Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2001, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2001, Blaðsíða 14
14 19 Útgáfufélag: Útgáfufélagið DV ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aóstoóarritstjórar: Jónas Haraldsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson Fróttastjóri: Birgir Guðmundsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/ Fréttaþjónusta á Netinu: http://www.visir.is Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiðlun hf. Plötugeró: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuði 2050 kr. m. vsk. Lausasöluverð 190 kr. m. vsk., Helgarblað 280 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Mislœg Miklabraut Miklabrautin í Reykjavik er hættulegasta og dýrasta gata landsins, af því að þar er mest umferð á landinu og af því að hún hefur orðið útundan hjá stjórnvöldum lands- ins, sem hafa óbeit á Reykjavik og neita algerlega að út- hluta vegafé í samræmi við umferðarþunga. Slysin hrannast upp á margra akreina gatnamótum, sem ekki eru mislæg. Tryggingafélögin hafa reiknað kostnaðinn af gamaldags gatnamótum og komizt að raun um, að hann skiptir tugum milljóna króna á hverju ári á hverjum einustu gatnamótum Miklubrautar. Þetta eru fimm gatnamót, fimm af átta verstu gatnamót- um landsins, og kosta samtals 300 milljónir króna á ári. Tjónakostnaður einstaklinga, þjóðfélags og tryggingafé- laga lækkaði umtalsvert, ef öll þessi gatnamót yrðu mis- læg. Það væri hagkvæmasta nýting vegafjárins. Tjónatölur sýna ekki allan sannleikann. Að baki eru oft skaðar, sem aldrei verða bættir, örorka og andlát. Því hvílir þung ábyrgð á herðum stjórnvalda landsins, sem líta á Reykvíkinga sem annars flokks borgara i landinu og vilja verja vegafé til að bora sem flest göt í fjöfl. Mislæg gatnamót eru ekki aðeins bezta vörnin gegn slysum í umferðinni. Þau hindra þar að auki mengunina, sem hlýzt af því, að menn þurfa sífellt að stöðva bíla sina og taka þá af stað aftur. Kyrrstæðir bílar og bílar, sem eru að fara af stað, eru miklir mengunarvaldar. Þessi töf i umferðinni sóar ennfremur miklu eldsneyti, svo sem fram kemur í útreikningum, er sýna, að gerð mis- lægra gatnamóta á fjölförnustu stöðunum er þjóðhagslega hagkvæmasti kostur í vegagerð á landinu. Eftir þessum útreikningum er síðan afls ekki farið. Samgönguráðuneytinu, Vegagerðinni og Alþingi ber að verja fjármunum vegagerðarinnar í samræmi við hefldar- hagsmuni þjóðarinnar. Ef þessir aðilar landsstjórnarinnar gegndu skyldu sinni, væru öll gatnamót Miklubrautar þegar komin á verkefnaskrá mislægra gatnamóta. Það þýðir, að ekki nægir að opna ný gatnamót á Miklu- braut á fimm ára fresti. Þá tæki aldarfjórðung að koma upp mislægum gatnamótum á Miklubraut aflri. Slíkur hægagangur dugar auðvitað afls ekki. Opna þarf ný gatna- mót á Miklubraut annað hvert ár að minnsta kosti. Dæmigert fyrir fáránleika íslenzkrar vegagerðar er, að fjölförnustu og hættulegustu gatnamót landsins, gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar, skuli ekki enn vera komin á vegaáætlun. Það er ekki heil brú í