu E. Guðjónsson, ásamt
frumsömdum vísum eru á sýningu í
Þjóðarbókhlöðunni. Sýningin ber
heitiö Myndir úr Maríu sögu.
■ KROSSINN Á sýningu Kristínar
Geirsdóttur í Hallgrímskirkju er lögð
áhersla á krossinn, þrýhyrninginn og
litinn. Sýníngin er opin alla daga til
20. maí frá kl. 9-17.
Fundir
■ MALSTOFA I LÆKNADEILD
Hallgrímur Arason flytur fýrirlestur í
dag sem nefnist því stutta nafni:
Samanburður á erfðaefni visnu-
mæði, veira úr hjörð sem smitaðist
í löngu sambýli við sýkt fé.
Málstofan fer fram í sal
Krabbameinsfélagsins, efstu hæð,
og hefst kl. 16.15.
■ KÆRLEIKSDAGAR BLIKSINS
Hugleiðsla, gönguferðir, heilun,
miðlun. Allt þetta og miklu meira fer
fram á Kærleiksdögum Bliksins aö
Narfastööum I Reykjadal dagana
4.-6. maí. Lokafrestur skráningar
rennur út í dag, 3. maí.
Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is
Sigríður Björnsdóttir á Hólmavík vann bíl í happdrætti og gaf hann:
Ætlar ekki
setjast undir
A leið til Færeyja að syngja
Sigríður er nú áttatíu og tveggja
ára og þótt hún sé vel ern og hafi
gaman af ferðalögum kveðst hún
ekki treysta sér til að læra á bíl héð-
an af. Sjónin sé líka að gefa sig á
öðru auganu. Aðspurð segist hún
hafa greitt símahappdrættismiðana
í áraraðir og reyndar flesta aðra
slíka miða sem henni berist. Hún
hefur því greinilega lagt sitt af
mörkum til líknarfélaganna i land-
inu. Sigríður býr á Hólmavík en
dvelur oft í sumarhúsinu sinu að
Klettastöðum í Steingrímsfirði á
sumrin. Þangaö er yfir á að fara en
Sigríður lét byggja göngubrú yflr
hana á eigin kostnað. Hún hefur
hljómmikla rödd og afrekaði það
fyrir tveimur árum að gefa út sóló-
disk með söng sínum. Svo er hún í
kór og ætlar með honum til Færeyja
í sumar.
Ekki öruggur upp Ennisháls-
inn
Sigríður er ógift og barnlaus og
tilsagði þvi bróðursyni sínum, Sig-
urði Bimi Guömundssyni, nýja bíl-
inn enda segir hún hann oft hafa
keyrt sig þegar hún hafi þurft á að
halda. Nú síðast hafi hún setið í hjá
DV-MYND GUÐFINNUR
Sigríður er eldhress þótt komin sé
yfir áttrætt
Hún segist þó ekkert hafa v/'ð bíl aö
gera.
druslur sem ég þurfti alltaf að vera
að gera við svo nýi bíllinn kemur
sannarlega í góðar þarfir," segir
hann og kannast alveg við söguna
úr Ennishálsinum. „Ég verðskuld-
aði ekki að fá þennan bíl upp í
hendurnar en hún Sigríður frænka
min er höfðingskona sem á fáa sína
líka,“ segir hann að lokum.
-Gun
Bíógagnrýni
DV-MYND INGÓ
Sigurður Björn og fjölskyldan við nýja bílinn
Húsbóndinn heldur á yngsta syninum Sindra Snæ, næstur er elsti sonur-
inn Guðmundur Björn sem á eitt ár eftir í bílpróf, þá kemur
eiginkonan, Kristín Guömundsdóttir, og síöan þeir Bergþór
Njáll og Elvar Árni.
Kringfubíó - The Way of the Gun ★ ★★
Með köldu blóði
Hilntar
Karfsson
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
Hún Sigríður Bjömsdóttir á
Hólmavík var svo heppin að vinna
bíl í símahappdrætti Krabbameins-
félagsins nýlega. „Ég ætlaði ekki að
trúa manneskjunni sem sagði mér
tíðindin," segir hún um viðbrögð
sín við fréttinni og bætir svo við
glaðlega. „En svona er þetta gott
númer sem ég er með.“ Sigríður
kveðst hafa tekið þá ákvörðun að
gefa frænda sínum bilinn enda hafi
hún ekki bílpróf. „Ég var orðin svo
fullorðin þegar ég fór að umgangast
bíla að ég lét það alveg eiga sig að
setjast undir stýri,“ segir hún til
skýringar.
honum suður þegar hún var á leið
til Víkur í vinarheimsókn fyrir
páska. „Hann var þá á gömlum bíl
og var ekki öruggur með að hafa
það upp Ennishálsinn. Ég er mjög
hamingjusöm með þá ákvörðun að
hafa geflð honum bílinn minn og
vona að sú ráðstöfun komi honum
og fjölskyldunni hans vel,“ segir
þessi rausnarkona.