hugarfari, sem felur í sér, að göng í fjöllum hafi forgang. Tvenn mislæg gatnamót við Kringlumýrarbraut og við Snorrabraut gera kleift að loka gatnamótunum við Löngu- hlíð. Siðan þarf að reisa önnur tvenn mislæg gatnamót við Háaleitisbraut og siðast en ekki sízt við Grensásveg, þar sem er næstversta umferðarhorn landsins. Með slíkum aðgerðum næðist viðstöðulaus akstur á Hringbraut og Miklubraut frá Vatnsmýri upp að mótum Vesturlandsvegar og Suðurlandsvegar, þar sem einnig vantar mislæg gatnamót. Verkefnin eru mörg og brýn og öll eru þau á toppi þjóðhagslegrar hagkvæmni. Vegakerfi er mikilvægur þáttur í innviðum þjóðfélags. Því greiðari sem umferðin er, þeim mun fljótari verða all- ir flutningar og þeim mun hagkvæmari verður rekstur fjölskyldna, fyrirtækja og þjóðfélagsins í heild. Vegafénu ber því að verjá á sem allra hagkvæmasta hátt. Það ætti að vera forgangsverk íslenzkrar vegagerðar að koma upp mislægum gatnamótum á öllum umferðarási Miklubrautar á þessum fyrsta áratug aldarinnar. Jónas Kristjánsson # FIMMTUDAGUR 17. MAÍ 2001 FIMMTUDAGUR 17. MAI 2001 I>V Skoðun Ofmat á umhverfisáhrifum Kjallari Friðrik Daníelsson efnaverkfræöingur Er ísland of fallegt fyrir íslendinga? Eru landsmenn og mann- virki þeirra óæskileg i þessu fagra og „óspillta“ landi nátt- úruperlna og víðerna? Hugmyndaríkir menn vilja a.m.k. friða 30% af landinu, stofna Vatnajökulsþjóðgarð. Það styttist kannske í að hægt verði að friða 60%, allt hálendið og meira til. íslendingar gætu kannske orðið eins og indíánarnir, lifað á að selja ferðamönnum minjagripi í þjóð- garðinum íslandi, þá fáu mánuði sem hann kemur undan snjónum. Ólög Lögvís maður kvartaði nýlega yfir að íslensk lagasmíð væri oft óvönd- uð, jafnvel hreinasta hrákasmíð. Verstu ambögurnar yrðu stundum til þegar íslenskir lagasmiðir tækju erlend lög og bættu við sínum skrif- finnsku- og embættismannadraum- um til að „aðlaga þau íslenskum að- stæðum". Alltaf er verið að setja ný lög og reglur, og oft hermt eftir Evr- ópusambandinu, þaðan kemur stanslaust flóð eftir að EES-samn- ingurinn komst á. Viðjar eru sett- ar á athafnasemi manna, höft sem eru sniðin eftir löndum sem eru margfalt þéttbýlli en ísland og lengra komin með atvinnuööl- breytni. - Lítum á dæmi. Lögmál íslensks umhverfis Sett voru lög um náttúruvernd 1999. Þar sem lýst er markmiði laganna segir meðal annars: „Lögin eiga að tryggja eftir fóng- um þróun íslenskrar náttúru eftir eigin lögmálum." - Helstu lögmál sem ráða þróun íslenskrar náttúru eru niðurbrjótandi og eyðileggjandi. Loftslagið hefur stundum í aldanna rás rústað lífríki íslands. Þrátt fyrir góðæri 20. aldar hefur landið ekki náð sér eftir kuldaskeiðið sem varaði meira og minna frá um 1200 fram til um 1900, þegar 40% af landinu urðu örfoka og eru enn. Annað helsta „lögmál“ íslenskrar náttúru eru eldgos með öskufalli, loftmengun og hraunrennsli. Jökul- árhlaup eyðileggja landsfegurð og gróður. Uppblástur og jarðvegseyð- ing er ráðandi víða á íslandi, landið jafnast út af sandfoki, gróð- urlagið og siðan sandurinn fýkur í náttúruperlur víð- emanna eða þá á haf út. Höft á uppbyggingu Lög um mat á umhverfis- áhrifum voru sett 1993 og síðar „endurbætf ‘ árið 2000. Þau eru ekki aðeins faþin at tefja fyrir nauðsynlegri upp- byggingu, heldur eru þau iU- framkvæmanleg. Gert er skylt að gera skýrslur um ónauðsynleg smátriði, allt of margir aðilar þurfa að gefa umsögn eða úrskurð, alls kyns nöldrarar geta stöðvað framgang verkefna. Framkvæmd laganna er alltof kostnaðarsöm. Lands- virkjun tapaði nærri 1400 milljónum í fyrra en þarf að eyða 250 milljónum í umverfismat fyrir næstu virkjun. Þegar uppbyggingartæki- færin koma geta virkjanamenn engu lofað lengur: „Það þarf fyrst um- hverfismat." - Það fólk sem kann að byggja upp orkuver og framleiða orku er farið að eyða miklu af sinum starfsvirka tima í vafstur í kringum „Það er óþarfi að eyða óhemju fé og tíma í „lögformlegt umhverfismat“ um virkjanir. Það eru til sérkunnáttumenn í landinu sem geta sagt ráðherrunum það sem þeir þurfa að vita um umhverf- isáhrifin, án mikils kostnaðar. “ - Fram- kvœmdir við Vatnsfellsvirkjun. stofnanir, athuganir á mosa og hraunum, umsóknir og skrifíinnsku, fundi og klögumál. í Kaliforníu end- aði þetta með orkuskorti. Hlutverk stjórnmálamanna Það verður ekki nein sátt um virkjanir, stóriðju eða aðrar fram- kvæmdir (a.m.k. ekki fyrr en efna- Þverstæður í Kína Alltaf er erfitt að átta sig á Kína og hvað þar er að gerast. Fréttamenn og pistlarýnar fialla oft um tiltekna at- burði sem eru ýmist óvæntir eða ekki. Kynstrin öll eru til af pólitiskum greiningum á öðrum þjóðum en í Kína ríkir „Lifandi þögn“ eins og í Burma (C. Fink). Atburðir eru fyrirbæri sem virðast enga þýðingu hafa nema sem efniviður í heimspekilegar vangavelt- ur enda er sannleikurinn sjaldan aug- ljós og aldrei einfaldur. Forseti íslands fv. sagði við heimkomu frá Kína að mannréttindi væru afstæð. Staðreyndir eru vandamál Ráðamenn eiga í sífelldum vanda með staðreyndir. Fyrir stuttu varð sprenging í barnaskóla í héraðinu Ji- angxi. I innansveitarfréttum mátti lesa að börn skólans hefðu verið látin búa til rakettur fyrir kennarana og kviknað hefði í. Þetta var vond frétt, stjórnvöld sendu því hina réttu frá. sér; brjálæðingur með hjónabands- vandamál hefði kveikt í skólanum. Uppákoman á Hainan er svo sem eins og annað; á allra vitorði er flug- slys sem varð kínverskum flugmanni að bana. Leikaraskapurinn er alveg skelfilegur. Sýndar voru myndir af snöktandi ekkju og föður undir bosmamiklum hvítum tjull eða siffon sængurbúnaði með himni, eins og væru þau í opinberri sorgarstofnun; freigáta með margmenni var send á slysstað með blóm. Allt fólk syrgir ástvinamissi en tæpast á hádramatísku leiksviði í sjón- varpi. Enginn utan Kína trúir því að þunglamaleg ratsjárflug- vél beri ábyrgð á árekstri við öfluga orrustuþotu. Ekki heyrðist múkk né kvein að- standenda þeirra sem létu lífið á Torgi hins himneska friðar 1991 eða þegar tugir fundust látnir í gámi í Dover. Kjallari , 'irljyi, Jónas Bjarnason efnaverkfræöingur „Rœtt er um kínverska drekann eða fílinn og gildir einu. Fréttasnápar eru eins og blindi maðurinn sem vildi vita