Kemur í góöar þarfir
Sigurður Björn kveðst ekki hafa-
orðið minna hissa en frænka hans
þegar hann var allt í einu orðinn
eigandi að nýjum bíl. „Ég átti bara
Glæpamenn gegn glæpamönnum
Benecio del Toro í hlutverki Longbaugh, annars tveggja glæpamanna sem
loks sjá tækifæri á aö veröa ríkir.
The Way of the Gun gæti vel ver-
ið nafn á vestra og nafnið vísar i
raun í þá kvikmyndahefð þó hún
gerist í nútímanum og þá helst
vestra á borð Wild Bunch og aðra
sem Sam Peckinpah gerði á sínum
tíma. Leikstjórinn og handrits-
höfundurinn Christopher McQu-
arrie, í sinni fyrstu kvikmynd sem
hann leikstýrir, fer einnig í smiðju
Quentins Tarantinos og eitthvað
hefur hann lært af Bryan Singer
þegar hann vann með honum að
gerð Usual Suspect, en McQuarrie
skrifaði hið snjalla handrit að þeirri
kvikmynd. Það gætir sem sagt
ýmissa grasa í The Way of the Gun.
Þó ekki sé hægt að hrósa Mc-
Quarrie fyrir frumleik í kvik-
myndagerð þá er handrit hans efnis-
mikið með sterkum persónum þar
sem hver og ein einasta persóna á
auðvelt með að vekja hroll hjá
áhorfandanum. Það er enginn byrj-
endabragur á leikstjórn McQuarrie,
allt þaulhugsað og er góður stígandi
í flókinni atburðarás þar sem hvert
smáatriði skiptir máli.
Aðalpersónurnar eru tveir glæpa-
menn, Parker (Ryann Philippe) og
Longbaugh (Benecio del Toro), sem
eiga blóðugan feril að baki sér. Þeg-
ar þeir eru að reyna að næla sér í
pening sem sæðisgjafar heyra þeir
samtal þar sem verið er að tala um
unga stúlku sem gengur með bam
forríks manns. Þeir félagar sjá nú
loks leið til að verða ríkir og ákveða
að ræna stúlkunni sem er vel vernd-
uð af lífvörðum. Ránið tekst eftir að
tveir menn liggja i valnum. Fjótt
komast þeir félagar að þvi að ránið
er kannski ekki eins sniðugt og þeir
héldu í upphafi. Það er ekki aðeins
það að stúlkan gengur með bam
mafluforingja að því er hann best
veit, heldur komast þeir síðar að
því að stúlkan svindlaði og gengur
með barn annars manns. Með mafí-
una á hælunum flýja tvímenning-
arnir til Mexíkó með stúlkuna sem
komin er að því að eiga og þar taka
hlutirnir óvænta stefnu.
Parker og Longbaugh eru kunn-
uglegar persónur, rótlausir ungir
menn sem þekkja ekki annað rétt-
læti heldur en byssuna og það vald
sem hún veitir þeim. Það má
kannski segja að erfitt sé að átta sig
á þeim, stundum eru þeir nákvæm-
lega það sem þeir líta út fyrir að
vera, ofbeldisfullir amtörara í glæp-
astéttinni. Inni á milli sýna þeir svo
snilld sem aðeins er á færi atvinnu-
glæpamanna. Á móti kemur að aðr-
ar persónur eru sjálfum sér sam-
kvæmar og gott mótvægi við Parker
og Longbaugh. Leikur er allur til
fyrirmyndar og ekki hægt að taka
neinn fram yflr annan. Benecio del
Toro bætir enn einni skrautfjöður í
hatt sinn og Ryann Philippe, sem
hingað til hefur eingöngu verið í
unglingamyndum, er greinilega í
sókn. James Cann, sem leikur at-
hyglisverðustu persónuna, Joe
Sarno, manninn sem hreinsar upp
eftir yflrmann sinn, á bestu setning-
arnar í myndinni.
The Way of the Gun er köld kvik-
mynd. Það er nánast engin persóna
sem á samúð skilið nema barnið
sem fæðist í lokin. Myndin er blóð-
ug frá upphafi til enda og það sem
gerir hana kalda er fyrst og fremst
að persónurnar líta sig jafn köldum
augum og aðra. Það er enginn byrj-
endabragur á leikstjóm Christopher
McQuarrie og þegar það er haft í
huga hversu snjall handritshöfund-
ur hann er, þá á hann örugglega eft-
ir að láta mikið að sér kveða í fram-
tiðinni.
Leikstjóri og handritshöfundur:
Christopher McQuarrie. Kvikmyndataka:
Dick Pope. Tónlist: Joe Kraemer. Aöal-
leikarar: Ryann Philippe, Benecio del
Toro, James Caan, Juliette Lewis, Scott
Wilson, Taye Diggs og Nicky Katt.