hvaða dýr fíllinn vœri; með þukli komst hann að mismunandi niður- stöðu eftir því hvort hann snerti rana, fœtur eða hala. “ - Drekaskreytingar við hlið Palace Museum í Peking. Ofurvald og stjórnleysi Umhverfismál í Kina eru skelfileg en ástæðan er sögð vera peningaleysi. Menn hafa sem sé ekki efni á því að eyðileggja ekki landið og andrúmsloft- ið, já, gróðurinn og vatnið. Fimmtíu kolanámur eru brennandi í landinu og eld- urinn nagar sig stjómlaust dýpra í kolalögin; hugtakið gróðurhúsaloft er ekki til. Ibúar Peking fá oft sandryk í nefið, það kemur frá sí- stækkandi Gobi-eyðimörk- inni sem eykst um 2500 fer- kílómetra á ári og kaffærir heilu byggðarlögin. „Náttúruvinir í Peking" segja að ástandið sé eins og á örlagaskipinu Titanic, hljómsveit leikur tónlist á meðan skipið sekkur. Ráða- menn fagna hagvexti í suð- urhluta landsins en vilja ekkert af vandamálum vita enda flestir gamlir og kæra sig kollótta. Dr. J. Mirsky er kennari í Harvard og sérfræðingur í málefnum Kína. Hann sagði að skoðanakönnun hefði ver- ið gerð meðal 50 kín- verskra námsmanna við skólann, rjómans af náms- mönnum landsins. 49 þeirra sögðu að banda- ríska flugvélin bæri ábyrgð á slysinu og hefði auðmýkt þjóðina; afstaðan er óskiljanleg í frjálsu tjáningarumhverfi. Þús- und ára gamlir leyniþræð- ir virðast liggja á milli Kínverja. Hvaö er Kína? Þegar erlendir pólitíkusar og kaupahéðnar ræða við valdamenn, veit í raun enginn hverjir taka ákvarðanir eða hvenær. Skilaboð fara inn í valdakerfið á ógagnsæjan hátt og svar kemur einhvern tímann. Hversu mörg þrep eru í valdapýramíða mandarínanna og er þjóðin stórveldi eða máttlaus risi? Sagt er að ráða- menn vilji „halda andlitinu" og fá við- urkenningu á ábyrgð svo hægt sé að segja réttar fréttir, sem enginn trúir utan Kína. Rætt er um kínverska drekann eða filinn og gildir einu. Fréttasnápar eru eins og blindi mað- urinn sem vildi vita hvaða dýr fíllinn væri; með þukli komst hann að mis- munandi niðurstöðu eftir því hvort hann snerti rana, fætur eða hala. Mirsky segir að almenningur þar vilji eins og aðrir fá að vera í friði og þurfa ekki að óttast stjórnvöld en eng- in stjórn geti verið sterk sem ekki treystir þegnum sínum; hún óttast friðsama hugleiðsluhópa eins og Falun Gong en á enga vini. Jábræður eru þó margir þegar stöðva þarf sam- þykktir um mannréttindi. Jónas Bjarnason hagurinn hrynur vegna seina- gangs í uppbyggingu atvinnu- veganna). Það lendir fyrr eða síðar á herðum stjórnmála- manna að skera úr og taka ákvörðun. Það er óþarfi að eyða óhemju fé og tíma í „lög- formlegt umhverfismat" um virkjanir. Það eru til sérkunn- áttumenn í landinu sem geta sagt ráðherrunum það sem þeir þurfa að vita um um- hverfisáhrifin, án mikils kostnaðar. íslensku stjórnmálamenn- irnir eru ekkert verri en aðr- ir, jafnvel kjarkmeiri en stjórnmálamenn margra ann- arra landa, og hafa oft sýnt að þeir geta tekið ákvarðanir í umdeildum málum. Þeir hafa jafnvel boðið margþjóðlegum hagsmunabáknum birginn með góð- um árangri, t.d. um landhelgina, hvalveiðamar og „loftslagssamning- ana“. En með lögunum um náttúru- vernd og umhverfismat fóru íslensk- ir stjórnmálamenn langt fram úr sjálfum sér, alðarhluta eða meir, í þvi að afsala sér valdi. Friðrik Daníelsson Karlinn með sólgleraugun „Ég hef oft verið gagnrýndur fyrir helst til mikla bjart- sýni fyrir hönd ís- lensks efnahagslífs. Snjall skopmynda- teiknari teiknar for- sætisráöherrann með sólgleraugu á nefinu og helst er sólarolíubrúsi inn- an seilingar, jafnvel í roki og rign- ingu. Á hinn bógin eru auðvitað til þeir sem sjá skrattann upp um alla veggi og hafa í mörg ár spáð því að nú sé allt að fara í kalda kol. Og um leið og einn afturkippur sést ráða þeir sér ekki fyrir gleði. Hvað sögð- um við ekki, segia þeir í stundar- ánægju, en steypa sér síðan sjálfum aftur á bólakaf í heimsendaspár og hailærishyldýpi." Davíö Oddsson S aöalfundi SA í fyrradag. „Þ j óðríkisátrúnaður “ „í dreifbýlinu á ís- landi er kirkjan og ævihátíðirnar sem tengjast kirkjunni oft- ast óaðskiljanlegur • hluti af því að til- heyra einhverju sam- félagi. Oft tengist þessi sterka kennd sóknarkirkjunni sem stendur í miðj- um kirkjugarðinum þar sem forfeður og -mæður hvíla. Það er hluti af því að vera Bolvíkingur að vera skírður, fermdur, giftur og jarðaður í kirkj- unni þar vestra. íslenska þjóðkirkjan hefur þannig fram undir þetta verið n.k. „þjóðríkisátrúnaður" íslensku þjóðarinnar. Þetta er að breytast með meiri fiölhyggju og fiölbreytni, auk þess sem forsendur fyrir því að hafa svo náið samband milli ríkis og kirkju hafa veikst mikið." Sr. Halldór Reynisson í pistli á Strik.is. Spurt og svarað Eru skattalœkkanir skynsamlegar? Scevar Hélgason, framkv.stj. íslenskra verðbréfa. Eykur hagvöxt og fjáifestingar „Á aðalfundi Samtaka atvinnu- lífsins var kynnt skýrsla skattahóps og þar er sjónum einkum beint að þremur atriðum. Þau eru að tekjuskattur á fyrirtæki yrði lækkaður úr helming, eða úr 30% í 15%, að eigna- skattur á fyrirtæki verði aílagður sem og stimpilgjöld. í nálægum löndum hafa stimpilgjöldin verið afnumin víða á undanfórnum árum og rökin eru einkum að draga úr ójafnræði. Tilgangurinn með lækkun tekju- skatts á fyrirtæki væri að bæta samkeppnisskilyrði at- vinnulífsins almennt, rétt eins og gert hefur verið í mörgum samkeppnislöndum okkar. Á írlandi er tekju- skattur kominn niður í 12,5% sem aukið hefur fiárfest- ingar erlendra aðila í atvinnulifinu og það er nokkuð sem íslendingar þurfa á að halda." Björgvin G. Sigurðsson, framkvstj. Samfylkingarinnar. Lœkkum skatta á fólkið líka „Það er hægt að ná mjúkri lend- ingu i efnahagslífinu með því að lækka skatta á fyrirtækjum en sam- hliða þarf að lækka skatta á fólkið í landinu og besta byijunin væri að afnema skatta á húsaleigubótum og fé- lagslegri aðstoð og stíga skref til að draga úr sköttum á þeim hluta lífeyrisgreiðslna sem má líta á sem fiár- magnstekjur. Tafarlaus ákvörðun um breytingar af þessu tagi myndu styrkja væntingar um arðsemi fyrirtækja, gæti því leitt til verðhækkana á hlutabréfamarkaði sem ekki er vanþörf á, styrkti innstreymi fiár til landsins og gengi krónunnar. Það á að nota svigrúmið sem auðlinda- gjöld gefa til að bæta velferðarkerfið. En til lengri tíma litið á ekki að hika við að stefna að því að nota auðlinda- gjöld til að draga úr tekjusköttum einstaklinga." : . IIiSll Daníel Ámason, framkvstj. Kexsmiðjunnar. Vœri mjög til bóta „Miðað við núverandi aðstæð- ur í þjóðfélaginu tel ég að skatta- lækkanir á islensk fyrirtæki væru mjög til bóta. Rekstur fyrirtækjanna í land- inu hefur ekki gengið of vel á síðustu misserum og nú þurfa stjórnvöld að grípa til einhverra þeirra aö- gerða sem styrkja atvinnulífið. Arðsemi íslenskra fyrirtækja hefur verið of lítil upp á síðkastið og þau þvi ekki spennandi kostur fyrir fiárfesta, ef ein- hverjir eru þá til staðar. Hörgull er á fiármagni tO góðra verka í íslensku atvinnulifi og þess utan eru vaxtagjöld orðin mjög há, í sumum tilvikum allt að 20%. Það mælir því margt með skattalækkunum á íslensk fyrirtæki til að bæta stöðu íslensks atvinnu- lífs, eins og hún er á þessum tímapunkti." © 'OK TVe -go^TPM GiXXge. • BY'V? WKe toKMA Sepviíes uiiiiiiiilllllliuililll Leiknir smábáta- sjómenn? Ögmundur Jónsson, þingmaður VG. Veikir velferð- arþjónustu „Skattalækkanir á forsendum þeirra sem þessi ríkisstjóm þjónar, það er stórfyrirtækja og fiármagns, eru hvorki skynsamlegar né réttlátar. Við höfum lagt áherslu á hækkun skattleysismarka og aðrar skattaráð- stafanir sem gagnast láglauna- og millitekjuhópúm. Slíkar skattalækkanir finnast mér eðlUegar. Aftur á móti verð- um við að gera okkur grein fyrir því að velferðarþjónust- an er borguð af skattfé og við megum ekki ganga svo langt i skattalækkunum að grafið verði undan þeirri þjónustu. Veik velferðarþjónusta er ávísun á verstu kjaraskerðingu sem ég get hugsað mér. Ég vil greiða skatta til að styrkja þessa þjónustu. Hinn kosturinn er afleitur; að vera látinn greiða fyrir hana með notendagjöldúm, það er að segja skólagjöldum og sjúklingasköttum.“ Talsmenn smábátasjó- manna hafa lýst þungum áhyggjum vegna fyrirhug- aðra laga um kvótasetningu á smábáta og jafnvel spáð byggðahruni á tilteknum stöðum í kjölfarið. Þannig segir Guðrún Pálsdóttir á Flateyri í DV i vikunni um afleiðingar kvótasetningar: „Enginn kvóti í gamla afla- markskerfinu er á Flateyri lengur og smábátarnir eru einir eftir. Þetta sama á raunar við um öll byggðar- lög á Vestfiöröum. Afleið- ingar laganna verða byggðahrun á Vestfiörðum og víðar um land.“ Arthur Bogason, sá stóri smáháta- leiðtogi, tekur i sama streng í viðtali við DV og segir að fyrirhuguð „ólög“ sjávarútvegsráðherra um kvótasetn- ingu myndu nánast útrýma smábáta- sjómönnum. Hannes Hólmsteinn, sá vaski og dugmikli doktor, talaði öðrum tung- um J pistli sínum á Skjá 1 á dögun- um og taldi að það þyrfti að afnema sérréttindi smábátaeigenda og setja þá undir sömu lög og aðra, slíkt væri þjóðarnauðsyn. Og doktorinn Hann- es sagði smábátasjómenn hafa aukið hlutdeild sína í heildarafla stórkost- lega með því að notfæra sér samúð og rómantíska sýn þjóðarinnar á starf þeirra. Rómantísk rök? Hér er að ýmsu að hyggja. Líkast til er það fulldjúpt í árinni tekið hjá hinum harðskarpa Bogasyni að kvótasetning muni útrýma smábáta- Jóhannes Sigurjónsson skrifar sjómönnum. Smábátasjó- menn hafa alltaf verið á meðal vor og munu ugg- laust verða það áfram, að minnsta kosti í smáum stíl. En gefum okkur það, eins og doktor Hannes heldur fram, að kvótasetning allra smábáta sé þjóðarnauðsyn frá sjónarhóli verndunar fiskistofna, jafnræðis og af efnhagslegum ástæðum. Ör- ugglega er hægt að sýna fram á slíkt með rökum og úreikningum ýmiss konar. En það er ábyggilega líka hægt að sýna fram á hið gagnstæða með jafngildum rökum sem ekki byggjast eingöngu á forsendum sam- úðar og rómantíkur. Vísast mun auðvelt að setja fram vel rökstudda kenningu um að út- gerð smábáta sé rugl út frá heildar- hagsmunum þjóðarinnar og með ýtr- ustu arðsemiskröfur að leiðarljósi. Það er örugglega skynsamlegast, í hagrænu tilliti, að 1-2 stórútgerðar- fyrirtæki annist alla útgerð á íslandi - og að 1-2 verslunarrisar annist all- an verslunarekstur á Islandi. Á sama hátt og trilluútgerð má svo afgreiða smábýli, kaupmanninn á horninu, þorpin og á endanum sjálft ísland. ísland er sem sé örugg- lega alltof smá og óarðbær rekstrar- eining og væri best komið undir hatti einhvers stórveldis, eins og auðvelt mun reynast að sýna fram á með útreikningum sem miða að því að fá einmitt þá niðurstöðu. En, merkilegt nokk, ekki horfa all- ir eingöngu á rekstrarforsendur í öll- um málum þó vissulega stefni allt í þá áttina. Og þó Hannes Hólmsteinn harmi það þá er enn til fólk sem trú- ir því áð samúð og rómantík og önn- ur svokölluð „tilfinningarök" séu fullboðleg í ýmsum málum, ekki síð- ur en beinharðir arðsemisútreikn- ingar. Grátt leiknir En ef við hins vegar viljum endi- lega meta allt út frá efnahagslegum forsendum þá skulum við ekki gleyma því að smábátaútgerð er jafn óaðskiljanlegur hluti af íslenskri menningu og sagnaritun, eða hefur a.m.k. verið jafn lengi við lýði í land- inu eða lengur. Og nú horfa menn mjög til menningarlegrar ferða- mennsku og ætla að græða einhver ógurleg ósköp í því fyrirbæri. Og hvað vilja menn þá gera þegar og ef síðasti trillukallinn hefur dregið bát- inn í naust? Hvað skyldu margir túristar kjósa að rölta um lífvana hafnarsvæði sjávarplássanna í fram- tíðinni? Eða jafnvel um lífvana sjáv- arpláss ef svartsýnustu spár Flateyr- inga ganga eftir? Munu ferðamálafélög innan tíðar þurfa að ráða áhugaleikara yfir sum- artímann til að leika trillukalla fyrir túrista í mannlausum draugabæj- um? Og senda þá sjóveika út að morgni með 300 kíló af heilfrystum þorski og kalla þá svo inn síðdegis þegar aflinn er þiðnaður svo þeir megi landa fyrir framan myndavélar túristanna? Verða leiknir trillukallar það sem koma skal? Og hversu grátt leiknir þurfa þeir að verða áður en það gerist? lUlftrinloril nv ocl/otlo J/n-i /\nr ctrinforrt-n fanfn r\ í 1 irvrrm/Sirnm 1 oinctol/linrfo nri fi/rirtoal/i i/orAi lool/l/oTlir rm/nrlorlodo l/rinrinm noac+ii óromnt hdfi rlroriiA i'ir honcln hó r\oi/ii\ Hrlrlccon forcooticróAho 1 coriÁi hot+o ó oAolfunrli Comtol/o oti/innnlífcinc í fi/rrorlori

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.